Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 23.08.2001, Blaðsíða 16

Fréttir - Eyjafréttir - 23.08.2001, Blaðsíða 16
ANTARES var lítið skemmdur en mestar urðu skemmdirnar á Naust- hamarsbryggju sem verið er að endurbyggja. Siglt á skip og bryggju Það óhapp varð á Nausthamarsbryggju sl. föstudag að loðnuskipið Antares VE sigldi á Sigurð VE og bryggjuna. Antares var að leggjast að þegar óhappið varð, sigldi fyrst aftan á Sigurð VE og þaðan á bryggjukantinn. Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir við Nausthamarsbryggju undanfarna mánuði og nýbúið var að steypa bryggjukantinn sem Antares lenti á. Að sögn Olafs Kristinssonar hafnarstjóra eru skemmdirnar töluverðar. „Það eru tvær plötur verulega skemmdar og eins er bitinn skemmdur." Ólafur segir það feiknamál að gera hlutina eins og nýja og það kosti sitt og aðspurður um hvort kostnaðurinn hlaupi á milljónum sagði Ólafur. „Ég treysti mér ekki til að meta það, en þó veit ég að það er fljótt að komast upp í milljónina." Friðrik Már Sigurðsson útgerðarstjóri loðnuskipa hjá ísfélaginu segir að skemmdir á skipunum séu minni háttar. „Mestu skemmdirnar eru á bryggj- unni, skipin eru minna skemmd." sagði Friðrik Már. Rútuferðir - Bus TOURS Móttaka ferðamanna, skóla- og íþróttahópa ÓDÝRASTIKOSTURINN í EYJUM 0)4811909/896 6810 • Fax 481 1927 Vilhjálmur Bergsteinsson ir 481-2943 n 897-1178 Uppstokkun hjá Ljóst er að fyrir dyrum stendur uppstokkun hjú Utgerðarfélagi Vestmannaeyja. Þetta var ákveðið á stjórnarfundi á þriðjudaginn og sagði Sigurmundur Einarsson, framkvæmdastjóri, þetta eðlilegt nú þegar nýtt kvótaár fer í hönd. Fréttir höfðu samband við Gunnar úv Karl Guðmundsson stjórnarfor- mann UV, framkvæmdastjóra fjár- mála hjá Skeljungi, sem er meða! hluthafa í ÚV. Gunnar Karl sagði að enn væri of snemmt að upplýsa hugmyndir stjórnarinnar en fréttir af þeim væru væntanlegar á næst- unni. 100 m á sex vikum Nokkur skip frá Vestmanna- eyjum eru nú stödd á kol- munnaveiðum og gengur veiðin sæmilega. Eitt skip var að veiðum frá Vinnslustöðinni, Sighvatur Bjarna- son VE sem landaði 960 tonnum á föstudag og var kominn með 450 tonn í gær. Antares landaði 564 tonnum á mánudag og samkvæmt upplýsingum frá Isfélaginu er lítið að frétta af miðunum eins og er, bræla og lítil veiði. Bestur gangur hefur Ifklega verið á Huginn VE, en síðan skipið kom til landsins í byrjun júní hafa komið 12400 tonn að landi og er afla- verðmæti þess tæpar 100 milljónir. I gær var Huginn VE staddur á kol- munnamiðum og var kominn með um 600 tonn. Nauðsynlegt að ná samkomu- lagi um rannsóknargögn Fyrir síðasta fundi bæjarráðs lá afrit af bréfi þjóðminjavarðar til Margrétar Hermanns Auðar- dóttur um að Þjóðminjasafn Islands taki við gripum og rann- sóknargögnum frá Herjólfsdal. Bæjarráð bendir á nauðsyn þess að Þjóðminjasafn Islands taki um- rædda gripi og gögn til varðveislu í samræmi við samkomulag bæjar- yfirvalda og Þjóðminjasafns þar um. Svohljóðandi bókun barst frá Ragnari Oskarssyni: „Eg tel nauðsynlegt að Þjóðminjasafn Is- lands og Margrét Hermanns Auðar- dóttir komist að samkomulagi um lausn málsins.“ Harpic l/l/.C. hreinsir, 2 stk. 198 kí. • áiur 398- Hunt's tnmatsósa, 391 gr. 99kr.-áður124- B.K.I. kaffi, 500 gr. 319 kr. - áður 308- Kelloggs, 500 gr. 249 kr. - áður 298- lllóa rúsínur, 300 gr. 218 kl.-áður 259- l944Lasagne 328 kí. - áður409- 1944 Kjötbollur 248 kf. - áður309- Hraunbitar 198 kr. • áður 258- Choco cookies, 225 gr. 188 kr. - áður227- Wikutílhoð . - 29. ágúsi

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.