Fréttir - Eyjafréttir - 22.06.2000, Side 17
rimmtudugur 22. júní 2000
Fréttir
17
VÖRUVALSMEISTARAR ÍBV í 6. flokki A ásamt Ernu Þorleifsdóttur þjálfara.
ERNA þjálfari ásamt Vöruvalsmótsmeisturum 6. flokki B ÍBV.
STELPURNAR í 4. flokki A ÍBV unnu Val í keppni um 3. sætið. Með þeim á myndinni er Sigríður Ása
þjálfari þeirra.
Mikihræg mót
fyrír stelpurnar
-segir Helga Ósk Hannesdóttir þjálfari
hinna sigursælu Blika
Helga Ósk Hannesdóttir stóð í
ströngu á Vöruvalsmótinu en hún
er þjálfari Breiðabliks og er bæði
með 5. og 6. flokk þar sem jafnvel
eru fjögur lið í einum flokki.
Helga var þrátt fyrir það mjög
ánægð með mótið, sérstaklega stelp-
urnar sínar enda var Breiðablik
ofarlega í öllum flokkum.
Varþetta þittjyrsta Vöruvalsmót?
„Já sem þjálfari, en ég tók þátt í
mótinu í Eyjum árið 1992 þegar ég
keppti með 2. flokki Vals. Það var
alveg frábær upplifun og því var ég
töluvert spennt fyrir því að koma aftur
til Eyja á Vöruvalsmótið. Það er óhætt
að segja að ég hafi ekki orðið fyrir
vonbrigðum því mótið var mjög
eftirminnilegt í alla staði. Eg sjálf var
á þönum allan tímann, var með sjö lið
á minni könnu en vegna þess að leikir
flokkanna voru stundum á sama tíma
sá ég aðallega um 5. flokkinn enda var
ég með gott fólk sem sá um þann
sjötta."
Ykkur gekk mjög vel. Er þetta sagan
endalausa um að Breiðablik sé alltaf
með bestu liðin í yngri flokkum
kvenna?
„ Hjá okkur hefur verið staðið mjög
vel að kvennaboltanum og það eru
mjög sterkir árgangar að koma upp
hjá okkur. Stelpumar hjá mér hafa líka
æft mjög vel í vetur, margar hafa mætt
á hveija einustu æftngu síðan f
október þannig að það er kannski ekki
að spyija um árangurinn.“
Þið lentuð heldur betur í œvintýri á
laugardaginn og Breiðablik varð
kannski fyrir mesta áfallinu af
þáttakendum mótsins, eru stelpumar
búnar að ná sér?
„Eg var svo heppin eða kannski
óheppin að vera ekki á staðnum því að
ég var með 6. flokkinn í leik en við
fréttum fljótlega af þessu og manni
leið mjög illa. Svo fengum við að vita
að engin hafði meiðst þannig að þá
varð ég rólegri. Við vorum mjög
ánægð hvemig tekið var á þessu með
stelpumar en auk þess að fá
áfallahjálp fórum við á staðinn og
skoðuðum aðstæður. Yngstu stelp-
unum, sem ekki lentu í grjóthruninu,
fannst þetta ekki mikið mál en þeim
sem voru í Spröngunni var mjög
HELGA Ósk.
brugðið. Þær eru samt sem áður
orðnar hressar og kátar.“
Breiðablik heldur hið árlega Gull og
Silfumiótið, hvort mótið er betra?
„ Sjálf hef ekki tekið þátt í þessum
mótum nema þetta eina ár í Eyjum
þannig að ég get ekki dæmt um það.
En fyrir okkur í Breiðablik er mjög
gaman að koma til Eyja og sitja
hinum megin við borðið. Mótin eru
bæði mjög mikilvæg fyrir kvenna-
knattspymuna enda stærstu mót sinnar
tegundar. En eins og ég segi þá er
mjög gaman að koma til Eyja í þessa
fallegu náttúm sem þið bjóðið upp á."
Er eitthvað sem þú vilt koma að í
lokin?
„Eg vil bara hvetja stelpur til þess
að æfa reglulega fótbolta, þannig ná
þær árangri og leikimir verða
skemmtilegri fyrir vikið. Einnig
langar mig til að þakka Eyjamönnum
fyrir frábært mót.“
Vöruvalsmótið: Fræknar frænkur - Andrea og Kristín Erna í 6. flokki
Fara fyrir liði IBV
ANDREA hampar verðlauna-
bikurunum.
Frænkurnar Andrea Káradóttir og
Kristín Erna Sigurlásdóttir voru
áberandi í liði 6. flokks IBV og fara
þar í fótspor pabbanna, Kára og
Sigurlásar Þorleifssona.
Kristín skoraði flest mörk í sínum
aldursflokki en Andrea var fyrirliði A-
liðsins og var svo kjörin besti leik-
maður flokksins í lokahófinu. Fréttir
fengu þær frænkumar í smáspjall um
fótbolta.
Efvið byrjum á þér Andrea, hvemig
fannst þér að vera valin best í þínum
flokki?
„Mér fannst það bara frábært. Eg
átti ekki von á því að verða valin og
brá því ofsalega þegar ég heyrði
nafnið mitt.“
Hvað skoraðir þú mörg mörk, Kristín
og hvemig fórstu að því að skora
svona mikið?
„Ég skoraði ellefu mörk um helg-
ina. Ég veit eiginlega ekki hvemig ég
fór að því en stelpumar í liðinu em
góðar og það hjálpar mér.“
Eruð þið búnar að œfa vel fram að
mótinu?
Báðar: ,Já, við æfðum vel í vetur.“
IBV vann mótið íykkarflokki, varþað
ekki gaman?
Kristín: „Það var gaman að vinna
mótið. Vöruvalsmótið var líka svo
skemmtilegt."
Andrea: ,Jú alveg frábært. Úrslita-
leikurinn var rosalega erfiður, sér-
staklega fyrri hálfleikur en seinni
hálfleikur var ekki eins erfiður."
Stefnið þið á atvinnumennsku í
fótbolta?
Andrea:, Jaaáá, ég veit það ekki.“
Kristín: „ Já.“
Hverjir haldið þið að verði Evrópu-
meistarar í sumar?
Andrea: „Mér finnst Portúgal og
England vera með skemmtilegustu
liðin.“
Kristín: „ Ég held með Englandi í
keppninni og vona að þeir vinni.“
En hvað með enska fótboltann, hvaða
lið eru best þar?
Andrea: „Ég held mikið upp á
Manchester United en ég held ekki
upp á neinn sérstakan í liðinu.“
Kristín: „Manchester United er besta
liðið og David Beckham er bestur í
liðinu.“
KRISTÍN sýndi mikla leikni
með knöttinn, enda markahæst.