Vesturland - 11.09.2014, Qupperneq 3
Unaðsdagar í Hólminum
– Tilboðsdagar eldri borgara
Ógleymanleg stund á einstökum stað
Hótel Stykkishólmur býður eldri borgurum upp á einstakar tilboðsferðir
haustið 2014 og vorið 2015. Þar geta gestir notið bestu þæginda í hjarta þessa
fallega bæjar auk þess að boðið er upp á fjölbreytta dagskrá, stórbrotið umhverfi
og góðan félagsskap.
Næstu Unaðsdagar verða 6. október, 20 október og 3. nóvember 2014.
Verð fyrir dvöl frá mánudegi til föstudags er aðeins 39.900 krónur á mann.
Innifalið í verðinu er:
• Gisting frá mánudegi til föstudags.
Öll herbergi eru nýlega uppgerð með sérbaði, hárþurrku,
sjónvarpi, útvarpi og síma.
• Morgunmatur, hádegisverður og kvöldverður.
Boðið verður upp á morgunverðar-hlaðborð alla
morgna, léttan hádegisverð og þriggja rétta
kvöldverð alla daga.
• Frítt er í sund og sundleikfimi.
Sundlaug Stykkishólms státar bæði af inni- og útilaug,
vatnsrennibraut og frægum heitum pottum sem í
rennur heilsuvatn.
• Kvöldskemmtanir öll kvöldin.
Boðið verður upp á spilakvöld, bingó og dans að ógley-
mdu skemmtikvöldi með Aftanskini, félagi eldri borgara
í Stykkishólmi. Þar má búast við bestu
skemmtan enda eru Hólmarar annálaðir fyrir
blómlegt félagslíf.
• Menningarferð á söguslóðir og náttúruperlur
Snæfellsness skoðaðar.
Hótel Stykkishólmur er eitt glæsilegasta hótel á
landsbyggðinni. Öll herbergi hótelsins og salir
þess státa af ómótstæðilegu útsýni yfir bæinn og
út á náttúruperluna Breiðafjörð. Veitingastaður
hótelsins er í hæsta gæðaflokki og notar aðeins
besta hráefni. Þá er skemmtisalurinn á hótelinu
hinn glæsilegasti og vel tækjum búinn.
Undirrituð munu fúslega veita allar frekari upplýsingar.
Eins er hægt að fá dagskrá senda í pósti eða tölvupósti sé þess óskað.
Hótel Stykkishólmur
María Ólafsdóttir, hótelstjóri, sími 430 2100