Fréttir - Eyjafréttir - 21.06.2001, Page 2
2
Fréttir
Fimmtudagurinn 21. júní 2001
Óvenjulangur
fundur
Fundir bæjarráðs, sem alla jafna eru
haldnir síðdegis a mánudögum,
hafa yfirleitt verið mjög stuttir,
ol'lasi i ki'ingum 20 mínútur. Fund-
urinn á mánudag stóð þó miklu
lengur, lrá kl. 16.00 til 17.20 eða
klukkutíma lengur en venjulega.
Raunar lágu öllu fleiri mál fyrir
fundinum en venjulega, eða 15
talsins en Ifklega er þessi „fram-
úrkeyrsla" á tíma aðallega vegna
mikillar tillögugleði Guðrúnar
Erlingsdóttur á fundinum.
Fé úthlutað til
íþrótta
A fundi íþróttaráðs Vestmannaeyja
sl. fimmtudag var samþykkt að
úthluta eltirtöldum félögum úr
Afreks- og viðurkenningasjóði fyrir
afrek unnin á árinu 2000: IBV
íþróttafélagi, UMF Óðni, Fimleika-
félaginu Rán, íþróttafélaginu Ægi,
íþróttafélagi Vestmannaeyja, KFS,
Golfklúbbi Vestmannaeyja og
Sundfélagi IBV. Þá var ákveðið að
úthluta sömu aðilunt rekstrar-
styrkjum fyrir árið 2001, nteð
sérstöku tilliti til barna- og ung-
lingastarfs. Bæði úthlutun úr Af-
rekssjóði svo og úthlutun rekstrar-
styrkja eru trúnaðarmál þar til af-
hcnding fjárveitinganna hefur farið
fram.
Vænn hlutur
kvenna í Eyjum
Fyrir síðasta fundi bæjarráðs lá bréf
frá félagsmálaráðuneytinu um
aukinn hlut kvenna í sveitar-
stjórnum. I bókun bæjarráðs er
vakin athygli á að hlutur kvenna í
bæjarstjórn Vestmannaeyja er rúnt
57% og í bæjarráði um 67%. Þá
hafi verið jafnvægi milli kynja á
framboðslistum ílokka á þessu
kjörtímabili. Samkvæmt þessum
tölum þurfa konur í Vestmanna-
eyjum ekki að kvarta ytir sínum
hlut, að minnsta kosti ekki hvað
varðar ítök í bæjarstjórn.
Listauki vill styrk
Bæjarráði hefur borist bréf frá
Listauka ehf. þar sem farið er fram
á styrk að upphæð kr. 500 þúsund
vegna verkefnisins „Midnight sun
fashion show“ þann 7. júlí nk.
Bæjarráð hefur falið bæjarstjóra að
alla frekari upplýsinga vegna
þessarar beiðni.
Engir nektarstaðir í
Eyjum
A fundi bæjarráðs á mánudag lagði
Guðrún Erlingsdóttir fram svo-
hljóðandi tillögu: „Bæjarráð Vest-
mannaeyja samþykkir að í endur-
skoðuðu aðalskipulagi Vestmanna-
eyjabæjar verði nektardansstaðir
ekki leyfðir og/eða svipuð starf-
semi.“ Þessi tillaga var samþykkt í
bæjarráði og því ljóst að svonefndur
súludans fær ekki að þrífast í
Eyjum, a.m.k. ekki opinberlega.
Leiðrétting
1 síðasta blaði féll niður föðurnafn
Friðriks Þ. Stefánssonar frá Skelj-
ungi sem hér var til að afhenda ÍBV
peninga og skrifa undir samning við
félagið.
Er hann beðinn velvirðingar á
þessum mistökum.
Big
Stórfjón ó vatnsleiðslunni vegna snurvoðartógs:
Skiptir milljónum ef
ekki milljónatugum
1 .......................
■- - - r\
SNURVOÐARTÓGIÐ sem skemmt hefur vatnsleiösluna. Er það
slæmur vitnisburður fyrir sjómenn að svona nokkuð gerist. F.v.
Stefán Martin, skipstjóri á kafarabátnum Hamri, Áslaug dóttir hans
og bræðurnir og kafararnir Gunnlaugur og Arnoddur Erlendssynir.
Kajakleiga í Eyjum
Enn eykst fjölbreytnin í Vest-
mannaeyjum hvað varðar íþróttir
og tómstundir. Nú hefur bæst
hcldur betur við flóruna því opnuð
hefur verið kajakaleiga í Eyjum.
Nokkrir Eyjapeyjar hafa keypt til
Eyja sex kajaka af gerðinni Hasle
Explorer.
Þessir kajakar hafa reynst mjög vel
hér við land og eru sérstaklega taldir
henta byrjendum. Að sögn eigend-
anna var þetta skyndiákvörðun, tekin
fyrir nokkrum vikum þegar félagamir
hittust. Þó að ákvörðunin hafi verið
tekin skyndilega þá höfðu þeir flestir
gengið með þennan draum í mag-
anum í nokkum tíma.
Að sögn peyjanna þá er stórkostlegt
að sigla á kajak við Eyjarnar enda
óvíða þar sem fuglalífið er eins fjöl-
breytt og náttúran jafn stórbrotin.
Kajakíþróttin er jafnt fyrir
byrjendur og þá sem lengra eru
komnir. Leigan útvegar allan öryggis-
búnað og fylgir leiðsögumaður í allar
ferðir þannig að hámarksfjöldi gesta
er fimm manns. Þeir sem hafa áhuga á
að reyna sig í íþróttinni þurfa einungis
að mæta í þægilegum útivistarfatnaði
og léttum skóm.
Áhugamönnum og konum um kajak-
róður er því bent á að hringja í
einhvem af eftirfarandi aðilum og þeir
munu skipuleggja ferðina í samvinnu
við gesti: Egill Amgrímsson, Þor-
steinn Sverrisson, Páll Marvin,
Ármann Höskuldsson eða Helgi
Bragason í síma 698-1068.
Innbrot í Golfskálann
í síðustu viku kom í ljós að
verulegar skemmdir hafa orðið á
vatnsleiðslunni milli lands og eyja.
Dræsa af snurvoðartógi hafði vafist
utan um leiðsluna, þar sem hún
liggur milli Klettsnefs og Elliðaeyj-
ar, og valdið miklum skemmdum.
Friðrik Friðriksson, veitustjóri, segir
að þetta hali kornið í ljós við eftirlit
með neðansjávarmyndavél. „Við
höfðum talið að þarna væri leiðslan á
kafi í sandi en svo reyndist ekki vera,“
sagði Friðrik.
Leiðslan er rammlega gerð og á að
vera tryggilega varin gegn skemmd-
um, alls em tíu lög utan um sjálfa
pípuna, þar af þrjú sem em níðsterk
vamarlög en Friðrik segir að þau hafi
öll látið á sjá. „Það er búið að ákveða
hvemig staðið verður að viðgerðinni.
Þar sem leiðslan er verst farin verða
settar ryðfríar hulsur utan um hana til
að hefta frekari skemmdir. Annars
staðar þar sem skemmdir em minni
verða plaströr glennt sundur og sett
utan unt hana,“ segir Friðrik.
Viðgerð stendur nú yfir og Friðrik
segir hana ekki þurfa að taka langan
tíma en veðrið ráði þar mestu. Tveir
kafarar vinna að viðgerðinni auk
aðstoðarmanns á skipi. Friðrik segir
ekki ljóst hver kostnaður verði við
viðgerðina en víst sé að hann skipti
milljónum. „Aðaltjónið er þó sjálf
leiðslan. Hver km af henni kostar um
20 milljónir og svo kemur að auki
kostnaður við að fá skip til að leggja
hana,“ sagði Friðrik. Slrkar neðan-
sjávarlagnir em ekki tryggðar þannig
að tjón Vestmannaeyjabæjar er
umtalsvert.
Aðfaranótt mánudagsins 18. júní
var farið inn í tækjageymsluna í
Golfskálanum, nokkrir skápar
opnaðir og þegar er ljóst að stolið
hefur verið úr einhverjum þeirra.
Þetta mál er litið alvarlegum augum
af stjóm GV og hefur það verið kært
til lögreglu. Þeir sem hafa lent í tjóni
vegna þessa em beðnir að láta Elsu
Valgeirsdóttur, framkvæmdastjóra
klúbbsins, vita. Þá em þeir sem ein-
hverjar upplýsingar geta gelið um
mannaferðir eða annað sem getur
upplýst málið, beðnir að láta
framkvæmdastjóra eða lögreglu vita
og verður fyllsta trúnaðar gætt.
Hátíð hjá
Sparisjóði
og bænum
þann 7. júlí
Goslokanna verður minnst
laugardaginn 7. júlí nk. í
Skvísusundi eins og verið hefur
undanfarin ár. Hefur
skemmtun þar mælst vel fyrir
og margir gestir komið frá
fastalandinu til að taka þátt í
hátíðahöldum dagsins.
Sparisjóðsdagurinn verður
einnig haldinn 7. júlí og
dagskrá nteð hefðbundnu sniði
s.s. grilli og ýnisum
uppákomum. Aðaláherslan
verður á afþreyingu fyrir börn
sem oft á tíðum hafa skemmt
sér konunglega þcnnan dag.
Þátttaka hefur verið mjög góð
undanfarin ár og virðast
bæjarbúar kunna vel að meta
þetta framtak.
Lokframkvæmda á
malan/elli
Iþróttafulltrúi hefur lagt fram kostn-
aðaráætlun við að Ijúka fram-
kvæmdum við íþróttavöllinn í
Löngulág, þeim er snúa að iðkun
frjálsra iþrótta sem og fram-
kvæmdum við umhverfi vallarins.
Kostnaðaráætlunin er 3 milljónir
króna en í fjárhagsáætlun ársins er
gert ráð fyrir framkvæmdum fyrir
1,5 milljónir kr. Þessar fram-
kvæmdir hafa verið samþykktar í
íþróttaráði og hefur íþróttafulltrúa
verið falið að ganga til samninga
við verktaka um niðurlagningu á
kanti hlaupabrautar. Við endur-
skoðun á fjárhagsáætlun ársins mun
íþróttaráð leggja Iram tillögur um
tilfærslur á fjármagni í málaflokk
ráðsins en að öðru leyti er samþykkt
að geil verði ráð fyrir umfram-
kostnaði í fjárhagsáætlun ársins
2002.
Mörkin komin í
gagnið
Einir Ingólfsson sendi fyrir nokkru
íþróttaráði erindi, fyrir hönd drengja
sem iðka götuknattleik (street
hoekey). I erindinu er þess óskað
að bæjaryfirvöld láti smíða eitt sett
af mörkum fyrir þessa íþróttagrein
og mörkin verði staðsett við íþrótta-
miðstöðina. Fram kemur í erindinu
að drengirnir eru reiðubúnir að
styðja verkefnið Ijárhagslega en
kostnaður við þessa smíði nemur
50.200 kr. íþróttafulltrúi upplýsú á
síðasta fundi íþróttaráðs að þessi
rnörk hefðu verið smíðuð og væri
þegar búið að koma þeim upp við
Iþróttamiðstöðina. Þá hefði annað
sett af mörkum verið srníðað og því
komið fyrir við Túngötu. Þessi
framkvæmd rúmast innan ljárhags-
áætlunar ársins.
Vilja setja upp skilti
ÍBV íþróttafélag hefur sent skipu-
lags- og bygginganefnd beiðni um
að koma fyrir nokkmm auglýsinga-
og tilkynningaskiltum. Einu þeirra
verði komið fyrir vinstra megin
vegar þegar ekið er í bæinn frá
Flugstöðinni. Hinum verði komið
fyrir við fánaborg Iþróttamið-
stöðvar. á horni Illugagötu og
Hlíðavegar. á homi Strandvegar og
Heiðarvegar. á homi Heiðarvegar
og Kirkjuvegar og á homi Skóla-
vegar og Vesturvegar. Skipulags-
og bygginganefnd hefur frestað því
að afgreiða þetut erindi.
Hittast á
þriðjudögum
Skógræktarfélag Vestmannaeyja
stendur nú í ströngu við að gróð-
ursetja tré í nýja hrauninu austan við
bæinn, ásamt unglingum í vinnu-
skólanum og öðmm bæjarstarfs-
mönnum. Áætlað er að gróðursettar
verði um 6000 trjáplöntur sem er
sami fjöldi og í fyrrasumar og er
þetla hluti af landgræðsluskóginum
Hraunskógi. Sjálfboðaliðar mæta á
planinu sunnan við Skansinn kl. 20
öll þriðjudagskvöld í júní og em
allir hjatlanlega velkomnir.
Utgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Omar Garðarsson. Blaðamenn: Sigurgeir Jónsson, Guðbjörg
Sigurgeirsdóttir. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
i Á j1 j Æ Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 4711. hæð. Sími: 481 -3310. Myndriti: 481-
; ~ a 1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjafrettir.is
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrjft og einnig í lausasölu á Kletti, Tvistinum, Toppnum, Kránni,
Vöruvai, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn og í Jolla í Hafnarfirði. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum. FRÉTTIR eru aðilar að
Samtökum baejar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.