Fréttir - Eyjafréttir - 28.12.2000, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 28. desember 2000
Fréttir
15
VIGSLA Stafkirkunnar var meðal jákvæðari atburði á árinu 2000 í Vestmannaeyjum.
September
Ekki allt dýrast í
Eyjum
Þótt oft sé kvartað yfír háu vömverði á
landsbyggðinni, miðað við Reykja-
víkursvæðið, er sú þó ekki alltaf
raunin. Athugull listunnandi, á ferða-
lagi í Eyjum, veitti því athygli að unnt
er að gera hagstæð innkaup í
gjafavöru í Vestmannaeyjum. Frá því
var sagt í tímaritinu Hús og híbýli að
stytta, sem kallast Engillinn og kostar
490 krónur á höfuðborgarsvæðinu,
kostaði aðeins 425 krónur hjá Eiríki í
Eyjablómum
Síma, stiga og
múrviðgerðarefni stolið
Það eru ólíldegustu hlutir sem fólk
getur tekið upp á að taka ófrjálsri
hendi. Fyrstu vikuna í spetember vom
þrír þjófnaðir kærðir til lögreglu.
Stolið var farsíma á Nausthamars-
bryggju, álstiga við Smáragötu og
fímm pokum af múrviðgerðarefni frá
nýbyggingu við Litlagerði. Ekki var
talið að þessi þjófnaðarmál tengdust
neitt innbyrðis.
Heimsviðburður í Eyjum
Það þótti mikill hvalreki þegar
Utlendingahersveitin svonefnda hélt
tónleika í Akógeshúsinu í Eyjum.
Þama vom saman kornnir helstu
núlifandi snillingar íslendinga í
jassleik, þeir Ámi Egijsson, Jón Páll
Bjamason, Þórarinn Olafsson, Pétur
Östlund og Ámi Scheving. Áheyr-
endur urðu ekki fyrir vonbrigðum með
frammistöðu þeirra.
Aðeins þrír mættu
Vikuna4. til 10. september var haldin
vika símenntunar á Islandi. Var þessu
átaki ekki síst beint til atvinnulausra
og ákvað Svæðisvinnumiðlun Suður-
lands að hafa opið hús í Vest-
mannaeyjum til að kynna hvað í boði
væri undir slagorðinu Menntun er
skemmtun. Þar fluttu þau erindi,
Bertha Johansen, námsráðgjafí við
Framhaldsskólann og Davíð Guð-
mundsson í Tölvun. Aðeins þrír
mættu á þessa kynningu og olli það
nokkmm vonbrigðum en í vikunni
vom 22 skráðir atvinnulausir í Eyjum.
Ekki eins og ætlað var
Tvö tilboð bámst í rekstur Heijólfs, frá
Herjólfi hf. og Samskipum. Þegar þau
vom opnuð hjá Vegagerðinni rak
marga í rogastans vegna þess regin-
munar sem var á tilboðunum. Tilboð
Samskipa reyndist miklu lægra en
tilboð Herjólfs hf. og þótti sýnt að því
yrði tekið. Ekki hvað síst beindist þó
gremja Herjólfsmanna að Vega-
gerðinni og ásökuðu þeir hana um að
hafa lagt fram óraunhæfa kostn-
aðaráætlun.
Leikfélagið endurvakið
Sökum almenns áhugaleysis fyrir
leiklist, bæði hjá bæjarbúum og
bæjaryfirvöldum var ákveðið á fyrra
ári að hætta starfsemi Leikfélagsins án
þess þó að leggja það niður sem slíkt.
En nú á haustmánuðum boðuðu
nokkrir áhugamenn um leiklist til
undirbúningsfundar. Þar mættu um
30 manns og sagði formaður félagsins,
Sigurhans Guðmundsson, að stefnt
væri að því að setja Galdrakarlinn í Oz
á svið undir leikstjóm Andrésar
Sigurvinssonar.
Ný verslun og saumastofa
Þær mæðgur, Anna Sigmarsdóttir frá
Löndum og Elva Ragnarsdóttir, dóttir
hennar opnuðu verslunina og sauma-
stofuna EIv-Ann við Heiðarveg þar
sem Verkakvennafélagið Snót var
áður til húsa. Þær sögðust ætla að
bjóða upp á alhliða saumaskap og
fatabreytingar ásamt því sem til sölu
yrði hvaðeina til hannyrða.
Bylting í kynningu á netinu
Eyjavefurinn www.eyjar.com var
opnaður en hann er samstarf Vest-
mannaeyjabæjar, LandMats, Mann-
fræðistofnunar og Rannsóknasetursins
auk þess sem fleiri aðilar tengjast
honum. Á vefnum er að fínna marg-
þætt menningarefni, auk upplýsinga
um bæjarkerfíð. Aðaltrompið er þó
þrívíddarmynd þar sem hægt er að
ferðast um Eyjar, rétt eins og
viðkomandi væri á staðnum.
Viðurkenningar afhentar
Umhverfisnefnd og Rotarýklúbbur
Vestmannaeyja gengust fyrir því að
veitt voru sérstök umhverfisverðlaun.
Úrskurðurinn var sá að fegursti
garðurinn þetta árið væri að Hólagötu
41, fegursta fyrirtækið fslandsbanki
FBA og fegursta húseignin Helga-
fellsbraut 23. Þá fékk Gaujulundur á
Nýja hrauninu sérstök heiðurs-
verðlaun.
Sambýlið 10 ára
Sambýlið við Vestmannabraut hélt
upp á tíu ára afmæli sitt í september.
Fjöldi gesta kom í afmælisveisluna
sem var hin veglegasta. Þá barst
Sambýlinu ijöldi gjafa og heillaóska á
afmælinu.
Bæjarlistamaður valinn
árlega
Bæjarráð ákvað á fundi, að tillögu
sjálfstæðismanna, að árlega yrði hér
eftir valinn sérstakur bæjarlistamaður
Vestmannaeyja, í fyrsta skipti árið
2001. Varmenningarmálanefnd falið
að sjá um framgang þessa máls.
Fjárbændur vilja eignast
spennistöð
Fjárbændumir Gísli Óskarsson og
Sigurmundur Einarsson óskuðu eftir
því við stjóm Bæjarveitna að fá afhent
til eignar spennistöðvarhús vestan við
Dalabúið. Ekki var þó ætlun þeirra sú
að fara út í rafmagnsframkvæmdir
heldur sú að nýta húsið fyrir skepnu-
hald sitt. Stjóm Bæjarveitna ákvað að
hafna þessu erindi þeirra og var húsið
rifið skömmu sfðar.
Húsnæðisvandinn leystur
Grunnskólamir í Vestmannaeyjum
hafa verið í sífelldu húsnæðishraki en
nú virtist sem lausn væri fundin á
þeim vanda Bamaskólans, a.m.k. í
bili. Ákveðið var af bæjaryfirvöldum
að kaupa tvær lausar kennslustofur og
koma þeim fyrir á lóð Kirkjuhóls en
það hús var rifið um haustið.
Skanssvæðið vígt
Síðustu helgina í september var því
fagnað að endurbyggingu Landlystar
var lokið og Skanssvæðið í heild sinni
tilbúið. Þessi framkvæmd þótti hafa
tekist fádæma vel og heildarsvipur
svæðisins minnti á ævintýraland.
Gott lundaball
Bjargveiðimenn héldu sína árlegu
hátíð, lundaballið. Var þar að vanda
skotið bæði föstum skotum og lausum
en fór annars fram á hefðbundinn hátt.
Þrír aldraðir veiðimenn vom heiðraðir
á þessu lundaballi, þeir Einar Ólafs-
son, Hávarður Sigurðsson og Sigur-
geir Jónasson.
Óafsakanleg framkoma
Bilun kom upp í ATR-vél Flugfélags
Islands skömmu eftir flugtak í Vest-
mannaeyjum. Varðaðdrepaáöðrum
hreyfli vélarinnar og fljúga henni til
Reykjavíkur á einum hreyfli.
Skiljanlega varð ekki öllum farþegum
um sel við þetta. Einn þeirra, Magnús
Kristinsson, sagði að mörgum hefði
verið bmgðið og átaldi hann forsvars-
menn Flugfélagsins íyrir að bjóða ekki
farþegum upp á áfallahjálp þegar
komið var til Reykjavíkur, sagði
framkomu þeirra óafsakanlega. Jón
Karl Ólafsson, framkvæmdastjóri
Flugfélagsins sagði að engin hætta
hefði verið á ferðum og félagið ætlaði
ekki að búa til áföll tii þess eins að
veita áfallahjálp.
Október
Máttarstólpar kveðja
Þann 4. október létust tveir kunnir
athafnamenn í Eyjum, þeir Kristinn
Páisson frá Þingholti og Sigurður
Einarsson, forstjóri ísfélagsins. Þeir
vom jarðsettir sama dag og margir
sem fylgdu þeim til grafar. Var talið
að aldrei hefðu fleiri komið í Landa-
kirkju á einum degi.
Nýir eigendur að Axel Ó
Ein rótgrónasta verslun í Eyjum, Skó-
verslun Axels Ó, skipti um eigendur í
október. Þau Dadda og Axel, sem
rekið hafa fyrirtækið í 42 ár, ákváðu
að hætta og seldu skóbúðina
fjöiskyidu Magnúsar Steindórssonar
og Bergeyjar Eiríksdóttur. Nýir
eigendur upplýstu að haldið yrði
áfram á svipuðum nótum í rekstrinum.
Höfnin fær 113 milljónir
Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir
árið 2001 var gert ráð fyrir að
fjárveiting til Vestmannaeyjahafnar
yrði 113 milljónir króna. Aðeinstvær
hafnir á landinu fengu hærri úthlutun
og vom forsvarsmenn hafnarinnar
nokkuð ánægðir með sinn hlut.
Vandræði vegna læknaskorts
Aðeins hafði tekist að manna þrjár af
fjómm læknastöðum við Heilbrigðis-
stofnunina og þar sem þeir þrír læknar
áttu inni ótekin frí skapaðist
vandræðaástand í þeirn málum. Bæði
þýddi þetta aukið álag á þá lækna sem
vom að starfi og eins gat orðið löng
bið hjá þeim sem þurftu á læknishjálp
að halda.
11-11 verslun í Eyjum
Mikil uppstokkun varð hjá Kaupási
sem m.a. rekur verslanir KÁ. Tvær
KA-verslanir vom í Eyjum en nú var
breytt um nafn á versluninni í Goða-
hrauni og hún gerð að 11-11 versiun.
Þá var og boðað að verslunin á Tang-
anum yrði síðar um haustið svonefnd
Nóatúnsverslun. Þær íyrirætlanir fóm
þó forgörðum þar sem eigandi hús-
næðisins sýndi því áhuga að leigja
verslunarkeðjunni Baugi húsnæðið.
Án leyfis í 26 ár
Þeim brá nokkuð í brún, hjóna-
kornunum Magnúsi Sveinssyni og
Katrínu Sjöfn Sigurbjömsdóttur, þegar
þau komust að því að þau hefðu rekið
bensínsöluna og sjoppuna að Kletti í
26 ár án þess að hafa til þess tilskilin
leyfi. í bréfi frá sýslumanni var þeim
gert að sækja um leyfi fyrir þeirri
starfsemi sinni og þar sem þau bæði
em einkar löghlýðið fólk brugðust þau
við hið snarasta og fengu umrætt leyfi.
Nýtt gallerí
Gallerí Heimalist, sem rekið hefur
verslun að Bámstíg 9 með listmuni og
handverk, færði út kvíamar og tók í
notkun hinn helming hæðarinnar fyrir
málverka- og listsýningar. Fimm
listamenn riðu á vaðið þegar opnað
var, og sýndu þar verk sín.
Framkvæmdir stöðvaðar
Þeir Sigmar Georgsson og Grímur Þór
Gíslason höfðu fyrr unr haustið hafið
framkvæmdir við hið nýja ráðstefnu-
hús á vatnstankinum í Löngulág.
Töldu þeir sig hafa í höndum öli
tilskilin leyfi til að mega byggja hús
sitt. Á daginn kom að svo var ekki.
Nokkrir íbúar í nágrenninu kærðu til
úrskurðamefndar skipulags- og bygg-
ingamála og voru framkvæmdir við
húsið stöðvaðar m.a. vegna ágalla er
snertu heilbrigðismál og bflastæði.
Nokkurt þóf var vegna þessa og lágu
framkvæmdir niðri um nokkurra
vikna skeið en hófust síðan á ný þegar
búið var að kippa þessum liðum í lag.
Ein fimm hafmeyja
I október var sýnd í sjónvarpinu ný
íslensk heimildamynd um líf
sjómannskvenna í fimm löndum og
þremur heimsálfum. Ein þeirra
kvenna var Vestmannaeyingurinn
Þómnn Rúnarsdóttir. Myndin þótti
vel gerð og hlutur Þórunnar hinn
ágætasti.
Fyrsta sfldin
Fyrsta sfld haustsins barst til Eyja
þann 19. nóvember þegar Antares
kom með 350 tonn. Var hún unnin og
fryst í Isfélaginu. Auk þess veiddi
Gullberg VE sfld til vinnslu fyrir
ísfélagið. Hjá Vinnslustöðinni var
einnig unnin sfld og var Sighvatur
Bjamason VE við þær veiðar. Útlit
var betra á mörkuðum en oft áður,
m.a. opnaðist nýr markaður í
Egyptalandi fyrir smásfld og var fryst
hjá báðum fyrirtækjum fyrir þá aðila.
Forræðið ekki lengur í
Eyjum
I lok október fékkst loks á hreint að
Samskip myndu taka við rekstri
Herjólfs frá og með næstu áramótum.
Það hafði legið í loftinu um nokkurt
skeið en stjórn Herjólfs hf. hafði kært
málsmeðferð til kærunefndar útboðs-
mála. En nú kom á daginn að
Vegagerðin hafði þegar samið við
ÓLAFUR sparisjóðsstjóri afhenti Runa og Margo viðurkenn-
ingarnar.