Fréttir - Eyjafréttir - 22.06.2000, Blaðsíða 23
Fimmtudagur 22. júní 2000
Fréttir
23
Knattspyrna, Landssímadeild kvenna: IBV 1 - KA/Þór 0
Nauðsynlegur
sisur hjá stelpunum
ÍBV tók á móti sameiginlegu liði
Þórs og KA á þriðjudag og bjuggust
flestir við frekar auðveldum sigri
ÍBV. Eyjastelpur sigruðu að vísu í
leiknum 1-0 en eins og tölumar gefa
til kynna var sigurinn ekki alveg
eins öruggur og flestir vildu.
Eftir að hafa tekið völdin á
miðjunni á vellinum, hófust sóknarað-
gerðir ÍBV sem strax á 10 mínútu báru
árangur þegar Hjördís Halldórsdóttir
skoraði með þrumuskoti af 20 m. færi.
Það sem eftir lifði hálfleiksins sóttu
heimakonur nánast stanslaust enda lék
ÍBV undan sterkum austan vindi í
fyrri hálfleik og er óhætt að segja að
gestimir hafi varla komist fram yfir
miðju vallarins. Þrátt fyrir að sækja
töluvert meira þá náðu heimastúlkur
ekki að auka forskotið og staðan í
hálfleik því 1-0 fyrir ÍBV.
Seinni hálfleikur var svo einn sá
allra lélegasti af hálfu ÍBV í sumar.
Liðið brast þolinmæði og gestimir
komust meira og meira inn í leikinn.
Ekki munaði miklu að Þór/KA jafhaði
leikinn rétt fyrir leikslok en Petra
Bragadóttir í markinu var vel með á
nótunum og sá um að landa 1-0 sigri
ÍBV gegn Þór/KA.
„Ég er mjög ánægður með stigin
þrjú sem við fengum héma í kvöld,“
sagði Heimir Hallgrímsson eftir
leikinn. „Ég var alveg fullviss um það
að Þór/KA gæti strítt okkur héma og
þær gerðu það svo sannarlega. Hjá
okkur vantaði báða framheijana okkar
og það var augljóst að við megum illa
við því. En eins og ég segi þá er ég
mjög ánægður með stigin þijú.“
Mark ÍBV: Hjördís Halldórsdóttir.
SIGGA Ása í leik gegn KR
í fyrra.
;f RfiM tBV fittthl t’/\t'
emmcss
HAMPIOJAN
Knattspyrna: Sigurlás Þorleifsson spáir í leik meistaraflokks karla ÍBV
Sóknin hefur úr litlu að moða
Fyrir síðasta heimaleik hjá ÍBV
gegn Leiftri spáði Einar Frið-
þjófsson að leikurinn myndi enda
2-0 fyrir ÍBV. Einar hafði rétt fyrir
sér að einu leyti, núllin voru tvö en
mörkin létu á sér standa. Marka-
leysið hefur verið að hrjá ÍBV liðið í
undanfornum deildarleikjum og
því ekki úr vegi að ræða við einn af
betri framherjum ÍBV, Sigurlás
Þorleifsson og spyrja hann út í ÍBV
liðið en eins og allir vita þjálfaði
Sigurlás liðið á árunum 1989-1992
og kom þeim upp í efstu deild.
Ertu ánægður með ÍBV liðið það sem
afer sumri?
„Já, svona þokkalega sáttur. Mér
finnst leikur liðsins hafa legið upp á
við frá því á síðasta tímabili þó að
liðið hafi kannski ekki spilað illa í
fyrra. Mér finnst liðið fh'skara í ár en
maður sér þó alltaf að strákamir hafa
ekki enn náð að stilla saman strengi
sína og ég tel að liðið eigi töluvert
inni. Þótt ÍBV sitji í fimmta sæti eftir
sex umferðir þá er stutt í toppinn og
við getum náð KR að stigum ef við
sigmm þá héma heima. En mér frnnst
við vera tapa of mörgum stigum á
móti lakari liðum, eins og Fylki og
Leiftri en þar töpuðust Ijögur mjög
dýrmæt stig.“
Finnst þér eitthvað hafa komið þér á
óvart í leik liðsins?
„Nei, ég er reyndar ekki búinn að
sjá alla leiki liðsins í sumar en ég held
égverðiaðsegjanei. Þaðsemmaður
bjóst við að yrði sterkasti hlekkur
liðsins í sumar hefúr staðist, en það er
vamarleikurinn og markvarslan en
ÍB V hefúr fengið næstfæst mörk á sig
í deildinni. Það sem kannski ekki
hefur gengið upp er markaskorun þó
að ÍBV sé búið að skora næstflest
mörkin í deildinni þá kom helming-
urinn af þeim á móti Keflavík. En ég
hef trú á því að þetta eigi allt eftir að
smella saman hjá liðinu fljótlega. Það
er kannski bara of hugmyndasnautt í
sóknaraðgerðum sínum."
Þá komum við að sóknarleik liðsins
sem hefur eins og þú segir ekki gengið
upp, hefur gamli landsliðsframherjinn
einhver ráð handa IBV?
„Það er kannski rétt að taka það
fram að það er alls ekki bara við
sóknarmenn ÍBV að sakast, heldur
hefur miðjan ekki náð að sýna sitt rétta
andlit í sumar. Sóknarmennimir hafa
ekki fengið úr miklu að moða í byijun
móts, nema kannski á móti Keflavík
og Leiftri en einmitt á móti Leiftri
hefði sóknarparið átt að skora mörk.
En eins og ég segi þá er það mín
tilfinning fyrir þessu að IBV eigi
mikið inni og ef úrslitin úr næstu
tveimur leikjum verða hagstæð þá
mun gagnrýni á liðið minnka."
Nœsti leikur er gegn Breiðabliki á
útivelli í kvöld, hvemig heldur þú að
sá leikurfari?
„Það er fyrir öllu að vinna leikinn
og hann á að vinnast. Breiðabliki
hefur gengið illa í síðustu tveimur
leikjum og þeir munu eflaust verða
erfiðir heim að sækja. Ég held að við
töpum leiknum ekki, kannski mis-
stígur liðið sig enn einu sinni og
jafntefli verða úrslitin en ég hallast þó
frekar að þvi að ÍBV sigri annað hvort
0-1 eða 1-2.“
Og svo er einn af stórleikjum
sumarsins þegar KR-ingar koma í
heimsókn á sunnudaginn.
„Já, þetta verður hörkuleikur. Þetta
em náttúrulega KR-ingar og þeir em
tvöfaldir meistarar en við emm á
heimavelli og eigum því að geta gert
okkur vonir um sigur. KR-ingar hafa
að mínu áliti ekki verið að spila vel að
undanfömu og því hallast ég að sigri
ÍBV 1-0 en kannski að hann endi 1-1.“
BJARNI Geir
Viðarsson hefur náð að
stimpla sig inn í í liðið.
Er hann í hópi ungra
leikmanna sem eru að
koma upp hjá IBV.
fretnr
ú
Stoke City til Eyja
Ákveðið er að Guðjón Þórðarsson,
komi með Stoke City til Vest-
mannaeyja laugardaginn 15. júlí
næstkomandi. Ekki er búið að
ákveða dagskrá en trúlega munu
leikmenn Stoke heilsa upp á kollega
sína í meistaraflokki ÍBV og þá er
verið að vinna að því að þeir heilsi
upp á yngstu leikmennina líka.
KFS á mikilli siglingu
KFS tók á móti liði ÍH á mánu-
daginn og er óhætt að segja að liðið
hafi faiið á kostum fyrsta hálftíma
leiksins og gjörsamlega yfirspilað
slakt lið Hafnfirðinga. Staðan í
hálfleik var 6-0, en leikur KFS datt
nokkuð niður í seinni liálfleik og
lokatölur urðu 8-2. KFS er sem
stendur langefst í A-riðli 3. deildar
með 10 stig af tólf mögulegum og
með markatöluna 19-5. Ljóst er að
liðið á nokkuð góða möguleika á að
fara upp um deild ef liðið spilar eins
og í fyrri hálfleik gegn ÍH.
Mörk KFS: Þorsteinn Þorsteinsson
2, Magnús Steindórsson 2, Sindri
Grétarsson 2, Heimír Hallgrímsson
og Yngvi Borgþórsson.
Nokkuð öruggt
Á mánudaginn mætti 2. flokkur
ÍBV liði Framara á Þórsvellinum.
ÍBV hefur verið spáð góðu gengi í
sumar og er talið raunhæft að tala
um titla. Hópurinn sem ÍBV hefur á
að skipa er gríðarlega stór, um 30
strákar og er enn að stækka. Það er
því skennntilegt verkefni sem bíður
Zeljko þjálfara stníkana, í sumar.
Leikurinn var ágætis skemmtun
lengst af og unnu strákamir
örugglega 3-1. Athygli vakti að enn
hefur bæst í fióru ungra leikmanna
ofan af landi sem spila í sumar með
2. flokki ÍBV en alls em þeir fjórir.
Jónsmessugolf
Á laugardag verður hin árlega Jóns-
messukeppni ígolfinu. Jónsmessu-
keppnin er snærisleikur með léttu
yfirbragði þar sem allir heíja leik á
samatíma. Keppnin hefst kl. 17.
Framundan
Fimmtudagur 22. júní
Kl. 20.00 Breiðablik-ÍBV Lands-
símadeild karla
Föstudagur 23. júní
Kl. 20.00 ÍBV-ÍA 3.fl. karla Bikar-
keppni
Kl. 20.00 Haukar-ÍBV Bikarkeppni
kvenna.
Kl. 20.00 Reynir Sandgerði-KFS
Laugardagur 24. júní
Kl. 14.00 Valur-ÍBV 3. fl. kvenna
Kl. 14.00 Breiðablik-ÍBV 4. fl kaila
A- og B-lið
Sunnudagur 25. júní
Kl. 11.00IBV-ÍA 3.fl. karla
Kl. 14.00 ÍBV-KR Landsímadeild
karla
Kl. 14.00 Haukar-ÍBV 3. fl. kvenna
Kl. 14.00 FH-ÍBV 4. fl. karla A- og
B-lið
Mánudagur 26. júní
Kl. 20.00 ÍBV- Þór/Dalvík/Leiftur
2. fl. karla
Þriðjudagur 27. júní
Kl. 20.00 Stjarnan-ÍBV Lands-
símadeild kvenna