Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 13.04.2000, Side 13

Fréttir - Eyjafréttir - 13.04.2000, Side 13
Fimmtudagur 13. apríl 2000 Fréttir 13 ýju skipi - Hann lætur vel af Kínverjum þó þeir horfi öðru vísi á hlutina en við eigum að venjast síðasta ári til að skoða skipasmíða- stöðvamar. „Þá flugum við fyrst til Peking og þaðan til borgarinnar Dalian við Gula hafið og fleiri borga vítt og breitt um Kína. Ég held að við höfum skoðað einar átta stöðvar í ferðinni sem alls tók tíu daga.“ Hallgrímur rifjar upp skemmtilegt atvik þegar þeir lentu í Peking í þessari ferð. „Eftir að við vomm lentir sáum við limmósíur renna upp að vélinni og reiknuðum við þá með því að einhver háttsettur væri í flugvélinni með okkur. Gat það alveg passað því nóg var um borðalagða menn á meðal farþeganna. Datt okkur ekki í hug að þama væri móttökunefnd til að taka á móti tveimur sveitamönnum frá Is- landi. En reyndin var önnur og var ekki litið við þeim einkennisklæddu. Við aftur á móti fengum konunglegar móttökur, var keyrt beint á fimm stjömu hótel.“ Eins kemur fram hér að framan kemur fram hjá Hallgrími að þeirra álit á skipasmíðastöðvunum hafði nákvæmlega ekkert að segja en í hönd fór samningaferli sem hann segir að hafi tekið allt of langan tíma. Opna þurfti bankaábyrgðir og auka hlutafé en það varð allt að gerast á mjög skömmum tíma. „Guðjón bjargaði því á nokkmm dögum og nú er Istún vel í stakk búið íjárhagslega til að takast á við þetta verkeíhi. „Stærstu hluthafar í Istúni hf. em Burðarás, Sjóvá-Al- mennar, Skeljungur, Hekla, Þró- unarfélag íslands, Sæhamar ofl.“ Líkar vel við Kínverja Smíði skipsins er komin vel á veg enda á það að vera tilbúið til afhendingar í ágúst þessu ári. Hall- grímur fór til Kína í byrjun janúar á þessu ári til fylgjast með smíðinni og lætur hann vel af samskiptum sínum við Kínverjana. Skipið er byggt í skipasmíðastöð sem heitir Houngan- paou og er á eyju úti á Perlufljóti. Eyjan tilheyrir borginni Gangzhou (Kanton) sem er um 80 mílur inni í landi upp af Hongkong. I skipa- smíðastöðinni vinna um 4000 manns og þar er verið að smíða átta skip af ýmsum stærðum fyrir fslendinga. „Það er greinilegt að Kínverjar ætla sér stóra hluti í smíði á skipum fyrir Vesturlönd. Samstarfið við þá gengur mjög vel og við höfum fengið allan þann búnað í skipið sem við biðjum um. En Kínveijar eru þannig að þeir vilja helst láta aðra taka ákvarðanir og þú verður að kvitta fyrir að það hafi verið þú sem valdir þetta eða hitt. Er þá sama hvort hluturinn er stór eða iítm.“ Hallgrímur býr í íbúð í skipasmíða- stöðinni og segir hann að vel sé búið að sér. „Kínveijamir eru mjög ánægðir með að við skulum vilja búa þama og vera innan um þá í stað þess að búa á fimm stjömu hóteli í borginni. Við látum okkur hafa það,“ segir Hallgrímur þegar hann er spurður um matinn sem þeim stendur til boða. „Maður verður að vera jákvæður gagnvart matnum og læra að meta það sem boðið er upp. Ég lærði strax að nota prjóna og það líkar Kínveijunum vel. Maturinn er ekkert líkur þvf sem maður á að venjast á því sem kallast kínverskir matsölustaðir á Vesturlöndum. Þeir bjóða upp á nautakjöt, svínakjöt, fisk, kjúkiinga, slöngur og krabba. Allt er þetta ágætis matur en maður þarf að venjast honum. A veitingastöðum er boðið upp á rottur sem em séraldar og miklu stærri en við eigum að venjast. Ég veit ekki hvort ég hef borðað rottukjöt en þegar manni finnst kjötið eitthvað torkennilegt segja þeir alltaf að við séum að borða kjúkling. Hef ég á tilfinningunni að það sé ekki alltaf rétt,“ segir Hallgrímur og hlær. Ofdekruð einbimi Á flestum veitingastöðum er ekki verið að burðast með frysta og kæla heldur lögð áhersla á ferska vöru. Er hún svo fersk hægt er að velja kjötið á fæti og fiskurinn er geymdur lifandi í kerjum. Einnig hefur Hallgrímur heimsótt Kínveijana á heimili Jieirra og geta þau ekki talist stór. „Ég var einu sinni boðinn í mat tii manns sem er í ábyrgðarstöðu hjá skipasmíða- stöðinni. Hann býr með fjölskyldu sinni í tíu fermetra íbúð í skipasmíða- stöðinni. Innan stöðvarinnar búa flestir starfsmennimir í annað hvort karla- eða kvennagörðum og svo fjölskyldu- búðum. Eins og allir vita mega Kínveijar aðeins eiga eitt bam og þar af leiðandi er allt látið eftir þeim. Eðlilega em bömin óþekk eftir því og hálfgerðir skæmliðar. Annars verður fólk að vera umburðarlynt í öllum samskiptum í öllum þessum fjölda. Þetta er alveg ótrúlegur fjöldi af fólki. Kínverjar em kurteisir og vingjam- legir. Eiga þeir það til að vinda sér að manni úti á götu og byija að spjalla. Það var verið að vinna í garðinum framan við húsið þar sem ég bý. Nágrannamir hafa fylgst með fram- kvæmdunum og þeir hafa alveg ákveðnar skoðanir á þeim. Hverjar þær em hef ég ekki hugmynd um en þeir láta skoðanir sínar óspart í ljós við mig. Þegar það gerist finnst mér best að tala íslensku. Þá skilja þeir nákvæmlega jafnmikið og ég.“ Fólkið inn, rottumar út Eyjamaðurinn Gunnar Steingrímsson verður yfirvélstjóri á Ófeigi VE sem er togari og túnfiskveiðiskip sem verið er að smíða fyrir Viktor Helgason. Gunnar átti að fá íbúð í skipasmíða- stöðinni eins og Hallgrímur en hún var ekki tilbúin þegar Gunnar kom til Kína. „Gunnar svaf þess vegna hjá mér fyrstu tvær nætumar eftir að hann en þriðju nóttina svaf hann í íbúðinni sinni. Þegar hann vaknaði daginn eftir sá hann eitthvað sem hann hélt að væri rottuskítur. Dong, framkvæmdastjóri skipasmíðastöðvarinnar, hélt að það gæti verið rétt en benti Gunnari á að þegar fólk flytti út flyttu rottumar inn. Svo þegar fólk flytur inn flytja rottumar út. Það getur bara tekið tvo tíl þijá daga. Gunnar var ekki alveg á að sætta sig við þetta og býr á hóteli inni í borginni." Þeir hafa gert eina tilraun til að fá Kínveija tíl að borða íslenskan mat, en það var á sprengidaginn. „Gunnar kom með saltkjöt að heiman sem var ákveðið að borða á sprengidag. Eftir að við höfðum fundið eitthvað sem líktíst rófum elduðum við saltkjötið og búðum túlkunum okkar í mat. Túlk- urinn minn, Cao Yi Bin var mjög jákvæður og lét sig hafa það að borða sig saddan. Varð honum ekki meint af íslenska saltkjötinu." Hallgrímur var hér á landi í nokkra daga fyrir skömmu en er nú farinn út aftur. Hann segir að nú fari í hönd miklir hitar, var hann kominn í 30 gráður síðast þegar hann hafði samband út. „Hitinn á eftir að fara mikið ofar og þá verður ekki gott að vera þama því rakinn er það mikill. Þá fara skordýrin líka meira á ferðina. Ég hef aðeins fengið að finna fyrir moskítóflugunum. Þær fara ekki á stjá fyrr en maður er búinn að slökkva. Þá hef ég stundum látið það eftir mér að berja frá mér í myrkrinu. Ummerkin leyna sér ekki daginn eftir því þá em blóðslettur um alla veggi út af blóðinu sem þær hafa verið að sjúga úr mér. Ég er samt heppinn að því leyti að ég bólgna ekki neitt og hef alveg losnað við öll veikindi. Reyndar fékk ég tvisvar smá sting í magann en það var ekkert sem orð er á gerandi," segir Hallgrímur Rögnvaldsson að lokum. HALLGRIMUR fylgist með smíði nýja skipsins en það er eitt af átta skipum sem Kínverjar eru að smíða fyrir Islendinga í þessari skipasmíðastöð. STÓRT stykki í nýja skipið híft á s inn stað. -KINVERJAR bjóða upp á nautakjöt, svínakjöt, fisk, kjúklinga, slöngur og krabba. Allt er þetta ágætis matur en maður þarf að venjast honum. Á veitingastöðum er boðið upp á rottur sem eru séraldar og miklu stærri en við eigum að venjast, segir Hallgrímur.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.