Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2003, Blaðsíða 7

Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2003, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 16. apríl 2003 Fréttir 7 Xilil rívlIÍ Hvaða áhrif hafa stefnur stjómmálaílokkanna í sjávaútvegsmálum á stöðu mála í Vestmannaeyjum? Sóknarkeríl og fymingarleið ganga ekki upp Eftir að hafa skoðað tillögur stjórnmálaflokkanna, má skipta þeim í þrennt. I fyrsta lagi vill Frjálslyndi flokkurinn sóknarmark með sérstaka áherslu á línu, Vinstri grænir og Samfylkingin vilja fara fyrningarleið en Sjálfstæðis- flokkur og Framsóknarflokkur vilja halda í meginatriðum í núverandi kerfi en leggja á veiðileyfagjald. Hjá VG, Frjálslyndum og Samfylking- unni er lagt upp með að bjarga landsbyggðinni og að ríkið verði meira og minna með puttana í úthlutun afla- heimilda. Vestmannaeyingar hafa ekki góða reynslu af slíkum afskiptum því undan- farin misseri hafa þúsundir tonna horfið héðan yfir á smábáta sem flestir eru á Vestfjörðum. En þar hafa sjálfstæðismenn verið að verki. Sóknardagakerfi Sóknardögum er best lýst með mynd sem birtist í Dagskrá fyrir rúmri viku. Þar sést aflinn úti á hlaði fyrir utan Fiskiðjuna í páskahrotu. Þetta er sjón sem algeng var við öll frystihúsin íjögur sem þá voru starfandi í Eyjum. Allt snerist um að bjarga verðmætum, vinna fisk frá bátum sem voru að nýta fiskgengdina með allt of mörgum trossum, bátamir voru með allt upp í 19 trossur og drógu trossumar annan hvem dag. Aflamagnið skipti máli en ekki verðmætin. Þar sem þorskurinn er verðmæt- astur er líklegast að sókn í þorsk verði áköfust þegar hann gengur á gmnnið og sóknardagar verði fyrst og fremst nýttir til veiða á þorski. Verðminni tegundum yrði ekki sinnt eða þeim hent eins og alsiða var þegar sókn var frjáls í fisk. Það var einfaldlega ekki tími til að vinna þær, hráefnið skemmdist, því fyrst varð að bjarga þorskinum. Miklu af þorski var bjargað upp í hjalla sem skreið á Nígeríu. Þetta þekkja þeir sem störf- uðu á sjó eða í fiskvinnslu á þessum ámm. Hætt er við að ljárfesting í aukinni sóknargetu yrði meiri og kostnaður fyrirtækjanna eykst samhliða því sem heildartekjur minnka. Þama hefðu þeir stóm líka ákveðið forskot, sjávar- útvegsfyrirtækin yrðu veikari og þróttur þeirra til uppbyggingar og aukinnar verðmætasköpunar yrði minni. Um leið hyrfi sá skjöldur sem kvótakerfið er fyrir minni útgerðir þvf enginn getur tekið af þeim réttinn til veiða. Sóknarkerfið yrði líka til þess að atvinna starfsmanna yrði sveiflu- kenndari og með minnkandi getu fyrirtækjanna er líklegt að laun í sjávarútvegi dragist aftur úr öðmm launum þegar fram líða stundir. Er ótrúlegt að sjómenn sætti sig við það því kjör þeirra hafa batnað til muna í núverandi kerfi. Því miður hefur ÞETTA var algeng sjón í Vestmannaeyjum á árum áður en myndin er tekin í Vinnslustöðinni 1983 eða 1984. Þá var meira hugsað um magnið en gæðin sem snerist við með kvótakerllnu . störfum fækkað á sjó en þar hefur þróunin ráðið mestu en ekki kvóta- kerfið. Um leið gefa pláss á sjó meira af sér. Nánast allir sem þekkja til rekstrar í sjávarútvegi og láta sig þjóðarhag varða, þ.e.a.s. lífskjör, em sammála um að sóknarstýring leiði til lakari lífskjara. Geta sjávarútvegsins til að taka þátt í bættum lífskjörum í landinu mun minnka. Fymingarleiðin Fymingarleiðin er algjörlega geggjuð útfærsla og ber dauðann í sér, bæði fyrir sjávarútveginn og lífskjörin í landinu. Tökum dæmi af 10% fym- ingu og tökum dæmi af netabát, t.d. Glófaxa VE sem í dag hefur 500 þorskígildi. Eftir ár hefði hann trygg- ingu fyrir að halda eftir 450 tonnum, eftir tvö ár 400 tonnum og eftir þijú ár 350 tonnum og svo koll af kolli. Utgerðin getur að vísu tekið þátt í upp- boði en ekki er víst að hún sé meðal hæstbjóðenda. Eftir 10 ár hefur útgerðin engar heimildir til ráðstöf- unar, hafi henni ekki tekist að leigja til sín heimildir. Sama ætti þá við Vest- Kvótatilfærsla hefur kostað Vest- mannaeyjar 560 milljónir króna I síðasta tölublaði Frétta var sagt frá þeim breytingum sem orðið hafa á kvótastöðu útgerða í Vestmannaeyjum vegna tilfærslu aflaheimilda innan kerfisins og sérstökum pólitískum aðgerðum til að styrkja byggðir víða um landið. Þorskkvótinn var rúm 150 þúsund tonn af slægðum fiski við síðustu úthlutun, 12,4% af því fóm á smábáta með aflamark, 82,5% til aflamarks- skipa og 5,1% eru sérstakar út- hlutanir. Ysukvótinn var 46.200 tonn, 81,9% til aflamarksskipa, 13,9% fara til smábáta með aflamark og 4,2% til sérstakrar úthlutunar. íslenskir sjó- menn máttu veiða 14.400 tonn af steinbít, 56,3% af því fóru til aflamarksskipa, 35,1% til smábáta í aflamarki og 8,7% í sérstakar úthlutanir. 31.080 tonn af ufsa má veiða, 90.9% af honum eru á afla- marksskipum, 5,9% á smábátunum og 3,2% fara til sérstakra úthlutunar. Hluti aflamarksskipa í Eyjum í úthlutun var: 9337 tonn af þorski sem eru 7,5% af öllum úthlutuðum afla. 6515 tonn af ýsu, 17,2% af heildinni, 514 tonn af steinbít sem eru 6,3% af heildinni og 3907 tonn af ufsa, 13,8%. Ef smábátar með aflamarki væru á aflamarki og allar sértækar aðgerðir og úthlutanir ekki komið til væri staða Vestmannaeyja í úthlutuðum aflaheimildum betri. Því 7,5% af heildarkvótanum yrðu 11.323 tonn af þorski, 17,2% af ýsu yrðu 7956 tonn, 6,3% af steinbít 914 tonn og loks yrðu 13,8% af ufsa 4299 tonn. í þorskígildum talið þýðir þetta að Eyjamenn verða af kvóta sem nemur 3927 þorskígildistonnum. Ef við heimfærum það yfir á skip, þá þykir t.d. gott fyrir skip eins og Frá VE að gera út á 1000 þorskígildi. Það eru því famar aflaheimildir íyrir fjóra togbáta. Reyndar eru einhverjar kvótatilfærslur til Vestmannaeyja en þær ná aðeins broti af því sem tekið hefur verið af útgerðum hér undan- farin ár og flutt annað. Það er einnig rétt að skoða margfeldisáhrifin af minni kvóta, sem eru neikvæð. Góður þorskafli á vertíðarbát er um 800 tonn, það má því segja að áhafnir tveggja slíkra báta missi vinnuna út af tilfærslum í kvótakerfinu. Það eru 24 störf, og miðað við að einn starfsmaður starfi í landi fyrir hvora útgerð eru þetta 26 störf. Það þarf að sjálfsögðu að vinna fiskinn og má reikna með 13 störfum í vinnslu og stjómun í saltfiskvinnslu. Þá erum við komin í 39 töpuð störf og meðalfjölskyldustærð er 3,5 í hverri fjölskyldu og má þá ætla að 138 íbúar tengist beint töpuðum störfum. Þetta hefur gríðarleg áhrif inn í bæjarfélagið og má ætla að tekjumissir bæjarfélagsins sé tæpar 22 milljónir í töpuðum útsvars- tekjum. (Svipuð upphæð og laun bæjarstjóra á einu kjörtímabili). Verðmæti í þorskígildum á þeim aflaheimildum sem hafa tapast vegna sértækra aðgerða stjómvalda og sífellt stærri hlut smábáta er um 560 milljónir króna og að mestu í tíð núverandi ríkisstjómar. mannaeyjar. Eftir 10 ár væri engin trygging fyrir því að nokkrar heimildir væm til ráðstöfunar í Vestmanna- eyjum. Þar með er lika horfinn sá stöðug- leik sem útgerðarmenn og fiskverk- endur sækjast eftir til að geta skipu- lagt reksturinn fram í tímann. Afleiðingar fymingarleiðar em ískyggilegar þegar betur er skoðað. Tökum dæmi af uppboði. Setjum að fyrir ári hafi 10% loðnukvótans verið boðin upp til tíu ára. í dag er verð á einu prósenti af varanlegum loðnukvóta 250 milljónir króna. I fyrra var útlit í afkomu loðnuveiða gott, afurðaverð var hátt og er reyndar enn og í greininni var mikil bjartsýni um mikla úlhlutun. Setjum nú að Vinnslustöðvarmenn hefðu verið bjartsýnastir allra og leigt 10% af ríkinu á hálfvirði, 1.250 milljónir króna. Isfélagsmenn, Samherji, nú og ekki mætti gleyma Gullbergsút- gerðinni og öðmm útgerðum hér í bæ, hefðu verið skynsamari og boðið mun lægra verð, segjum 500 milljónir. Nú ári seinna sæti Vinnslustöðin uppi með sárt ennið. Loðnuvem'ð vetrarins frekar léleg, útlit með stóra úthlutun slakt og félagið skuldaði ríkinu 1.250 milljónir króna. Vinnslustöðvarmenn vom bjart- sýnastir, buðu hæst, en vom um leið líklegastir til að hafa rangt íyrir sér um framtíðina. Og niðurstaðan er skelfi- leg. Vinnslustöðin, sem er komin í hóp betur settra fyrirtækja í greininni, væri allt í einu komin í gjörgæslu lánastofnana. Krafa þeirra um að félagið seldi ffá sér heimildir hækkaði, atvinnuöryggi starfsmanna stómm verra og nýrra eigenda biðu inn- heimtuaðgerðir lögmanna. Og hvemig getur það verið að samfélagið í Eyjum sé nú betur sett? ... eða landsbyggðin þegar búið er að skattleggja hana sérstaklega með þess- um hætti. Meira brottkast Ef brottkast er vandamál í núverandi kerfi, þá mun það margfaldast með fymingarleiðinni. Það er almennt við- urkennt að brottkast í núverandi kerfi sé mest meðal svokallaðra leiguliða, sem spmttu upp í kjölfar Valdimars- dómsins sem er eitt það versta sem komið hefur fyrir sjávarútveginn, eða |x:irra útgerða sem leigja til sín mestan kvóta. Undir fymingaleið verða allir leiguliðar og ávinningur af því á ganga vel um fiskimiðin minnkar. Þar getur hver séð sjálfan sig ef húsnæðis- kerfi landsmanna væri með þeim hætti að ríkið ætti allt húsnæði landsmanna og réttur til búsetu í íbúð næði einungis til 10 ára og þá væri hún leigð hæstbjóðanda. Hver er ávinningur af því að ganga vel um íbúðina? Sennilega neikvæður vegna þess að ef vel er gengið um þá er líklegt að aðrir myndu bjóða hátt og öfugt. Spyrja má, hvað með fjárfestingar í tækni, markaðsetningu eða bættri umgengni við fiskistofnana? Ahugi á að byggja upp fiskistofnana mun klárlega minnka. En fjárfestingar í tækni? Ef tæknin leiðir til betri af- komu fyrirtækjanna þá er líklegt að leigan hækki í næstu umferð og ávinningur af Ijárfestingunni verði í raun neikvæður, þ.e.a.s. fyrirtækin sitja uppi með Ijárfestinguna en tapa ávinningnum til annarra. Nákvæmlega sama á við um fjár- festingar í markaðsetningu afurðanna. Sá sem ryður brautina situr uppi með kostnaðinn af markaðsetningunni og nýtur ávinningsins ekki. Fymingar- leiðin leiðir því, þegar til lendar lætur, til minni fjárfestinga í sjávarútvegi og þar með til verri afkomu fyrir þjóðina í heild. Kvótakerfíð Núverandi kvótakerfi var komið á 1990. Ekki I984þvífrá 1984 til 1990 var sóknarstýring að mestu leyti. I mínum huga er niðurstaðan augljós. Frá því að við komumst í gegn um kreppuna vegna aflasamdráttar og verðlækkana á fyrstu árunu kvóta- kerfisnins hafa lífskjör í landinu batnað mikið. Kaupmáttur hefur aukist um 30% sem er mjög mikið. Sú kaupmáttaraukning er m.a. kvóta- kerfinu að þakka. Allt í einu er farið að reka sjávarútveg með hagnaði en ekki tapi eins og var þegar við of- veiddum í sóknarstýringu. Þó 80% þjóðarinnar telji kvóta- kerfið vont er ekki að sjá frá bæjar- dyrum Eyjamanna að annað kerfi hefði hentað betur. En tilflutningur, sem hefur verið stjómað frá sjávar- útvegsráðuneytinu af sjálfstæðis- mönnum, hefur verið óþolandi og hefur verið okkur dýrkeyptur eins og sést af úttektinni hér á síðunni. Nú er boðað að þorskkvótinn verði aukinn um 30 þúsund tonn og vill formaður Frjálslyndra að þau fari öll vestur og norður á krókabáta. Hvers eiga Vestmannaeyingar að gjalda? Omar Garðarsson ritstjóri.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.