Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 28.12.2000, Blaðsíða 10

Fréttir - Eyjafréttir - 28.12.2000, Blaðsíða 10
10 Fréttir Fimmtudagur 28. desember 2000 HELGI Bragason hdl. og Jóhann Pétursson, einnig hdl., stofnuðuðu lögmannsstofu á árinu og Jóhanna Hjálmarsdóttir er þeim til aðstoðar. Tap ísfélagsins 160 milljónir Á aðalfundi Ísfélags Vestmannaeyja, sem haldinn var í lok febrúar, kom fram að heildarvelta félagsins fyrir reikningsárið 1. sept. 1998 til 31. ágúst 1999 var 2.314 milljónir og hafði minnkað um 48 milljónir frá árinu á undan. Tap var á rekstrinum upp á tæpar 160 milljónir en rekstrarárið á undan var hagnaður upp á 94 milljónir. Ástæðumar fyrir þessum viðsnúningi vom fyrst og fremst taldar stafa af minni loðnuveiðum og verðfalli á mjöli og lýsisafurðum, auk þess sem gengisþróun var óhagstæð. Keikó í gönguferð Háhymingurinn Keikó, sem lengst af hafði dvalið í kví sinni frá því að hann kom til Eyja haustið 1998, fékk nú að fara út í Klettsvíkina, að sjálfsögðu í „fylgd með fullorðnum." Þess var beðið með eftirvæntingu að sjá hvemig hann hegðaði sér en hann virtist taka þessu aukna frelsi með stóískri ró. Hrognakreisting hafin Loðnufrystingu lauk í endaðan febrúar en minna kapp var lagt á frystingu á þessari vertíð en oft áður vegna aðstæðna á mörkuðum og aukinnar samkeppni. En hrognakreisting hófst um svipað leyti og frystingu lauk og var horft með meiri bjartsýni til þeirrar vinnslu enda markaðurinn vænlegri þar. Hætta flugi til Eyja Þær fréttir þóttu dapurlegar þegar íslandsflug tilkynnti að félagið ætlaði að hætta áætlunarílugi til margra staða á landsbyggðinni frá og með 1. apríl, þar á meðal til Vestmannaeyja. For- svarsmenn félagsins sögðu að þessi rekstur borgaði sig ekki og því væri honum hætt. Mannbjörg þegar Birta Dís sökk í byijun mars sökk trillubáturinn Birta Dís VE þegar báturinn var að veiðum í ísafjarðardjúpi. Um borð vom tveir menn, feðgamir Klemens Einarsson og Jón Þór, sonur hans og björguðust báðir ómeiddir. Klemens hafði átt bátinn í rúmt ár, gert hann út á línu frá Suðureyri og gengið vel. Ekki var vitað hvað olli því að báturinn sökk. Nýtt samkomuhús? Þeir Sigmar Georgsson, íyrrum kaup- maður í Vömvali og Grímur Þór Gíslason, matreiðslumaður, lýstu yfir áhuga sínum á að byggja 1000 fermetra veitinga- og ráðstefnuhús ofan á vatnstankinum í Löngulág. Þetta mál hlaut jákvæðar undirtektir bæjaryfirvalda. Buðust til að þrífa Haugana Oft hefur verið kvartað yfír heimtu- frekju nútímaunglinga sem vilji fá allt rétt upp í hendumar án fyrirhafnar. Ekki var þó sú raunin á með nemendur Framhaldsskólans í Vest- mannaeyjum. Nokkrir þeirra sendu bæjarráði bréf og buðust til að þrífa Haugasvæðið fyrir sanngjama þóknun. Það fé hugðust þeir nota til að halda vímulausa skemmtun. Tómas ráðinn á Hraunbúðir Ákveðið var að bjóða út reksturinn á eldhúsi Hraunbúða. Aðeins eitt tilboð barst og þótti ekki aðgengilegt. Því var auglýst eftir matreiðslumanni til starfa og sóttu ljórir um. Af þeim var Tómas Sveinsson ráðinn til starfans. Ný lögmannsstofa f mars tók til starfa ný lögmannsstofa og fasteigna- og skipasala að Bárastíg 15. Eigendur em héraðsdómslög- mennimir Jóhann Pétursson og Helgi Bragason. Þeir félagar sögðust líta framtíðina björtum augum og full þörf væri á öflugri lögmannsstofu í Eyjum. Kýmar til ráðherra Tveir af starfsmönnum Frétta, þeir Omar Garðarsson og Sigurgeir Jóns- son, höfðu árangurslaust leitað til bæjaryfirvalda með það hugðarefni sitt að hefja nautgriparækt í Vest- mannaeyjum á Stakkagerðistúni. Þeir notuðu tækifærið þegar Guðni Ágústs- son, landbúnaðarráðherra var á ferð í Eyjum og bám erindi sitt undir æðsta yftrvald landbúnaðarmála á íslandi. Ráðherra tók erindi þeirra af sinni kunnu ljúfmennsku og sögðust þeir félagar vænta þess að tekið yrði á þessum málum af alvöm og festu. 134 kíló af fítu hurfu Líkamsræktarstöðin Hressó gekkst fyrir átaki sem nefndist Áskomn Hressó og fólst í 12 vikna heilsuefl- ingarátaki. Alls tók 31 þessari áskorun og þegar átta vikur vom liðnar af tímanum höfðu þeir losað sig við 134 kíló af óþarfa fitu. Sá sem bestum árangri náði, hafði minnkað ummál sitt um 12,5 kg og leið að sögn mun betur eftir. Skógræktarfélag endurvakið Kristján Bjamason, garðyrkjustjóri Vestmannaeyja, var hvatamaður að því að stofna eða endurvekja Skóg- ræktarfélag Vestmannaeyja en slíkt félag var starfandi í Eyjum um tíu ára skeið um miðja öldina. Stofnfundur félagsins varhaldinn 16. mars. Helmingur fjarverandi vegna flensu Inflúensufaraldur gekk yfir landið og fóm Vestmannaeyjar ekki varhluta af honum. Flensan virtist leggjast hvað þyngst á yngra fólk, sérstaklega böm. Einn daginn vantaði t.d. helming nemenda í þremur yngstu árgöngum Hamarsskóla og margir voru einnig fjarverandi í eldri bekkjum. Svipaða sögu var að segja úr Bamaskólanum. Sem betur fer gekk þessi faraldur tiltölulega fljótt yfir. Glerframleiðsla í Eyjum Forráðamenn verksmiðjunnar Gefj- unar, sem til þessa hafði framleitt hurðir og glugga, færðu út kvíamar í rekstrinum. Þeir hófu framleiðslu á gleri og með þeim vélakosti sem þeir keyptu var hægt að framleiða tvöfalt gler í öllum stærðum. Sprenging í vímuefnaneyslu Víðir Oskarsson, heilsugæslulæknir í Vestmannaeyjum, sagðist í starfi sínu hafa séð að vímuefnaneysla ung- menna í Vestmannaeyjum hefði stóraukist á síðustu tveimur áram. Því til staðfestingar sagði hann að á þessum tíma hefðu tíu til tólf Vestmannaeyingar á aldrinum 14 til 22 ára farið í meðferð vegna vímu- efnaneyslu og væri það mikil aukning frá áranum á undan. Reyndar sagði Víðir að Vestmannaeyjar væra ekkert sér á báti í þessum málum þar sem svipuð aukning væri víðar á landinu. Sjóferðarbæn í öll skip í tilefni af krismihátíðarári var ákveðið að Kjalamesprófastsdæmi gæfi sjó- ferðarbæn um borð í ölí skip í umdæminu. Bænin, sem er eftir sr. Odd V. Gíslason, er gefin út á kopar- plötu sem fest er á tréskjöld. Byrjað var að afhenda skildina í Vestmanna- eyjum um miðjan mars og sá séra Kristján Bjömsson um að koma þeim fyrir. Þóttu handtök hans með borvél og skrúfjám ekki síðri en þau sem hann er einkum þekktur fyrir í starfi sínu sem prestur og þóttu einkar fagmannleg. Upplestrarkeppni 7. bekkinga Um miðjan mars fór fram upp- lestrarkeppni nemenda í 7. bekkjum grunnskólanna. Þessi keppni hefur farið fram sl. fjögur ár í Reykjavík en þetta var í fyrsta sinn sem Vest- mannaeyingar tóku þátt í henni. Alls spreyttu 14 nemendur sig á upplestri bundins máls og óbundins og þóttu standa sig frábærlega. Sigurvegarar urðu þau Anna Margrét Kristinsdóttir, Jóna Heiða Hjálmarsdóttir og Júlíus G. Magnússon. Rocky Horror á fjalimar Leiklistarhópur Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum setti upp rokk- óperana Rocky Horror, í samstarfi við Leikfélag Vestmannaeyja. Sýning- amar voru í tengslum við árshátíð Framhaldskólans. Þessi uppfærsla þótti hin áhugaverðasta. Útibú á Selfossi Sparisjóður Vestmannaeyja ákvað að færa út kvíamar í starfsemi sinni með opnun útibús á Selfossi. Vora fest kaup á 150 fermetra húsnæði að Austurvegi 6 en með Sparisjóðnum í þessu framtaki vora bæði SP íjár- mögnun og Kaupþing. Góð loðnuvertíð Loðna hélt áfram að veiðast langt fram eftir marsmánuði. Veiðamar á þessari vertíð gengu mun betur en á vertíð fyrra árs, þrátt fyrir fremur rysjótt tíðarfar. Hjá Vinnslustöðinni var tekið við tæplega 50 þúsund tonnum á vertíðinni sem er nokkra meira en á fyrra ári og hjá FES var tekið á móti um 43 þúsund tonnum sem er nýtt met. Bergur-Huginn áætlar að fara á hlutabréfamarkað Eigendur Bergs-Hugins ehf. upplýstu að þeir hygðust stefna að skráningu félagsins á hlutabréfamarkaði innan fárra missera. Skref í átt að því var þegar félagið keypti Emmu ehf. sem gerði út samnefnt skip og nú var enn eitt skref stigið með kaupum á Hörgeyri sem gerði út Valdimar Sveinsson VE ásamt þeim kvóta sem skipinu fylgir eða 554 þorskígildum. Magnús Kristinsson, framkvæmda- stjóri Bergs-Hugins sagði að til- gangurinn með kaupunum væri sá að styrkja félagið til áframhaidandi sóknar, til þess þyrfti að auka aflaheimildir. Magnús taldi hvað mikilvægast að kvótinn yrði áfram í byggðarlaginu. Það fór enda svo að Valdimar Sveinsson var seldur héðan, án kvóta, austur á Homafjörð. Surtsey að minnka Á jarðfræðikorti, sem Náttúra- fræðistofnun íslands gaf út af Surtsey, mátti sjá að eyjan hefur minnkað mikið ffá því sem hún var stærst þegar gosi lauk, árið 1967. Þá mældist hún 2,7 ferkílómetrar að stærð en er nú, samkvæmt nýja kortinu 1,48 fer- kflómetrar eða 55% af upphaflegri stærð. Dagur tónlistarfólks Þann 25. mars var dagur tónlistarfólks haldinn hátíðlegur en það er orðinn árviss viðburður í Eyjum. Haldnir vora tónleikar í Safnaðarheimilinu þar sem sex sveitir komu fram, Sam- kórinn, Kór Landakirkju, Lúðra- sveitin, Harmonikkufélagið og svo nýliðamir í hópnum, Brasskvintett Vestmannaeyja og Tónsmfðafélag Vestmannaeyja. Nýir aðilar í Toppnum Talsverðar hræringar vora á sjoppu- markaðinum í Vestmannaeyjum á árinu. Til að mynda tóku nýir aðilar við rekstri Toppsins við Heiðarveg, þau Andrea Sigurðardóttir og Guðmundur Ágústsson. Þau sögðust ekki kvíða löngum vinnutíma og sögðust ætla að bjóða upp á stærri hamborgara og betri en aðrir. Siggi Gúmm færir sig um set Smur- og bifreiðaverkstæðið Fjölverk flutti starfsemi sína af Skildinga- veginum upp á Græðisbraut þar sem áður var Smurstöð Shell og Bifreiðaverkstæði Siguijóns. Sigurður sagði að þjónustan yrði sú sama og verið hefði nema eðlilega yrði hún betri og kaffispjallið yrði áfram krassandi í nýrri og glæsilegri aðstöðu. Bræður í nábýli Sigurjón Adolfsson flutti bflaverk- stæði sitt um leið og Fjölverk og er nú á Flötunum við hlið bræðra sinna, Jóns Steinars og Darra í Bragganum. Þeir sögðu að ekki væri um sam- einingu að ræða á fyrirtækjunum heldur samstarf. Sprautu- og réttingaverkstæði Eins og ffam hefur komið urðu miklar hrókeringar á bifreiða- og viðgerða- bransanum í Eyjum í mars. Þar sem Fjölverk var áður til húsa á Skildingaveginum hóf nú Bfla- sprautunin Gljáinn starfsemi sína. Eigendur þess era þeir Omar Reynisson og Georg Skæringsson. Tolli fyrstur á myndlistarvori Myndlistarvor íslandsbanka árið 1999 þótti takast fádæma vel og var ákveðið að halda áfram á þeirri braut. Helsti

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.