Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 22.06.2000, Síða 16

Fréttir - Eyjafréttir - 22.06.2000, Síða 16
16 Fréttir Fimmtudagur 22. júní 2000 Knattspyrna: Glæsilegt og eftirminnilegt Vöruvalsmót Blikar fjösur gull 03 ÍBV tvö MIKIÐ var um dýrðir á lokahófinu í íþróttamiðstöðinni á sunnudagskvöldið. Vöruvalsmótið: Erlingur Richardsson framkvæmdastjóri: Kom aldrei til sreina að haetta Hinu árlegu pæjumóti, sem í ár var kallað Vöruvalsmót ÍBV, lauk á sunnudaginn. Óhætt er að segja að mikið hafi gengið á, á meðan mótinu stóð og varð það eftirminnilegra fyrir vikið en þrátt fyrir nátúmhamfarir, rok og rigningu á föstudeginum héldu pæjumar ótrauðar áfram. Eins og undanfarin ár vom það Breiðablik og ÍBV sem voru áberandi í úrslitaleikjum móts- ins, en gestimir úr Breiðabliki vom sigursælasta liðið í ár með fem gullverðlaun en ÍBV hlaut tvenn, í 6. flokki A og B liða. Jarðskjálftinn setti nokkurn svip á mótið. Einn leikur var í gangi þegar jörðin hristist. Fljótlega kom í ljós að engin slys urðu á þátttakendum en nokkuð stór hópur frá Breiðabliki var við Sprönguna og rigndi steinum yfir þær. Nokkrar hlutu marbletti og þær fengu strax áfallahjálp. Var ekki annað að heyra á foreldrum stúlknanna en að ánægja væri með hvemig mótshaldarar brugðust við. Verðlaunaafhending var á sunnudagskvöldið og þar var mikið um dýrðir að vanda. Verðlaun 4. flokkur: Besti leikmaðurinn: Gréta Sam- úelsdóttir Breiðabliki Markahæstar í A-liðum: Gréta Samúelsdóttir og Melkorka Helga- dóttir Breiðabliki, með 13 mörk. Markahæst í B-liðum: Hekla Pálmadóttir 11 mörk. Prúðasti leikmaðurinn: Helena Ýr Tryggvadóttir Keflavík Prúðasta liðið: ÍA Háttvísisverðlaun: Keflavík B-lið 5. fIokkur: Besti leikmaðurinn: Kristbjörg Rúnarsdóttir IA Markahæst í A-liðum: Thelma Ýr Gylfadóttir ÍA, með 19 mörk Markahæst í B-liðum: Jóna Kristín Hauksdóttir Breiðabliki, með 14 mörk Markahæst í C-liðum: Þórdís Björt Breiðabliki, með 13 mörk Prúðasti Ieikmaðurinn: Þóra Mar- grét Olafsdóttir Selfossi Prúðasta liðið: Stjaman Háttvísisverðlaun: Haukar ó.flokkur: Besti leikmaðurinn: Andrea Kára- dóttirÍBV Markahæst í A-liðum: Kristín Ema Sigurlásdóttir, með 11 mörk Markahæst í B-Iiðum: Berglind Þorvaldsdóttir IBV, með 13 mörk Prúðasti leikmaðurinn: Steinunn Guðmundsdóttir Aftureldingu Prúðasta liðið: Aftureldingu Háttvísisverðlaun: Valur Lárusarbikarinn fékk Melkorka Helgadóttir Breiðabliki. Erlingur Richardsson annar tveggja framkvæmdastjóra mótsins segir að langur undirbúningur liggi að baki mótsins. Erlingur sagði líka að það hefði verið mjög ánægjulegt að fá Ingimar í Vöruval til liðs við IBV sem stærsta styrktaraðila Vöruvalsmótsins. „Við byijuðum undirbúning Vöm- valsmótsins fyrir þremur mánuðum. Ég byrjaði einn en ég vissi að gott fólk er tilbúið í að leggja lið og það var ekki neitt vandamál. Magnús Sig- urðsson kom svo á fullu í þetta. Ema Þorleifs og Stefí Guðjóns voru líka í þessu með okkur.“ Mótið í ár er minna í sniðum en undanfarin ár og eru ekki allir sáttir við þessar breytingar sem hafa verið gerðar á mótinu, hver er stefnan með Vöruvalsmótið? „Menn hafa verið að ræða þessi mál að undanfömu og miklar vangaveltur verið í gangi. Þriðji flokkur var ekki með núna af því að sex af þeim átta liðum sem vom í fyrra voru á leiðinni til útlanda, þannig að ferð á Vöm- valsmótið datt upp fyrir hjá þeim. Þessi aldursflokkur fer út annað hvert ár þannig að það ætti að vera mögu- leiki að hafa þær á næsta ári. Einnig hafa fleiri mót af þessu tagi bæst við og því er kannski spuming um að einblína á að hafa mótið fyrir tvo til þrjá aldursflokka og fá þá fleiri félög. Eins og þetta hefur verið undanfarin ár hafa stelpur verið að koma hingað allt að átta sinnum og það er alltaf spuming hvað sé hægt að bjóða þeim lengi upp á sömu dagskrána. En engin ákvörðun hefur verið tekin ennþá, menn em bara að íhuga málið.“ Níí gekk heldur betur mikið á föstudaginn þegar Kári blés hressileg og svo þegar móðir náttúra minnti hressilega á sig á laugardeginum. Voru áœtlanir tilbúnar til að mæta óvœntum uppákomum sem þessum? „Við höfum orðið ansi mikla reynslu af því að takast á við veðrið. Við vomm heppnir með veður dagana fyrir mótið. Þá var þurrt og vellimir þoldu því betur smávegis rigningu. Þetta var svo líka meira rok frekar en rigning og stelpumar létu ekki smá golu tmfla sig. En það sem stendur upp úr þessu móti er góða veðrið og sólin sem skein oftar en ekki um helgina. Á laugardaginn höfðum við ákveðið að hafa hlé á mótinu út af 17. júní hátíðarhöldunum og Maggi hafði sagt að líklega yrði dagurinn bara rólegur og að við yrðum líklega bara búin snemma. Örfáum andartökum seinna kom skjálftinn og dagurinn varð töluvert lengri en Magga hafði dreymt um. Það fyrsta sem við gerðum var að hringja bæði í lögreglu og Almannavamamefnd. Þeir gátu þó ekki gefið okkur miklar upplýsingar og því tókum við þá ákvörðun um að halda okkar striki og eftir á að hyggja tel ég að það hafi verið það eina rétta í stöðunni. Að vísu varð að fresta þremur leikjum Breiðabliks en þeim var mjög bmgðið og var þeim veitt áfallahjálp í skólanum. Við héldum svo mjög mikilvægan fund með þjálfumm og fararstjórum þar sem við gátum róað mannskapinn aðeins niður en á fundinum vom sýslumaður, bæjarstjóri, formaður Björgunarfé- lagsins og fleiri aðilar, og er rétt að þakka þeim fyrir þeirra framtak. Það kom aldrei til greina að blása mótið af eins og sumir vildu Við bentum fólki hins vegar á að það væri miklu betur statt hér í Eyjum heldur en uppi á landi þar sem jarðskjálftinn eyðilagði jafnvel vegina. Mótið hófst svo aðeins fyrr um morguninn á sunnu- deginum og áætlanir héldust." En að lokum, hverjir eru helstu kostir þessað halda svona mót íEyjum? „ Ég held að hvergi sé boðið upp á jafn mikið utan fótboltans og hér í Eyjum. Stelpumar fara þama í rútu- ferð og bátsferð en einnig er mikið gert fyrir fararstjóra og þjálfara lið- anna. Ég held að það sé óhætt að fullyrða að það sé einsdæmi hversu þétt og skemmtileg dagskrá mótsins er. Einnig er það ótvíræður kostur að nánast öll vinna er í höndum Eyja- manna, Vöraval er náttúmlega aðalstyrktaraðilinn en það eina sem ég man eftir sem er gert af öðmm en Eyjamönnum em verðlaunapening- amir sem em steyptir í Reykjavík. Eg vil svo að lokum þakka þeim fjöl- mörgu sjálfboðaliðum sem lögðu hönd á plóg til að gera þetta mót eins glæsilegt og það varð, án þeirra væri þetta ómögulegt." sagði Érlingur að lokum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.