Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 03.01.2003, Qupperneq 9

Fréttir - Eyjafréttir - 03.01.2003, Qupperneq 9
Föstudagur 3. janúar 2003 Fréttir 9 Ásgeir, Ólafur bróðir hans og Sigurður Ingi Ingólfsson með þrjá bikara sem ÍBV fékk á árinu 1972. Myndir Sigurgeir Jónasson. Ásgeir í leik gegn KR árið 1972. ÞESSI mynd er frá árinu 1970 þegar ÍBV varð íslandsmeistari í öðrum, þriðja og fjórða flokki í knattspyrnu. Auk þess varð IBV bikarmcistari í öðrum flokki en þar var Ásgeir meðal leikmanna. STEFÁN Runólfsson stýrði ÍBV á þessum árum. ÁSGEIR í ÍBV búningi. hjá þeim,“ segir hann. „Mér gekk bara ágætlega þannig lagað og spilaði eina 17 leiki á tíma- bilinu og var að koma inn og út úr liðinu. En það var nú bara þannig að það var ekki pláss fyrir tvo leik- stjómendur í liðinu, annaðhvort spilaði leikstjómandinn, Paul Breitner eða ég. Þannig að þegar tilboð kom frá Stutt- gart fannst mér eðlilegra að fara yftr,“ segir Ásgeir sem einnig fékk tilboð fiá öðmm liðum í Evrópu. „Það var aldrei í stöðunni hjá mér að fara annað en til liðs í Þýskalandi því þar vildi ég sanna mig og sýna að ég gæti eitthvað." Toppnum náð Bestu ár Ásgeirs sem knattspymu- manns vom án efa á ámnum með Stuttgart. Með liðinu spilaði hann til ársins 1990 þegar hann ákveður að leggja skóna á hilluna. Besta árið er hins vegar 1984 þegar Stuttgart verður Þýskalandsmeistari og Ásgeir er valinn besti leikmaður deildarinnar. Þá var hann kosinn íþróttamaður ársins hér heima á Fróni í annað sinn, hið fyrra var tíu ámm áður, eða 1974. „Árin með Stuttgart vom virkilega góð og toppurinn var árið 1984 þegar við urðum meistarar og þá liðin 32 ár síðan liðið varð síðast meistari. Það var því mikil hamingja í bænum og liðið var komið inn á kortið aftur,“ segir Ásgeir og er sem þetta hafi gerst í gær þegar hann rifjar upp þessa skemmtilegu tíma. „Stuttgart var á þessum ámm með leikvang sem tók 80 þúsund manns og það var varla sá leikur að ekki væm 50-60 þúsund manns á vellinum og því gnðarlega mikil stemning. Síðan fómm við í úrslit í Evrópukeppni gegn Napólí einu sinni þannig að þetta var skemmtilegur tími og mikill upp- gangur hjá félaginu,“ segir Ásgeir. Off og tíðum á þessum ámm spmttu upp í fjölmiðlum í Þýskalandi hug- myndir þess efnis að Ásgeir myndi fá þýskan ríkisborgararétt til að geta leikið með landsliðinu þar ytra. Það hefur ekkert kitlað að leika með þýska landsliðinu og fá jafnvel tækifæri til að leika í úrslitakeppni heimsmeistara- mótsins? „Nei, ég hafði í raun aldrei áhuga á því og gat í reyndar ekki hugsað mér það. En það er engin spuming um að ég hefði auðveldlega komist í þýska landsliðið á þessum tíma. En að verða Þjóðverji í stað Islendings hvarflaði aldrei að mér og ég vildi frekar spila fyrir fsland í stað Þýskalands,“ segir Ásgeir sem spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir Islands hönd 1972 og þann síðasta 1990. Alls lék hann 45 landsleiki og skoraði í þeim fimm mörk. Á þessum ámm vom lið ekki skyldug samkvæmt samningum leikmanna til að hleypa leikmönnum í landsleiki eins og tíðkast í dag. Hefðu reglumar verið öðmvísi í þá daga væm landsleikir Ágeirs án efa yfir hundraðið. Að þekkja sinn vitjunartíma Ásgeir leggur síðan skóna á hilluna frægu í maí 1990 eftir glæsilegan knattspymuferil. Án efa hefði hann getað spilað f nokkur ár til viðbótar og átti meðal annars kost á að gera sinn besta samning sem atvinnumaður. En var það ekkert erfið ákvörðun að hætta? „Nei í raun ekki. Það var nú þannig að 1990 fékk ég tilboð frá Schalke, sem þá var í 2. deild, og hefði þá getað gert minn besta samning á ferlinum. En mér fannst útgöngu- punkturinn þurfa að vera góður og þama fannst mér réttur tími til að leggja skóna á hilluna," segir hann. „Eg vildi að minningamar um mig sem leikmann væm góðar en ekki þannig að ég væri að fara þrepin niður á við og færi að leika svona la la,“ sagði Ásgeir. Oft er talað um að góður leiðtogi þurfi að þekkja sinn vitjunartíma. Varstu góður leiðtogi, Ásgeir? „Eg var ekki þannig leiðtogi að ég skammaðist og rifist mikið við mína samherja og færi upp á háa C-ið. Ætli ég hafi ekki verið meiri vinur þeirra. Ef menn gerðu eitthvað á minn hlut þá gátu þeir verið vissir um að fá það borgað þrefalt til baka. Eg lenti aldrei í neinum vandræðum allan minn feril. hvorki við forseta félags, þjálfara eða leikmenn," segir Ásgeir og bætir við. „í dag get ég gengið inn í alla klúbbana sem ég spilaði hjá og er tekið opnum örmum þannig að ég á einungis góðar minningar frá þessum ámm,“ segir leiðtoginn Ásgeir. Heldur þú góðu sambandi við fyrr- verandi samherja í knattspymunni? , Já, það geri ég. Það er nú svolítið fyndið að í dag em margir af mínum fyrrverandi félögum orðnir þjálfarar hjá stórliðum úti þannig að það má segja að ég sé ágætlega tengdur. En það er alltaf mjög gaman að heyra í mönnum og fylgjast með hvað er að gerast í knattspymunni,“ segir Ásgeir. Eyjamenn þurfa engu að kvíða Sumarið 1993 gerði Ásgeir stutta endurkomu í íslenska knattspymu því þá þjálfaði hann Fram í úrvalsdeild karía. Þig hefur ekkert langað til að fara meira út í þjálfun? „Eg hugsaði það mál á sínum tíma en þar sem ég var kominn á kaf í eigin fyrirtækjarekstur þá sá ég mér ekki fært að hella mér út í það. Þá hef ég verið hjá KSÍ í nokkur ár sem ráðgjafi og það fyllir alveg minn kvóta í fótboltanum auk þess að vera stjóm- armaður í Stoke City,“ sagði hann og þegar hann var spurður að því hvort ekki væri gaman að loka hringnum og þjálfa ÍBV, sagði hann: „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér,“ sagði Ásgeir og hló við. „En mér líst ágætlega á framtíðina hjá ÍBV. Það em komnir traustir menn í stjómina og mikið af ungum og efnilegum strákum að koma upp. En það verður við ramman reip að draga þar sem mikið af reynsluboltum hefur hætt eins og Hlynur, Tómas Ingi, Ingi Sig. og Kjartan Antons. en efnivið- urinn er nægur og Eyjamenn þurfa engu að kvíða held ég,“ segir Ásgeir. En ertu eitthvað að sparka í bolta í dag? „Eg hætti því ekki svo glatt og spila þrisvar í viku með Lunch United sem er skipað gömlum kempum úr fótboltanum hér heima. Síðan hef ég verið að spila góðgerðarleiki í Þýskalandi með gömlum samherjum, ætli ég hafi ekki spilað sjö leiki núna sl. sumar. Það er alltaf jafn gaman," segir hann. En meðal þeirra sem Ásgeir spilar með í góðgerðarleikjum í Þýskalandi er þýski landsliðsfyrir- liðinn fyrrverandi, Jörgen Klinsmann. Ertu alltaf sami Eyjapeyinn? ,Já, ég verð alltaf Eyjapeyi - það er ekki spuming,11 segir Ásgeir Sigurvinsson að lokum. Skapti Öm Ólafsson.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.