Fréttir - Eyjafréttir - 22.06.2000, Blaðsíða 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 22. júní 2000
Formaður almannavarnanefndar og sýslumaður
KRAKKAR á hlaupum undan grjótskriðunum í Herjólfsdal. Örvænting í andliti stúlkunnar í hægra
horninu niðri lýsir vel viðbrögðum fólks.
Jóhann Friðfinnsson verður gestur
Kjartans Bjömssonar í þættinuni
Kvöldsiglingu á Útvarpi Suður-
lands fm 96,3 í kvöld kl. 22.00 en
þátturinn er endurtekinn á sunnu-
dagsmorgun kl. 11.00. I frétta-
tilkynningu segir að Jói. senr
nýlega var sendur í úreldingu. sé
hvergi banginn við sitt nýja
hlutskipti og verði fróðlegt og
skemmtilegt að heyra í piltinum
sem er 70. viðmælandi þáttarins.
Tjaldsvæðinuí
Herjólfsdal lokað
I kjölfar jarðskjálftanna síðustu
daga hefur verið ákveðið af örygg-
isástæðum að loka tjaldsvæði
ferðamanna í Herjólfsdal og þjón-
ustuaðstöðunni í gamla golfskál-
anum. Tjaldstæði verða nú við
Þórsheinrilið og verða áfram í um-
sjá Björgunarfélagsins og skáta eins
og verið hefur. Þá cr unnið að því
að koma upp aðstöðu til þjónustu
við ferðamenn á nýja svæðinu við
Þórsheimilið. Upplýsingasími fyrir
tjaldsvæðið er 692 6952.
Færri færslur Drátt
fyrir skjálfta
Færslur í dagbók lögreglu í vikunni
voru 160 talsins eða nokkru færri
en í vikunni þar á undan, þrátt fyrir
jarðskjálftann sem reið yllr á
laugardag en þá var í mörg horn að
h'ta hjá lögreglumönnum. Vegin-
um inn á Eiði var strax lokað og
verður hann lokaður um einhvern
tíma, en í skjálftanum í fyrrinótt
hrundi enn úr Klifinu niður á
veginn. Þá var lokað fyrir umferð
um Herjólfsdal eftir skjálftann á
laugardag og verður væntanlega
svo áfrant eftir síðustu atburði.
Lögreglan fer fram á það að fólk sé
ekki á ferli í Dalnum og við Klifið
vegna hættu á grjóthruni.
Þrírgístuhjá
lögreglu
Á aðfaranótt föstudags fengu þrír
menn að gista fangageymslu lög-
reglu. Voru þeir grunaðir um að
hafa velt á hliðina bifreið sem var á
stæði milli Brimness og ÁTVR.
Vitni að þessum aðförum tilkynnti
atburðinn til lögreglu sem handtók
þremenningana. Var tekin af þeint
skýrsla þegar af þeint var runnin
víman, en allir voru þeir nokkuð
ölvaðir. Málið telst upplýst.
Aukióatvinnuleysi
I gær voai 29 skráðir atvinnulausir
hjá Atvinnumiðlun Vestntannaeyja.
Hefur tala þeirra nokkuð aukist frá
því í maí en um sama leyti í maí
voru 23 skráðir atvinnulausir.
Atvinnuleysi í maí var mun meira
nú en í fyrra. Þá var fjöldi
skráningardaga í Vestmannaeyjum
76 en í ár hefur Ijöldi þeirra meira
en sexfaldast. frá því í fyira, og var
í maí sl. 484 dagar.
Þrírkærðir
Aðeins lágu þrjár kærur fyrir efúr
síðuastu viku vegna umferðarmála.
Vom þær allar vegna vanrækslu á
að færa bifreiðir til skoðunar.
Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri og
formaður almannavarnanefndar og
Karl Gauti Hjaltason sýslumaður
og lögreglustjóri voru ánægðir með
viðbrögð björgunaraðila og lög-
reglu þegar jarðskjálftinn reið yfir
á laugardaginn. Sjálf almanna-
varnanefndin var komin á lög-
reglustöð aðeins nokkrum mínútum
eftir skjálftann og sama gilti um
lögreglumenn á frívakt og félaga í
Björgunarfélaginu.
„Eg held að þessi viðbrögð sýni að
við höfum komið okkur upp mjög
góðu kerfi. í almannavamanefnd situr
fólk frá öllum stofnunum og félögum
sem með einum eða öðrum hætti
koma að björgun,“ sagði Guðjón.
Karl Gauti tók undir með Guðjóni
og sagði að athyglin hefði strax beinst
að Herjólfsdal vegna 17. júní hátíða-
haldanna. „Sjálfur sá ég Blátind þegar
ósköpin byrjuðu og fór ég strax
þangað og þá voru bæði lögregla og
Björgunarfélagið komið á staðinn,"
sagði Karl Gauti og það er sameigin-
legt álit beggja að kerfið hafi staðist
prófið. Þó töldu þeir óviðunandi að
ekki tókst að koma rafmagni á fyrr en
eftir klukkutíma á laugardaginn en í
seinna skiptið hafi rafmagnið komið á
eftir 15 mínútur.
Fljótlega fór flugvél með lögreglu-
mann innanborðs til að svipast um
eftir fólki sem hugsanlega væri í
sjálfheldu í fjöllum eða björgum.
Eftir að ljóst var að allir komust
heilir úr Dalnum var farið að huga að
öðru fólki. Stelpumar í 5. flokki
Breiðabliks sem lentu í hmninu í
Spröngunni og fylgdarfólk fengu þá
áfallahjálp sem beðið var um. Var
bmgðist mjög skjótt við af fagfólki.
, Jriargir héldu að upptökin væm hér
undir og það tók tíma að sannfæra fólk
um að um væri að ræða atburði sem
áttu upptök uppi á landi,“ sagði Karl
Gauti.
Væntanlegir em sérfræðingar til
Eyja til að gera úttekt á fjöllunum í
Þau eru ófá bréfin sem gengið hafa
milli Odds Júlíussonar og bæjar-
yfirvalda á síðustu árum og hafa
þau komist upp í að skipta
hundruðum á ári. Nú sér fyrir
endann á þessum stífu bréfa-
skiptum því í síðustu viku gerðu
aðilar með sér samkomulag um að
létta alla verulega á bréfaskriftum.
Oddur hefur í skjóli upplýsinga-
laganna sent bréf til bæjaryfirvalda
með íyrirspumir um alla mögulega og
ómögulega hluti. Var hrifning starfs-
manna bæjarins og bæjarfulltrúa oft í
lágmarki og var hlaupin kergja í málið
þar sem hvomgur vildi vægja. Nú
kringum bæinn ásamt lögreglu og
Björgunarfélagsmönnum. Komi til
einhverra aðgerða til að verjast hruni
segja þeir eðlilegt að Ofanflóðasjóður
komi þar að. Nefna þeir sem dæmi að
vamargarðurinn með veginum inn á
Eiði hafi tekið a.m.k. 50 - 60% þess
grjóts sem hmndi úr Klifinu.
Ymis atriði em til skoðunar, eins og
t.d. hvað skuli gera vegna þjóðhátíðar
sem hefst 4. ágúst nk. Strax var
ákveðið að loka Heijólfsdal og fleiri
svæðum vegna hættu á öðmm skjálfta
sem sýndi sig að vera nauðsynleg
ráðstöfun þegar seinni skjálftinn reið
hefur Oddur gert samkomulag við
bæinn sem felur í sér að hann fær
sendar allar fundargerðir bæjarráðs,
bæjarstjómar og nefnda. Ekki verður
fárast yfir því þó ein og ein fyrirspum
frá Oddi detti inn fyrir þröskuldinn á
Ráðhúsinu.
í samtali við Fréttir sagðist Oddur
vera feginn að samkomulag skuli hafa
náðst. „Þetta er um leið viðurkenning
þeirra á upplýsingaskyldunni eins og
ég hef fengið staðfest bæði af
úrskurðamefnd um uppýsingalögin og
umboðsmanni Alþingis. Þetta er líka
staðfesting á því að ég hafði rétt fyrir
mér. Auðvitað hefði maður getað farið
yfir. „Það er ákveðið að Jónsmessu-
gleði sem vera átti í Dalnum færist í
Skvísusundið og em allir sáttir við
það,“ sagði Guðjón.
„Það er ennþá langt í þjóðhátíð og
við skulum sjá hverju fram vindur.
Það getur farið svo að grípa verði til
einhverra ráðstafana," sagði Karl
Gauti.
Þeir vildu að líka benda á að
varasamt er að príla í skriðum og
benda bömum á að vera ekki að leika
sér í tækjunum inni í Dal.
„Það er líka nauðsynlegt að að fólk
ræði þessi mál innan fjölskyldunnar.
í hart en ég held að það sé affarasælla
að lifa í sátt við guð og menn þó menn
séu ekki alltaf sammála," sagði
Oddur.
Páll Einarsson bæjarritari, sem
oftast hefur fengið það hlutverk að
svara Oddi, tók í sama streng. „Auð-
vitað var Oddur oftast í fullum rétti en
það má segja að þetta hafi verið heldur
mikið af hinu góða. Það verður líka að
virða það við Odd að hann hefur
áhuga á málefnum bæjarins sem er
bara af hinu góða. Nú lít ég svo á að
ágreiningurinn sé úr sögunni og það er
ákveðinn léttir fyrir báða,“ sagði Páll.
Það getur verið gott að koma sér upp
ákveðnum stað í húsi eða úti við þar
sem fjölskyldan getur hist verði fólk
viðskila eftir náttúmhamfarir. Mesta
og kannski eina hættan sem við
Eyjamenn stöndum frammi fyrir í
jarðskjálftum er nálægðin við fjöllin
og við því þarf að bregðast,“ sagði
Karl Gauti.
Að lokum vildu þeir félagar koma á
framfæri þakklæti til allra þeirra sem
aðstoðuðu við aðgerðir í skjálftanum
og bæjarbúum almennt fyrir að sýna
súllingu og rétt viðbrögð.
Réð-
ust á
golf-
hjól
Á aðfaranótt laugardags var brotist
inn í tækjageymslu við Golfskálann
og þar unnar skemmdir á þremur
rafdrifnum golfhjólum sem eldri
kylfingar í GV eiga.
Lögregla hvetur þá aðila, sem
þarna vom að verki, til að gefa sig
fram og gangast við verknaðinum en
þiggur einnig allar upplýsingar um
gmnsamlegar mannaferðir á þessu
svæði á aðfaranótt laugardags.
FRETTIR
8
Utgefandi; Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir
Jónsson. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-
1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Tuminum, Kletti, Veitingaskálnum
Friðarhöfn, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Heijólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. FRETTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.
Oddurog
bærinn sættast