Vesturland - 11.09.2014, Side 8
8 11. SEPTEMBER 2014
Borgarbyggð og UMSB:
Samstarfssamningur
um tómstundastarf
Kolfinna Jóhannesdóttir sveit-arstjóri Borgarbyggðar og Sigurður Guðmundsson sam-
bandsstjóri Ungmennasambands Borg-
arfjarðar undirrituðu í síðustu viku
samstarfssamning um tómstundastarf
fyrir 6 til 16 ára börn í Borgarbyggð.
Tilgangurinn með samningnum er
að auka fjölbreytni í tómstundastarfi
fyrir börn á grunnskólaaldri, fjölga
þátttakendum í skipulögðu félags- og
tómstundastarfi og að stuðla að því
að vinnudagur barnanna verði sem
heildstæðastur. Hlutverk UMSB sam-
kvæmt samningnum verður að sjá um
og skipuleggja íþrótta- og tómstunda-
skóla fyrir börn í 1. – 4. bekk, starf-
semi félagsmiðstöðva fyrir unglinga,
sumarfjör fyrir börn í 1. – 7. bekk og
vinnuskóla fyrir börn í 8. – 10. bekk.
Helstu nýmæli í tómstundastarfi
samkvæmt samningi þessum er
stofnun íþrótta- og tómstundaskóla,
sem mun taka til starfa 1. janúar 2015.
Starfsemi skólans verður byggð upp
í góðu samstarfi við íþróttafélögin
sem halda úti æfingum fyrir börn
á þessum aldri. Ætlunin er að geta
boðið börnunum upp á að æfa þær
greinar sem þau vilja en um leið að
kynna fyrir þeim aðrar greinar sem í
boði er að æfa í sveitarfélaginu. Auk
íþróttaæfinga er stefnt að því að bjóða
upp á fjölbreytt tómstundastarf, svo
sem leiklist, myndlist, tónlist, skáta-
starf, útivist, kynningu á starfsemi
björgunarsveitanna og fleira. Með
stofnun skólans er leitast við að jafna
tækifæri barna í sveitarfélaginu til
íþrótta- og tómstundaiðkunar. UMSB
hefur ráðið Sigurð Guðmundsson sem
tómstundafulltrúa og mun hann hefja
störf 1. nóvember nk. Sigurður er með
B.Sc. gráðu í íþrótta-, kennslu- og
lýðheilsufræðum frá Háskólanum í
Reykjavík. Hann hefur einnig menntað
sig í leiðtoga- og frumkvöðlafræðum
og almennum íþróttum auk þess að
vera með sveinspróf í húsasmíði. Sig-
urður hefur yfirgripsmikla reynslu á
sviði íþrótta- og æskulýðsmála. Hann
hefur meðal annars starfað sem lands-
fulltrúi UMFÍ þar sem helstu ábyrgðar-
svið hans voru framkvæmdastjórn
með Landsmóti UMFÍ 50+, verk-
efnin Fjölskyldan á fjallið og Hættu
að hanga! Komdu að hjóla, synda eða
ganga. Hann skipulagði frjálsíþrótta-
skóla UMFÍ sem starfræktur er fyrir
11 – 18 ára ungmenni um land allt,
auk þess að sitja í Æskulýðsráði rík-
isins, þar sem meðal annars er unnið
að stefnumótun æskulýðsfélaga í
landinu, og eiga sæti í starfshópi á
vegum mennta- og menningarmála-
ráðuneytisins um frístundaheimili.
Samningurinn undiritaður.
Landsnet fagnar stefnu
mótun í lagningu raflína
„Landsnet hefur beðið eftir stefnumótun stjórnvalda í þessum málum í um sjö ár og
það er von okkar að þetta nái fram
að ganga,“ segir Þórður Guðmunds-
son, forstjóri Landsnets, um drög að
tillögu til þingsályktunar um stefnu
stjórnvalda í lagningu raflína, sem
nú liggur frammi til umsagnar á
heimasíðu atvinnuvega- og nýsköp-
unarráðuneytisins. Þar eru sett fram
viðmið og meginreglur sem leggja
beri til grundvallar við uppbyggingu á
dreifi- og flutningskerfi raforku, m.a.
að því er varðar álitamál um hvenær
skuli leggja raflínur í jörð og hvenær
skuli reisa loftlínur.
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
Ragnheiður Elín Árnadóttir, hyggst
á komandi haustþingi leggja fram
umrædda þingsályktunartillögu um
stefnu stjórnvalda um lagningu raf-
lína og fagnar forstjóri Landsnets því
að fá skýrar leikreglur um hvernig
fyrirtækið skuli bera sig að í þessum
efnum. Samhliða þingsályktunar-
tillögunni verður lagt fram frumvarp
til laga um breytingu á raforkulögum
nr. 65/2003, þar sem kveðið verður
með ítarlegum hætti á um hvernig
standa skuli að gerð kerfisáætlunar
um uppbyggingu flutningskerfis raf-
orku, en drög að því voru lögð fram
til umsagnar fyrr í sumar.
Nýtt tengivirki Landsnets
og Orkubús Vestfjarða
Skref í áttina að betra afhendingar-
öryggi raforku á Vestfjörðum var
stigið fyrir skemmstu þegar iðnað-
arráðherra tók formlega í gagnið nýtt
tengivirki Landsnets og Orkubús
Vestfjarða á Ísafirði. Vestlendingar
hljóta að samfagna Vestfirðingum af
þessu tilefni. Styrkingar hafa einnig
farið fram á Tálknafjarðarlínu og
vinna við varaaflsstöð Landsnets
í Bolungarvík er langt komin og á
hún að vera tilbúin til notkunar fyrir
árslok.
„Það er von okkar að þessi ver-
kefni skili verulega bættu ástandi í
raforkumálum,“ sagði Þórður Guð-
mundsson, forstjóri Landsnets þegar
nýtt tengivirki Landsnets og Orkubús
Vestfjarða á Ísafirði var tekið í notkun
við athöfn vestra í dag af iðnaðarráð-
herra, Ragnheiði Elínu Árnadóttur.
Framleitt er mun minna rafmagn á
Vestfjörðum en þar er notað og eina
tenging svæðisins við byggðalínu-
hringinn er um svokallaða Vesturlínu.
Afhendingaröryggi raforku hefur ekki
verið ásættanlegt vestra og hefur það
verið forgangsmál hjá Landsneti á
undanförnum misserum og árum að
bæta þar úr.
Þegar hefur verið komið fyrir sér-
stökum fjarvörnum á öllum línum
Landsnets á Vestfjörðum sem dregur
úr líkum á umfangsmiklu straumleysi
og auðveldar bilanaleit. Endurbætur
hafa farið fram á Tálknafjarðarlínu,
bæði í sumar og fyrrasumar, og
bygging varaaflsstöðvar í Bolungarvík
er langt komin þar sem hægt verður
að framleiða allt að 11 megavött
(MW) inn á svæðiskerfið með sex
díselvélum. Heildarkostnaður við
byggingu nýja tengivirkisins og jarð-
strengslagnir er um hálfur milljarður
króna og kostnaður við varaflsstöðina
í Bolungarvík um einn og hálfur millj-
arður króna. Þessar framkvæmdir eru
með þeim stærri hjá Landsneti á árinu
en alls námu framkvæmdir í flutn-
ingskerfinu, til að auka enn frekar
gæði og afhendingaröryggi raforku
til almennings og fyrirtækja, um sjö
milljörðum króna í fyrra. Á þessu ári
er varið heldur lægri upphæð í fjár-
festingar í meginflutningskerfinu og
svæðisbundnum kerfum Landsnets
í öllum landsfjórðungum, eða fimm
milljörðum króna, og er helsta skýr-
ingin sú að framkvæmdir eru ekki
hafnar við Suðurnesjalínu 2.
Þórður Guðmundsson forstjóri Landsnets og Kristján Haraldsson forstjóri
Orkubús Vestfjarða óska hvor öðrum til hamingju eftir að iðnaðarráðherra
lýsti nýtt tengivirki Landsnets og OV formlega komið í rekstur.
Samgöngusafnið í
Brákarey geymir
fágæta dýrgripi
Fornbílafjelag Borgarfjarðar heldur úti Samgöngusafni í Brákarey í Borgarnesi. Þar má
sjá bíla á öllum aldri, sumir í frábæru
ástandi eftir að hafa verið gerðir al-
gjörlega upp, aðrir bíla þess að verða
gerðir upp og komast sem næst því
ástandi sem þeir voru nýir. Þarna eru
ekki bara fólksbílar, heldur einnig
vörubílar, pallbílar sem voru í eigu
Kaupfélags Borgfirðinga og rúta sem
var í áætlunarakstri hjá Sæmundi. Það
er afar merkilegt að kíkja inn í hana,
skoða bílstjórasætið og mælaborðið en
ekki síður sætin í henni sem eru eins
og það hafi aldrei neinn setið í þeim.
Samgöngusafnið í Brákarey er
hreinn gullmoli.
Engin smá rokkur í þessum, en
kannski ekki heppilegur í dag ef
miðað er við bensínverð.
Al Capone hefði verið stoltur að keyra í þessum um götur Chicago. Líklega
Lincoln 1938.
Ford 1938, fágætur bíll sem margir vildu eiga.