Fréttir - Eyjafréttir - 19.04.2000, Side 10
10
Fréttir
Miðvikudagur 19. apnl 2000
Gömlu myndimar í dag eru úr safni Ólafs Guðmundssonar frá
Eiðum og báðar teknar á svipuðum slóðum. Myndin að ofan er
tekin frá húsinu Hlíð sem stóð rétt sunnan þess sem hús Líf-
eyrissjóðsins er í dag. I forgmnni er kartöflugarðurinn í Hlíð
og húsið fyrir miðri mynd er gamla Kratabúðin, Kaupfélag
alþýðu. Þar var seinna afgreiðsla Flugfélags íslands en nú er
þama hús Lífeyrissjóðsins. Vömhús Einars Sigurðssonar (þar
sem nú er Athafnaverið og Café María) ber yfir Kratabúðina.
Til vinstri er húsið Nýlenda, sem enn stendur og stóra húsið
með kvistinum er Skuld sem var rifin á sjöunda áratug aldar-
innar til að opna fyrir umferð af Skólavegi niður á Vesturveg.
Neðri myndin er einnig tekin frá húsinu Hlíð. Þar var
kúabúskapur fyrr á ámm en þama er tekið að halla undan fæti
í honum eins og sést af húsakostinum. Við vinstra fjóshomið
er útikamar. Sá kamar var uppmnalega á bátnum Kap þegar
báturinn kom til landsins frá Noregi. Slíkt lúxustæki var ekki
talið nauðsynlegt til sjós og því var hann færður heim til
útgerðarmannsins þar sem hann þjónaði heimilisfólki í Hlíð
vel og dyggilega um langa hríð.
Á myndinni sjást einnig hús við Skólaveg, lengst til vinstri er
hlaðan á Gmndarbrekku sem enn stendur, lítið breytt. Fyrir
miðri mynd er Búðarfell sem enn stendur. „Sturluhöllin“ þar
fyrir ofan er Skólavegur 10, þar bjó m.a. Kjartan Guðmunds-
son ljósmyndari, það hús er nú búið að rífa og þar fyrir ofan er
svo Armót sem enn stendur.
Tónleikar
Landakirkju
Nk. mánudag, sem er annar páskadagur, verða orgel-
og flaututónleikar í Landakirkju kl. 17.00.
Þar leikur Védís Guðmundsdóttir á þverflautu
og Guðmundur H. Guðjónsson á orgel.
Fjölbreytt efnisskrá frá Boch, Handel, Boccherini, Mendelsohn, Frank og fl.
Aðgongseyrir 800 kr.
Feðginin VG og GHG
40 ára
Miðvikudaginn 26. apríl nk. verður
Grímur Gíslason 40 ára.
í tilefni afmælisins bjóða hann og
Bryndís þeim sem vilja samfagna með
þeim til afmælisteitis í Akóges
laugardaginn 22. apríl kl. 20.00
Er áfengi vandamál í þinni fjölskyldu?
Al-Anon
fyrir ættingja og vini alkóhólista
Fundir á þriðjudögum kl. 20.30
Byrjendafundir kl. 20.00
að Heimagötu 24
OA
OA fundireru haldnir í
tumherbergi Landakirkju
(gengið inn urn aðaldyr)
mánudaga kl. 20:00.
Rúllu-, trárimla- og
plíseraðar gardínur
Hansahurðir
HÚSEY
EJ
HÚS
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
VESTMANNAEYINGA
t
Sonur minn og bróðir okkar
Oskar Eggertsson
Sóleyjargötu 12
Vestmannaeyjum
lést mánudaginn 16. apríl sl.
Jarðarförin fer fram frá Landakirkju
laugardaginn 22. apnl nk. kl. 14.00.
Jóna Guðrún Olafsdóttir
Ólafur Eggertsson Svava Eggertsdóttir
Gunnar M. Eggertsson Guðfinna E. Eggertsdóttir
Sigurlaug Eggertsdóttir
AA fundir
AA fundir eru haldnir sem hér
segir að Heimagötu 24:
sun.kl. 11.00 ogkl. 20.00, AA-bókin
mán. kl. 20.30, Sporafundur, reyklaus
þri. kl. 20.30, kvennadeild
mið. kl. 20.30, reyklaus
fim. kl. 20.30,
fös. kl. 19.00, reyklaus, og 23.30,
lau. kl. 20.30, opinn fjölsk.fundur.reykl.
lau. kl. 23.30, ungtfólk.
Móttaka nýliða hálfri klst.
fyrir hvern auglýstan fundartíma.
Athugið símatíma okkar sem eru
hvern dag, hefjast 30 mín. fyrir
ákveðinn fundartíma
og eru 2 klst. í senn.
Sími 481-1140
Skemmtun
Þroskahjálpar og Skátafélagsins Faxa
á sumardaginn fyrsta er frestað
um óákveðinn tíma.
Nánar auglýst síðar
ÞROSKAHJALP
VESTMANNAEYJUM