Fréttir - Eyjafréttir - 06.02.2003, Síða 1
HERJÓLFUR
VETRARÁÆTLUN
TIR
30. árg. • 5. tbl. • Vestmannaeyjum 6. febrúar 2003 • Verð kr. 180 • Sími 481 1300 • Fax 481 1293 • www.eyjafrettir.is
Styrking krónunnar gagnvart
dollaranum hefur komið illa
við marga sem standa í útflutn-
ingi. Dollarinn hefur lækkað
úr tæpum 102 krónum niður í
75 krónur á einu ári.
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson,
Binni, framkvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar segir þetta
hafa haft slæmar afleiðingar í för
með sér. „íslenska krónan hefur
styrkst mikið undanfarið og við
vitum ekki út af hverju og hrein-
lega skiljum þetta ekki.“
Binni sagði að styrking krón-
unnar hafi verið 4% frá áramót-
um og 15% síðasta rúma árið.
„Þetta þýðir það að tekjur
Vinnslustöðvarinnar hafa dregist
saman um 550 milljónir króna á
milli ára. Þetta hefur náttúrulega
gerst á löngu tímabili og jafnast
út en það er ljóst að þetta skaðar
fyrirtækið, enda lækkar ekkert á
móti, t.d. olíuverð hefur ekki
lækkað og svo hækkaði fiskverð
mikið til landvinnslu á síðasta
ári,“ sagði Binni að lokum.
Sterkari
króna gerir
fiskvinnslu
erfitt fyrir
Ný stjórn í
VSV
Ný stjórn tók við í Vinnslu-
stöðinni eftir hluthafafund
félagsins 4. febrúar sl.
Samkvæmt upplýsingum Binna
fara þeir Magnús Kristinsson og
Jón Kristjánsson út úr stjóminni.
Jakob Bjamason verður áfram
formaður stjómar og Haraldur
Gíslason verður varaformaður.
Aðrir í stjóm eru Guðmundur
Kristjánsson, Gunnar Birgisson
og Gunnlaugur Olafsson. Til
vara em þeir Benedikt Sigurðs-
son og Hjálmar Kristjánsson.
Bikarleik-
urinn í kvöld
Leik ÍBV og Stjörnunnar í
undanúrslitum bikarkeppni
HSI sem vera átti í gærkvöldi
var frestað vegna ófærðar.
Leikurinn mun fara fram í
kvöld, fimmtudag, kl. 19.30.
Em Eyjamenn hvattir til að fjöl-
menna í höllina og hvetja
stelpumar til sigurs.
Hissr
Upplýsingatlmi: 481-2800 • www.herjolfur.is
Á Rauðagerði var í síðustu viku slegið upp náttfatadegi sem sagt er nánar frá á bls. 4.
Frá Frá
Vcstm.cyjum Þorl.höfn
Mánu-til laugardaaa......08.15 12.00
Aukaferö föstudaga 16.00 19.30
Sunnudaga................14.00 18.00
Vinnslustöðin og Godthaab í Nöf:
Kaupa fisk í Færeyium
Talsvert hefur borið á hráefnis-
skorti í fiskvinnslustöðvum í
Eyjum undanfarið og hafa menn
gripið til þeirra ráða að kaupa
fisk frá Færeyjum til vinnslu hér.
Þorsteinn Magnússon, fram-
leiðslustjóri Vinnslustöðvarinnar
staðfesti í samtali við Fréttir að
Vinnslustöðin hafi keypt 23 tonn af
ufsa frá Færeyjum nýlega og hafi
verið um vissa tilraun að ræða af
þeirra hálfu.
„Fiskurinn var heldur smærri en
við reiknuðum með, megnið af ufs-
anum var undir einu og hálfu kílói."
Þorsteinn sagði einnig að fiskurinn
hefði verið heldur í dýrari kantin-
um, sérstaklega miðað við stærðina.
Hann sagði ekkert ákveðið með
framhaldið og hvort þeir keyptu
meira af Færeyingum. „Við munum
væntanlega nýta okkur þetta ef
tækifæri gefst en það fer eftir ýmsu,
verði og gæðum hráefnisins til að
mynda,“ sagði Þorsteinn.
Aðspurður hvers vegna þessi leið
hafi verið farin, sagði hann að í
þessu tilfelli hafi verið farið út í
þetta til að halda uppi vinnslu.
Vinnslustöðin er þó ekki eina fisk-
vinnslan í bænum sem hefur keypt
af frændum okkar og sagði Einar
Bjamason, skrifstofustjóri og einn
eigenda Godthaab í Nöf, að þeir
hefðu einu sinni keypt hráefni frá
Færeyjum og allt útlit fyrir að
framhaid yrði á þeim viðskiptum.
„Það stóð til að fá aðra sendingu
fljótlega en þetta er spurning um
veður og aflabrögð, það fer eftir því
hvort það gengur upp.“
Einar sagði verðið á fisknum
svipað og þeir hafa verið að fá hér á
landi og aðspurður um gæðin sagði
hann þau talsverð. Einar sagði að
nóg væri að gera í Godthaab þessa
dagana en um þrjátíu manns vinna
hjá fyrirtækinu.
Hressir klerkar
ó kallakvöldi
Mikið fjör var á karlakvöldi
ÍBV um borð í Herjólfi og því
stjórnuðu klerkar Dómkirkju
og Landakirkju.
k ________ |BLS. 18
Frábær árangur
í hjúkrunarnámi
í haust hófu tólf Eyjamenn
fjarnám í hjúkrunarfræði
við Háskólann á Akureyri.
Tíu héldu áfram eftir
áramót. | BLS. 11&12
TM-ÖRYGGI
fyrir fjölskylduna
sameinar öll tryggingamálin
á einfaldan og hagkvæman hátt
- á öllum sviöum!
Bílaverkstæðið
Bragginn s.f.
Flötum 20
Viðgerðir og smurstöð
Sími 481 3235 ,
Rettmgar og sprautun
Sími 481 1535
Skip og bíll
EIMSKIP
sími: 481 3500
sími: 481 3500