Fréttir - Eyjafréttir - 19.04.2000, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 19. apríl 2000
Fréttir
13
Sex mánaða uppgjör Vinnslustöðvarinnar:
Tapið 68 milljónir á móti
605 milljónum á síðasta ári
Sex mánaða uppgjör Vinnslu-
stöðvarinnar hf. var lagt fram á
stjórnarfundi á föstudaginn. Tap á
rekstri félagsins á fyrstu sex mán-
uðum rekstrarársins var 67,5
milljónir króna. Er tapið minna en
áætlanir gerðu ráð fyrir en á
aðalfundi Vinnslustöðvarinnar í
desember sl. var gert ráð fyrir að
tapið yrði allt að 100 milljónir fyrsta
hálfa ár rekstrarársins sem hófst 1.
september sl.
Mikill viðsnúningur til hins
betra
Viðsnúningur er mikill, sé litið til
sama tíma á síðasta rekstrarári hjá
Vinnslustöðinni þegar tapið var hvorki
meira né minna en 605,4 milljónir
króna fyrstu sex mánuði ársins.
Rekstrartekjur núna voru 826.517.869
krónur á móti 1.046.068.257 krónum
fyrstu sex mánuði síðasta rekstarárs.
Rekstrargjöld lækka umtalsvert meira,
eða úr 1.112.668.754 krónum í
724.510.737 krónur.
I frétt frá Vinnslustöðinni segir að
afkoman sé heldur betri en áætlanir
gerðu ráð fyrir. Fjármagnsgjöld voru
lægri en áætlað var sem skýrist af
gengishagnaði og hárri verðbreytinga-
færslu. Hins vegar var framlegð
félagsins lakari en gert var ráð fyrir
sem skýrist að öllu leyti af lægra
afurðaverði í loðnu. „Þrátt fyrir að
loðnuveiðar haft gengið vel á nýlið-
inni vertíð var afkoma uppsjávardeilda
félagsins slök. Þannig var framlegð
uppsjávarhlutans tæpum 100 millj-
ónum króna lakari en áætlað var.
Framlegð bolfiskveiða og vinnslu var
á hinn bóginn í samræmi við
áætlanir," segir í fréttinni.
Það sem breyst hefur frá aðalfundi
er að gengi krónunnar hefur hækkað
undanfama mánuði og mun það ásamt
lækkandi verði loðnuafurða, einkum
lýsis, leiða til 40 milljón króna
samdráttar í framlegð félagsins á
seinni hluta rekstrarársins auk þess
sem launahækkanir munu leiða til
hærri rekstrarkostnaðar. Gert er ráð
fyrir lítils háttar tapi af reglulegri
starfsemi félagsins á rekstrarárinu en
bent er á að breyting á gengi krón-
unnar seinni hluta rekstrarársins getur
haít veruleg áhrif á afkomuna.
Hefði viljað sjá meiri tekjur
„Ég hefði viljað sjá 100 til 150
milljónum hærri tekjur en raun varð
á,“ segir Sigurgeir Brynjar Krist-
geirsson framkvæmdastjóri Vinnslu-
stöðvarinnar um afkomuna. „Ofboðs-
legt verðfall á loðnu og lýsi hefur áhrif
til hins verra og það sama gildir um
hátt gengi íslensku krónunnar. Svo
dæmi sé tekið þá er tekjusamdráttur
Vinnslustöðvarinnar á heilu ári 125
milljón krónur miðað við veltu upp á
2,5 milljarðar þegar einungis er tekið
tillit til 5 - 6% styrkingar krónunnar á
undanfömum mánuðum."
Mikill niðurskurður á
gjöldum
Mismunur á rekstrartekjum milli ára
erekki nema 180milljónirkróna, og
hefði orðið sáralítill hefðu áætlanir í
uppsjávarveiðum gengið eftir. Rekstr-
argjöld hafa aftur á móti lækkað um
hvorki meira né minna en 388
milljónir króna. Hver er skýringin á
þessu?
„Við emm að vinna u.þ.b. jafn
mikið af eigin fiski og áður en á færra
fólki. Hins vegar emm við ekki að
kaupa eins mikinn fisk á mörkuðum
og vinnum ekki Rússafisk sem var dýr
en gaf lítið í aðra hönd. Við höfum
líka reynt að minnka umfangið eins og
kostur er og emm á réttri leið í
rekstrinum þó það gangi ekki alveg
nógu hratt.“
Þann 1. maí 1999 vom alls 320
manns á launaskrá hjá Vinnslu-
stöðinni og þar af 70 í Þorlákshöfn.
„Núna em um 150 starfsmenn hjá
okkur og allir í Vestmannaeyjum. A
loðnuvertíðinni í vetur komst þessi
tala upp í 280, 200 manns í landi og
80 sjómenn. Auðvitað er sárt að þurfa
að fækka fólki en okkur var nauðugur
einn kostur. A móti kemur að í dag er
mikil og stöðug vinna hjá öllu okkar
starfsfólki. Það er orðið nokkuð sfðan
fallið hefur úr dagur í vinnslunni og ég
vona að þeir heyri sögunni til þó að
reyndar séu haustin alltaf erfið.“
Hóflega bjartsýnn
Binni er hóflega bjartsýnn á næstu
mánuði og segir hann að afkoman
ráðist m.a. af sumarloðnunni. „Það er
spuming hvort hún gefur sig til eða
ekki. Við munum reyna við kol-
munnann eins og undanfarin ár en
hann skiptir minna máli því veiðar og
vinnsla á honum standa í besta falli
undir kostnaði."
Þegar þú lítur yfir síðasta áríð hjá
Vinnslustöðirmi, ertu þá ánœgður?
„Nei, ég er ekki ánægður. Ég hefði
viljað sjá betri útkomu í sex mánða
uppgjörinu en við emm þó á réttri
leið,“ sagði Binni að lokum.
Arnór bakari
skrifar:
Ný og
fersk
brauð
alla daga
Að vera bakari í Vestmannaeyjum
er skemmtilegt og lifandi starf.
Þetta hefur verið lífsstarfið mitt í 25
ár og gæti ég ekki hugsað mér að
venda um í eitthvað annað ótil-
neyddur..
Þrjú góð bakarí eru á eyjunni
okkar og hafa þau öll kappkostað
að veita viðskiptavinum sínum það
besta.
Ný og fersk brauð em svo sjálf-
sögð krafa, svo sjálfsögð, að ekki
fannst mér ástæða til að skrifa um
aldur brauða fyrr en nú. Innflutn-
ingur á brauðum og kökum til Eyja
er ekkert tiltökumál ef samkeppni
þriggja bakaría teldist ekki nóg,
ekki er um fákeppni að ræða á
markaðinum.
En samt skal borið í bakkafullan
lækinn þó ekki sé alltaf ferskvatn í
þeim læk.
Nú skal talað um mismuninn, öll
brauð frá bökurum í Vestmanna-
eyjum eru fjarlægð úr hillum
verslunar að kvöldi því að daginn
eftir, þegar þau hafa náð 26 klst.
aldri, teljast þau ekki söluhæf. Þá
em í sömu hillu brauð frá Risanum
í Reykjavík, alla vegana 20 klst.
gömul, og seld á fullu verði.
Bakarar í Eyjum selja dagsgömul
brauð langt undir því verði.
En eitthvað hefur farið illa um
risann undanfarið í hillum þessara
verslana og nú skal aukið við hann
plássið því mér er tjáð að þetta sé til
að svara eftirspum og þetta sé aukin
þjónusta við kúnnann.
Það skal tekið fram að Vömval og
Heildverslun HS selja eingöngu
brauð frá bökumm í Eyjum.
Höldum atvinnu í
Vestmannaeyjum.
Þakka viðskiptin
Arnór Hennannsson
bakarameistari.
Rekstrarreikningur 1.sept-
ember 1999 - 29. febrúar 2099
Rekstrar-
reikningur 1/9’99 1/9’98 Breyting
Rekstrartekjur 826,5 1,046,1 -21,0%
Rekstrargjöld 724,5 1,112,7 -34,9%
Afskriftir 211,7 213,6 0,9%
Fjármagnsgjöld
nettó 39,4 -193,4
Tap af reglulegri
starfsemi
fyrir skatta -70,3 -473,6 -85,2%
Aðrartekjur ■■■■■■■■■■■■■[■■■
og gjöld 2,7 -131,7
Hagnaður (tap)
tímabilsins -67,6 -605, -88,8%
Efnahagur
Eigið fé i árslok 1,669,4 1,697 -1,6%
Heildarskuldir 3,829,2 3,983,0 -3,9%
Skuldirog
eigið fé alls 5,498,61 5,679,9 -3,2%
Kennitölur
Veltufjárhlutfall 0.97 1.10
Eiginfjárhlutfall 30.4% 29.9%
Vignir Jóhannsson myndlistar-
niaður opnaði fyrstu einkasýningu
sína í Gallerí Áhaldahúsinu á
Myndlistarvori Islandsbanka.
Þetta er önnur sýningin af fjórum
á myndlistarvorinu að þessu sinni.
Sýning Vignis stendur saman af
vatnslitamyndum, olíuverkum og
einu gólfverki, sem hann gerði
sérstaklega fyrir sýninguna í
Eyjum. Vignir vinnur út frá
huglægum gildum og er honum
tíminn og hvernig hann líður í fólki
ofarlega í huga. Góð mæting var á
Vignir Jóhannsson á Myndlistarvori íslandsbanka:
Tíminn og fólkið
sýninguna um helgina og lýsti
Vignir mikilli ánægju með
viðbrögð Eyjamanna með hana.
Myndlistin er samræða milli
listamannsins og áhorfandans, en
rr á milli eru verk listamannsins,
sem fara undir dóm áhorfandans,
vilhallan cða ekki. En til þess að
slíkur dómur verði marktækur
þarf myndlistarlegt uppeldi að
hafa átt sér stað í samfélaginu og
skynjun, og meðvitund fólks um
gildi myndlistarinnar fyrir
menningarsamfélag að vera reist á
þekkingu. Samfara þekkingunni
kemur víðsýni sem getur auðgað
samfélagið bæði að skilningi
manna á milli og ekki síður eflt
frumlega hugsun.
Sýningin er opin frá 20.-24. apríl,
frá kl. 14.00 -18.00 og eru allir
velkomnir.
GÓLFVERK sem Vignir gerði sérstaklega fyrir sýninguna í Eyjum.
LISTAMAÐURINN á tali við mektarmennina, Jóa á Hólnum og
Odd Júl.