Vestfirðir - 06.11.2014, Page 10
10 6. Nóvember 2014
Auglýsingasíminn er 578 1190
Netfang: auglysingar@fotspor.is.
Búnaður fyrir orkuflutning og orkusparnað
Dexta orkutæknilausnir ehf.
Fjölnisgötu 6A, 603 Akureyri | Símar: 461 5710 og 894 4721 | www.dexta.is | gauti@dexta.is
» Varmaskiptar - Ýmsar gerðir á lager
» Varmadælur og kælisamstæður
» Iðnaðarviftur og -blásarar
» Loftræstisamstæður
» Tæknirýmis- og tölvukælar
» Vökvakælar
» Hitabúnt
» Hitablásarar
» Loftskiljur og afloftarar
» Dælur
» Hraðabreytar
» og margt fleira...
Hélt tónleika í Jónshúsi á eigin kostnað
Söngvarinn og Bílddælingurinn Jón Kr. Ólafsson hélt 27. sept-ember sl. tónleika í Jónshúsi í
Kaupmannahöfn til þess að minnast
söngvarans ástsæla Hauks Morthens.
Tilefnið var að í ár eru liðin 90 ár frá
fæðingu Hauks, en hann var einnig
þekktur söngvari í Kaupmannahöfn
og starfaði þar reglulega um lengri eða
skemmri tíma.
Tónleikarnir voru haldnir að frum-
kvæði Jóns en, en ásamt honum
koma fram söngvararnir Þór Breið-
fjörð og Anna Sigríður Helgadóttir,
píanóleikarinn Birgir J. Birgisson og
fiðluleikarinn Hjörleifur Valsson auk
Pétus Valgarð Péturssonar gítarleikara.
Bjarki Sveinbjörnsson, forstöðumaður
Tónlistarsafns Íslands segir að Jóni sé
annt um samtímamenn sína á tónlist-
arsviðinu og að hann hafi lagt sig sér-
staklega fram um að heiðra minningu
þeirra. Jón hafi skrifað um þá greinar,
sungið lögin þeirra og jafnvel hugsað
um leiði þeirra í kirkjugörðum.
Jón Kr. Ólafsson greiddi allan
kostnað við ferðina og tónleikana úr
eigin vasa og nam kostnaðurinn um
hálfri milljón króna. Jón sagðist í
samtali við blaðið Vestfirði hafa sótt
um styrki frá nokkrum aðilum til
þess að standa straum af ferðinni en
aðeins eitt fyrirtæki, Lýsi hf hafi veitt
honum styrk, sem var 50.000 kr. Engu
að síður kvaðst Jón Kr. vera ánægður
með ferðina og sagði að tónleikarnir
hefðu heppnast vel. Hann hefði með
framtaki sínu lagt sinn skerf til þess að
heiðra minningu Hauks Morthens. Jón
vildi koma á framfæri þakklæti til Jóns
Runólfssonar forstöðumanns Jónshúss
í Kaupmannahöfn og alls listafólksins
sem tók þátt í þessum einstæða list-
viðburði.
Frá vinstri: Anna Sigríður Helgadóttir, Þór breiðfjörð, Pétur valgarð Pétursson,
Jósep blöndal, læknir, björn Ingmar blöndal, birgir J. birgisson.
Pétur valgarð píanóleikari og Jón Kr. ólafsson.
Jón Kr. Og bassaleikarinn björn Ingimar blöndal.
Tónlistarmennirnir í góðri sveiflu.
við styttu Arnfirðingsins Jóns Sigurðssonar. Frá vinstri: Pétur valgarður
Pétursson, birgir Ingimar blöndal, Jón Kr. ólafsson, Þór breiðfjörð, Anna
Sigríður Helgadóttir.