Fréttir - Eyjafréttir - 03.01.2003, Qupperneq 15
Föstudagur 3. janúar 2003
Fréttir
15
hefur einnig gefið það í skyn en þess
má geta að Ingi á aðeins tvo leiki í að
ná 200 leikjum fyrir ÍBV í efstu deild
og hlýtur að vera freistandi fyrir
bæjarstjórann að ná því takmarki.
Yngri flokkamir
Eins og undanfarin ár var fátt um fína
drætti hjá Eyjapeyjunum en ár og öld
eru síðan titill skilaði sér í hús ef frá er
talinn Shellmótstitill sem sjötti flokkur
náði í um árið.
Annar flokkur karla lék í B-riðli í
sumar eftir að hafa fallið árið áður.
Stöðugleiki var eitthvað sem var ekki
að flækjast fyrir þetta árið enda var
árangurinn betri á útivöllum en á
heimavelli. Liðið endaði í fimmta
sæti af átta liðum en eitt lið var
áberandi lélegast, Stjaman, á meðan
önnur lið börðust um efsta sætið.
Árangurinn í bikarkeppninni var hins
vegar mjög góður því þrátt fyrir að
vera í B-riðli þá tókst liðinu að komast
alla leið í undanúrslit eftir að hafa
sigrað IR og Leikni. I undanúrslitum
mætti liðið KR og fór leikurinn fram á
Þórsvellinum. Til að gera langa sögu
stutta þá endaði leikurinn með 2-2
jafntefli og því þurfti að framlengja.
Þar tókst hvorugu liði að skora og
fengust úrslit því í vítaspymukeppni.
Þar skomðu KR-ingar fjögur mörk en
IB V aðeins eitt og komst vesturbæjar-
liðið því áfram.
Þriðji flokkur spilaði sitt annað ár í
B-riðli eftir að hafa verið í A-riðli árin
þar áður. Gengi liðsins var sæmilegt
en IBV endaði sumarið í sjötta sæti af
átta liðum. Riðillinn skiptist í þrennt,
efst vom þijú lið sem börðust um efsta
sætið svo kom ÍBV ásamt tveimur
öðmm liðum og KA og Leiknir vom
áberandi slökust. I bikarkeppninni féll
IBV úr leik í íyrstu umferð þegar liðið
tapaði fyrir FH.
I fjórða flokki karla sendi IBV bæði
A- og B-lið en liðin spiluðu bæði í B-
riðli. A-liðið endaði í þriðja sæti af tíu
liðum, með jafnmörg stig og liðið í
öðm sæti sem hlýtur að teljast góður
árangur. B-Iiðið endaði hins vegar í
frmmta og neðsta sæti og þar sem
samanlagður árangur A- og B-liðs
telur, þá komst ÍBV ekki j úrslit.
í fimmta flokki sendi ÍBV A-, B-,
C- og D-lið í íslandsmótið. A-liðið
endaði í áttunda sæti af tíu liðum, B-
liðið endaði í því sjötta, C-liðið í
áttunda og D-liðið í sjöunda og
komust liðin ekki í úrslit. Einnig tóku
strákarnir þátt í Esso-mótinu sem
haldið er á Akureyri og náði A-liðið
bestum árangri eða níunda sæti.
Sjötti flokkur karla tekur árlega þátt
í nokkmm mótum, svo sem PoIIamóti
KSÍ. Lotto-mótinu sem haldið er á
Akranesi og að sjálfsögðu Shell-
mótinu. Engir titlar unnust en á Shell-
mótinu náði C-liðið bestum árangri,
spilaði til úrslita en tapaði naumlega
fýrir Fylki. Auk þessara flokka var
ÍBV með sjöunda og áttunda flokk.
Knattspyma kvenna
-Meistaraflokkur
Eftir stöðuga framför kvennaliðs ÍBV
undanfarin ár var komið að því að
missa taktinn en það gerðist svo
sannarlega sumarið 2002. í heildina
var árangurinn kannski ekki svo slakur
en ytri atburðir urðu til þess að liðið
náði aldrei að sýna sínar bestu hliðar
og íyrir vikið er óhætt að segja að liðið
hefði getað betur. Fjórða sætið og
undanúrslit í bikamum er reyndar
betra en oft áður en í deildinni var það
aldrei spuming hver myndi landa
titlinum. KR var einfaldlega með allt
of sterkt lið fyrir íslensku deildina.
Strax eftir tímabilið lét Heimir
Hallgrímsson þjálfari af störfum og í
stað hans var ráðin Elísabet Gunnars-
dóttir. Þá var gengið frá öllum leik-
mannamálum liðsins á haustmánuðum
og allt var á réttri leið. Auk Heimis
fór íris Sæmundsdóttir, fyrirliði liðsins
í bameignarfrí og Ásthildur Helga-
dóttir hvarf á braut. Michelle Barr
sneri aftur og tók með sér Rakel
Hamill en báðar em þær skoskir
landsliðsmenn. Einnig léku með Iiðinu
Laufey Ólafsdóttir og Rakel Loga-
dóttir. Undirbúningstímabilið gekk
ágætlega fyrir sig og í deildar-
bikamum lék liðið í B-riðli og endaði
þar í þriðja sæti.
Fyrsti leikur liðsins í íslandsmótinu
var svo á útivelli gegn Breiðabliki.
Liðið tapaði þeim leik, nokkuð sem
þurfti ekki að koma á óvart en það
gerði hins vegar tapleikur á heimavelli
gegn nýliðum Grindavíkur. I kjölfarið
íylgdi svo eftir tap gegn Val á Hlíðar-
enda og liðið sat á botni deildarinnar
eftir fyrstu þrjár umferðimar og
mönnum hætt að lítast á blikuna. En í
kjölfarið fylgdu fjórir sigurleikir í röð
og sá stærsti var án efa sigurleikur
gegn KR á útivelli í sjöttu umferð. Sá
leikur vannst 2-4 og fram að því hafði
KR unnið alla sína leiki án þess að fá
á sig mark. Reyndar fór svo að KR
fékk á sig aðeins tvö mörk í viðbót út
tímabilið þannig að ÍBV skoraði 67%
af þeim mörkum sem KR fékk á sig.
En svo var komið að heimaleik gegn
Breiðabliki, sá leikur tapaðist 0-1 og
því hefúr ÍBV ekki enn tekist að sigra
Breiðablik í íslandsmótinu. ÍBV
endaði tímabilið í fjórða sæti af átta
liðum, töluvert á eftir efstu liðunum en
nokkuð frá botnliðunum.
í bikarkeppninni komst IBV alla
leið í undanúrslit en þar mætti liðið
Val á útivelli. Þá hafði Elísabetu verið
sagt upp störfúm og lætin í kringum
liðið komu að sjálfsögðu niður á leik
þess. ÍBV tapaði fyrir Val 3-0 og
verður því að bíða enn um sinn eftir
því að komast í úrslitaleikinn.
Tímabilsins 2002 verður því miður
fyrst og fremst minnst fyrir þær sakir
að þjálfarinn var rekinn og fjaðrafokið
sem íkjölfarið fylgdi. Þetta sumar var
erfitt í knattspymunni, báðir þjálfarar
meistaraflokkanna voru reknir og
félagið skaðaðist út á við. I
kvennaboltanum leit allt mjög vel út
framan af, leikmannahópurinn var klár
löngu fyrir mót en hvar hlutimir fóm
úrskeiðis er eríitt að henda reiður á og
hverjum er um að kenna verður lík-
lega aldrei skorið úr um. Nú hefur
Heimir Hallgrímsson hins vegar tekið
að sér meistaraflokkinn að nýju og
hefur hann fengið góða menn í lið
með sér til að skipa knattspymuráð.
Það er því vonandi að uppbygg-
ingarstarf Heimis undanfarin ár,
komist aftur í gang tímabilið 2003.
Yngri flokkamir
Annar flokkur kvenna hefúr undan-
farin ár borið höfuð og herðar yfir aðra
flokka ÍBV í knattspymunni enda
hefur flokkurinn lfldega skilað flestum
titlum. Reyndar skilaði liðið ekki titli
árið 2001 og árið 2002 fór nánast á
sama veg. I íslandsmótinu lék liðið í
A-deild og var í toppbaráttunni.
Sumarið fór reyndar ekki vel af stað,
slysalegt tap í fyrsta leik gegn
Stjömunni vakti stelpumar af væmm
blundi. En í kjölfarið kom gott gengi
og liðið tapaði eftir það aðeins stigum
gegn liðunum fyrir ofan, Breiðabliki
og KR. Þessi þrjú Iið vom áberandi
best í Islandsmótinu og skám sig
nokkuð úr en KR fagnaði íslands-
meistaratitlinum í lokin.
I bikarkeppninni komst ÍBV þriðja
árið í röð í úrslitaleikinn. Árið 2000
vann IBV bikarinn en sumarið 2001
tapaði liðið gegn Val í úrslitaleiknum.
Sumarið 2002 lék liðið til úrslita gegn
KR og úrslitaleikurinn var æsispenn-
andi þrátt fyrir frekar erfið skilyrði.
Svo fór að KR vann leikinn 2-3 eftir
framlengdan leik.
Þriðji flokkur kvenna lék í A-riðli
eins og undanfarin ár. Af sjö Iiðum í
riðlinum. endaði ÍBV í fjórða sæti en
liðið virtist aldrei ná sér almennilega á
strik á heimavelli. Liðið komst þar
með ekki í úrslit en tvö efstu liðin
spiluðu þar.
í fjórða flokki tefldi ÍBV fram bæði
A- og B-liðum. Bæði lið spiluðu í A-
riðli íslandsmótsins en þar endaði
A-liðið í níunda sæti af ellefu liðum
og B-Iiðið endaði í þriðja sæti og
komst þar með í úrslit. Þar lék liðið í
riðli með Breiðabliki og Keflavík en
IBV tapaði gegn Breiðabliki en sigraði
Keflavík.
Fimmti Ilokkur kvenna lék svo í
Hnátumóti KSI þar sem markmiðið er
líkt og í Pollamótinu að leyfa öllum að
vera með og enginn er sigurvegari.
Auk þess að taka þátt í Islands-
mótinu tóku flokkamir þátt í hinum
ýmsu mótum, m.a. Vöruvalsmótinu
hér í Eyjum en þar sigraði ÍBV í 5.
flokkí A-, B- og C-liðum auk þess
sem sjötti flokkur A- og B-liða fékk
silfurverðlaun.
KFS
Sumarið hjá KFS var heldur betur
eftirminnilegt og ljóst að liðið er í
stöðugri framför hjá Hjalta Kristjáns-
syni, þjálfara til ellefu ára. KFS
samanstendur af Framherjum og
Smástund, en þetta var fimmta árið
sem liðin senda sameiginlegt lið til
keppni í Islandsmótinu. Síðustu þrjú
ár hefur liðið komist í úrslit 3. deildar
og hefur árangurinn þar verið stig-
Það var öllum ljóst sem að
knattspymunni störfuðu að
fyrir höndum ætti meistara-
flokkur karla mjög erfítt
tímabil sumarið 2002. Árið
áður hafði verið farið út í
aðhaldsaðgerðir, þannig að
leikmannahópurinn var þá að
mestu Eyjamenn, ungir sem
aldnir. 2001 náði liðið hins
vegar öðru sæti í deildinni og
ljóst að erfitt væri að fylgja
þeim árangri eftir eða jafnvel
bæta hann. Liðið var í basli
nánast allt sumarið,
fallbaráttan var reyndar óvenju
hörð þetta árið.
vaxandi. Fyrsta árið féll liðið út í átta
liða úrslitum, árið þar á eftir í undan-
úrslitum og það var því í rökréttu
framhaldi að liðinu tókst að tryggja sér
sæti í 2. deild að ári. Það gerðu KFS
menn með glæsibrag, unnu deildina
eftir skrautlegan úrslitaleik gegn Fjölni
á heimavelli þeirra og eftir sumarið
stendur árangur KFS upp úr þegar litið
er yfir knattspymuna í Eyjum sumarið
2002.
Eins og áður var samvinnan við
stóra bróður, IBV, nokkur á árinu og
fékk liðið lánaða leikmenn sem
komust ekki að hjá efstudeildarliðinu.
Auk þeirra skipuðu liðið reynsluboltar
úr knattspymuheiminum og uppaldir
strákarhjá KFS.
í ár lék liðið í A-riðli og var það mál
manna að sá riðill væri einn sá
sterkasti í 3. deildinni en þar em alls
fjórir riðlar. Þegar á leið var ljóst að
baráttan stóð fyrst og fremst á milli
Fjölnis, KFS og Árborgar en efstu tvö
sætin gefa sæti í úrslitum. KFS var
svo gott sem búið að tryggja sér sæti í
úrslitum þegar fimm umferðir vom
eftir en menn slökuðu fullmikið á og
aðeins náðust þijú stig úr síðustu fimm
leikjunum. En það dugði og því
endaði KFS riðlakeppnina í öðm sæti
þriðja árið í röð.
í átta liða úrslitum mætti liðið svo
Magna frá Grenivík, en Magni hafði
unnið Norðurlandsriðilinn nokkuð
ömgglega. KFS vann fyrri leikinn 4-
0 á heimavelli en tapaði seinni
leiknum 2-1 og var þar með komið í
undanúrslit. Þar mætti liðið Leikni frá
Fáskrúðsfirði sem hafði nokkuð óvænt
slegið út Reyni Sandgerði. Fyrri
leikur liðanna fór fram fyrir austan og
þar sigraði KFS 2-3 eftir að hafa lent
undir strax á áttundu mínútu. Þar með
héldu líklega flestir að KFS væri búið
að tryggja sér sæti í 2. deild að ári
enda var aðeins heimaleikurinn eftir.
Annað kom á daginn, seinni leikurinn
var spennandi frá upphafi til enda og
endaði hann með eins marks sigri
Leiknis og því fór KFS upp um deild á
fleiri mörkum skomðum á útivelli.
Úrslitaleikurinn var svo leikinn á
Fjölnisvellinum og er óhætt að segja
að þar hafi mæst stálin stinn. I hálfleik
var staðan jöfn 1-1 en í upphafi síðari
hálfleiks urðu Eyjamenn einum
leikmanni færri og á brattann að
sækja. En bæði lið skomðu eitt mark
í síðari hálfleik og því þurfti að
framlengja. Þar náði KFS yfirhönd-
inni á tíundu mínútu en Fjölnismenn
jöfnuðu fjórum mínútum fyrir leikslok
og því varð að grípa til vítaspymu-
keppni. Þar skomðu KFS-menn úr
fimm spymum en Fjölnismenn úr
fjómm og því varð KFS sigurvegari í
3. deild árið 2002.
í bikarkeppninni mætti KFS annað
árið í röð efsta liði Símadeildarinnar
en árið 2001 vom það Fylkismenn
sem þóttu heppnir að sleppa með sigur
frá Eyjum. Árið 2002 var það hins
vegar vesturbæjarstórveldið sem kom
í heimsókn með Eyjamanninn Sigur-
vin Ólafsson í broddi fylkingar. Þrátt
fyrir ágætis takta þá vom það KR-
ingar sem skomðu fyrsta markið og
varsterkrangstöðulyktafþví. Svofór
að KR-ingar sigmðu 0-4, sanngjöm
úrslit hjá Islandsmeistumnum.