Vesturland - 11.09.2014, Blaðsíða 1
Ótrúlegt úrval húsgagna
Syrusson Hönnunarhús
Síðumúla 33
syrusson.is
JEPPADEKK
Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900
www.arctictrucks.is
Hljóðlát og endingargóð jeppadekk
sem koma þér örugglega hvert á land sem er.
Parketslípun
sólpallaslípun | parketlagnir
551 1309 / 690 5115
golflist@golflist.is | www.golflist.is
99%
RYKFRÍTT
11. SEPTEMBER 2014
15. tölublað 3. árgangur UMHVERFISVOTTUÐ PRENTUN
Mikil aukning fæðinga á HVE
á Akranesi í ágústmánuði
Í ágústmánuði sl. voru 40% fleiri barns-fæðingar á Heibrigðisstofnun Vestur-lands á Akranesi en í ágústmánuði 2013.
Þessi aukning í barneignum kemur kannski
á óvart, og þó. Með batnandi efnahag sér
ungt fólk aukna möguleika á að eignast
börn, eitt eða fleiri, og þannig viðhalda
mannkyninu í viðkomandi sveitarfélagi.
3. september sl. eignuðust þau Kolbrún
Ósk Pálsdóttir og Guðjón Hrannar Björns-
son stúlkubarn sem var 5605 grömm og 51
cm og braggaðist strax vel. Stúlkan átti að
fæðast í lok ágústmánaðar en lét aðeins bíða
eftir sér. Fjölskyldan býr á Hellissandi og
fyrir eru í fjölskyldunni þrjú börn, 9 ára, 13
ára og 17 ára. Móðirin, Kolbrún Ósk sagði
aðspurð að búið væri að ákveða nafnið á
stúlkuna en því yrði haldið leyndu þar til
stúlkan yrði skírð. VESTURLAND óskar
fjölskyldunni til hamingju með barnið.
Í bæjarblaðinu Jökli segir að árið 2013
fæddust 4.326 börn á Íslandi, sem er
nokkur fækkun frá árinu 2012 þegar hér
fæddust 4.533 börn. Helsti mælikvarði á
frjósemi er fjöldi lifandi fæddra barna á
ævi hverrar konu. Árið 2013 var frjósemi
íslenskra kvenna lægri en tveir í fyrsta sinn
frá 2003, eða 1,932 börn á ævi hverrar konu.
Yfirleitt er miðað við að frjósemi þurfi að
vera um 2,1 barn til þess aðviðhalda mann-
fjöldanum til lengri tíma litið. Undanfarin
ár hefur frjósemi á Íslandi verið rétt um 2
börn á ævi hverrar konu. Frjósemin nú er
nærri helmingi minni en hún var um 1960,
en þá gat hver kona vænst þess að eignast
rúmlega 4 börn á ævi sinni.
Í Snæfellsbæ fæddust mun færri börn
árið 2013 en árið áður, í fyrra fæddust 18
börn í Snæfellsbæ á móti 26 árið áður, þetta
er talsvert undir meðaltali áranna 1991 til
2013 en meðaltalið er 28,7 börn, en ekki
hafa fæðst færri börn síðan 2006 en þá
fæddust 17 börn í Snæfellsbæ. Í Grundar-
firði fæddust 13 börn árið 2013 eins og árið
2012 og er það nokkuð nærri meðaltalinu
sem er 14,1. Fæst fæddust börn árið 2010 í
Grundarfirði en þá fæddust aðeins 7 börn.
Í Stykkishólmi fæddust aðeins 9 börn en
meðaltalið þar er 15,7, ekki hafa svo fá börn
fæðst í Stykkishólmi síðan 2009 þegar ekki
fæddust nema 5 börn.
Hamingjusamir foreldrar með nýfædda dóttur. Kolbrún Ósk Pálsdóttir og Guðjón Hrannar
Björnsson á Hellissandi með nýfæddan ljósgeislann sinn, bráðmyndarlega dóttur.