Fréttir - Eyjafréttir - 04.05.2000, Qupperneq 17
Fimmtudagur 4. maí 2000
Fréttir
17
Fjölmenni á Hólnum
Eins og sagt var frá í síðasta blaði
hefur Jói á Hólnum ákveðið að
opna heimili sitt fyrir
ferðamönnum, sem koma til Eyja,
hvar þeir geta fengið að ausa úr
ótæmandi og innihaldsríkum
sagnabrunni Jóa og ekki síður
fengið að njóta þess sem finna má
á einu einkaheimili eyjapeyja.
Síðastiiðinn miðvikudag hélt Jói
mikinn fagnað til þess að kynna
þessa nýsköpun í
ferðamannaþjónustu í Eyjum. Af
Hólnum hjá Jóa upplýsist
mönnum allt önnur sýn en annars
staðar gerist í Eyjum og á ekki
sagnagleði og þekking Jóa, allt
aftur til kristnitöku, minnstan þátt
í því. Auk þess sem útsýnin af
Hólnum hjá Jóa er engri annarri
lík. Mikið fjölmenni mætti á
kynninguna, þar sem
sagnamaðurinn gekk um beina
með sína silfurkaffikönnu og
skenkti mönnum, jafnframt sem
hann lét gamminn geisa um
framtíðarhugmyndir sínar í
ferðaþjónustunni. Þeir sem áhuga
hafa á því að kynna sér hvað í boði
er á Hólnum geta haft samband
við hann í símum 481-1962 og 891-
8826.
JÓI gekk sjálfur um
beina og skenkti kaffi
úr einni silfurkönnu.
I ■' lin^P
Ármann Höskuldsson skrifar:
Vor í Eyjum
Margir þeirra hafa ferðast um söguslóðir heimstyrjaldarinnar
síðari, en þar voru einmitt slíkar girðingar notaðar til þess að
halda utan um þá sem höfðu verið dæmdir óæskilegir í
samfélaginu. Það er ekki að ósekju að við Eyjamenn erum sagðir
heimsmenn. En komum aftur að kýting og kærleik. Víst er að
seint munum við geta byggt slíkt samfélag að öllum líki og ekkert
geti verið betra og seint munum við sennilega lifa í sátt og
samlyndi á jarðarkringlunni. Hins vegar þá finnst mér það nú
heldur hart ef við getum ekki á þessum litla skika, sem Heimaey
er, unað í sátt, landnotendur og landnjótendur.
Þrátt fyrir að
byggð hafi færst
úr sveitum í borg
og bæi á fyrstu
áratugum þess-
arar aldar, hefur
vorverkum ekki
fækkað. Hér í
Eyjum stendur
mikið til á nýju
árþúsundi og er
því mikilvægt að
vel takist til með vorverkin. Því eins
og sagt er þá býr lengi að fyrstu gerð.
Nú um helgina er ætlunin að
félagasamtök í Vestmannaeyjum fari í
sína árlegu hreinsunarherferð um
Heimaey. Hefur hverju félagi verið
úthlutað sínu amti, sem þau bera
ábyrgð á að hreinsa. Það er hvatning
mín að vel takist til í ár enda stendur
mikið til. Ennfremur þá vil ég hvetja
einstaklinga sem ekki tilheyra neinu
félagi en langar til þess að taka þátt í
hreinsuninni til þess að vera ófeimna
og blanda sér í hópana. Hver veit
nema það gæti orðið upphafið að
spennandi kynnum.
Einnig vonast ég til þess að þau
fyrirtæki í bænum sem bera ábyrgð á
trönuleifunum hér og þar á eynni til
þess að gera skurk í því að hreinsa
þær.
Eins og áður segir þá stendur mikið
til hér í Eyjum í ár. Við, eins og fast-
lendingamir, ntunum fagna því að á
Islandi var kristni lögtekin fyrir
þúsund árum. I. því tilefni þá hafa
Norðmenn sent okkur forkunnar fagra
stafkirkju sem er því sem næst eins og
sú sem Olafur Tryggvason Noregs-
konungur sendi íslendingum fyrir um
þúsund árum. Kirkjan sú ama mun
verða vígð á Skanssvæðinu í lok júlí
okkur til áminningar um megininntak
kristninnar, þ.e. kærleikann.
Þetta orð kemur oft í huga minn
þegar upp koma kýtingar hér á
eyjunni og oftar en ekki ganga þessar
kýtingar út á girðingar og landnotkun.
Síðasta afrekið í þessum málum var
unnið í Herjólfsdal en þar var sett upp
RAFMAGNSgirðing til höfuðs
hvönninni en dýrðar blessaðri
rollunni. Sitt sýnist hveijum um ágæti
þessa mannvirkis, sjálfsagt á hún eftir
að minna margan útlendinginn, sem í
sumar og komandi sumur á eftir að
tjalda á tjaldsvæði okkar Eyjamanna
(sem er steinsnar frá umræddri
girðingu), á skort á kærleik í sögu
mannkyns.
Margir þeirra hafa ferðast um
söguslóðir heimstyrjaldarinnar síðari,
en þar vom einmitt slíkar girðingar
notaðar til þess að halda utan um þá
sem höfðu verið dæmdir óæskilegir í
samfélaginu. Það er ekki að ósekju að
við Eyjamenn emm sagðir heims-
menn.
En komum aítur að kýting og kærleik.
Víst er að seint munum við geta
byggt slíkt samfélag að öllum líki og
ekkert geti verið betra og seint munum
við sennilega lifa í sátt og samlyndi á
jarðarkringlunni. Hins vegar þá finnst
mér það nú heldur hart ef við getum
ekki á þessum litla skika, sem Heima-
ey er, unað í sátt, landnotendur og
landnjótendur.
Oftar en ekki em þetta smáatriði
sem steytt er á, gömul og ónothæf
girðing krefst ekki meiri vinnu í
niðurrifi en hún krafðist í uppsetningu.
Undiiritaður kannast vel við þessi mál
og hefur tekið þátt í vinnu við hvort
tveggja. Ennfremur er ekki til mikils
ætlast með því að menn geri umferð
um girðingar greiðfærari með
brúargerð. Það er raunar kostur fyrir
landnotanda því þannig getur hann
stjómað umferð um það land sem
hann nýtir. Loks skal þess getið að það
er heldur ekki falleg hugsun sem býr
að baki landnámi vitandi að land-
námið er umdeilt.
Látum það verða hluta af okkar
vorverkum að hugsa um náungakær-
leikann og hvemig við getum komið
honum í framkvæmd, þannig getum
við hreinsað innri mann sem ytra útlit
Heimaeyjar.
Höfundur erforstöðwnaður
Náttúrustofii Suðurlands í
Vestmannaeyjum.
Fró
Bjargveiðimannafélaginu
Á fundi Bjargveiðimannafélags-Vestmannaeyja
voru lágmarksverð fyrir fugl og egg ákveðin
Svartfugls- og fýlsegg 70 kr. stk.
Lundi í fiðri 70 kr. stk.
Hamflettur lundi 90 kr. stk.
149 dagar í lundaball
Augnlæknir
Gunnar Sveinbjörnsson augnlæknir verður með
móttöku á Heilbrigðisstofnuninni dagana 8.-13. maí.
Tímapantanirverðaföstudaginn 5. maí og
mánudaginn 8. maí kl. 9 -14.
Sími 481 1955.
Barnalæknir
Ari Víðir Axelsson barnalæknir verður með móttöku
á Heilbriðgisstofnuninni dagana 11.-12. maí.
Tímapantanir verða mánudaginn 8. maí kl. 9-14.
Sími 481 1955.
Háls- nef og eyrnalæknir er væntanlegur í
lok maí og í byrjun júní er fyrirhuguð
krabbameinsskoðun á vegum
Leitarstöðar Krabbameinsfélagsins.
Sumarafleysingar á
Heilbrigðisstofnuninni
Lausar eru afleysingastöður við móttöku/símavörslu
og önnur sérhæfð aðstoðarstörf á heilsugæslu.
Möguleiki er á fullu starfi eða hlutastarfi.
Upplýsingar veita Gunnar Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri eða Guðný Bogadóttir
hjúkrunarforstjóri í síma 4811955.
I----------------------------------------------------------------1
l ' l
l
l
l
l
l
l Aðalfundur félagsins verður haldinn sunnudaginn 7. maí í sal l
Barnaskólans kl. 14.00. Foreldrar/aðstandendur eru beðnirað
koma með meðlæti en drykkir verða í boði félagsins.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
l Sundfólk og foreldrar/aðstandendur, mætum öll!
Sundfélag ÍBV hefur fengið úthlutað að hreinsa Skansfjöruna á
hreinsunardeginum laugardaginn 6. maí kl. 10.00 -12.00.
Við mætum Þar öll og hreinsum og förum svo ígrillveislu í boði j
bæjarstjórnar á áningarstað vestan Sorpu.
Stjórnin
l________________________________________________________________l