Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 03.01.2003, Side 1

Fréttir - Eyjafréttir - 03.01.2003, Side 1
HERJÓLFUR VETRARÁÆTLUN Frá Frá Vcftm.eyjum Þorl.höfn Mánu-til laugardaaa...08.15 12.00 Aukaferö föstudaga....16.00 19.30 Sunnudaga.............14.00 18.00 Engar feröir eru. jóladag og nýársdag Ath. séráætlun gildir fyrir Jól og áramót - HERJÓLFUR Landfkjtmgar Upplýsingactmi: 481-2800 * www.herjolfur.it ! ! ! ! 30. árg. 1. tbl. • Vestmannaeyjum 3. janúar 2OT3 • • Sími 481 1300 • Fax 481 1293 • www.eyjafrettir.is Þrettándagleðin: Hefst klukkan 19.00 Ef marka má langtímaspá Veðurstofu íslands má búast við að á mánudag verði austan skælingur og einhver úrkoma en jólasveinarnir, Grýla og Leppalúði láta það varla á sig fá og mæta galvösk á þrett- ándagleðina. Hefst hún að þessu sinni klukkan sjö þegar jólasveinarnir leggja af stað ofan af Hánni. Að öðru leyti verður dagskráin hefð- bundin og verður gengið áleiðis frá Hánni upp á Malarvöll þar sem hátíðahöldin fara fram. Þar koma fram ásamt stórfjölskyld- unni úr fjöllunum alls kyns tröll og forynjur ásamt því sem reynt verður að endurvekja álfadans- inn. Ennfremur munu Litlu Lærisveinamir mæta á svæðið og taka nokkur lög. NÝJA árið gekk í garð með friðsömum hætti í Vestmannaeyjum en mikiu var skotið upp af flugeldum eins og myndin ber með sér. Áramótin voru venju fremur róleg hjá lögreglu og hafði gott veður sitt að segja því einhvern veginn er það nú svo að mannfólkið er rólegra þegar veðurguðirnir eru í góðu skapi. Tveir áfangar í fræðslumálum í Eyjum: Símenntunarmiðstöð og stækkun Hamarsskóla Mánudaginn 6. janúar nk. verður tekinn í notkun hluti viðbygging- ar í Hamarsskóla sem unnið hefur verið að frá miðju þessu ísfélagið: Uppsagnir á flotanum Yfirmönnum á Guðmundi VE og Hörpu VE hefur verið sagt upp störfum. Til stendur að leggja Guðmundi VE en óvíst er með notkun á Hörpu VE í framtíðinni. Friðrik Már Sigurðsson útgerðar- stjóri segir yfirmenn skipanna vera með þriggja mánaða uppsagnarfrest en það standi til að gera skipin út í vetur. „Við vonumst til að það komi eitthvað í staðinn en Guðmundur VE er hátt á fertugsaldri og það svarar ekki kostnaði að lagfæra hann. Það er meira í lausu lofti með Hörpuna. Auðvitað ríkir óvissa hjá áhöfnum þessara skipa, það er alltaf svo þegar mönnum er sagt upp störfum. Við vonumst hins vegar til að annað skip komi í staðinn," segir Friðrik. ári. í þessum áfanga verða teknar í notkun þrjár nýjar kennslustof- ur auk þess sem unnið hefur verið að nokkrum endurbótun í elsta hluta skólans. Arnar Sigurmundsson, formaður skólamálaráðs, segir að með til- komu nýrra kennslustofa sjái fyrir endann á einsetningu skólans. Þennan sama dag verður einnig undirritaður stofnsamningur fyrir Fræðslu og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja. En íbyrjun septem- ber var samþykkt í skólamálaráði að hafa forgöngu um stofnun slíkrar miðstöðvar í Eyjum. Arnar segir að hlutirnir haft gengið hratt fyrir sig og tókst að tryggja þessari nýju starfsemi fjárveitingu á fjárlögum 2003. „Að undanförnu hefur sérstök undirbúningsnefnd unnið hratt að málinu og hefur verið leitað til skólastofnana, fyrirtækja og stéttarfélaga um að koma að starfseminni." Arnar sagði ennfremur að góð samstaða hefði einkennt allan undirbúning að báðum þessum málum. I tilefni þessa áfanga í fræðslumálum og menningarmálum í Eyjum er Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra væntanlegur ásamt samstarfsfólki til Eyja á mánudaginn. Mótmæla kvótasetningu Aðalfundur Skipstjóra og stýri- mannafélagsins VERÐANDl var haldinn 27. desember. Var hann mjög fjölmennur og var einróma samþykkt tillaga þar sem mót- mælt er harðlega ákvörðun sjáv- arútvegsráðherra um kvótasetn- ingu á keilu, löngu, skötusel og kolmuna. Fundurinn skorar á bæjarstjórn Vestmannaeyja og þingmenn landsins að gera það sem þarf til að sjávarútvegs- ráðherra endurskoði ákvarðanir sínar. Fjöldi í golfmóti á gamlársdag Alls tóku 34 þátt í hinu árlega Flugeldamóti GV á gamlársdag og spiluðu 9 holur. Spilað var með Texas scramble fyrirkomulagi og öruggir sig- urvegarar urðu þeir Haraldur Júlíusson og Óskar Haraldsson á 32 höggum brúttó, eða 30 nettó. I öðru sæti urðu Sigurður Þór Sveinsson og Stefán Sævar Guðjónsson á 36 höggum brúttó, 33 nettó og f þriðja sæti Páll og Örná 34 höggum nettó. TM-ÖRYGGI fyrir fjölskylduna sameinar öll tryggingamálin á einfaldan og hagkvæman hátt - á öllum sviöum! Bílaverkstæðið Bragginn s.f. Flötum 20 Viðgerðir og smurstöð Sími 481 3235 Rettmgar og sprautun Sími 481 1535 Skip og bíll EIMSKIP /^iaí3 sími: 481 3500 sími: 481 3500

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.