Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2003, Blaðsíða 4

Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2003, Blaðsíða 4
4 Fréttir Miðvikudagur 16. apríl 2003 EYJAMAÐUR VIKUNNAR vil skora á Svollönu, konu Hlyns Sigmarssonar, til aft vera næsti matgæðingur vikunnar Rússnesk B Ég vill þakka Vigdísi fyrir áskorunina og býð upp á sannkallaða rússneska bombu. Rússnesk B-O-M-B-A 4 lengjur smjördeig 1 lítri mjólk 2egg 2 bollar sykur I bolli hveiti 200 gr smjörlíki I tsk. vanillusykur Smjördeigið erJlatt út íjjóra jafnstóra hluta (ferliyming) og bakað Krem Egg og sykur er lirœrt saman Hveiti svo blandað við. Mjólkin er hituð og deigið er setl út í og hrœrt í stöðugt þar til suða kemur upp og þetta er orðið svolítið þykkt. Þetta er svo látið kólna. Smjörinu er svo bœtt út í og vanillusykri og hrært í eða hnoðað þar til kremið er orðið mjúkt. Kremið er svo sett á milli smjördeigsins og ofan á. -o -M-B-A Alla Gorkorian Tilraun fyrir hæfileikaríkt fólk í Eyjum Þrátt fyrir að þjóðhátíðarnefnd hafi ekki treyst sér til að halda forkeppni um val á þjóðhátíðarlaginu 2003 verðurþannig keppni haldin engu að síður. Þökk sé áhugahópi um málefnið sem nú vinnur hörðum höndum að undirbúningi keppninnar sem verður kvöldið fyrir Eurovision. Það þykir vel við hæfi að halda Eyjavision fyrir föstudagskvöldið 23. maí. Skilafrestur fyrir lög rennur út 25 apríl. Óðinn Hilmisson fer fremstur í flokki í áhugahópnum og er hann Eyjamaður vikunnar að þessu sinni. Fullt nafn?Óðinn Hilmisson. Fæðingardagur og ár? 1. apríl 1965. Fæðingarstaður? Vestmannaeyjar. Fjölskylda? Á eina dóttur sem er minn uppáhaldssöngvari, Regína Ósk, hún er neistinn sem kveikti bálið. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Stærri en Örn bróðir. Hvernig bíl vildir þú helst eiga? Vetnisbíl með vængjum. Uppáhaldsmatur? Vel kryddað lambakjöt úr Suðurey. Versti matur? Sjálfdauður lundi úr Elliðaey. Með hvaða aðila vildir þú helst eyða helgi? Góðhjartaðri konu með góðan húmor. Uppáhaldsvefsíða? Rokk.is. Hvaða tónlist kemur þér í gott skap? Melódískt rokk og blues að hætti Zeppelin. Aðaláhugamál? Tónlist og íþróttir. Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Heimaey í fullum skrúða. Uppáhaldsíþróttamaður eða íþróttafélag? Örn Óskarsson, varnartröll ÍBV forðum daga. Stundar þú einhverja íþrótt? Ég reyni að stunda líkamsrækt þegar ég get. Ertu hjátrúarfullur? Nei. Uppáhalds sjónvarpsefni? Sjón- varp hef ég ekki tíma fyrir. Besta bíómynd sem þú hefur séð? Braveheart. Hvað finnst þér gera fólk aðlað- andi? Fólk sem brosir og hefur húmor er aðlaðandi. Hvað finnst þér gera fólk frá- hrindandi? Frekja og yfirgangur er ekki fyrir minn smekk. Hvernig gengur undirbúningur- inn? Ég er að safna saman hæfi- leikaríku tónlistarfólki. Hvers vegna undankeppni fyrir val á þjóðhátíðarlagi? Þetta er tilraun fyrir hæfileikaríkt fólk í Vestmanna- eyjum. Hvers vegna ákvaðstu að taka að þér undirbúning vegna keppn- innar? Mér var treyst fyrir því. Ertu bjartsýnn á að þetta gangi upp? Það er allt hægt með jákvæðu fólki. Hvað eigið þið von á mörgum lögum?Sex til tíu lögum. Eitthvað að lokum? Ég hvet alla Vestmannaeyinga til að standa með okkur í þessu. Opnunartími Fiska- og náttúrugripasafnsins í Vestmannaeyjum Skírdagur: opið frá kl. 15-17 Föstudagurinn langi: Lokað Laugardagur 19. apríl: Opið frá kl. 15-17 Páskadagur: Lokað 2. í páskum: Opið frá kl. 15-17 Ljósmyndasamkeppni Fiska- og náttúrugripasafnið efnir til ljósmyndasam- keppni í samvinnu við Foto, Fréttir og Sjómannadagsráð Vestmannaeyja. Viðfangsefnið er Hafið. Hver þáttakandi má senda inn þrjár myndir. Skilafrestur er til 15. maí 2003. Vegleg verðlaun í boði fyrir bestu myndimar. Allar myndir sem berast í keppnina verða til sýnis í Fiska- og náttúrugripasafninu, Heiðarvegi 12, sjómannadags- helgina, laugardaginn 31. maí og sunnudaginn 1. júní nk. Nánari upplýsingar veittar í Foto og Fiska- og náttúrugripasafni Vestmannaeyja. Fréttaljós Föstudagskvöld kl. 20.00 Endursýnt mdnudaga kl. 18.00 Hippabandið 2003 Sýnd verður upptaka af hippabandiuu 2003 ásamt gömlum myitdum frá Vestmannaeyjum Fjölsýn Vestmannaeyjum Áskriftarsími: 481-1300 eyjafréttir.is - fréttir á milli Frétta a döfinni Apríl 16. Höllin: Hinir einu sönnu Papar frá Vestmannaeyjum. 16. -25. Sölusýning á Prófastinum, húsgögn og föt. Opið frá 14-22. 17. -27. Sýning á miniatúrum í Ahaldahúsinu í Vm. Ferðafuða. Opið frá 14-18 föstudag til sunnudags. 17. Prófasturinn: Uppistand, Sigurvin og Sveinn Waagekl.21. 18. Prófasturinn: Hljómsveitin Tríkot. 19. Prófasturinn: Sigurvin með uppistand og hljómsveitin Tríkot spilar óskalög. 19. Opna Hole in one golfmótið. 19. Páskaeggjamótið í skák. Alþýðuhúsinu kl. 14.00. 20. Höllin: Dans á rósum. 21. Páskahraðskákmót í Alþýðuhúsinu kl. 13.00.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.