Fréttir - Eyjafréttir - 19.04.2000, Blaðsíða 2
2
Fréttir
Miðvikudagur 19. apríl 2000
Nú er að komast endanleg mynd á nýjan Hugin í skipasmíðastöðinni Asmar í Talcahuano í Chile.
Grímur Gíslason, sem hefur eftirlit með smíðinni, segir að ákveðið sé að sjósetja Hugin þann 6. maí. „Það
kemur til með að standast en afhending er áætluð 31. júlí. Eg hef ákveðnar efasemdir um að sú
dagsetning standist. Það er byrjað að ganga frá vélum og búnaði í vél og vinna við lagnir er í fullum gangi.
Þá er verið að sandblása skrokkinn og er byrjað að smíða innréttingar á verkstæði,“ sagði Grímur. Til
að gera sér grein fyrir stærð skipsins, þá er brúin ein og sér 100 fm.
Grímur segir að afhending geti tafíst um einhverjar vikur en þá tekur við heimsigling sem tekur 24
Héraðsdómur Suðurlands:
Þrír Eyjamenn dæmdir fyrir
líkamsárásir og fíkniefnabrot
fréttir
Skólanefnd FÍV
Á fundi bæjarráðs á mánudag lá
fyrir ósk frá menntamálaráðuneyti
um að bæjarsljórn tilnefni tvo
aðalfulltrua og tvo varafulltrúa í
skólanefnd Framhaldsskólans fyrir
15. maí nk. Þessir fulltrúar munu
verða tilnefndir á næsta fundi
bæjarstjórnar.
Hermann átelur sleifarlag
Á túndi skólamálaráðs, þann 1..
apríl sl. iét Hermann Einarsson
bóka að hann harmaði það sleifar-
lag sem einkenni samskipti ein-
stakra deilda innan sveitarfélagsins.
Það komi m.a. fram í því að lillaga,
sem samþykkt var í skólamálaráði
17. nóv. 1999 og senda átti tækni-
deild, var ekki send fyrr en fjórum
mánuðum síðar eða 17. mars sl.
Hermann vill víta þessi vinnu-
brögð, þau beri volt lítilsvirðingar í
garð tillögunnar sem fjallar um
aukið öryggi nemenda Barnaskóla
Vestmannaeyja.
Gjaldskrá leikskóla
hækkar
Vegna breytinga, sem orðið hafa á
launavísitölu lrá 1. nóv. 1999 til 1.
mars sl. hækka skólagjöld á leik-
skólum og skóladagheimili um
2,43% og verður viðmiðunargjald á
mánuði kr. 2.005 fyrir hverja klst.
Neysluvísitala hefur á sama tíma
hækkað um 0,83% og verður því
fullt l'æði á Rauðagerði 3.715 kr. á
mánuði, morgun- eða síðdegis-
hressing á Kirkjugerði og Sóla
1.274 kr. á mánuði og léttur
hádegisverður á Kirkjugerði og
Sóla 1.710 kr. á mánuði. Þessar
hækkanir taka gildi 1. maí nk.
Misjafnarskoðanir
umsamræmdpróf
Samræmd próf 10. bekkja heljast í
næstu viku og vcrður f'yrsta prófið á
fimmiudag, þann 27. apríl. Aðeins
einn kennsludagur er fyrir prólin að
loknu páskaleyfi og hafa margir
lýst yfir óánægju sinni með það
fyrirkomulag, telja að iieiri daga
þyrfti til upprifjunar fyrir sam-
ræmdu prófin.
Bergþóra Þórhal 1 sdóttir, skólastjóri
Hamarsskóla, segist ekki ú sama
máli. „Ég er alls ekki óánægð með
þetta fyrirkomulag. Ég lít svo á að
páskafríið sé kærkomið upplestrar-
frí og nemcndum beri að nota sér
það. Ég veit að margir eru mér
ósammála en mér iinnst þetta gott
fyrirkomulag,“ segir Bergþóra.
Á næsta ári, 2001. verður hið
sama uppi á teningnum, þá munu
prófin heijast 20. apríl og aðeins
einn kennsludagur að afloknu
páskaleyfi, rétt eins og nú.
Þakplöturfuku
Lögreglan hafði í nógu að snúast í
norðanbálinu sem gekk hér yfir á
föstudag og laugardag, Var aðal-
lega um að ræða þakplötur sem
voru að fjúka, ásamt ýmsu öðru
lauslegu.
Leiðrétting
Ein villa slæddist inn um ferm-
ingarbömin frá árinu 1952 í síðasta
blaði. Þar sagði að Atli Örvar hefði
átt heima á Brekku en það er rangt.
Hann átti heima í Ásnesi, að Skóla-
vegi 7.
Þann 24. mars sl. var í dómþingi
Héraðsdóms Suðurlands kveðinn
upp dómur yfir þremur Vest-
mannaeyingum sem allir eru um
tvítugt. Akærandi var ákæru-
valdið, lögreglustjórinn í Vest-
mannaeyjum.
Allir voru þeir þrír ákærðir fyrir
grófar líkamsárásir, ýmist allir saman
eða hver í sínu lagi. Þær líkamsárásir
áttu sér stað árið 1998. Þá voru tveir
þeirra ákærðir fyrir fíkniefnalagabrot
Breyttar áherslur hjá KÁ í kaupum
á brauðum og eggjum valda fram-
leiðendum og eigendum Sæfellsbús-
ins og Vilbergs-kökuhúss áhyggj-
um. Telja þeir að þessar breytingar
geti orðið til þess að þeir verði að
segja upp fólki.
Bergur Sigmundsson hjá Vilberg
og Halldór Bjamason hjá Sæfells-
búinu segja að nýr samningur KÁ við
Mylluna og Nesbúið geti haft áhrif á
rekstur fyrirtækjanna. „Auðvitað
gemm við okkur grein fyrir því að við
verðum að standa okkur í samkeppni
og getum lítið sagt við því þó KÁ
kaupi inn brauð og egg ofan af landi,“
sögðu þeir í viðtali við Fréttir. „En við
en samtals funduðst 13,7 grömm af
hassi í fórum þeirra. Þá var annar
þeirra tveggja dæmdur vegna ölvunar-
aksturs.
Þeir þremenningar vom fundnir sekir
um nær öll ákæmatriði. Var þeim sem
þyngsta refsingu hlaut gert að sæta
fangelsi í þrjá mánuði, skilorðsbundið
til tveggja ára. Annar hlaut tveggja
mánaða fangelsisdóm, einnig skilorðs-
bundið til tveggja ára. Sá var einnig
dærndur til 37 þús kr. sektar og
sættum okkur ekki við ef reynt verður
að ýta okkur út af markaðnum. Við
viljum fá að keppa á jafnréttis-
gmndvelli," bættu þeir við.
Bergur segist hafa fengið skilaboð
um að minnka skammtinn til KA all-
vemlega. „Það er verið að vega að
atvinnu í bænum. Hjá mér vinna 12
manns og í Sæfellsbúinu er ein heil
staða. Ef við höldum ekki okkar hlut
hjá KÁ þýðir það bara eitt, við
verðum að segja upp fólki sem er
mjög miður eins og ástandið er í
Eyjum. En við ætlum ekki að gefast
upp og ætlum því að höfða til
Vestmannaeyinga og hvetja þá til að
versla við fyrirtæki í heimabyggð. Við
sviptingar ökuleyfis í fjóra mánuði.
Sá þriðji var dæmdur til 45 daga
fangelsisvistar, sömuleiðis skilorðs-
bundið til tveggja ára. Þeir þre-
menningar vom dæmdir til greiðslu
alls sakarkosmaðar. Lagðar vom fram
tvær skaðabótakröfur á hendur þeim,
vegna líkamsárása, samtals að upp-
hæð rúmlega 750 þús. kr. en þeim
kröfum var báðum vísað ffá dómi.
Ólafur Börkur Þorvaldsson, dóm-
stjóri, kvað upp dóminn.
emm að bjóða ný brauð og ný egg og
það ætti fólk að kunna að meta. Það er
meira en keppinautar ofan af landi
geta boðið því „innflutt“ brauð em
sólarhringsgömul þegar þau koma til
Eyja en svoleiðis brauð seljum við í
Vilberg á 100 krónur," sagði Bergur.
Halldór sagði að framtíð Sæfells-
búsins gæti oltið á því að hann héldi
sínum hlut hjá KÁ. „Frá mínum
bæjardyrum séð finnst mér sjálfsagt
að á meðan KÁ vill að við Eyjamenn
verslum við þá að þeir versli við okkur
á meðan við bjóðum sömu gæði og
verð sem við gemm öll,“ sagði
Halldór.
fréttir
Spilavist
I allan vetur hefur verið spiluð fé-
lagsvist af fullum krafti í Al-
þýðuhúsinu á þriðjudagskvöldum.
Þessi spilakvöld hafa verið á
vegum átthagafélaga Austfirðinga
og Norðlendinga í Vestmanna-
eyjum og er komin maigra ára hefð
fyrirþessari starfsemi. Iveturhelúr
verið spilað á sjö til tólf borðum á
hverju kvöldi.
Oft hefur dregið úr aðsókn unt
páska en nú verður keyrt áfram á
fullu og spilað næstu þrjá þriðju-
daga í röð. Vegleg peningaverð-
laun em í boði. Þarna er kjörið
tækifæri fyrir fólk til að hittast yfir
spilum og spjalla saman. Aðgangs-
eyrir er 600 kr. og allir em
hjartanlega velkomnir, ekki bara
Áustfirðingar og Norðlendingar
heldur líka Sunnlendingar, Þingey-
ingar, Reykvíkingar, Vestmanna-
eyingar og allir þeir sent hafa
gaman af að spila. Spilakvöldin
hetjast kl. 20.30 en frá kl. 20 til
20.30 er þeim kennt að spila sem
ekki hafa áður spilað félagsvist.
Þetta er kjörið tækifæri til að eiga
skemmtilega kvöldstund og hvfla
sigásjónvarpi. Fréttatilkynning
Aukinn erill
Alls vom 184 færslur í dagbók lög-
reglu í sl. viku og eru það nokkuð
fleiri færslur en í vikunni þar á
undan. Helgin var einnig fremur
erilsöm, frá föstudegi fram til
sunnudags voru 42 bókanir sem
einnig er heldur meira en í vikunni
á undan.
Fórhúsauillt
Á fimmtudag í síðustu viku var
lögreglu tilkynnt að maður hefði
kontið óboðinn inn á heimili í
bænum, vemlega ölvaður. Losaði
lögregla húsráðendur við þennan
óboðna gest og fékk hann að gista
fangageymslu þar til af honum var
mnnið. í ljós koin að þessi heim-
sókn lians v;n ekki vegna ófróm-
leika heldur hafði hann einfaldlega
farið húsavillt en slíkt getur hent
þegr Bakkus er með í för.
Hættulegurleikur
Alls komu 13 umferðailagabrot til
kasta lögreglu í vikunni. 1 þremur
tilvikum hafði bifreiðum verið lagt
ranglega. tveir vom teknir fyrir of
hraðan akstur og fimm hötðu
vanrækt að færa ökutæki til skoð-
unar. Önnur brot voru minni hátttn
ef frá er tekið að í einu þeirra voru
ungmenni á línuskautum staðin að
því að hanga utan í bíl og láta hann
draga sig. Er þar um að ræða
hættulegan leik og þarf lítið að fara
úrskeiðis þannig að slys hljótist af.
Últöpp í umferðinní
Þrjú umferðaróhöpp vom tilkynnt
lögreglu í vikunni. Ekkert þeirra
var alvarlegt og engin slys á fólki.
Brids á föstudag
Lítið hefur farið fyrir starfsemi
Bridsfélagsins í vetur en nú verður
úr því bætt og spilað á föstudaginn
langa. Nanar er getið um þetta í
auglýsingu í blaðinu í dag.
FRETTIR
I
Útgefandk Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir
Jónsson. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481 -
1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt i áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum
Friðarhöfn, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. FRETTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.
Vilberg-kökuhús og Sæfellsbúið:
Höfða til Vestmannaeyinga