Fréttir - Eyjafréttir - 23.08.2001, Page 14
14
Fréttir
Fimmtudagur 23. ágúst 2001
Símadeildin: IBV 3 - Grindavík 0
Spennandi lokasprettur
Eyjamenn í 2. sæti deildarinnar þegar fjórar
umferðir eru eftir 03 veróa því í
toppbaráttunni á lokasprettinum. Eisa
heimaleik vió bæói ÍA og Fylki sem eru í 1. og
3. sæti eftir 14 umferóir
Landa-
KIRKJA
- Hjartanlega velkomin!
Sunnudagur.
Kl. 11.00 Messa þar sem bæði
sakramenti kirkjunnar eru höfð
um hönd. Einhverjir þátttak-
endur í Tónlistardögum Vest-
mannaeyja munu leika í
messunni.
Hvíta-
SUNNU-
KIRKJAN
Fimmtudagur 23. ágúst.
Kl. 20:30 Biblíufræðsla.
Föstudagur 24. ágúst.
Kl. 20:30 Unglingakvöld.
Laugardagur 25. ágúst.
Kl. 20:30 Bænasamvera,
þar sem beðið er fyrir
landi og þjóð.
Sunnudagur 26. ágúst.
Kl. 1 EOOSamkoma,
mikill söngur og
kröftug prédikun.
Allir eru hjartanlega
velkomnir.
Aðvent-
KIRKJAN
Laugardagurinn 25. ágúst
Kl. 10.00 Biblíurannsókn
ÍBV tók á móti Grindavík í
íjórtándu uniferð Símadeildarinnar
á sunnudagskvöld. Eyjamenn hafa
löngum verið í vandræðum með
Grindvíkinga en í þetta sinn var
strákunum suður með sjó ekki sýnd
nein miskunn og ÍBV sigraði
örugglega með þremur mörkurn
gegn engu.
Leikurinn byijaði fjörlega og yljaði
þeim sárafáu áhorfendum sem treystu
sér út í nepjuna. Það er í raun ótrúlegt
hversu fáir sjá sér fært að mæta á
völlinn og láta í sér heyra miðað við
stöðu liðsins í deildinni. En þeir sem
mættu á leikinn gegn Grindavík fengu
að sjá stórskemmtilegan leik þrátt fyrir
austan hvassviðri og rigningu.
Eyjantenn létu boltann ganga hratt
og örugglega á milli sín og eftir eina
slíka rispu kom fyrsta markið sem Atli
skoraði með laglegum skalla á elleftu
mínútu.
Átta mínútum síðar skoraði svo
Alexander Ilic stórglæsilegt mark af
löngu l'æri. Eftir samspil Tómasar
Inga og Gunnars Heiðars barst boltinn
til Alexanders, sem hélt upp á afmæli
sitt á sunnudaginn með því að negla
boltann upp í samskeytin af rúmlega
þrjátíu metra færi og það á móti
vindinunt.
ÍBV-Grindavík 3-0
ÍBV spilaði 4-3-3
Birkir Kristinsson, Hjalti
Jóhannesson, Kjartan Antonsson,
Hlynur Stefánsson, Tommy
Schram, Atli Jóhannsson,
Bjamólfur Lárusson, Hjalti
Jónsson, Alexander Ilic, Tómas
Ingi Tómasson, Gunnar Heiðar
Þorvaldsson.
Varamenn: Gunnar B.
Runólfsson. Jón Helgi Gíslason
(kom inn á 89. mín.), Davíð
Egilsson, Unnar Hólm Ólafsson
(kont inn á 85. mín.), Ingi
Sigurðsson (kom inn á 65. mín.)
Mörkin: Atli Jóhannsson,
Alexander Ilic og Tómas Ingi
Tómasson.
Eftir markið róaðist leikurinn
nokkuð og áttu bæði lið nokkur færi
en hvorugu tókst að skora.
Gestimir byrjuðu seinni hálfleikinn
af miklum krafti og áttu þrjú mjög góð
færi, Birkir varði glæsilega í tvö skipti
en í það þriðja björguðu vamarmenn á
línu. Eftir þetta tóku Eyjamenn aftur
öll völd á vellinum og eftir að
Bjarnólfur hal’ði þmmað boltanum rétt
framhjá, skoraði Tómas Ingi eftir
þunga sókn þar sem Ingi kom
boltanum fyrir. Gunnar Heiðar var
svo ekki langt frá því að skora en
þrumuskot hans var varið í hom.
Eyjamenn léku mjög vel og varla
veikan hlekk að finna á liðinu. Það
byrjaði leikinn sterkt, skoraði tvö
mörk en gaf svolítið eftir, eftir það.
Ungu mennirnir í liðinu eru að
verða toppleikmenn í efstu deild, Atli
kemur með ntikinn kraft inn á
miðjuna og Gunnar Heiðar er dug-
legur og verður bara beittari með
hverjum leiknum. Ekki þarf að
fjölyrða um varnarlínu liðsins og
miðjumennirnir virðast vera finna sig.
Þá er Tómas Ingi að komast í ágætis
form og yfirleitt verður eitthvað úr
sóknunum þegar hann kemur nálægt
boltanum.
Hjalti Jónsson hefúr aftur unnið sér
sæti í byrjunarliði ÍBV og hefur spilað
eins og engill síðustu tvo leiki. Hjalti
sagði eftir leikinn að sigurinn hefði
fyrst og fremst kontið með mikilli
baráttu. „Við reynum að byrja leikinn
af krafti, sérstaklega hérna á heima-
velli. Það hefur ekki alltaf gengið upp
í sumar en núna gekk það fullkomlega
og við kláruðum leikinn á fyrstu
tuttugu mínútunum. Það var fín
barátta í liðinu enda gaf veðrið enga
ástæðu til þess að reyna einhvern
dúkkufótbolta. Við urðum bara að
berjast og það skilaði liðinu þremur
stigum," sagði Hjalti.
Aðspurður hvort það væri ekki gott
að vera kominn aftur inn í byrjunar-
liðið sagði hann að enginn væri sáttur
að vera á bekknum. „Maður verður
bara að berjast fyrir sínu sæti í liðinu,
þannig á það líka að vera."
Allt salopið
Með sigrinum á Grindavík komust
Eyjamenn upp í annað sætið og
virðast ætla að gera harða atlögu að
titlinum.
Þetta er nokkuð sem bjartsýnustu
menn þorðu varla að láta sig dreyma
um fyrir mótið en það skal hins vegar
vera öllum ljóst að IBV á ágætis
möguleika á að verða Islandsmeist-
arar. Það getur verið ansi fróðlegt að
athuga hvaða leiki efstu þijú liðin eiga
eftir. Bæði Fylkir og ÍÁ eiga eftir að
koma til Eyja og leika hér en IBV á
eftir að mæta Keflvíkingum og
Valsmönnum á útivelli. í næstu
umferð mæta Skagamenn, sem eru á
toppi deildarinnar, Frömurum sem
hafa verið á mikilli siglingu eftir
sigurinn hér í Eyjum og hafa leikið
Qóra sigurleiki í röð. IBV mætir hins
vegar Keflavík á útivelli.
Leikir ÍBV
Keflavík (úti), Fylkir (heima), Valur
(úti), ÍA (heima)
Leikir IA
Fram (heima), Grindavík (úti), Fylkir
(heima), ÍBV (úti)
Leikir Fylkis
Grindavík (heima), ÍBV (úti), ÍA (úti),
FH (heima).
Af þessu má sjá að úrslit Síma-
deildarinnar munu líklega ráðast í
síðustu umferðunum og en öll þrjú
liðin eiga eftir að mætast í inn-
byrðisviðureignum. Það yrði líklega
ekki leiðinleg't ef úrslitin myndu ráðast
í síðasta leik, hér á Hásteinsvelli í
viðureign IBV og IA.
Frábær bíll á góðu verði
PEUGEOT
Komdu í reynsluakstur
Sími: 520 1100
Bragginn.sími 481-1535
PEUGEOT
/ Ný og kraftmeiri vél
/ Fjarstýrðar samlæsingar
/ Rafdrifnar rúður
/ Hiti í sætum
/ Rafdrifin Sóllúga
/ 12 ára ryðvarnarábyrgð frá framleiðanda
Meiri búnaður:
Ljón 4 i/ejíntÁty!