Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2003, Blaðsíða 16

Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2003, Blaðsíða 16
16 Fréttir M5ðwikUiii®ur Ilffl. apríl 2003 Mikill skákáhugi í Eyjum: Fjórir Eyjapeyjar gerðu það gott í Vík Síðustu helgi héldu fjórir ungir Eyjamenn í víking til Víkur í Mýrdal. Tilgangurinn var þó að mestu frið- samlegs eðlis þó reyna ætti að herja á Mýrdælinga sem og aðra Sunn- lendinga á skáksviðinu. Þessir fjórir Eyjamenn höfðu unnið sér þátttökurétt á Skólaskákmóti Suðurlands með því að sigra í undankeppni grunnskólanna hér í Eyjum. Þátttakendur voru víðs vegar af Suðurlandinu, allt sigur- vegarar úr sínum sýslum. Keppt var í tveimur flokkum þ.e. 1. til 7. bekk og 8. til 10. bekk. Ljóst var fyrir keppni að við ramman reip yrði að draga fyrir hina ungu Eyjapeyja, sérstaklega fyrir þá sem kepptu í yngri flokki enda þeir yngstir keppenda. En það fór nú svo að þeir stóðu sig einstaklega vel og ljóst að með góðri ástundun muni þessir fulltrúar okkar geta náð lengra á komandi árum. Þeir Nökkvi Sverris- son og Sindri Freyr Guðjónsson hlutu fimm vinninga af níu mögulegum og lentu í ijórða til fimmta sæti og Bjartur Týr Olafsson hlaut þrjá vinninga og endaði í sjöunda til áttunda sæti. I eldri flokki áttum við einn fulltrúa, Sæþór Öm Garðarsson, og stóð hann sig einnig mjög vel og gerði sér lítið fyrir og náði þriðja sætinu. Þessi árangur þeirra er mjög góður, sér- staklega þegar haft er í huga að þeir yngri eru í þriðja og fjórða bekk og eiga því enn eftir mörg ár í yngri flokki. Allir hafa þessir strákar verið duglegir að mæta á æfingar. Greini- legt er að mikill skákáhugi er núna meðal barna og unglinga í Eyjum, þessi áhugi hel'ur gert það að verkum að Skáksamband Islands í samvinnu við Taflfélag Vestmannaeyja hefur ákveðið að halda Landsmótið í skólaskák hér í Eyjum helgina 15.- 18.maí. Þar munu sigurvegarar landsljórðungsmótanna leiða saman hesta sína. Á þessum mótum hafa allir af fremstu skákmönnum þjóðarinnar hafið sinn feril. Þennan skákáhuga má þakka m.a góðu starfi Taflfélagsins sem og velvilja skólastjóra grunnskólanna sem hafa m.a keypt skákborð til að hafa uppi í skólum, einnig er þáttur foreldra mikilvægur, enda margir sem gera sér grein fyrir þeim góðu áhrifum sem iðkun skákar getur haft á þroska bama og unglinga. Vert er að minnast þess að lokum að næstkomandi laugardag verður haldið páskaeggjamót fyrir böm og unglinga í Alþýðuhúsinu klukkan 14.00, teflt verður í tveimur aldurs- flokkum og verða páskaegg í verðlaun í báðum flokkum. Magnús Matthíasson F.v. Sindri Freyr, Nökkvi og Bjartur Týr við komuna til Eyja. Ferðafuða drepur niður fæti í Eyjum Opnar íVélasal Listaskólans ó skírdag Ferðafuða er myndlistar- sýning á míníatúrum sem hefur verið á ferðalagi hringinn í kringum landið frá hausti 2001. Á hveijum sýningarstað er listamönnum á staðnum boðið að taka þátt í sýningunni og tekur hún þannig breytingum eftir því sem hún vex; Fyrri sýningar vom á Isafirði, Ákureyri og Seyðisfirði 2002 en nú er sýningin komin til Vestmannaeyja og verður í Áhaldahúsinu um páskana. Lokasýning- in verður í Reykjavík komandi haust. Hópur listakvenna hittist fyrsta miðvikudag hvers mánaðar á Borginni í Reykjavík til að ræða list og pólítík. Miðviku- dagshópurinn virkar vel sem tengslanet og er þekktur meðal myndlistarmanna. Þar er vettvangur til að koma hugmyndum á framfæri og fá viðbrögð. Upphafsmaður af Ferðafuðu er Harpa Bjömsdóttir, myndlistarmaður en hún er jafnframt sýningarstjóri ásamt Ólöfu Nordal. Fleiri sýningar eiga rætur að rekja til hópsins eins og Land í Listasafni Ámesinga og Fellingar í Þjóðarbókhlöðunni. Ferðafuða þýðir hringja eða sylgja, eða það sem lokar hringnum rétt eins og ferðalag hringinn í kringum landið. Harpasegir hugmyndina vera að mynda tengsl landshluta á milli, með áherslu á sameiginlegan vettvang og þörfina fyrir samræður og samskipti listamanna á millum. Hafdís Helgadóttir, myndlistar- maður, sem vinnur að því að setja upp sýninguna með Hörpu segir oft vera kvartað yfir sambandsleysi milli landshluta. „Listamenn búa við ákveðna einangrun og það er okkur hollt að tala saman. Einangmn verður til þess að maður hefur ekki tök á að tengjast nógu vel og fylgjast með hvað aðrir em að gera. Það þarf að gera ráðstafanir til að lokast ekki af og þetta er ein leið til þess,“ segir Hafdís. Verkin á sýningunni em unnin sérstaklega fyrir hana og hámarks- stærð verka er 15x 15 cm sem ákvarðast af sívaxandi fjölda þátttakenda. Þeir em nú orðnir 91 en voru 30 þegar sýningin hófst á ísafirði, þar bættust við 10, á Akureyri 30 og á Seyðisfirði 10. Hér í Eyjum bættust 11 viðenþeirem, Birgir Andrésson, Bjami Ólafur Magnússon, Gunnar Öm, Hulda Hákon, Jóhann Jónsson, Jóhanna Bogadóttir, Jón Óskar, Páll Viðar Kristinsson, Sigurdís Harpa Amarsdóttir, Skúli Ólafsson og Steinunn Einarsdóttir. „Við höfum fengið gífurlega góðar undirtektir við sýningaröðinni. Ahugi kollega okkar á sýningarstöðunum sýnir okkur einnig að hugmynd okkar um tengsl milli landshluta og myndlistarmanna fellur í góðan jarðveg. Nú þegar sýnendur em orðnir níutíu er íjöl- breytileiki verka mikill og þau unnin í margvíslegum efnivið," segir Harpa. 16. apríl 08.15 12.00 16. apríl 07.30 12.00 16. apríl 16.00 19.30 16. apríl 13.00 16.00 17. apríl 08.15 12.00 17. apríl 07.30 12.00 17. apríl 16.00 19.30 17. apríl 13.00 16.00 18. apríl fbstudagurinn langi - engin ferð 18. apríl föstudagurinn langi - lokað 19. apríl 08.15 12.00 19. apríl 07.30 12.00 20. apríl páskadagur - engin feró 19. apríl 13.00 16.00 21. apríl 08.15 12.00 20. apríl páskadagur- lokaó 21. apríl 16.00 19.30 21. apríl 07.30 12.00 Þrióiudaginn 29. apríl fellur fe ró 21. apríl 13.00 16.00 Heijólfs nióur vegna vióhalds. Afgreiósla f Þorlákshöfn Afgreiðslan í Þorlákshöfn er opin frá kl. 10.00 - 12.00 alla daga og 17..30 - iu 'W þegar Herjólfur fer tvær ferðir. Um páskana verður lokaó á föstudaginn langa og uaskadag. Einnig veróur lokað þriðjudaginn 29. apríl vegna vióhalm- Frekari upplýsingar um feróir Herjólfs má sjá á textavarpi RUV, síóu 415 og í símum 481 2800 ( Vestmannaeyjar ) og 483 3413 ( Þorlákshöfn ). Einmg er hægt aó nálgast upplýsingar á heimasfóu Herjólfs, www.herjolfur.is. IHERJÓLFUR Sími 481 2800 • www.herjolfur.is Land) SAMSKIP Brottför rrd vcsi- mannaevjum rrd Þorlákshöfn Afgreióslan í Vestmannaeyjum

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.