Fréttir - Eyjafréttir - 21.06.2001, Síða 13
Fimmtudagur 21. júní 2001
Fréttir
13
Ingi Freyr Ágústsson skrifarfrá Namibíu:
Smokkarnir á kústasköftín
Mætir svo flokkurinn á staðinn með fleiri þúsundir
smokka með sér og ráðherrann byijar að tala við fólkið og
svo kemur að því að sýna fólkinu hvemig á að nota
smokk, þar sem ráðherrann vildi ekki særa blygðunar-
kennd fólksins og nota eitthvert kynlífstól, notaði hún
forláta kústaskapt til að sýna hvemig ætti að koma
smokknum fyrir og útskýrði allt mjög skilmerkilega
hvemig notkun hans ætti að vera, fara þau nú þorp úr
þorpi með fyrirlestur og sýnikennslu og dreifa ókeypis
smokkum um allt á ferðum sínum.
Góðan daginn, Vestmannœyingar.
Það eru liðin tæp þrjú og hálft ár síðan
ég flutti hingað til Namibíu og í
upphafi vissi ég ekkert hverju ég ætti
von á þegar ég kæmi hingað, nánast
einu myndir sem ég hafði séð frá
Afríku í sjónvarpi var annaðhvort stríð
eða fólk sem bjó í strákofum.
En allar áhyggjur hurfu um ieið og
ég kom hingað því að þessi hluti
Afríku er alveg þokkaiega nútíma-
legur þó hér séu líka svokölluð
„hverfi" en þar býr fólk í algjörum
hreysum sem hanga saman á lyginni
og ég mundi ekki búa þar í viku þó
mér væru borgaðar einhverjar millj-
ónir fyrir. Svo var líka alltaf verið að
tala um að Afríka væri þriðja heims
staður ég skildi nú aldrei almennilega
hvað þetta þriðja heims tal þýddi en ég
þurfti ekki að vera hér lengi til að
skilja hvað það þýddi, þegar maður fór
að sjá hvemig kerfíð gekk fyrir sig,
hvað allt var rosalega þungt í vöfum,
fátæktin hjá fólki og svo mennt-
unarskorturinn sem er mikill, það er
talið að milli 40 og 50% þjóðarinnar
séu hvorki skrifandi né lesandi og að
sjálfsögðu er það fólk ekki mjög vel
að sér í hinum ýmsu hlutum.
Meirihluti þessa ómenntaða fólks
býr alveg nyrst í Namibíu í þeim hluta
landsins sem heitir Owamboland,
þetta fólk býr alla sína ævi í sínu litla
þorpi og ræktar grænmeti fyrir fjöl-
skylduna og lifir mjög nægjusömu lífi.
Fer aldrei nema nokkra km frá
þorpinu og hefur ekki áhyggjur af
neinu sem er að gerast annars staðar í
heiminum.
En því miður þá hefur eyðni breiðst
mjög hratt út á meðal þessa fólks og
það er ekki fyrr en núna á síðustu 2-3
árum sem eitthvað hefur verið gert í
því að fræða þau um hörmungar jressa
sjúkdóms og kem ég þá að tilgangi
þessa bréfs en hann er að deila með
ykkur smá sögu úr þessum heims-
hluta.
Þannig var að heilbrigðismálaráð-
herra Namibíu er kona og ákvað hún í
lok síðasta árs að fara af stað með
mikla herferð gegn eyðninni í
Owambolandi, skyldi nú í engu til
sparað svo þetta mætti takast sem allra
best og átti nú að fræða fólkið í eitt
skipti fyrir öll um skaðsemi eyðni,
öruggt kynlíf og reyna að fræða
unglingsstúlkur um kynlíf þar sem það
er mikið um að þær verði óléttar
frekar ungar.
Fór nú ráðherrann af stað með flokk
manna með sér til Owambolands og
ætlaði hún nú að fræða fólkið sjálf því
það var vitað að margir mundu mæta
ef það fréttist að það væri að koma
ráðherra að tala við fólkið.
Mætir svo flokkurinn á staðinn með
fleiri þúsundir smokka með sér og
ráðherrann bytjar að tala við fólkið og
svo kemur að því að sýna fólkinu
hvemig á að nota smokk, þar sem ráð-
herrann vildi ekki særa blygðunar-
kennd fólksins og nota eitthvert
kynlífstól, notaði hún forláta kústa-
skapt til að sýna hvemig ætti að koma
smokknum fyrir og útskýrði allt mjög
skilmerkilega hvemig notkun hans
ætti að vera, fara þau nú þotp úr þorpi
með fyrirlestur og sýnikennslu og
dreifa ókeypis smokkum um allt á
ferðum sýnum.
Svo tekur þetta ferðalag þeirra enda
og er flokkurinn bara nokkuð ánægður
með hvernig til tókst hjá þeim og er
ákveðið að gera könnun eftir 6 mánuði
hvort það sé einhver árangur af þessari
herferð.
Svo líða 6 mánuðir og það er gerð
könnun á spítölum þama norðurfrá en
það kemur í ljós að það er akkúrat
enginn árangur sjáanlegur ef eitthvað
er þá hefur ástandið versnað, ráð-
herrann er ekki ánægð með þetta svo
hún ákveður að fara sjálf norður og
athuga hvað sé um að vera.
Hún kemur norður og fer að tala við
fólkið og spyrja hvort það hafi ekkert
lært af henni þegar hún var þama fyrir
6 mánuðum. Fólkið hélt það nú að það
hefði lært eitthvað af henni og var
henni boðið inn í marga kofa sem allir
áttu það sameiginlegt að inni í þeim
öllum var forláta kústaskaft með
smokk upp á alveg eins og hún hafði
sýnt þeim að ætti að nota smokkinn!
Þessu sagði ráðherrann frá þegar
hún var að kynna niðurstöður herferð-
arinnar fyrir þingmönnum, hélt þá
fólkið að þetta væri einhverskonar
galdrar og þetta „trikk“ mundi bjarga
þeim.
Læt þetta gott heita úr hitabylgju í
Lúderitz í Namibíu, hiti um 25° og
klukkan ekki nema 9.30 að morgni
um hávetur.
B ið að heilsa öllum, sjúwnst ú
þjóðhútíð.
Ingi Freyr Agústsson
Höfundur er netagerðanneistari og
statfar sem slíkurí Namibíu
Börkur og Guð-
rún fresta Edin-
borgarferð
,Já, það er rétt að við hjónin
höfum ákveðið að fresta ferð
okkar til Edinborgar um eitt
ár,“ segir Börkur Grímsson
bankastjóri Islandsbanka að-
spurður.
Börkur hafði greint frá því hér á
blaðinu að hann væri á leið í árs
námsleyfi en nú er orðin breyting
á. „Eins og fram hefur komið
ætlaði ég þar í svokallað MBA-
nám. Þetta eru vissulega nokkur
vonbrigði, en kostnaðarhækkanir
og þá aðallega vegna gengis-
þróunar, hafa orðið gríðarmiklar
og því verður þetta niðurstaðan.
Maður kemst því líklega í
skötuveisluna hjá hrekkjalómum.“
sagði Börkur
Breyting
í janúar gekk skipulags- og
bygginganefnd frá tillögum um
breytingu á umferð kringum
Barnaskólann í kjölfar þess að
Bessastígur verður opnaður til
austurs að Skólavegi.
Þær breytingar voru sendar í kynn-
ingu til húseigenda í nágrenni skólans
og þeim gefinn kostur á að koma fram
athugasemdum. Alls bárust sjö at-
hugasemdir frá fimm húseigendum
við Vallargötu og Skólaveg en tillaga
skipulags- og bygginganefndar um
umferð við Bamaskólann er þessi og
mun væntanlega brátt taka gildi:
Jón Hauksson skrifar:
Lengi getur vont versnað
Firringu Guðjóns
Hjörleifssonar
vegna markvissra
athugasemda
Nýja Eyjamanns-
ins um skulda-
stöðu og vinnu-
brögð sjálfstæðis-
manna í bæjar-
stjóm virðast
engin takmörk sett. I Morgunblaðinu
miðvikudaginn 13. þ.m. setur hann
fram þá kenningu, að Andrés Sig-
mundsson hafi látið dreifa blaðinu
sama dag og fulltrúar frá marg-
miðlunarfyrirtæki komu til Eyja til að
semja um flutning á hluta fyrirtækisins
til Eyja í þeim tilgangi að skemma
fyrir þeim samningum!!
Nú vill svo til að fulltrúi þessa
fyrirtækis er bróðurdóttir Andrésar, og
Nú vill svo til að fulltrúi þessa fyrirtækis er
bróðurdóttir Andrésar, og að láta sér detta í hug að
hann hafi á nokkum hátt viljað skemma fyrir þessum
viðræðum, lýsir slíku innræti að best fer á að reyna
ekki einu sinni að finna því lýsingarorð.
að láta sér detta í hug að hann hafi á
nokkum hátt viljað skemma fyrir
þessum viðræðum, lýsir slíku innræti
að best fer á að reyna ekki einu sinni
að finna því lýsingarorð.
Hvað er rétt?
A undanfömum dögum hafa margir
komið að máli við mig og spurt: Er
þelta virkilega rétt, sem stendur í Nýja
Eyjamanninum um skuldir bæjarfé-
lagsins og framgöngu sjálfstæðis-
manna? Svarið er einfalt; skoðið
viðbrögð bæjarstjóra allra bæjarbúa og
þá vitið þið sannleikann. Hann svarar
ekki einu einasta atriði málefnalega
heldur ræðst með fúkyrðum og
upplognum sakargiftum á nafngreinda
einstaklinga og svífst þar einskis.
Slíkt gerir aðeins ráðalaus, rökþrota
maður, sem hefur slæman málstað að
veija.
á umferð við Barnaskólann
-Einstefna á Vallargötu til norðurs, frá
Kirkjuvegi að Bessastíg.
-Einstefna á Bessastíg til austurs, frá
Vallargötu að Skólavegi.
-Biðskylda á Bessastíg við Skólaveg.
-Einstefnu á Boðaslóð verði breytt,
þ.e. einstefna verði á Boðaslóð til
suðurs, frá Bessastíg að Kirkjuvegi.
-Sérmerkt verða bfiastæði á
Vallargötu fyrir þær húseignir sem þar
eru, í samræmi við ákvæði bygg-
ingareglugerðar.
-Sérmerkt verða tvö bflastæði fyrir
vaktbíl Heilsugæslustöðvar, eitt utan
við Vallargötu 8 og hitt fyrir utan
Vallargötu 18. Þetta gildir þó aðeins
meðan starfandi heilsugæslulæknar
eru eigendur þessara húsa.
-Bílastæði á austurhluta Skólavegar
40, alls 22 stæði, sem ekið er inn á af
Skólavegi, skulu vera fyrir starfsfólk
Bamaskólans. Stæðin á Vallargötu og
Bessastíg em ætluð fýrir aðstandendur
þeirra barna sem em að aka börnum
sínum til og frá skólanum! (eins og
segir orðrétt í fundargerð skipulags-
og bygginganefndar en á væntanlega
að vera -aðstandendur sem em að aka
bömum sínum til og frá skólanum-).
Nýjar gjaldskrár
Samþykkt hefur verið í skipulags- og
bygginganefnd ný gjaldskrá fyrir
embætti skipulags- og byggingafull-
trúa enda hefur sú gjaldskrá ekki verið
endurskoðuð um langt árabil. Þá
hefur einnig verið samþykkt ný gjald-
skrá um gatnagerðargjöld í Vest-
mannaeyjum sem verið hefur óbreytt í
tvo áratugi. Þessar gjaldskrár verða
auglýstar og munu taka gildi I. janúar
2002.
Hartmann Ásgrímsson, tann-
læknir:
v-— „Nei, mér fannst
veðrið þannig að ég
Hk'. nennti |tví ekki."
Árni Óli Ólafsson, Suðurgarði:
„Nei, það hef ég
ekki gert síðan ég
var á yngri árum og
tók þátt í Hásteins-
hlaupinu. Síðan eru
nokkrir áratugir og
hlaupalegur í dag. Ég eyddi
deginum með tjölskyldunni."
Friðrik Friðriksson, veitustjóri:
„Nei, ekki að þessu
sinni. Ég eyddi
þjóðhátíðardeginum
í að rífa niður
stillansa."
Hörður Óskarsson, ísfélaginu:
„Nei, ég var kylfu-
beri fyrir son minn á
golfmóti en gat
fylgsl með hátíða-
höldunum úr
nokkrum fjarska af
golfvellinum."
Spurt er.
Tókst þú
þátt í 17.
júní hátíða-
höldunum?
Hanna María Siggeirsdóttir,
apótekari:
„Nei. ekki að þessu
, sinni. Ég var fyrir
vestan, fór í göngu-
*.* ferð Undir Jökli og
[ naut lífsins úti í
I guðsgrænni náttúr-
| unni. Það var alveg
| yndislegt."
Gunnlaugur Axelsson, Skipa-
lyftunni:
7——>r~| „Nei, ég var uppi í
■A sumarbústað og
eyddi þjóðhátíðar-
11 deginum í að girða."