Fréttir - Eyjafréttir - 19.04.2000, Qupperneq 1
Gleðilegt sumar
og gleðilega páska
Gandí ehf. sameinast Vinnslustöðinni.
Hlutur Eyjamanna orðinn um 45%
Eins og getið var í Fréttum fyrir
nokkrum vikum hafa staðið yfir
samrunaviðræður milli Vinnslu-
stöðvarinnar og útgerðarfélagsins
Gandí ehf.
Á föstudag var á stjómarfundi
Vinnslustöðvarinnar samþykkt sam-
ranaáætlun við Gandí ehf. Við
samrunann verður hlutafé Vinnslu-
stöðvarinnar aukið um kr.
240.075.000 og munu hluthafar í
Gandí fá það hlutafé fyrir hlutabréf sín
í Gandí ehf.
Þessi eignarhlutur hluthafa Gandí
nemur 15,3% af heildarhlutafé
Vinnslustöðvarinnar og eru þeir þar
með komnir í hóp stærstu hluthafa í
fyrirtækinu, með Olíufélaginu, Líf-
eyrissjóði Vestmannaeyinga og Kap
hf. sem Isfélagið og Bergur-Huginn
nýlega stofnuðu og keypti stóran hlut
í Vinnslustöðinni.
Eftir þennan samruna Gandís er
hlutafé Vinnslustöðvarinnar komið í
1.565.000.000 kr. og hlutur stærstu
hluthafa þessi í prósentum:
Olíufélagið hf. 15,5%
Hluthafar Gandí 15,3%
Lífeyrissj. Vestm. 12,7%
Kaphf. 12,5%
Hlutur Gandís, Lífeyrissjóðsins og
Kap nemur 40,5% og aðrir minni
hluthafar í Vestmannaeyjum eiga hátt
í 5% af hlutafé fyrirtækisins þannig að
ætla má að hlutur Vestmannaeyinga í
Vinnslustöðinni sé í dag um 45%.
Hlýtur það að vera ánægjuleg þróun
að þetta öfluga fyrirtæki sé að miklum
hluta komið á ný í eigu heimamanna.
„Ég er mjög ánægður og sáttur við
þetta,“ segir Gunnlaugur Olafsson,
útgerðarmaður Gandís. „Vinnslu-
stöðin yfirtekur þennan rekstur og
hann verður alfarið á þeirra vegum.“
Gunnlaugur segist ekki óttast að sig
fari neitt að klæja í puttana að halda
áfram að stjóma. „Það held ég ekki.
Þetta er í góðum höndum. Maður
reynir bara að slappa af, fer kannski í
golf. Ég fór einn hring í fyrra og
stefni að því að fara þrjá í sumar, það
er ágætis aukning."
En hvemig tilfinning er það að vera
orðinn næststærsti hluthafinn í
Vinnslustöðinni?
„Þú segir nokkuð. Ég hef nú svo
sem ekkert verið að velta því fyrir
mér. Ætli það sé bara ekki alveg
ágætt,“ sagði Gunnlaugur.
Gandí á tvö skip, línuskipið Gandí
VE og neta- og snurvoðarbátinn
Guðjón VE. Vinnslustöðin ætlar að
gera Gandí út áfram en ætlunin er að
selja Guðjón.
Umdeild landtaka sauðfjárbænda
Þeir sem leið eiga um Herjólfsdal
hafa tekið eftir því að komin er
rammleg girðing austan til í
Dalnum, neðan Molda, nokkru
neðar en áður var, og allt suður að
rótuni Fiskhellanefs þar sem hún
endar.
Fjárbændur, sem halda fé sitt á Dal-
Qalli, hafa sett upp þessa girðingu, en
rétthafi svæðisins er Bjami Sighvats-
son. Mikið hefur verið kvartað yfir
ágangi sauðfjár í námunda við þetta
svæði, m.a. gerði sauðfé sig heima-
komið á golfvellinum allt síðastliðið
sumar, svo og víðar.
Hallgrímur Tryggvason, formaður
landnytjanefndar, segir að þetta sé gert
í samráði við bæinn og þjóðhátíðar-
nefnd. Leyfi hafi verið veitt til að
setja upp þessa girðingu ef með því
mætti koma í veg fyrir lausagöngu
sauðfjár eins og verið hefði. Þá hefðu
menn haft nokkrar áhyggjur af fram-
skriði hvannar fyrir neðan Mikitakstó
en talið væri að með tilkomu sauðfjár
á svæðið mætti draga úr því. „Það
kom mér reyndar á óvart hve stórt það
svæði var sem var girt af en þetta var
ekki gert í óleyfi," segir Hallgrímur.
Gísli J. Óskarsson er einn þeirra sem
á sauðfé á Dalfjalli og einn þeirra sem
stóð að uppsetningu girðingarinnar.
„Við höfum skyldum að gegna og
þeim skyldum fylgja réttindi," segir
Gísli. Við lágum undir ámæli á síð-
asta sumri vegna lausagöngu sauðfjár
og við viljum ekki vera til óþurftar,
hvað þá að á okkur sé borið að við
séum að brjóta gegn lögreglusam-
þykkt Vestmannaeyja." Gísli segir að
stækkun þess svæðis sem er nú innan
girðingar sé mjög óvemleg, líkast til
um 30 metrar til suðurs. Þama hafi
verið ummerki um girðingar frá eldri
tíð og þeir hafi fylgt þeim merkjum.
„Með þessu á að vera tryggt að sauðfé
frá okkur geri bæjarbúum ekki líftð
leitt í sumar og yfir því hljóta menn að
gleðjast," sagði Gísli.
Samkvæmt heimildum Frétta hefur
orðið einhver misskilningur um hvað
þama skuli teljast opið svæði og hvað
landnytjasvæði. Ekki munu allir að-
ilar á eitt sáttir við áðumefnda
girðingu, t.a.m. mun garðyrkjustjóri
ekki sammála staðsetningu hennar.
Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri,
sagði að þama hefði orðið smávegis
misskilningur en þama væri ekki um
stórmál að ræða, fundað yrði um það
á næstunni og það leyst í rólegheitum.
Ævar Þórisson, framkvæmdastjóri
Golfklúbbsins, sagðist ánægður fyrir
klúbbsins hönd með að búið væri að
koma upp fjárheldri girðingu þama.
„Þetta var vandræðaástand í fyrra sem
við vonum að nú sé úr sögunni. Aftur
á móti er það ekki okkar að segja til
um hvort þama hafi verið seilst of
langt, það er ekki mál GV en við
fögnum því að búið er að girða féð
af,“ sagði Ævar.
Camparimálið:
Ekkert ákveðið
með áfrýjun
Eins og getið var í síðustu
Fréttum féll dómur í máli ákæru-
valdsins, sýslumannsins í Vest-
mannaeyjum á hendur Krist-
manni Karlssyni í síðustu viku.
Kristmann var ákærður fyrir að
hafa birt áfengisauglýsingu á
bifreið fyrirtækis síns og fundinn
sekur. Var Kristmann dæmdur til
greiðslu 200 þúsund króna sektar
eða sæta ella 30 daga fangelsi, auk
greiðslu sakarkostnaðar og máls-
vamarlauna.
Kristmann sagði í viðtali við
Fréttir í gær að hann hefði ekki
tekið ákvörðun um hvort þessum
dómi yrði áfrýjað. Hann hefði ekki
hitt lögmann sinn, Ragnar Hall, og
sjálfur sagðist Kristmann vera á
leiðinni í frí og ekkert yrði ákveðið
í því máli fyrr en hann kæmi aftur.
Framkvæmdastjóri
Þrír sóttu um stöðu fram-
kvæmdastjóra Þróunarfélags
Vestmannaeyja.
Þeir sem sóttu um stöðuna em
Guðmundur Eyjólfsson, starfsmað-
ur Ocean Futures í Eyjum, Sigurður
Engilbertsson tæknifræðingur og
Þorsteinn Sverrisson sem er að
ljúka námi viðskipta- og hagfræði.
Guðjón Hjörleifsson í stjóm Þró-
unarfélagsins segir að Þorsteinn
hafi verið ráðinn og hefur hann
störf 1. júní nk.
Þorsteinn er Vestmannaeyingur,
sonur Kolbrúnar Þorsteinsdóttur og
Sverris Gunnlaugssonar skipstjóra.
■ 1 > ■ TM-ÖRYGGI
_@L FYRIR
ÖRVGGI FJÖLSKYLDUNA
Sameinar öll trý'ggingamálin
- a olluni svidurr;1 , . á einfaldan og hagkvæman hátt
Bilaverkstæðið Bragginn s.f.
iRétitiiífiigar <otg spraiiiituirii
Flötum 20 - Sími 481 1535
Vidgfeyðro rog srniaifstö'ð
Vetraráætlun
Alia daga n/sun.
Sunnudaga
Aukaferð föstud.
Fra Eyjum
kl. 08.15
kl. 14.00
kl. 15.30
Frá Þorlákshöfn
kl. 12.00
kl. 18.00
kl. 19.00
sÉh Heriólfur Tværferðir á föstudögum!
IICIJUIIUI Sími 481 2800 - Fax 481 2991