Fréttir - Eyjafréttir - 22.06.2000, Page 13
Fimmtudagur 22. júní 2000
Fréttir
13
r Suðurland og Vestmannaeyjar á laugardaginn
MIKIIl jarðvegur hrundi úr klettum og Ijóst er að sumstaðar hafa
heilu lundabyggðirnar farið í sjó fram. Dauðan fugl er að finna um
allan sjó og hafði meðal annars rekið upp í Skansfjöruna.
Attaði mig ekki á þessu fyrst í stað
-segir Margrét Hjálmarsdóttir sem var á leið inn á
Eiði þegar skjálftinn dundi yfir
Margrét Hjálmarsdóttir slapp vel á
laugardag í skjálftanum. Hún var í
bíl sínum á hafnarsvæðinu með sjö
mánaða dóttur sína að bíða eftir því
að bóndinn kæmi að landi en hann
er skipverji á Jóni Vídalín.
„Ég ákvað að drepa tímann fram að
því að skipið kæmi og aka inn á Eiði,“
segir Margrét. „Þegar ég var komin
að minnisvarðanum með skrúfunni
hélt ég að eitthvað væri að bílnum og
stoppaði. Þá sá ég að það var eins og
bryggjan sveiflaðist til og heyrði líka
drunur. Og þegar ég leit upp í hlíðina
sá ég hnullunga koma veltandi niður.
Þá bakkaði ég til baka. Það var annar
bíll að koma innan af Eiði, hann
stoppaði um leið og ég en gaf svo allt
í botn og slapp við gijóthrunið. Ég var
eitthvað svo dofin fyrir því hvað var
að gerast, datt ekki jarðskjálfti í hug
fyrst í stað og var ekkert hrædd. Mér
meira að segja datt í hug að aka áfram
og sjá meira. Svo áttaði ég mig þegar
ég sá björgin á götunni hve lánsamar
við höfðum verið. Hefði þetta gerst
nokkrum sekúndum síðar þá er ekki
víst að við hefðum sloppið svona vel,“
sagði Margrét Hjálmarsdóttir.
MARGRÉT og dóttir hennar voru á leið inn á Eiði þegar
grjóthnullungar byrjuðu að falla úr Klifinu. Skipti aðeins sekúndum
að þær slyppu.
Engin alvarleg slys
vegna skjálftans
-og hvorki panik né vanlíðan, segir
Hrönn Garðarsdóttir læknir
Hrönn Garðarsdóttir, læknir, var á
vakt á laugardag þegar skjálftinn
reið yfir.
Hún segir að nokkuð hafi verið að
gera í kjölfar skjálftans, ekki þó nærri
eins mikið og búast hefði mátt við eftir
slíkar náttúruhamfarir. Hrönn segir
ekki rétt, sem fram hafi komið í
fjölmiðlum, að kona hefði fótbrotnað
í Herjólfsdal, aftur á móti hefði hún
hlotið ljótan skurð á fæti. Tveir aðrir
leituðu á Heilbrigðisstofnunina á
laugardag vegna meiðsla sem þeir
höfðu orðið fyrir en bæði þau tilfelli
voru minniháttar að sögn Hrannar.
Hrönn sagði að þegar leið á laug-
ardagskvöld hefði hún svolítið orðið
vör við eftirköst hjá fólki, nokkuð
hefði verið hringt um kvöldið og
nóttina, aðallega vegna bama sem
voru hrædd og gátu ekki sofið. Þá
segist Hrönn hafa tekið eftir því að
fólk tali mikið um skjálftann og
eflaust hafi hann valdið einhverri
streitu. „En það er engin panik út af
þessu og ég hef ekki merkt vanlíðan
hjá fólki vegnaþessara atburða," segir
Hrönn Garðarsdóttir.
Karl Bjömsson, yfirlæknir hjá Heil-
brigðisstofhuninni, segir að finni fólk
fyrir kvíða eða óöryggi vegna atburða
helgarinnar sé sjálfsagt fyrir það að
leita læknis.
Oraói aldrei fyrir að þetta
væri svona hrikalegt
-segir Bragi Steingrímsson, sem var staddur í
sumarbústað rétt við upptök skjálftans
Allstórt sumarbústaðasvæði er við
Gíslholtsvatn í Holtahreppi, þar
sem jarðskjálftinn átti upptök sín.
Nokkrir Vestmannaeyingar eiga
þar bústaði, m.a. þau Bragi Stein-
grímsson og Sigríður Magnús-
dóttir. Þau voru stödd í bústaðn-
um á laugardag og Bragi var
spurður hvernig þeim hefði orðið
við.
„Þetta var með ólíkindum. Ég var
úti að slá með bensínorfi þegar lætin
hófust. Þetta var verra en í stórsjó,
útilokað að standa í lappimar og
maður bara hentist til og frá. Maður
hefur svo sem séð myndir frá
jarðskjálftum í sjónvarpi en mig óraði
aldrei fyrir að þetta væri svona
hrikalegt," sagði Bragi.
Sirrý var inni, ásamt kunningjakonu
þeirra úr bústað í grenndinni, og var
að hella upp á könnuna. Bragi segir
að í fyrstu hrinunni hafi borðið, sem
hún stóð við, gliðnað og Sirrý hafi
fest höndina í glufunni. Svo þegar
næsta hrina reið yfir hafi hún losnað
en þá kastast á eldavélina og brennst
nokkuð. „Sem benir fer var það ekki
alvarlegur bmni,“ segir Bragi.
Kunningjakonan ætlaði að hlaupa út
en datt og hlaut einhver meiðsli en
Bragi segir að þau séu ekki alvarleg.
„Það var bókstaflega allt í rúst í
bústaðnum eftir þetta. Allt hmndi úr
hillum og af veggjum, sjónvarp,
myndir og annað. Sumt er ónýtt og
því erum við búin að henda en annað
slapp. Ég veit ekki enn hve miklar
skemmdir hafa orðið á sjálfum
bústaðnum. Hann er reistur á
staurum og hefur eitthvað gengið til
en ég hreinlega þorði ekki að skríða
undir hann til að kanna það,“ segir
Bragi.
Bragi segir að næsti bústaður við
þeirra hafi gengið út af staumnum og
sé mikið skemmdur. „Sjálfsagt em
flestir bústaðimir þama meira og
minna skemmdir, það á bara eftir að
koma í ljós. Ég held að allir séu með
sitt tryggt, allavega emm við með
okkar tryggingar í lagi. Annars
skiptir það kannski ekki mestu máli
þótt eitthvað af því veraldlega fari
forgörðum, það er meira um vert að
fólk sleppi heilt á húfi úr svona
ósköpum. Mér finnst það með
ólíkindum að vera búinn að upplifa
eldgos og jarðskjálfta af þessari
stærðargráðu og það án þess að
nokkur láti lífið eða verði fyrir
alvarlegum slysum. Manni verður á
að spyrja hvað valdi því,” sagði Bragi
að lokum.
BRAGI skoðar verksummerki en það var eins og sprengja hefði
fallið á bústaðinn