Fréttir - Eyjafréttir - 04.05.2000, Qupperneq 13
Fimmtudagur 4. maí 2000
Fréitir
13
Lára Emilsdóttir skrifar:
Svona gera menn ekki
Ég get ekki lengur orða bundist, ég
bara verð að láta þetta frá mér fara.
Ég er búin að vera áskrifandi að
Fjölsýn okkar Eyjamanna í tæp fimm
ár og hef ég greitt hvem einasta
mánuð þann tíma en ýmislegt hefur nú
komið upp á. Það sem toppaði það allt
var að svokallaður þjónustufulltrúi
þeirra hjá Fjölsýn skellti símanum á
mig héma um daginn.
Sagan er sú að ég er í greiðslu-
þjónustu Sparisjóðsins og ég hef lent í
því að Fjölsýn hefur verið mgluð hjá
mér mánuð eftir mánuð. Ef ég hringi í
Fjölsýn er sagt: „Þú skalt bara tala við
Sparisjóðinn, góða“ sem ég hef og
gert. Þar hef ég alla tíð fengið góða
þjónustu, en ekki dónaskap. Svo var
það núna 10. apríl sem seinast var
ruglað hjá mér og ég ætlaði nú bara
ekki að trúa þessu, einu sinni enn, jæja
ég hringi í Fjölsýn. Jú það passaði, allt
ruglað, bara tala við Sparisjóðinn
góða, var mér sagt, sem ég og gerði.
Eftir athugun hjá þeim kom fram að
Fjölsýnarfólk (sem sendir Sparisjóðn-
um nöfn þeirra sem á að gera
greiðsluseðil á) hafi bara tekið upp á
því að setja við mitt nafn að ég vilji
lata setja þetta á greiðslukortið mitt.
Ég hef ekki beðið um það, enda er ég
í greiðsluþjónustu og þarf ekki annað.
Ég talaði við Jón hjá Fjölsýn að
degi til og hann bað mig að hringja í
sig um kvöldið en hann var viss um að
ég hafði beðið um að áskriftin yrði sett
á greiðslukortið mitt og þegar ég
Ég bað hann að tala ekki
svona til mín því hann væri
að tala við viðskiptavin. Ég
væri að kaupa þjónustu hjá
honum. Þá skellti hann á
mig símanum, og missti þar
einn kúnna.
hringi heim til hans var hann alveg
viss um og tjáði mér að ég hefði greitt
með korti allt þetta ár (sem ég hef ekki
gert, allavega hef ég greiðsluseðil frá
þeim en ekkert hefur komið á kortið
mitt). Ég var búin að spyija hann hvort
þetta gætu verið mistök, hvort það
væri einhver önnur sem beðið hafði
um þessa kortafærslu en hann sagði að
þetta væru ekki mistök hjá þeim. Ég
hefði beðið um þetta.
Þá spurði ég af hveiju væri þá
rugluð hjá mér útsendingin ef ég
greiddi með korti. Það var lítið um
svör við því, nema hann sagðist vera
búinn að opna hjá mér og tjáði ég
honum að það væri búið að greiða
þeim. Það gerði þjónustufulltrúi minn
hjá greiðsluþjónustunni. Jú mikið rétt
það var búið að opna hjá mér Fjölsýn,
en það var virkilega óskýrt. Ég gat
ekki horft á þrjár rásir frá þeim.
A þriðja degi hringdi ég eina
ferðina enn í Fjölsýn og var mér tjáð
að við hlytum að hafa fiktað í loftnets-
greiðunni og fært hana til sem ég
sagði að við hefðum ekki gert. Jón
var þess samt fullviss að við hefðum
gert eitthvað slfkt. Ég sagði eins og
var, að þetta hefði verið í lagi þangað
til þeir rugluðu, en þegar aftur var
opnað var þetta svona hjá okkur. Ég
vildi bara vita hvort eitthvað væri að
útsendingunni. Nei, þetta er ekki hjá
okkur, svaraði hann og var orðinn
verulega fúll og ég líka svo ég spurði
hann hvort það væri nokkuð örbylgju-
ofninn minn sem truflaði (hann sagði
einu sinni við mig að hann gæti truflað
sjónvarpið). Hann varð alveg æfur og
var ruddalegur. Ég bað hann að tala
ekki svona til mín því hann væri að
tala við viðskiptavin. Ég væri að
kaupa þjónusm hjá honum. Þá skellti
hann á mig símanum, og missti þar
einn kúnna.
Ég sæi Ingimar í Vöruval í anda
henda út viðskiptavini sem væri
eitthvað fúll við hann. Svoleiðis á
bara ekki að reka fyrirtæki.
Lára Emilsdótlir
Isólfur Gylfi Pálmason skrifar:
Útboð í siglingar milli
Vestmannaeyja og lands!
Það hefur vakið
verulega athygli í
Vestmannaeyjum
að samgönguráð-
herra, Sturla
Böðvarsson, í um-
boði ríkisstjómar
Islands, hefur
boðað að bjóða
skuli út farþega-
og ferjusiglingar milli lands og eyja.
Hér er um verulega stefnubreytingu að
ræða þar sem fyrrverandi sam-
gönguráðherra, Halldór Blöndal, sagði
á fundi í Vestmannaeyjum í fyrra að
ekki stæði til að bjóða út þennan
rekstur Heijólfs. Það er því eðlilegt að
margan reki í rogastans yfir þessari
ákvörðun enda hefur hún komið
verulega á óvart. Röksemdir sam-
gönguráðherra í málinu em
ÉES-samningurinn og útboðsstefna
ríkisstjómarinnar.
Hér er um nokkuð viðkvæmt mál
að ræða sem ég hef tekið upp á
Alþingi. Ekki hvað síst út af
óvissuástandi sem skapaðist hér í
starfsmannahaldi á Herjólfi, þar sem
menn vissu ekki síðla á síðasta ári
hver framvinda málsins yrði. Einnig
vegna íbúa bæjarins, því Heijólfur er
auðvitað hin trausta brú Vestmanna-
eyinga við fastalandið, því nú er ljóst
að göng milli lands og eyja em í
óraíjarlægð, mikið lengra frá en menn
hafa látið líta út fyrir. Hins vegar var
mjög eðililegt að skoða það mál
vandlega, sem þegar hefur verið gert.
I svömm samgönguráðherra við
fyrirspum minni kom fram að útboð
færi fram í febrúar eða mars á þessu
ári. Ekki hefur enn bólað á útboðs-
auglýsingu. Þá kom og fram, sem
miklu máli skiptir fyrir Vestmanna-
eyinga, að ekki stæði til að minnka þá
þjónustu sem Herjólfur veitir. Þetta er
auðvitað gmndvallaratriði. Annað
atriði sem kom fram í svari ráðherra
við fyrirspurn minni, sem ekki hafði
komið skýrt fram áður, var að
Herjólfur má bjóða í þessa starfsemi
en auðvitað hefúr Heijólfur byggt upp
Hvergi hefur komið fram að
eftirlitsnefnd EES hafi kært
það fyrirkomulag sem er á
feijusiglingum milli lands
og eyja, eins og því er
komið fyrir í dag. Einnig
kemur fram að ekkert
bannar öðmm skipafélögum
að keppa við Heijólf um
siglingar, treysti skipafélög
sér til þess.
Ég sé hins vegar alltaf
fyrir mér betri nýtingu á
hinu glæsilega skipi
Heijólfi, t.d. hvað varðar
kvöldsiglingar yfir
sumartímann, þar sem boðið
er upp á tónlist og
fjölbreyttar veitingar fyrir
ferðamenn og aðra sem
áhuga hefðu á.
aðstöðu vegna þessara siglinga bæði
hér í Vestmannaeyjum og í Þorláks-
höfn. Tvennt er það sem skiptir
viðskiptamenn Herjólfs höfuðmáli.
Það er annars vegar þjónustan og tíðni
ferða milli lands og eyja og hins vegar
það verð sem greitt er fyrir þjón-
ustuna. Haíharstjómir Vestmannaeyja
og Þorlákshafnar lækkuðu hafnargjöld
Herjólfs til að freista þess að lækka
fargjöld ferjunnar. Allsendis er óvíst
hvemig hafnarstjómimar taka á
hafnargjöldumum ef um útboð á
siglingum verður að ræða.
Þegar skyggnst er í reglugerðir, sem
gefnar hafa verið út um frjálsa
þjónustusamninga í flutningum á sjó
innan aðildarríkja EES frá 7. des
1992, kemur margt fram sem orkar
tvímælis í þessu máli og erfitt að sjá
að skylda og nauðsyn sé að bjóða út
þessa flutninga sem eiga sér vart
samlíkingu á Islandi vegna
mannfjölda og atvinnustarfsemi í
Vestmannaeyjum miðað við aðrar
eyjar á Islandi, svo sem Hrísey og
Grímsey. Einnig er til samningur um
siglingar milli lands og eyja milli
Vegagerðarinnar annars vegar og
Herjólfs hins vegar. Hvergi hefur
komið fram að eftirhtsneftid EES hafi
kært það fyrirkomulag sem er á
ferjusiglingum milli lands og eyja,
eins og því er komið fyrir í dag.
Einnig kemur fram að ekkert bannar
öðrum skipafélögum að keppa við
Heijólf um siglingar treysti skipafélög
sér til þess.
Ég sé hins vegar alltaf fyrir mér
betri nýtingu á hinu glæsilega skipi
Herjólfi, t.d. hvað varðar kvöld-
siglingar yfir sumartímann, þar sem
boðið er upp á tónlist og fjölbreyttar
veitingar fyrir ferðamenn og aðra sem
áhuga hefðu á.
Ég hef rætt þessi útboðsmál við
marga aðila og niðurstaða mín er sú að
allsendis óþarft sé að bjóða þessar
siglingar út. Vonandi er samgöngu-
ráðherra og ríkisstjómin að verða
sömu skoðunar og einmitt það valdi
þeim drætti sem er á fyrirhuguðu
útboði.
Höfundur er alþingismaður
Framsóknaiflokksins á Suðurlandi.
Þeir satu hinir pruðustu nieðan þeir voru myndaðir. Sjóntennska,
rafmagn og steypa; |)ar eru þeir á heimavelli. En í þetta sinn var tekið
upp léttara spjall.
FLUGFELAGISLANDS
Sumaráætlun gildir til 1. október
Fjórar ferðir á dag
Bókanir og upplýsingar um flug í s. 481 3300
www.flugfelag.is
Uti alínnu..
Vetrarstarfi Kiwanis er senn að Ijúka og af því tilefni brugðu þeir út
af vana og buðu eiginkonuni síniim á síðasta fundinn, sem auðvitað
varð með allt öðru sniði fyrir vikið. Þessar elskur skapa aðra
stemmningu en þegar karlar einir eru samankomnir.
Systurnar Katrm og Þuríður áttu margt órætt. nt.a. um gamla daga
á Húsavík