Fréttir - Eyjafréttir - 21.06.2001, Side 6
6
Fréttir
Fimmtudagur 21. júní 2001
FRÍÐUR hópur hestamanna og hesta á Nýjahrauninu. Það er ekki oft sem það gerist að fólk kemur til
Eyja með hesta sína en „söfnuði séra Sigurðar“ líkaði dvölin vel. Kom það í hlut Gunnars Arnasonar að
vísa til vegar og sýna þeim fallegustu staðina á Heimaey.
í hestaferð til Eyja
SÖFNUÐUR séra Sigurðar heitir
merkilegur hópur sem í síðustu
viku kom til Vestmannaeyja með
hesta sína og skoðaði Heimaey
undir leiðsögn Gunnars Arnasonar
hrossabónda í Lukku.
Þau tengjast öll á einhvem hátt
Gnúpverjahreppi og nær saga safn-
aðarins, sem telur tólf til 15 manns,
allt aftur til ársins 1983. Fara þau
a.m.k. eina hestaferð á sumri. Segja
þau að aðaldriffjöðrin sé Arngrímur
„djákni" sem reyndar er lálinn. „En
við höfum alltaf aukahnakk og hest
handa honum sama hvert við förum,"
segir hópurinn.
Hópurinn hefur ferðast um nær allt
ísland. Þau hafa m.a. riðið norður
Arnarvatnsheiði, í Miðfjörð, Dalina,
Löngufjönrr, Vík, Höfðabrekku og nú
síðast til Vestmannaeyja. Hér reyndu
þau m.a. að sundríða í Klaufinni.
„Þetta er hress og skemmtilegur
hópur,“ sagði Gunnar Amason, eftir
að hat'a sagt þeim til vegar á Heimaey
á föstudag og laugardag. „Þau komu
með eigin hesta og það sem ég gerði
var að sýna þeim það helsta sem hér er
að sjá. Þau voru mjög ánægð með
ferðina hingað og ég held að þama sé
nýr möguleiki í ferðamennsku sem
vert er að veita athygli. Eg er viss um
að það er ekki síður skemmtilegt að
skoða náttúruna hér af hestbaki heldur
en úr bíl. Það þyrfti reyndar að útbúa
nokkra reiðvegi en þeir væm fljótir að
borga sig takist okkui' að fá hingað
hópa í hestaferðir. Þetta fólk skilur
mikið eftir hvar sem það kemur,“
sagði Gunnar að lokum.
BlátindurVE:
Þátturinn sem gleymdist
I allri þeirri umijöllun sem verið
hefur um bátinn Blátind og
afhendingu hans á sjómannadag,
hafa mörg nöfn verið nefnd. Nöfn
manna sem unnið hafa ötult og gott
starf að uppbyggingu bátsins. Eitt
nafn hefur þó gleymst í þeirri
umfjöllun, nafn þess aðila sem kom
því til vegar að Blátindi var bjargað
norðan frá Ólafsfirði þar sem hans
beið að fara á áramótabálköst. Sá
aðili var Hcrmann Einarsson,
kennari og ritstjóri Dagskrár og
hefði hans ekki notið við á þeim
tíma hcfði enginn Blátindur verið
afhentur á sjómannadegi.
Upphaflð var að Hermann skrifaði
klausu í Dagskrá í nóvember 1992 þar
sem hann impraði á því að gaman
væri að eiga og varðveita eitthvað af
þeim skipum sem hér hefðu verið
smíðuð gegnum tíðina. Skömmu
síðar var haft samband við Hermann
norðan frá Ólafsfirði og honum sagt
að þar lægi í reiðileysi báturinn Blá-
úndur sem búið væri að úrelda og væri
ætlunin að nota hann sem uppistöðu í
bálköst um áramótin 92-93.
Hermann segist fyrst í stað ekki hafa
trúað þessu, að Blátindur væri enn
„lífs“ en hann hafi farið á stúfana í
nafni Sögufélagsins, ásamt Jóhanni
Friðfinnssyni, og þeir hafi fengið leyfi
til að láta draga skipið til Vest-
mannaeyja. Landhelgisgæslan tók
það að sér og Hermann segir að þeir
gæslumenn hafi sagt að skipið hafi
ekki verið í verra ástandi en svo að
vélin var gangfær og vel hefði verið
unnt að sigla honum fyrir eigin
vélarafli til Eyja. Það mátti þó ekki
þar sem búið var að úrelda hann. En
vel gekk að draga skipið til Eyja þó
svo að Hermann segi að einhverjir
hafi nú hrist höfuðið yfir því ráðslagi
að vera að draga þetta „brak" hingað.
Hermann segir að Sögufélagið hafi
síðan afhent menningarmálanefnd
bæjarins bátinn formlega úl varðveislu
11. maí árið 1993, á 60 ára afmæli
Byggðasafnsins og þar með hafi þætti
Sögufélagsins að mestu verið lokið.
Það sé því hálfgildings hráskinns-
leikur að báturinn skuli á ný hafa verið
afhentur nefndinni sl. sjómannadag.
„En ég gleðst með öðrum yfir því að
skipið skuli nú vera komið í það horf
sem okkur dreymdi um á sínum tíma.
Þeir aðilar sem þar hafa komið að
verki hafa unnið vel og nú er bara að
vona að bæjaryfirvöld sjái sóma sinn í
því að halda skipinu við,“ sagði
Hermann Einarsson.
Guðrún með ellefu fyrir-
spurnir vegna skepnuhalds
Guðrún Erlingsdóttir lagði á síðasta
fundi bæjarráðs fram fyrirspurn í
11 liðum og varða allir liðirnir
skepnuhald í Vestmannaeyjum:
a) Hve mörg hross eru nú í Vest-
mannaeyjum?
b) Hve mörg hross er heimilt að hafa í
Vestmannaeyjum?
c) Hve margar kindur eru annars
vegar á Heimaey og hins vegar í
úteyjum?
d) Hve mikið af kindum er heimilt að
hafa á Heimaey og í úteyjum?
e) Hvemig er leyfum til hestahalds og
fjárbúskapar úthlutað?
f) Hver hefur efúrlit með því að þeir
sem halda skepnur hafi til þess
úlskilin leyfi?
g) Hvaða viðurlög eru við óleyfilegu
skepnuhaldi og hver sér um að beita
þeim?
h) Hve mikið af hundum er nú í
Vestmannaeyjum?
i) Hvemig er skráningu hunda og
eftirliti með þeim háttað?
j) Hveijum ber að sjá um skráningu og
eftirlit með hundum?
k) Hvenær má vænta niðurstaðna
túnsamninganefndar?
Ymsar þessara fyrirspuma hafa
raunar birst undanfarin misseri á
síðum Frétta en erfiðlega gengið að fá
við þeim viðhlítandi svör. Ef til vill
verður bæjarfulltrúa V-listans betur
ágengt í viðleitni sinni að fá þau svör.
Héraðsdómur Suðurlands:
Sviptur ökuleyfi
-Neitaði ölvunarakstri og kvaðst hafa
drukkið áfengi eftir að akstri lauk
Héraðsdómur Suðurlands kvað
upp dóm 31. maí sl. yfir manni sem
ákærður var fyrir ölvunaraskstur.
Málið var höfðað gegn honum af
lögreglustjóranum í Vestmanna-
eyjum en maðurinn neitaði sakar-
giftum og kvaðst hafa neytt áfengis
eftir að hann kom inn á heimili sitt.
Maðurinn var ákærður fyrir að hafa
ekið bifreið undir áhrifum áfengis, og
svo óvarlega að hann ók fyrst upp á
gangstétt og síðan þvert yfir götuna
þar sem bifreiðin lenú á steinsteyptum
vegg og stöðvaðist. Síðan ók ákærði
áfram að heimili sínu og var
handtekinn þar skömmu síðar.
Ákærði neitaði, eins og fyrr segir,
að hafa ekið undir áhiifúm áfengis en
kvaðst hafa misst stjórn á bifreið sinni
þar sem eitthvað hefði gefið sig í stýri
bifreiðarinnar. Hann kvaðst hafa neytt
áfengis eftir að hann kom að heimili
sínu og að 40 - 50 mínútur hafi liðið
frá því hann hóf drykkju eftir akstur
og þar til honum hafi verið tekið blóð.
I frumskýrslu lögreglunnar kemur
fram að að tilkynning hafi borist frá
vegfaranda kl. 20.25 um atburðinn og
vegfarandi, sem hafi komið beint af
árekstursstað á lögreglustöð klukkan
20.28. Lögregla fór beint á heimili
mannsins og var hann handtekinn kl
20.35. Honum var dregið blóð kl.
20.55 og aftur 22.01. Þvagsýni var
tekið 23.15 og endanleg niðurstaða
alkóhólákvörðunar í þvagi mældist
2,36 o/oo, en í blóðsýnum 1,84 o/oo í
því fyrra en 1,60 o/oo í því síðara.
Lögregla sem ræddi við ákærða við
handtöku fann daufan áfengisþef frá
honum. Vitni bar að ákærði hefði
verið í annarlegu ástandi á áreksturs-
stað og hafi ekki viljað sinna bend-
ingum sínum um að stöðva.
I framburði og álitsgerð lyfjafræð-
ings og deildarstjóra Rannsóknarstofu
í lyfja- og eiturefnafræðum hjá
Háskóla Islands kom fram að vegna
hins mikla etanólmagns í blóði
umrædds ökumanns kl. 20.55 er
líklegt að hann hafi verið undir
talsverðurn áhrifum áfengis allt að
þremur stundarfjórðungum fyrr eða
um kl. 20.15. Við mat á niðurstöðum
alkóhólmælinga í blóði og þvagi,
kvað hún töku tveggja blóðsýna og
eins þvagsýnis gefa mun fyllri mynd
af alkóhólneyslu en taka eins blóð-
sýnis og þvagsýnis, eins og venja er til
um í sambærilegum málum. Þá segir í
dóminum að sannað sé með fram-
burði lögreglumanna og eins annars
vitnis „... að lögregla hafði afskipti af
ákærða í síðasta lagi 10 mínútum eftir
að..." hann hætti akstri bifreiðarinnar.
Ekki þótti dómara þó framkomin
nægileg sönnun þess að vínandamagn
í blóði ákærða við aksturinn hafi verið
eins mikið og niðurstöður blóðtöku kl.
20.55 sögðu til um og því var miðað
við að áfengismagnið hefði verið mun
minna og refsing því milduð í
samræmi við þá niðurstöðu.
Ákærði var því dæmdur í 50.000
kr. sekt til ríkissjóðs og sviptur öku-
réttindum í sex mánuði.
Hvað kostar bland í poka:
Mismunur allt að
231% milli verslana
Þann 6. júní sl. tók Rut Áslaugsdóttir sig til og gerði verðsamanburð á
sælgæti í átta verslunum í bænuni. Ástæða þess að hún framkvæmdi þessa
könnun var sú að hún þóttist taka eftir því að niagn þess sælgætis sem hún
fékk hverju sinni var afar mismunandi. Áslaug fór í verslanirnar og bað
um sælgæti fyrir eitt hundrað krónur en þess ber að geta að í 11/11 og KA
er greitt eftir vigt og magn keypt sem næst verðgildi hundrað króna.
Niðurstöður könnunarinnar eru birtar eins og þær koma fyrir.
Könnunin var gerð miðvikudaginn 6. júní e.h. Farið var í 8 verslanir og keypt
bland í poka fyrir 100 kr. og sérstaklega beðið um að ekki væri gúmmí með.
Eins og sjá má á töflunni fyrir neðan er verðmunurinn gífurlegur eða 231 % á
dýrasta og ódýrasta namminu.
Verslun Verð (kr) Þyngd (gr) Kr/kg
Klettur 100 52,54 1903
Bónusvídeo 100 68,17 1467
11/11 * 112 91.42 1225
Tvisturinn 100 90,93 1100
KÁ * 98 96,90 1011
ísjakinn 100 104,66 955
Skýlið 100 109,11 917
Kráin 100 121,30 824
* 50% afsláttur á laugardögum.
Nammið var vigtað án umbúða.
Nýtt geymslusvæði
við Sorpbrennsluna
Skipulags- og byggingafulltrúi
hefur lagt fram tillögu að
skipulögðu geymslusvæði fyrir
fyrirtæki á svæðinu norðan og
austan við athafnasvæði Sorpu.
Tilgangur þessa er að bæta úr því
ástandi sem verið hefur á
geymslusvæðinu við Sorpu og
einnig til að gefa þeim aðilum kost á
geymslusvæði sem ekki eiga þess
kost á sínum lóðum.
Skipulags- og bygginganefnd hefur
samþykkt tillöguna og mun skipu-
lags- og byggingafulltrúi ganga frá
þeim atriðum sem þurfa að liggja
fyrir áður en úthlutun svæða fer
fram. Hann mun einnig ganga frá
uppkasti að lóðarleigusamningum en
stefnt er að því að svæðið verði
tilbúið til notkunar eins fljótt og unnt
er.