Fréttir - Eyjafréttir - 22.06.2000, Blaðsíða 18
Fréttir
Fimmtudagur 22. júní 2000
Fyrsti hluti kristnihátíðar hófst um síðustu helgi
Þúsund ára kristni minnst á Skansinum
Síðastliðinn sunnudag var haldinn
fyrsti hluti kristnihátíðar í Eyjum
en 18. júní árið 1000 er talið að
Hjalti og Gizur hati fært á land í
Vestmannaeyjum smíðavið sem
Noregskonungur hati getið til að
reisa fyrstu kirkju á Islandi. Til stóð
að halda hátíðina á Hörgaeyri
undir Heimakletti en í kjölfar
jarðskjálftans daginn áður, á
lýðveldisdaginn, var ákveðið að
færa sig um set í Skansvirkið.
Dagskráin hófst við Landakirkju og
að lokinni bæn, ritningarlestri og söng
var gengið út á Skans en fyrir göng-
unni fóru skátar og félagar úr Lúðra-
sveit Vestmannaeyja. í Skansavirkinu
var Kristnihátíð í Vestmannaeyjum
formlega sett af Jóhanni Friðfinns-
syni, formanni framkvæmdanefndar
hátíðarinnar. Að lokinni súpuskál var
gengið til messu sem hófst kl. 12 og
þjónuðu prestar Landakirkju fyrir
altari en um söng og undirleik sáu
Litlir lærisveinar, Hátíðarkór Vest-
mannaeyja og félagar úr Lúðrasveit-
inni.
Auk þátttöku í hefðbundnum
messuliðum tóku gestir þátt í að útbúa
mynd af stafkirkjunni úr náttúrulegum
efnum svo sem hraunmolum, grasi og
smáblómum sem gestir fundu sér í
umhverfinu. Einnig var hægt að skrifa
niður bænir og senda út í heim með
flöskuskeyti eða senda kveðjur með
tölvupósti úr fartölvum og endur-
speglaði það skemmtilega hinn gamla
og nýja tíma.
Um 400 manns tóku þátt í þessari
fyrstu kristnihátíð sumarsins í Eyjum
í góðu veðri og rituðu nafn sitt í gesta-
bók úr sauðskinni sem verður varð-
veitt.
Horft inn í kórinn, f. v. séra Bára Friðriksdóttir, Sigurfinnur Sigurtinns-
son meðhjálpari, séra Kristján Björnsson, Snorri Oskarsson forstöðum.
Hvítasunnusafnaðarins og Eric Guðmundsson forstöðum. aðventista.
Finnur meðhjálpari fylgist með ungum lærisveinum sínum við að undir-
búa altarið fyrir messuna.
pj i i) .,
Fjöldi bæjarbúa og gestir tóku þátt í útimessunni í afbragðsgóðu veðri
Skátar fara fyrir göngufólki upp brekkuna hjá Fesinu.
Jóhann Friðfínnsson flutti ávarp
og setti hátíðina eins og honum er
einum lagið.
Davíð Guðmundsson í Tölvun aðstoðar gesti við að senda vinum og
ættingjum kvcðju frá samkomunni í tölvupósti.
Skanssvæðið er orðið hinn ákjósanlegasti staður til útivistar enda hefur á undanförnum árum verið unnið
markvisst að endurbótum á því.