Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2003, Síða 1
Hitaveita Suðurnesja skiiaði
810 milljóna króna hagnaði á
síðasta ári. Á síðasta aðalfundi
var ákveðið að greiða hluthöf-
um út arð sem nemur 270
milljónum króna.
Hlutur Vestmannaeyja er sjö
prósent og þar af leiðandi 18,9
milljónir króna. Þegar arður hefur
verið greiddur eykst eignarhlutur
Vestmannaeyjabæjar um 39
milljónir.
Á aðalfundinum var kosin ný
stjórn en stjórnarmönnum var
fækkað úr tólf í sjö. Hiutfall
eignarhluta ræður fjölda stjómar-
manna en Reykjanesbær á þrjá
fulltrúa, Hafnarfjörður einn,
Grindavík einn, Vestmannaeyja-
bær einn og einn fulltrúi kemur
frá ríkinu. Garður, Vogar og
Sandgerði komu ekki inn manni
þar sem eignarhlutur þeirra er
ekki nógu stór. Lúðvík Berg-
vinsson, aiþingismaður og bæjar-
fulltrúi V-listans fór inn í stjórn-
ina sem fulltrúi Vestmanna-
eyjabæjar.
Framsóknarmenn opnuðu kosningaskrifstofu síðasta föstudag. Athygli vakti þegar Guðni Ágústson, landbúnaðar-
ráðherra og ísólfur Gylfi Pálmason, alþingismaður komu ríðandi á skrifstofuna þar sem Hjálmar Árnason, alþingis-
maður og Eygló Harðardóttir, frambjóðandi tóku á móti þeim ásamt fleira framsóknarfólki.
Alvarlegt fíkniefnamál kom upp um helgina:
Verðmætið nær hálf milljón
Hluti efnanna til eigin neyslu en líklega stærsti hlutinn í sölu
Sex manns á aldrinum sextán til
þrjátíu og eins árs voru hand-
teknir í tengsium við fíkniefna-
málið sem kom upp um helgina.
Við húsleit á föstudagskvöld
fundust 140 grömm af hassi og í
pakka sem kom með Herjólfi
fundust 30-E töflur.
Tryggvi Kr. Ólafsson, lögreglu-
fulltrúi, segist telja að söluverðmæti
efnanna sé u.jr.b. 440 þúsund
krónur. „Grammið af hassi selst á
2500 til 3000 krónur og E-pilla selst
á sama verði. E-pillurnar seljast á
um 90 þúsund og hassið á 350
þúsund."
Tryggvi segir að einhver hluti efn-
anna hafi verið ætlaður til eigin
neyslu en líklegt að stærsti hlutinn
hafi átt að fara í sölu. „Það er alveg
á hreinu að þeir sem eru að selja
efni eru að því til að hafa út úr því
pening og eins til að fjármagna
eigin neyslu. Frá því í september til
dagsins í dag höfum við tekið 530
grömm af hassi. Innkaupsverð er í
kringum 1000 - 1500 krónur
grammið og þá kosta þessi 530
grömm um 500 - 800 þúsund í
innkaupum. Söluverðmæti efnanna
á götunni er því um 1600 þúsund
þannig að hagnaðurinn er frá 800
þúsund til einnar milljónar.
1^1
'í
liMI
a öllum svidum!
Handboltafyrir-
liðinn í pólitíkina
Ingibjörg Jónsdóttir skipar 11.
sætið ó lista Sjólfstæðisflokksins í
Suðurkjördæmi.
| BLS. 6
Guðjón kominn
í alvöru slag
Guðjón Hjörleifsson skipar 3.
sæti ó lista sjólfstæðismanna og
í opnu gerir hann grein fyrir
sínum helstu baróttumólum.
I BLS. 10 og 11
Vatnsleiðslan
aftur í sundur
Á laugardag þegar hleypt var á
vatnsleiðsluna eftir viðgerð og
þrýstingur jókst á ný kom á
hana sams konar gat og áður en
nú um tíu metrum nær Eyjum.
Leiðslan hefur sargast í hörðum
botninum þannig að hún þolir
ekki fullan þrýsting sem verður
við dælingu, að því er Friðrik
Friðriksson veitustjóri tjáði blað-
inu. Kaflinn sem lítur verst út er
um 30 til 40 metrar. Ljóst er að í
sumar verður að ráðast í miklar
endurbætur sem felast í því að
setja samfellda hólka utan um
leiðsluna á þessu svæði. Undir-
búningur að viðgerðinni er þegar
hafinn.
Innbrot í Lundann
Brotist var inn í Lundann að-
faranótt miðvikudags milli
klukkan fjögur og hálf flmm.
Farið var í spilakassa og pen-
ingum stolið. Rúða var brotin í
útihurð og skemmdir unnar á
kössum. Þeir sem urðu varir við
grunsamlegar mannaferðir á þes-
sum tíma eru vinsamlegast beðnir
að láta lögreglu vita.
TM-ÖRYGGI
fyrir fjölskylduna
sameinar öll tryggingamálin
á einfaldan og hagkvæman hátt
Bílaverkstæðið
Bragginn s.f.
Flötum 20
Viðgerðir og smurstöð
Sími 481 3235
Rettingar og sprautun
Sími 481 1535
Sk íp °9 bíll
EIMSKIP Œ&mtéB
FRETTALJOS
Alla föstudaga kl. 20.00
og mánudaga kl. 18.00 (e)
FJÖLSÝN
30. árg.» 16. tbl. * Vestmannaeyjum 16. apríl 2003 » Verð kr. 180 • Sími 481 1300 • Fax 481 1293 • www.eyjafrettir.is
Nítján
milljónir
króna í arð
sími: 481 3500
sími: 481 3500