Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2003, Blaðsíða 11

Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2003, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 16. apríl 2003 Fréttir 11 aukningu og vonandi verður hún tilkynnt sem allra fyrst. Það væru góð tíðindi fyrir alla landsmenn ekki síst sjávarplássin á landsbyggðinni." Samgöngur og atvinna haldast í hendur Hvernig sérð þú fyrír þér framtíð Vestmannaeyja? „Hún byggist fyrst og fremst á þróun í samgöngum Eyjanna og atvinnuástand hér mun ráðast af því hvemig tekst til á þeim vettvangi. Ég var í starfshópi sam- gönguráðherra um samgöngumál Eyjanna og ég er nokkuð ánægður með skýrsluna sem við sendum frá okkur. Sjálfur verð ég bjartsýnni með hverjum deginum um að jarðgöng séu raunhæfur koslur og ég ætla að aka þar í gegn árið 2010 eða 2011. í samgönguáætlun áranna 2003 til 2014, sem verður að vísu endur- skoðuð 2005 er hlutur okkar heldur rýr. I samgöngunefnd á landsfundi Sjálfstæðisflokksins vorunt við félag- amir, ég og Grímur Gíslason, að vinna í þessunt málunt og tókst okkur að koma eftirfarandi inn: -Samgöngu- ráðherra hefur skipað starfshópa til þess að móta tillögur um sam- göngubætur. Höfð verði hliðsjón af niðurstöðum þessara hópa við endurskoðun samgönguáætlunar. Að mínu mati er þetta viðurkenning á að okkar mál fái meira vægi í sam- gönguáætlun sem er í stöðugri endurskoðun. Ef ég ætti að verðleggja þessa setningu er hún upp á minnst sex milljarða fyrir okkur Eyjamenn. Ef niðurstaða rannsókna sýnir að jarðgöng séu raunhæf er mögulegt að bjóða þau út eftir fjögur til fimm ár og héðan í frá ættu þau að vera tilbúin eftir átta til níu ár. Fyrstu rannsóknimar verða í sumar og það er búið að tryggja það. En þama var tækifæri sem var að renna okkur úr greipum vegna ótrúlegs upphlaups í bæjarstjóm þar sem hagsmunum Eyjanna var fórnað fyrir hagsmuni ákveðinna frambjóðenda. Nefni ég þar engin nöfn en hann er rauðhærður sem ber ábyrgð á þessu. Þetta gat ég ekki sætt mig við og gekk á fund samgönguráðherra og náði samningum um að fara eftir tillögum hópsins um fjóra daga á rannsókna- skipinu Ama Friðrikssyni í sumar sem kosta sex milljónir króna. Verði niðurstaðan úr þessum rann- sóknum neikvæð höfum við tvo valkosti, höfn í Bakkafjöru og nýjan og hraðskreiðari Heijólf. Verði hafnargerð möguleg verður henni lokið 2007 eða 2008. Komi hafnar- gerð ekki til greina fáum við nýjan Herjólf 2008. Ég hef rætt við fulltrúa Siglingastofnunar og rannsóknum á Bakkafjöru verður haldið áfram þrátt fyrir slátmn nýs meirihluta á samgönguskýrslunni sem ég tel eitt mesta skemmdarverk sem unnið hefur verið á hagsmunum Eyjanna. í samgönguhópnum kont upp ágrein- ingur á mlli heimamanna og annara fulltrúa um frekari íjölgun ferða Herjólfs umfram það sem ákveðið hefur verið. Við lögðum til að haustáætlun skipsins með ellefu ferðir á viku gilti til áramóta og ferðum í vetraráætlun í janúar og febrúar yrði einnig fjölgað um eina á viku. Með þessu móti væri ferðafjöldi skipsins farinn að nálgast 600 ferðir á ári eða að meðaltali tæplega 12 ferðir á viku.“ Bjóða út flugið Hvað meðflugið? „Við tókum mikla umræðu um framtíð innanlands- flugsins á landsfundinum. Mín hug- mynd er að allt flug til ísafjarðar, Akureyrar, Egilsstaða, Homafjarðar og Vestmannaeyja verði boðið út. I útboðinu verði skilgreint lágmarks- fjöldi ferða og hámarksverð á fargjöldum með það fyrir augum að flugið verði almenningssamgöngur. Ég er þess fullviss að flugfélög verða FJÖLSKYLDAN: Silja Rós, Guðjón, Sindri Freyr, Rósa Guðjónsdóttir og Sara Dögg. Á myndina vantar soninn Sæþór Orra sem býr með fjölskyldu sinni í Reykjavík, sambýiiskonu sinni Karen Guðjónsdóttur og dótturinni Birtu Sól. I góðuni hóp, Ásmundur Friðriksson, Guðjón, Árni Johnsen, Davíð Oddsson formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra og aðstoðarmaður hans, Ulugi Gunnarsson. tilbúin til að borga fyrir sérleyfi til Akureyrar með sinn háskóla og Egilstaða þar sem allt er að komast í fullan gang vegna virkjunarfram- kvæmda. Flug til Isafjarðar, Homa- fjarðar og Vestmannaeyja verði niðurgreitt því líta má á þessa staði sem jaðarbyggðir. Það er því ekki víst að útgjöld ríkisins yrðu svo mikil þegar upp er staðið. Þetta er mál sem ég mun beita mér fyrir af fullum krafti.“ Styrkja það sem fyrir er Mest af þessum hugmyndum um bættar samgöngur miðast við nœstu ftmm til átta árin en hvemig á að bregðast við á meðan við bíðum eftir alvöru úrbótum í samgöngum Eyjanna? „Við eigum að einbeita okkur að því að styrkja það sem fyrir er og við þurfum líka að skoða mál Skipalyftunnar sérstaklega. Það em jafnframt miklir möguleikar í fiskeldi og þar eigum við fmmkvöðla sem vonandi eiga eftir ná settu marki. Við emm vel í sveit sett með hlýjan sjó og borholan inni á Eiði, sem gefur af sér þrettán gráðu heitan sjó, gefur íyrirheit um mikla möguleika í seiða- og fisk- eldi. Þá er komið að meiri fullvinnslu sjávarafurða og meiri virðisauka í greininni. Þar er verið að vinna mjög merkilegt starf að tillögu sjávarút- vegsráðherra. Vestmannaeyjar verða að vera með í þeim pakka. Þá þarf að styrkja stöðu kjördæmisins í ferða- málum því innan þess em flestar helstu náttúruperlur landsins, Vest- mannaeyjar, Gullfoss og Geysir, Bláa lónið, Landmannalaugar, Skaftafell, Vatnajökull og fleiri. Þessir staðir hafa allir mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn en það þarf að vinna í sameiningu að því að styrkja ferða- mannaiðnaðinn í öllu kjördæminu. Þar þurfum við Eyjamenn að koma inn af miklum krafti, annars sitjum við bara eftir en ég ætla að vinna að því að svo fari ekki, bæði á þingi og í bæjar- stjóm.“ Hvað með að fá hingað ríkissfyrir- tœki? „Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisllokksins, hefur sagt að það sé ekki fýsilegur kostur að flytja rótgrónar stofnanir út á land en Davíð er mikill landsbyggðarmaður og er sífellt að skoða hluti sem gætu komið landsbyggðinni að notum. Mér finnst alveg að hér megi koma fram að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, forsætis- ráðherraefni Samfylkingarinnar, gaf út þegar hún fór fram að megintilgangur hennar væri að standa vörð um hags- muni Reykjavíkur. Þessi orð hennar hafa eflaust sett hroll að mörgum landsbyggðarmanninum en svona er þetta. Svo tók steininn úr þegar hún sagði að það væri mjög mikilvægt að næsti samgönguráðherra yrði að vera úr Reykjavík. Þama lít ég á að mislæg gatnamót á höfuðborgarsvæðinu séu að fara í forgang fram fyrir jarðgöng eða aðrar samgöngubætur fyrir okkur Eyjamenn. En ef við skoðum það sem gerst hefur síðustu ár verður að viðurkennast að Norðlendingar hafa verið langduglegastir að skara eld að sinni köku gagnvart ríkinu. í Suðurlandskjördæmi hefur vantað samstöðu og því verðum við að snúa við í nýju kjördæmi. Þau eiga ennþá við orð Einars Þveræings; sameinaðir stöndum við og sundraðir föllum vér. Þá eigum við mikla möguleika í upplýsingatækninni en undanfarið hefur verið erfitt að fá fjármagn í þessum geira. Svo er ég ákveðinn í að kanna möguleika okkar á því að hér kemur Cantat 3, í land en hann tengir saman Bandaríkin og Evrópu. Sameining Bæjarveitna og Hitaveitu Suðumesja var mikið framfararspor og á eftir að skapa okkur möguleika. Ég kom að þeirri vinnu en Lúðvík og félagar í V-listanum voru á móti, en slást nú um að komast í stjóm félagsins. Bæjarfélagið stendur mun sterkara nú sem 7% eignaraðili að Hitaveitu Suðumesja og gefur okkur mikla möguleika." Með jarðgöngum ijölgar íbúum Er staða Vestmannaeyja ekki orðin það etftð að grípa verður til aðgerða strax? „Vestmannaeyjar vom sér- greindar í tillögum Byggðastofnunar sem á að gera okkur auðveldara fyrir að sækja fjármagn til stofnunarinnar. Það átti að sækja unt tvo til þrjá styrki til Byggðastofnunar en ég veit ekki hver staðan er hjá nýjum meirihluta. Ég hef ekki hugmynd um hvað þeir em að gera. Annars er Byggðastofnun ekki búin að ná sér eftir væringar þar í fyrra. 1 fyrri meirihluta vomm við búnir að bjóða forstjóra Byggða- stofnunar hingað til að fara yfir stöðuna með okkur.“ Arið 2000 varhaldin ráðstefnan Eyjar og þar var takmarldð sett á 5000 íbúa í Vestmannaeyjum 2010. Er nokkur von til þess að þetta verði að veru- leika? „Þetta er ansi háleitt markmið en svo virðist, eftirþví sem reynslan segir okkur, að miklar breytingar til hins betra í samgöngum laði til sín fólk og fyrirtæki. Eg er t.d. ekki í vafa um að hér verða yfir 5000 íbúar ef jarðgöng verða að veruleika, þau eru hin eiginlega bylting í samgöngum okkar, það má svo segja að ef höfn í Bakka- fjöru er möguleg er það hálfgild- ingsbylting." Hvað nteð stöðuna í skólamálum og er ekki möguleiki að flytja hluta af skip- stjórnamáminu til Vestmannaeyja? „Ég held að við verðum að styrkja Framhaldsskólann af öllum mætti og sjá til þess að þar verði boðið upp á sem flestar greinar. Þá þarf lfka að tengja skólann og Rannsóknasetur Háskólans sem skapaði léttara um- hverfi til að vinna í fyrir báðar stofnanir. Tilkoma Visku sem nú nýlega var komið upp er mikið framfaraspor í menntamálum og við höfum strax séð að þar er mikið að gerast.“ Þegar Guðjón er spurður um hvemig kosningabaráttan komi sér fyrir sjónir segir hann að almennt sé það stöðugleikinn í þjóðfélaginu sem fólk vill sjá áfram. ,já, fólk telur það ntjög mikilvægt og svo er spurt um stefnuna í skattamálum. Þetta er það sem stendur upp úr finnst mér. Nýj- ustu skoðanakannanir gefa til kynna mikla möguleika á þriggja flokka stjórn Vinstri grænna, Samfylkingar og Frjálslyndra, það tel ég ekki vænlegt fyrir Ijárhag fyrirtækja og heimila ílandinu.“ Hvað um framtíðina? „Hvað sjálfan mig varðar þá kemst ég kannski á þing. Já, á eðlilegum degi eiga sjálf- stæðismenn að ná inn minnst þremur mönnum í Suðurkjördæmi en auð- vitað á maður ekkert í pólitík. Nú er líka ómögulegt að segja hvaða áhrif litlu framboðin hafa. Það getur allt gerst. Góð útkoma hjá Sjálfstæðis- fiokknum í kjördæminu getur tryggt að áfram verði hér tveggja llokka ríkisstjóm. Góð niðurstaða gefur mér líka tækifæri til að komast til áhril'a á Alþingi þannig að gott gengi Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi skilar sér til okkar héma í Eyjum, ég get lofað kjósendum því að ég mun leggja mig allan fram í baráttu fyrir kjördæmið,“ sagði Guðjón að lokum. omar@eyjafrettir.is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.