Fréttir - Eyjafréttir - 28.12.2000, Blaðsíða 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 28. desember 2000
Bókvitið
'askana
9°"
Vestmannaeyingar
Bækurnar eru vinir mínir
Hún mágkona mín notast við fullrót-
tæka aðferð til að vekja mann að
morgni, en ég þakka samt fyrir áskor-
unina.
Ég vil byrja á því að taka það fram
að ég les mikið, það gerist varla að ég
hafi ekki bók á náttborðinu hjá mér.
En eftir því sem ég les meira þá verður
mér betur ljóst hve lítið ég veit.
Minn smekkur er í einfaldri mynd
þannig að ég les því sem næst allt.
Þetta hef ég gert frá því á unglings-
árunum. Ungur las ég bækur, sem
pabbi á, um merka menn, t.d. Thomas
Alva Edison. Ég las Alistair McLean,
Desmond Bagley og var svolítið í
þeirri línu, svona í kringum 13-15 ára.
Þá fór ég að lesa Sven Hassel eftir
áskorun föðursystur minnar, og hef
lesið þær bækur oftar en einu sinni og
sumar oftar en það. Ég las Góði dátinn
Svejk og finnst sorglegt að höfundinum
tókst ekki að ljúka þeirri bók, hún var
gefin út endalaus.
Ég hef alltaf haft mjög gaman af
fantasíum, sögum sem innihalda dreka,
galdramenn, riddara og baráttu góðs og
ills. Því öll þurfum við á töfrum að
halda endrum og sinnum. Tólf ára
gamall þrælaði ég mér í gegnum kilju,
sem var 1077 blaðsíður að lengd, á
ensku, er eftir J.R.R. Tolkien og heitir
Lord ofthe Rings. Þetta er gríðarlega
skemmtilegur sögubálkur sem m.a.
The Hobbit er hluti af. í þessum geira
bókmennta fann ég höfund sem ég
held mikið upp á, hann heitir David
Eddings. Bækur hans eru um margt
líkar bókum Tolkiens en hjá Eddings
er meiri húmor. í seinni tíð hef ég verið
að lesa sögurnar um Harry Potter
ásamt börnunum mínum, og ekki er
alveg á hreinu hvert okkar hefur mest
gaman af.
Spennusögur les ég ennþá og finnst
af enskum höfundum Tom Clancy
vera í sérflokki. Islenskar spennusögur
voru fyrir nokkrum árum hálfgerður
brandari. Það virðist þó vera að rætast
úr núna seinni ár og hefur Amaldur
Indriðason greinilega góð tök á spenn-
unni. Ég las um daginn Dauðarósir
eftir hann og bíð spenntur eftir að lesa
þá nýjustu, Mýrin.
Eitt sinn var ég í vist hjá Jónínu og
Unnari á Eskifirði og komst þá í bók
sem heitir Ég lifi. Þetta er lífsreynslu-
saga manns sem lifði af helför gyðinga.
Sagan greip mig fostum tökum. I fram-
haldi af því fékk ég mikinn áhuga á
heimstyrjöldinni síðari og fór að lesa
bækur tengdar því efni.
Eyjasögumar hef ég gaman af að
kíkja í og sögulegan fróðleik tengdan
minni heimabyggð.
Ljóðum og vísnagerð hef ég ánægju af
og kíki stundum í þannig bækur og rit.
Þegar ég fæ áhuga á einhverju þá er
eitt af því fyrsta sem ég geri að fara
niður á bókasafn og leita mér að efni.
Ég skora á alla að kíkja inn á bóka-
safnið, þar er alltaf hægt að finna
bækur um efni sem fólk hefur áhuga á,
eða gott af að lesa. Og núna er auðvelt
að fá lánað á milli safna ef bókin er
ekki til hér.
Þegar ég fékk áhuga á veiðiskap,
fyrst lundaveiði, seinna skotveiði og í
framhaldi af því veiðihundum, þá var
lagst í bækur og rit um það. Ég hef haft
mikla ánægju af bók sem heitir Skyttur
á veiðislóð og er skrifuð af Eggerti
Skúlasyni. Þetta er viðtalsbók við
landsfrægar skyttur um veiðar og
viðhorf til veiða.
Eins og margir kannski vita þá er ég
vel kvæntur og ekki minnkaði ánægja
mín með konuna eftir að hún fór að
vinna á bókasafninu. Hún á það til að
grípa með sér hinar og þessar bækur
sem hún heldur að ég hafi gaman af.
Að mörgu leyti hef ég alltaf litið á
bækur sem vini mína. Og eins og gefur
að skilja þá verða sumar meiri vinir en
aðrar. Margar bækur les ég oft og
mörgum sinnum, það er þá eitthvað í
þeim sem höfðar svona sterkt til mín.
Ein slík er á náttborðinu hjá mér þegar
þetta er skrifað. Sagan sú er eftir
Jeffrey Archer og heitir Hvorki meira
né minna, skemmtileg bók, stútfull af
húmor, gott í skammdeginu.
Að lokum verð ég að skora á
einhvem. Fyrir valinu varð maður sem
ég veit að les mikið og tilheyrir starfs-
stétt sem ég hef mikil samskipti við í
starfinu og mér hefur alltaf leikið
forvitni á að vita hvað menn lesa úti á
sjó. Hann heitir Guðjón Jónsson og er
stýrimaður á Antares, reyndar er hann
nýorðinn pabbi í þriðja sinn og rýnir
varla í fleira en skítugar bleyjur þessa
dagana.
Gleðilegt nýtt ár.
Skemmtilegt að renna fyrir fisk
Fyrir skömmu urðu eigertdaskiptí á glugga- og
hurðaverksmiðjunni við Flatír. Hún hét áður
Gefjun en hefur nú fengið nafnið Gæskur.
Einn eigenda hennar er Eyjamaður vikunnar.
Fulltnafn? Valdimar Guðmundsson.
Fæðingardagur og ár? 25. júní 1958.
Fæðingarstaður? Blönduós.
Fjölskylduhagir? í sambúð með Möttu.
Menntun og starf? Gagnfræðaskóli og iðn-
skóli. Vinn hjá glugga og hurðaverksmiðjunni
Gæsk.
Laun? Alltoflítil.
Bifreið? Volvo 1986.
Helstigalli? Það verða aðrirað dæma um.
Helsti kostur? Sama hér (þó hlýtur að fylgja
því nokkurgæska að vinna hjá fyrirtæki með
þessu nafni).
Uppáhaldsmatur? fíjúpur.
Versti matur? Siginn fiskur.
Uppáhaldsdrykkur? Það er margt gott tíl í fljótandi formi.
Uppáhaldstónlist? Kántrý.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Að renna
fyrirfisk.
Hvað erþað leiðinlegasta sem þú gerir?Að ryksuga.
Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljón í happdrætti?
Ég yrði ekki í neinum vandræðum með að eyða henni.
Uppáhaldsstjórnmálamaður? Enginn eftiraðJón Bald-
vin hætti.
Uppáhaldsíþróttamaður? Vala Flosadóttir.
Ertu meðlimur íeinhverjum félagsskap? Nei.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Ýmsir fræðsluþættir.
Uppáhaldsbók? Bankabókin, þá sjaldan að eitthvað er
inni á henni.
Hvað metur þú mest ífari annarra? Heiðarleika.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra?
Óheiðarleiki.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Æsku-
slóðirnar norður í Húnavatnssýslu og svo Vestmannaeyjar.
Á þessi rekstur framtíð fyrir sér í Eyjum? Já,
tvímælalaust.
íhverju hefur verið mest eftirspurn? Tvöföldu gleri,
gluggum og hurðum.
Eruð þið samkeppnisfærir í verði og gæðum? Já, það
tel ég.
Eitthvað að lokum? Ég vona að rekstur glugga- og
hurðaverksmiðjunnar eigi eftir að dafna á nýju ári. Öllum
Vestmannaeyingum vil ég óska árs og friðar og þakka fyrir
öll gömlu árin.
Þann 14. nóvember eignuðust stúlku Sigrún Ágústsdóttir og Magnús
Guðmundsson. Hún vó 13 og Vi mörk og var 52 sm og hefúr fengið
nafnið Ásdís Eva. Á myndinni er hún í fangi stóm systur, Ingu
Hmndar. Fjölskyldan býr íEnglandi.
Leiðrétting. Vegna villu í myndatexta birtum við aftur mynd og
upplýsingar um þessa fallegu stúlku.
Þann 14. nóvember eignuðust stúlku Kristín Jóna Guðjónsdóttir og
Þráinn Óskarsson. Stúlkubamið var 14 merkur og 51 sm.
Fjölskyldan býr í Hafnarfirði.
Á döfinni— 4*
Desember
28. Jólaball í Týsbeimilinu kl. 16 til 18. Allir velkomnir.
28. Bsejarstjórnarlundur í Listaskólanum kl. 18.00.
29. AÓalfundur Jötuns í Alþýiuhúsinu kl. 16.30.
29. Aialfundur Verðandi í Bósum kl. 20.00
30. Jólafundur AA samfakanna ai Heimagötu 24 kl. 15.30.
Opinn fundur og allir velunnarar samlakanna velkomnir.
31. Síðasti dagur aldarinnar, loksins.
Janúar
1. Morgunskíma nýrror aldar fyrir austan lyjar.
2. Álfastelpur mæta í Týsheimilii kl. 20.00
6. Þreftóndi dogur jóla
6. Grímuball lyverja, en hvar? Það kemur í Ijós.
Jólafundur AA
Jólafundur AA samtakanna verður haldinn að
Heimagötu 24 laugardaginn 30. des. kl. 15.30.
Allir velunnarar samtakanna velkomnir