Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 28.12.2000, Blaðsíða 14

Fréttir - Eyjafréttir - 28.12.2000, Blaðsíða 14
14 Fréttir Fimmtudagur 28. desember 2000 verðlaunaði áhöfnina fyrir frábæra framleiðslu. I viðurkenningarskjali frá fyrirtækinu segir að afurðimar séu í hæsta gæðaflokki og áhöfnin sinni störfum sínum af samviskusemi. Lúðrasveitin úti og inni á víxl Allt leit um tíma út fyrir að Lúðrasveit Vestmannaeyja myndi ekki mæta til leiks á þjóðhátíð. Hefði það orðið í fyrsta sinn, allt frá upphafi lúðra- blásturs í Vestmannaeyjum sem sú ágæta sveit hefði ekki blásið tónum sínum á þeirri hátíð. Ástæðan var sú, að sögn framkvæmdastjóra þjóð- hátíðar, að Lúðrasveitin væri of dýr og myndi hljómsveitin Dans á rósum leika í hennar stað. Svo fór þó að iokum að þetta mál var leyst og lék Lúðrasveitin á þjóðhátíð eins og áður. Lilja Björg sumarstúlka Vestmannaeyja Sumarstúlkukeppnin var haldin á veitingahúsinu Höfðanum laugar- daginn 22. júlí. Sjö glæsilegar stúlkur tóku þátt í henni og urðu úsrslit þau að Lilja Björg Amgrímsdóttir bar sigur úr býtum. Þórey Jóhannsdóttir var valin ljósmyndafyrirsætan og Iris Dögg Konráðsdóttir var valin vinsælasta stúlkan. Stafkirkjan vígð og afhent Mikið var um dýrðir þegar þjóðargjöf Norðmanna til íslendinga var afhent síðustu helgina í júlí. Unnið hafði verið hörðum höndum við að koma Stafkirkjunni upp um sumarið en nú var hún vígð. Margt stórmenna mætti við vígsluna, þeirra á meðal norsku konungshjónin, forseti íslands og heitkona hans, forsætisráðherra og biskupinn yfir íslandi. Eftir vígsluna var síðan efnt til hátíðardagskrár sem þótti takast vel eins og raunar af- hendingin og vígslan í heild sinni. Halldór Guðbjöms á toppnum Glaðningur skattstofunnar var borinn til gjaldenda í lok júlí og vakti misjafnan fögnuð viðtakenda. Hæsti gjaldandi í Vestmannaeyjum var Halldór Guðbjömsson með opinber gjöld upp á ríflega 7,5 milljónir króna. Nýr fjölmiðill í Eyjum í lok júlí var nýjum fjölmiðli hleypt af stokkunum og nefnist hann www.eyjafrettir.is. Þetta er vefsíða Eyjaprents og Frétta og vakti strax mikla athygli. Ómar Garðarsson, ritstjóri Frétta sagði þetta mikilvægt í samkeppni landsbyggðarinnar um athyglina á upplýsingaöld. Þjóðhátíðarþynnkan úr sögunni? Undirbúningur fyrir þjóðhátíð gekk að óskum og síðustu daga júlímánaðar gekk lífið í Eyjum út á lítið annað en hátíðina sem í vændum var. Verulega athygli vakti þegar Apótekið auglýsti nýtt undralyf við timburmönnum, í töfluformi. Þá auglýsti umboðsmaður Aloe Veraeinnig undrameðal til sama brúks. Einhverjir prófuðu þessi nýju hjálparlyf en misjöfnum sögum fór af ágæti þeirra. Agúst Ein sú stærsta Þjóðhátíð Vestmannaeyja var haldin fyrstu helgina í ágúst. Hennar verður sennilega minnst sem einnar þeirrar stærstu sem haldin hefur verið, þ.e.a.s. fjöldi gesta hefur sjaldan verið meiri. Talið var að hátt í tíuþúsund manns hefðu verið í Dalnum þegar flest var, Viktor Helgason, útgerðarmaður, sagði að ekki væri fótur fyrir þessum sögum, hann væri ekkert á leiðinni að selja. Ikveikja og innbrot í Hvítasunnukirkjuna Ekki er vitað hvaða hvatir lágu að baki því að brotist var inn í Hvítasunnu- kirkjuna um miðjan ágúst. Þar er enda fátt að fínna af verðmætum þeim efnislegum sem hvað helst freista innbrotsmanna en mun meira af verðmætum sem hvorki mölur né ryð fá grandað. Enda höfðu húsbrots- menn lítið upp úr amstri sínu en ollu nokkrum skemmdum innandyra. Þá báru þeir eld að þar sem áður var miðasala Samkomuhússins en þann eld tókst lögreglu að slökkva áður en verulegt tjón hlaust af. Færri nemendur en áður Framhaldsskólinn var settur 24. ágúst en framhaldsskólar byija allajafna nokkru fyrr en aðrir skólar í landinu. Um 240 nemendur voru skráðir á haustönn, sem er nokkru færra en verið hefur. Busavígsla nýnema þótti mörgum ganga fulllangt í athafnasemi og er það ekki í fyrsta sinn sem sú athöfn hefur verið gagnrýnd. Mynd í Fréttum greiddi fyrir vegabréfsáritun Fyrr á árinu var viðtal í Fréttum við Sigrúnu Þorsteinsdóttur, frá Blátindi, sem starfað hefur hjá Húmanista- samtökunum, m.a. á Indlandi. Indverjinn Michael J. Weldone, sem unnið hafðimeð Sigrúnu ytra, hugðist heimsækja Island en gekk erfiðlega að fá vegabréfsáritun í heimalandi sínu. Var honum vísað fram og til baka og var ekki fyrr en hann sýndi við- komandi yfirvöldum mynd af sér í vikublaðinu Fréttum að skriður komst á málið og hann fékk sína áritun. Vitað var að Fréttir eru áhrifaríkur fjölmiðill en að áhrif þeirra næðu hinum megin á hnöttinn þótti enn auka hróður blaðsins. Enn hækka flugfargjöld Þegar þrjár vikur voru liðnar af ágústmánuði tilkynnti Flugfélag íslands hækkun á fargjöldum innan- lands. Ástæða þeirra var sögð mikil hækkun á eldsneytisverði og ný opinber gjöld. Bar þar hæst svonefnt leiðsögugjald sem vitað var að myndi auka kostnað í innanlandsfluginu. Afli Eyjaskipa um 25 þúsund tonn Níu skip frá Eyjum stunduðu loðnu- veiðar á sumarvertíð. Samtals var heildarloðnuaflinn tæplega 104 þúsund tonn og af því var hlutur Eyjaskipa 25 þúsund tonn. Sigurður VE var með mestan afla þeirra, um 5.200 tonn. Hönnulegur viðskilnaður? Umhverfisnefnd var ósátt við hvemig þjóðhátíðamefnd skildi við í Herj- ólfsdal að lokinni þjóðhátíð og lét bóka að nefndin harmaði viðskilnað þjóðhátíðamefndar í Dalnum. For- manni þjóðhátíðamefndar kom þetta á óvart og sagðist ekki vita til þess að ákveðin tímatakmörk hefðu verið sett um hvenær lokið skyldi tiltekt og flutningi mannvirkja og tækja. Klæðskerasniðið útboð? Um sumarið hafði verið unnið að útboði Herjólfs hjá Vegagerðinni. Ekki vom allir á eitt sáttir við að farið skyldi í útboð en sá var veruleikinn. Þegar útboðslýsingin lá fyrir sögðu ýmsir málsmetandi aðilar að þetta útboð væri eins og klæðskerasniðið fyrir heimamenn. ÞESSIR ungu menn mættu á þjóðhátíð og voru klæddir að hætti Hróa Hattar og hans kappa í Skírisskógi. fé handa á milli. Þótti þetta fremur sérstæð góðæristúlkun. Á þjóðhátíð yfír hálfan hnöttinn Sennilega hafa engir gestir á þjóðhátíð komið lengra að en þau Lúðvík Sigurðsson og Lillý Jóhannesdóttir (Lillý pól). Þau eru búsett í Ástralíu og hafa rétt mörgum íslendingnum hjálparhönd þar. Nú buðu vinir þeirra og vandamenn á Islandi þeim á þjóðhátíð og skemmtu þau sér hið besta. átti sér stað á mánudagskvöld þegar flugvél, sem var að koma frá Eyjum, fórst á Skerjafirði. I vélinni vom fimm farþegar, auk flugmannsins. Létust flugmaðurinn og tveir farþeganna í slysinu en þrír slösuðust mjög alvarlega. Frystihúsið lokuð Hin árlega lokun frystihúsanna hófst í lok júlí. Hjá Vinnslustöðinni hófst vinnsla á ný upp úr 20. ágúst en að þessu sinni var nokkuð lengra stopp hjá ísfélaginu en venjulega og ekki byrjað aftur fyrr en 4. september. Stafkirkjan á Skansinum var ekki reist eingöngu upp á punt heldur ætluð til kirkjulegra athafna. Ekki þurfti heldur lengi að bíða eftir þeirri fyrstu. Þau Kristjana Jónsdóttir og Einar Pálsson voru gefín saman í hjónaband í kirkjunni af séra Kristjáni Björnssyni. Sögðu bæði klerkur og brúðhjón að athöfnin hefði verið áhrifamikií. Ófeigsútgerðin ekki á förum Þær sögur gengu fjöllum hærra að Stígandi ehf., útgerð Ofeigs VE, væri í þann veginn að selja eigur sínar í Vestmannaeyjum til Grindavíkur. þar af um 6.500 aðkomumanns. Hátíðin hófst í blautu en stilltu veðri á föstudag, síðan fór veður batnandi og á sunnudag var logn og blíða. Flestir vom þjóðhátíðargestir sjálfum sér og öðmm til sóma. Þó vom tíu líkams- árásir tilkynntar og fímm þeirra kærðar. Var þetta allt frá pústmm upp í alvarlegri mál sem enduðu með bein- brotum. Þá var tilkynnt um 20 þjófnaði, aðallega úr tjöldum, eitl inn- brot íbænum og 15 skemmdarverk. 25 fíkniefnamál á þjóðhátíð Lögreglumenn vom sammála um að miðað við þann ljölda sem var að skemmta sér í Eyjum um þjóð- hátíðina, hefði hátíðin farið vel fram. Mjög hert eftirlit var með fíkniefnum þessa daga af hálfu lögreglu og komu alls upp 25 mál sem þeim tengdust. Var umfang þeirra misjafnlega mikið, allt frá einni „Rip Fuel“ töflu (hvað sem það nú er) og upp í 20 grömm af amfetamíni. I tveimur þessara mála lék grunur á um sölu og dreifmgu fíkniefna. Þrír stútar á mánudag Alls voru 14 manns bókaðir vegna umferðarlagabrota á þjóðhátíð. Eng- inn var tekinn fyrir ölvun við akstur á sjálfri þjóðhátíðinni. 400 bifreiðir voru stöðvaðar yfír helgina til að kanna ástand ökumanna og reyndist það í öllum tilvikum í besta lagi. En á mánudag voru þrír teknir, gmnaðir um ölvun við akstur. Lögreglumenn sögðu að slíkt gerðist nánast á hverri þjóðhátíð að fólk færi af stað of snemma á bílum sínum eftir drykkju helgarinnar og væri ekki í ökuhæfu ástandi. Kveikt í tjöldum vegna leti Á mánudag eftir þjóðhátíð bar mikið á því að kveikt væri í tjöldum í Dalnunt. Svo virtist sem sumir þjóðhátíðargestir hafi ekki nennt að pakka tjaldinu saman heldur einfaldlega kveikt í því. Vildu einhverjir tengja þetta saman við það góðæri sem sagt er ríkja í landinu og þar með að fólk hefði nægt LILJA Björg Arngrímsdóttir, sumarstúlka Vestmannaeyja 2000. Formaðurinn ósáttur Þrátt fyrir góða þjóðhátíð var formaður ÍBV íþróttafélags ekki alls kostar sáttur við útkomuna og hvemig aðrir aðilar en íþróttahreyfingin mökuðu krókinn á henni. Hann sagðist hafa heimildir fyrir því að þjóðhátíðin færði meiri virðisauka í bæinn en jólaverslunin. Þá var hann og ósáttur við að aðilar í bænum skyldu vera í beinni samkeppni við þjóðhátíð, t.d. með annað húkkaraball á fímmtudeginum fyrir þjóðhátíð. Hörmulegt flugslys Þann skugga bar á annars vel heppn- aða þjóðhátíð að hörmulegt flugslys Kvikmyndað í Eyjum I ágúst var hér á ferð nokkurt lið kvikmyndatökufólks undir stjóm Sveins Magnúsar Sveinssonar sem á ættir sínar að rekja til Eyja. Hér var verið að kvikmynda Pysjuþjófinn, eftir handriti Sveins Magnúsar, en kvikmyndin gerist í Vestmannaeyjum á pysjutímanum. Flestir leikarar em úr Eyjum. af yngri kynslóðinni. Þetta er hluti af samstarfsverkefni evrópskra sjónvarpsstöðva og er ætlunin að sýna myndina í sjónvarpinu seinna í vetur. Fyrsta kirkjulega athöfnin

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.