Fréttir - Eyjafréttir - 04.05.2000, Síða 16
Fréttir
Fimmtudagur 4. maí 2000
Sýslumannsembætttð efnir til
myndlistarsamkeppni;
Uppbyggjandi
starf í heimabyggð
SILJA Ýr Markúsdóttir 7. G.V. hlaut önnur verðlaun.
Til stuðnings frábærum árangri
IBV í handknattleik kvenna ákvað
sýslumannsembættið í
Vestmannaeyjum að leggja sitt af
mörkum til þess að efla stuðning
við uppbyggjandi starf í
heimabyggð og efndi af því tilefni
til dálítillar myndlistarsamkeppni
meðal nemenda í 7. bekk
Hamarsskóla. Það hefur tíðkast
að stofnanir og opinber embætti
hafa sett inn styrktarlínur í blöð
og tímarit til styrktar góðum
málefnum, en nú hefur verið
ákveðið að efna til lítillar
myndlistarsamkeppni til að vekja
athygli á góðum árangri IBV
stelpnanna í handboltanum.
Myndin er frá afhendingu
verðlauna fyrir þrjár bestu
myndirnar. Frá vinstri,
Þorvarður Þorvarðsson formaður
handknattleiksdeildar kvenna,
Ingibjörg Jónsdóttir fyrirliði
íslandsmeistara kvenna IBV,
Svala Jónsdóttir 7. Þ.G. sem hlaut
þriðju verðlaun, Katrín
Hannesdóttir 7. Þ.G sem hlaut
fyrstu verðlaun. Silja Ýr
Markúsdóttir 7. G.V. sem hlaut
önnur verðlaun, Karl Gauti
Hjaltason sýslumaður og Jón
Oskar Þórhallsson skrifstofustjóri
Þjóðlagamessa á sunnudag
BÁRA og Guðrún lofa skemmtilegri messu.
Á sunnudaginn kemur verður
bryddað upp á nýmæli í messu-
haldi í Landakirkju. I stað hinnar
venjulegu messu kl. 14 verður
þjóðlagamessa með altarisgöngu
um kvöldið kl. 20.30.
Þetta messuform hefur ekki áður
verið reynt í Vestmannaeyjum en
séra Bára Friðriksdóttir hefur kynnst
því í Hafnarfjarðarkirkju. Bára segir
að messuformið komi frá Svíþjóð.
Þarlendur prestur, Per Harling, hafí
samið slíka messu, út frá norrænni
þjóðlagahefð, með tónun og svörum.
Þetta hafi gefist vel og sé mikið notað
í Svíþjóð, ekki síst við fermingar-
messur.
Allir messuliðir eru hinir sömu og í
venjulegri messu, aðeins formið
breytist og er í formi norrænnar þjóð-
lagahefðar. Þær Bára og Guðrún
Bjamadóttir hafa séð um undirbúning
þessarar messu. Eldri hópur Lítilla
lærisveina, böm fædd 1988 og 1989,
mun sjá um að leiða söng og messu-
svör en stjómendur hópsins em þau
Guðrún og Ósvaldur Freyr Guð-
jónsson. Þrír kennarar úr Tónlistar-
skólanum munu leika undir á ýmis
hljóðfæri, gítar, slagverk og ýmsar
gerðir af flautum, þau Michelle
Gaskell, Ósvaldur Freyr Guðjónsson
og Eggert Björgvinsson. Þá mun
Högni Hilmisson, bassaleikari, leggja
þeim lið.
Bára segir að þjóðlagamessur hafi
oft verið haldnar í Hafnarfjarðar-
kirkju og slegið í gegn þar ef svo
megi að orði komast. Þessu messu-
formi fylgir mikil og falleg tónlist
sem öll byggist á þjóðlögum, bæði
norrænum og öðrum, svo sem
gelískum. Sum lögin eru vel þekkt,
önnur ekki en eiga það sameiginlegt
að vera auðlærð. I messuskrá verða
allir söngtextar. Þær stöllur segja að
þó svo að sönghópur og hljóðfæra-
leikarar leiði sönginn sé alls ekki um
konsert að ræða, heldur ætlast til að
söfnuðurinn syngi með, þama séu í
raun engir áheyrendur heldur allir
þátttakendur. Þessari stund á að
fylgja afslöppuð vellíðan kirkjugesta.
Þær Bára og Guðrún vilja hvetja
Vestmannaeyinga til að koma og
kynnast nýju messuformi. Vest-
ntannaeyingar tóku poppmessunum
ve! og þær fullyrða að þetta form sé
ekki síðra en byggist að sjálfsögðu á
því að söfnuðurinn sé á staðnum. Ef
vel tekst til er ætlunin að þjóðlaga-
messa verði árviss í Landakirkju og
jafnvel oftar. „Við sem að þessu
stöndum emm öll spennt og hlökkum
mikið til, ekki síst að sjá hver
viðbrögð bæjarbúa verða," sögðu
þær Bára og Guðrún að lokum.
KATRÍN Hannesdóttir 7. Þ.G. hlaut fyrstu verðlaun fyrir þessa
mynd.
SVALA Jónsdóttir 7. Þ.G. hlaut þriðju verðlaun fyrir þessa mynd.
Eins og Eyjamenn kannski muna var myndlistarverkefni kennt við Hraun
og menn í Eyjum í fyrra sumar. Unnu þá nokkrir norrænir
myndlistarmenn skúlptúrverk sem sett hafa verið upp víðs vegar um
Heimey. Einu þessara verka, „Og maðurinn heldur velli“ eftir Line
Ringtved Thordarson var komið upp fyrir framan ráðhús Vestmannaeyja
og þótti prýði að. Af einhverjum orsökum hefur þetta verk ekki hlotið náð
fyrir augum skemmdarvarga, sem ítrekað hafa unnið skemmdir á því.
Áðfaranótt síðastliðins föstudags voru enn á ný unnar skemmdir á verkinu
með þeim afleiðingum að það mun nánast ónýtt. Málið hefur verið kært til
lögreglu, sem vinnur að rannsókn málsins.