Fréttir - Eyjafréttir - 28.12.2000, Blaðsíða 16
16
Fréttir
Fimmtudagur 28. desember 2000
Samskip um rekstur Herjólfs. Stjóm
Herjólfs undi þeim málalokum að
vonum illa og vændi t.a.m. sam-
gönguráðherra um óheilindi og lygar í
þessu máli.
Krafist líkamsburða
Alls bárust 17 umsóknir um nýtt starf
á vegum bæjarins, starf þjónustu-
fulltrúa. í því starfi fólst eftirlit með
nokkmm húseignum í eigu bæjarins
svo og Skanssvæðinu. í auglýs-
ingunni var tekið fram að nokkurra
líkamlegra burða væri krafist í
starfmu. Egill Egilsson, smiður, var
valinn úr hópi þessara umsækjenda.
Vilja byggja gróðurskála
með kaffthúsi
Þeir Eiríkur Sæland, kaupmaður í
Eyjablómum, og Andrés Sigmunds-
son, bakari, sóttu um lóð við
Miðstræti. Þar vildu þeir byggja 800
fermetra gróðurskála og kaffihús á
einni hæð. Skipulags- og bygginga-
nefnd frestaði því að taka afstöðu í
málinu.
Guðjón með
málverkasýningu
Guðjón Olafsson, frá Gíslholti, opnaði
málverkasýningu í Akógeshúsinu í lok
október. Þar sýndi hann olíumálverk,
vatnslitamyndir og teikningar. Guð-
jón helgaði sýninguna minningu
Sigurðar Einarssonar sem orðið hefði
fimmtugur 1. nóvember. Mjög góð
aðsókn var að sýningu Guðjóns.
Kjúklingamir flugu burt á 20
mínútum
Mikil örtröð var þegar hin nýja 11-11
verslun var opnuð í Goðahrauninu.
Eitt af tilboðum dagsins var kjúklingar
á útsöluverði og var biðröð fyrir utan
þegar opnað var. Þrjú tonn af hænsn-
fuglum flugu út á 20 mínútum, tonn til
viðbótar var fengið með Herjólfi og
svo eitt tonn til viðbótar daginn eftir
en ekkert dugði til, allt kláraðist jafn-
óðum og sýnt að kjúklingahungur
hefði verið mikið í Eyjum.
Októberhátíðir
Eyjamenn létu ekki sitt eftir liggja í
skemmtanahaldi í október. Mánabar
bauð upp á minnstu bjórhátíð í heimi
og þótti hún takast hressilega. Þá bauð
veitingahúsið Prófasturinn, sem áður
hét Fjaran, upp á villibráðarkvöld sem
þótti lukkast með ágætum.
Stefnt að 5200 íbúum árið
2010
Haldin var ráðstefna sem bar heitið
Eyjar 2010, í Týsheimilinu laugar-
daginn 28. október. Þar voru flutt
framsöguerindi sem tengdust framtíð
byggðarlagsins og skipað var í
umræðuhópa. Bæjarbúar sýndu
þessari ráðstefnu mikinn áhuga auk
þess sem fjöldi manns kom ofan af
landi gagngert til að taka þátt í henni.
Meðal þess sem kom fram á
ráðstefnunni var að stefna bæri að því
að íbúar í Vestmannaeyjum yrðu
orðnir 5200 árið 2010.
Samruni úr sögunni
í lok október varð ljóst að ekkert yrði
úr fyrirhuguðum samruna ísfélags og
Vinnslustöðvar. Isfélagsmenn urðu
fyrir nokkrum vonbrigðum með þessa
niðurstöðu og raunar einhverjir
Vinnslustöðvarmanna. Fram kom að
heimamenn í hópi Vinnslustöðv-
armanna hefðu lagst gegn sameiningu
fyrirtækjanna.
Rændu eigin fé
Garðyrkjustjóri bæjarins og þrír
starfsmenn bæjarins handsömuðu í lok
október tvö ómörkuð lörnb sem gert
höfðu sig heimakomin í garði við
Dverghamar en lausaganga fjár er
ekki heimil í Vestmannaeyjum. Var
lömbunum komið til geymslu uppi í
Dalabúi og þess beðið að eigandi
þeirra leysti þau úr haldi. En
eigandinn brást skjótt við og náði í sín
lömb strax daginn eftir, án þess þó að
bjóðast til að greiða fyrir smölun og
gistingu þeirra og lét ljót orð falla um
garðyrkjustjórann í bréfi sem hann
birti síðan í Fréttum.
Hæstu laun á landinu?
Samkvæmt upplýsingum blaðsins
Frjálsrar verslunar greiddi útgerð
Freyju RE hæstu meðallaun í
sjávarútvegi á árinu 1999, eða tæpar
sjö milljónir króna. Útgerðarmaður
Ofeigs VE sagði hins vegar að
meðallaun til skipverja á Ofeigi hefðu
numið 7,3 milljónum á því ári þótt
hvergi væri þess getið hjá Frjálsri
meira á árinu í framhaldsskólum
vegna þessa verkfalls.
Tónsmíðafélagið með
skemmtun
Tónsmíðafélag Vestmannaeyja, með
Osvald Frey Guðjónsson í broddi
fylkingar, hafði komið fram við ýmis
tlefni en nú var blásið til sjálfstæðrar
tónlistarskemmtunar. Var hún haldin
í Vélasal Listaskólans og þótti takast
með miklum ágætum.
Jólum þjófstartað
Nokkrir aðilar í Eyjum, aðallega í
kaupsýslugeiranum, undir forystu
Helgu Dísar Gísladóttur, efndu til
uppákomu sem nefnd var „Rómantísk
jól“ í Alþýðuhúsinu, fyrstu helgina í
nóvember. Þar var sýning á ýmsum
þeim vamingi sem tengist jólum og
jólahaldi og þótti þessi uppákoma
takast prýðilega.
að fyrirtækið Bergur-Huginn í Eyjum
var talið skara fram úr á þessu sviði.
Tölvun á nýjan stað
Fyrirtækið Tölvun flutti sig um set og
færði höfuðstöðvar sínar suður fyrir
Strandveginn í húsnæði sem löngum
hefur verið kennt við Neista. Sögðu
forsvarsmenn að mikið rýmkaðist um
starfsemina við þetta.
Ölvaður og réttindalaus á
stolnum bíl
Á miðvikudagskvöldi um miðjan
nóvember var lögreglu tilkynnt um
bifreið sem lent hefði utan vegar á
nýja hrauninu. Þegar nánar var að gáð
kom í ljós að bifreiðin hafði verið
tekin ófijálsri hendi, ökumaður hennar
var ölvaður og að auki réttindalaus.
Hann slapp með skrámur en bifreiðin
var ekki betri eftir þetta kolólöglega
ferðalag.
MIKILL uppgangur hefur verið í tónlist undanfarið og er Tónsmíðafélagið einn sprotinn sem skotið
hefur rótum undanfarið.
verslun. Nokkrir skipverja skrifuðu
bréf í Fréttir þar sem þeir sögðu laun
sín hafa verið miklum mun lægri en
þessar tölur gæfu til kynna.
Áhugi fyrir loftpúðaskipi
Að minnsta kosti tveir hópar áhuga-
manna um rekstur loftpúðaskipa
könnuðu hvort grundvöllur væri fyrir
rekstur slíks skips á leiðinni milli lands
og Eyja. Jóhann Jónsson, frá Laufási,
var í öðrum hópnum og sagði hann að
þessi möguleiki hefði verið til
skoðunar í nokkrar vikur. Fyrir hinum
hópnum fór Þröstur Johnsen og fór
hann m.a. til Filippseyja til að kanna
kaup á slíkum farkosti þar.
Nóvember
Tugmilljónatap?
Fram kom að lán, sem bæjarsjóður
hafði tekið, upp á 12 milljónir
bandaríkjadala, hefði hlaðið utan á sig
miklum kostnaði vegna óhagstæðrar
gengisþróunar. Var talið að upphæð
skuldarinnar hefði hækkað á einu ári
um rúmar 75 milljónir af þeim sökum.
Kaupþing annaðist samningsgerð og
ráðgjöf vegna þessa samnings og
vildu fulltrúar minnihluta bæjar-
stjómar ætla að lítil forsjá hefði verið í
þeirri ráðgjöf.
Verkfall kennara í
Framhaldsskólanum
Þann 7. nóvember hófst verkfall
framhaldsskólakennara. Þar með
lamaðist starfsemi allra framhalds-
skóla í landinu, þ.á.m. í Vest-
mannaeyjum. Ottuðust margir að um
langt verkfall yrði að ræða, þar sem
mikið bar í milli hjá deiluaðilum.
Reyndin varð og sú að ekki var kennt
Þjóðemissinnar í Eyjum?
Mörgum brá í brún þegar lesa mátti í
Fréttum að Félag íslenskra þjóðemis-
sinna væri að stofna félagsdeild í
Vestmannaeyjum. Markmið þessa
félags hefur fram til þessa helst verið
það að stunda herferðir gegn þeim
fyrirtækjum sem ráðið hafa nýbúa til
starfa, og þá helst fólk af lituðum
kynþáttum. Að sögn formanns fél-
agsins var forsvarsmaður félagsins í
Eyjum staddur á sjó og myndi hann
taka til óspilltra mála þegar hann
kæmi í land. Líkast til er sá ágæti
maður á frystitogara eða öðm skipi
með ámóta útivistir því að ekkert
hefur til þessa félags heyrst um
nokkurra vikna skeið.
Dæmdur í sjö mánaða
fangelsi
I desember á síðasta ári réðst maður
nokkur á stjúpföður sinn og veitti
honum lífshættulega áverka með hníft.
Nú var kveðinn upp dómur í Héraðs-
dómi Suðurlands í þessu máli og var
árásarmaðurinn dæmdur í sjö mánaða
fangelsi fyrir þennan verknað.
Logi Jes hlutskarpastur
í tilefni af 20 ára afmæli Héraðs-
skjalasafns Vestmannaeyja var efnt til
hugmyndasamkeppni um merki fyrir
safnið. Alls sendu fimm aðilar inn 28
tillögur og varð Eyjamaðurinn Logi
Jes Kristjánsson þeirra hlutskarpastur.
Bergur-Huginn hlaut
verðlaun
Stjóm Landssambands íslenskra út-
vegsmanna ákvað að efna til
umhverfisverðlauna meðal fyrirtækja
í sjávarútvegi og var þetta í annað sinn
sem slíkt er gert. Niðurstaðan varð sú
Þjóðhátíðarborðið endanlega
afgreitt
Fyrir tveimur árum upphófust hinar
sérkennilegustu deilur vegna meintra
spjalla á fomleifum í Herjólfsdal. Þá
lét þjóðhátíðamefnd ljarlægja hlaðið
borð sem sumir töldu merkar fom-
minjar en aðrir sem drógu menn-
ingarsögulegt gildi þess í efa. Var
þetta borðshvarf kært til yfirvalda og
skýrslur teknar af meintum ódæðis-
mönnum. I nóvember var þetta mál
svo loks til lykta leitt þegar
ríkissaksóknari tilkynnti að ekki yrði
krafist aðgerða í málinu.
Auglýst eftir áhöfn
I kjölfar þess að Samskip skyldu taka
við rekstri Hetjólfs um næstu áramót,
var allri áhöfn Herjólfs sagt upp
störfum. I nóvember auglýstu svo
Samskip eftir fólki til starfa um borð í
Heijólfi sem og í landi. Þótti mörgum
sem starfslýsingar væm nánast
„klæðskerasniðnar“ fyrir núverandi
áhöfn. Nær allir skipveijar á Heijólfi
munu hafa sótt um þessi störf á nýjan
leik.
Lúðrasveitin með árlega
tónleika
Lúðrasveit Vestmannaeyja kemur
fram við hin ýmsu tilefni í Vest-
mannaeyjum en er einnig með eina
fasta tónleika á dagskrá á ári hverju.
Það em Styrktarfélagatónleikar sveit-
arinnar sem eru haldnir í lok
nóvember. Svo var og að þessu sinni,
vom hljómleikamir vel sóttir og þóttu
takast vel.
Flugsamgöngum hætt?
Nokkur skjálfti gerði vart við sig í
Eyjum þegar forstjóri Flugleiða
upplýsti í sjónvarpi að jafnvel stæði til
að hætta áætlunarflugi til Vestmanna-
eyja þar sem sú flugleið væri ekki
hagkvæm j rekstri. Forsvarsmenn
Flugfélags Islands töldu orð Sigurðar
hafa verið slitin úr samhengi og ekki
væri á dagskrá að hætta flugi til Eyja.
Hækkun um 29% á þremur
mánuðum
Enn varð hækkun á flugfargjaldi í
innanlandsflugi. Á fimm mánaða
tímabili höfðu fargjöldin hækkað um
29%, úr 10.330 kr. í 13.330 á flug-
leiðinni frá Reykjavík til Vest-
mannaeyja. Helsta ástæða þessarar
miklu hækkunar var sögð vera
síhækkandi eldsneytisverð.
Dýr bæklingur
Yfirlætislítill bæklingur, sem Byggða-
safnið lét gera um söguminjasvæðið á
Skansinum, vakti nokkra athygli,
þ.e.a.s. ekki efni hans eða innihald,
heldur það verð sem greitt var fyrir
hönnun hans og prentun. Hvort
tveggja var unnið í Reykjavík og var
kostnaður við hönnun 290 þúsund kr.
og prentkostnaður 85 þúsund kr. Var
talið að kostnaður við gerð bækl-
ingsins í Eyjum hefði numið innan við
100 þúsund krónum og spunnust
nokkur blaðaskrif af þessu máli. í
framhaldi af því beindi bæjarráð því til
stofnana á vegum bæjarins að leita
tilboða innanbæjar í slík verkefni.
Verslunarferðir til Eyja
Nokkrir aðilar sem tengjast verslun og
þjónustu í Vestmannaeyjum ákváðu
að bjóða upp á sérstakar versl-
unarferðir ofan af landi til Eyja. M.a.
kom fram í máli þeirra að í Eyjum
væri að finna 40 sérverslanir og þótti
þeim tími til kominn að landsmenn
fengju að kynnast þeim meira en verið
hefur. Boðið var upp á einkar hag-
stæðan pakka með fargjaldi, gistingu,
mat og ýmissi skemmtun þeim til
handa sem vildu versla í streitulitlu
umhverfi og skemmta sér um leið.
Áhöfninni á Álsey VE sagt
upp
Isfélag Vestmannaeyja, sem á og gerir
út togskipið Álsey VE, sendi öllum
skipveijum uppsagnarbréf þar sem
tilkynnt var að skipinu yrði lagt fram
til vors. Ástæðan var kvótastaða ísfé-
lagsins í bolfiski. Forsvarsmenn
Isfélagsins sögðu að reynt yrði að gefa
skipverjum kost á plássum á öðrum
skipum félagsins.
Farandsalar á ferð
Kaupmenn í Eyjum vom lítt hrifnir af
því þegar farandsalar úr Reykjavík
tóku að skjótast til Eyja yfir helgar
með markaðssölu. Fengu þeir m.a.
inni í Alþýðuhúsinu og í húsi hvíta-
sunnumanna með þessa markaði sína.
Bentu kaupmenn á misræmi í því að
hvítasunnumenn greiddu ekki fast-
eignaskatt af húsi sínu þar sem ekki
færi þar fram ágóðatengd starfsemi,
og svo að þar skyldi sett upp verslun.
Hvítasunnumenn sögðust greiða
fasteignagjöld af húseign sinni, sem er
hárrétt, en fasteignaskatt greiða þeir
ekki og nemur niðurfelling þess skatts
tugum ef ekki hundruðum þúsunda á
ári.
Tarotbók
Vestmannaeyingar eiga ekki marga
höfunda í jólabókaflóðinu. Þó er
nokkuð sérstæð útgáfa í Eyjum. Matt-
hildur Sveinsdóttir gefur út bók sem
nefnist Tarotbókin mín og er sérstök
að því leyti að engin tvö eintök
bókarinnar em eins, heldur stfluð eftir
þeim sem verður eigandi hennar auk
þess sem nafn hans er skráð á hana.
Eyjablikk í nýtt húsnæði
Fyrirtækið Eyjablikk, sem stofnað var