Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2003, Qupperneq 8
8
Fréttir
Miðvikudagur 16.. apríl 2003
Fréttir kynna frambjóðendur - Ingibjörg Jónsdóttir skipar 11. sæti á D-lista:
Hef mikinn áhuga á mennta- og tómstundamálum
INGIBJÖRG fagnar sigri mcð Unni Sigmarsdóttur þjálfara ÍBV.
Ingibjörg Jónsdóttir fyrirliði
deildarmeistara IBV í handknatt-
leik hefur í nógu að snúast þessa
dagana. Nýlokið er undanúrslita-
rimmu við Val og framundan
einvígi milli erkifjendanna IBV og
Hauka. Og eins og þetta sé ekki nóg
þá er hún einnig komin á kaf í
stjórnmálabaráttuna en hún skipar
11. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins
fyrir komandi alþingiskosningar.
Ingibjörg er kennari að mennt og
starfar í Barnaskólanum. Hún er í
sambúð með Elíasi Arna Jónssyni,
stýrimanni og eiga þau cinn son,
Jón Kristin.
Framundan er stutt hlé á deildar-
keppninni í handknattleik vegna leikja
unglingalandsliðs Islands. Ingibjörg
segir þó að ekkert frí verði hjá þeim
þrátt fyrir það. „Þetta verða bara æf-
ingabúðir yfír páskana. Það er ágætt
að fá tækifæri til að styrkja okkur enn
frekar fyrir baráttuna og búa líkamann
undir frekari átök.“
Ingibjörg er á sínu nítjánda ári með
meistaraflokki ÍBV en hefur æft hand-
bolta frá því hún var 10 ára. „Ég
byrjaði að æfa með Þór, það er svo
langt síðan,“ sagði Ingibjörg sem líst
vel á rimmuna við Hauka. „Það er
alltaf gaman að spila við Hauka og í
báðum liðunum er fullt af stelpum
sem gefa aldrei tommu el'tir þannig að
þetta verður mikil barátta."
Hún sagði ÍBV liðið í dag líldega
það best mannaða sem hún hefur
leikið með. „ÍBV-liðið, ?em varð
Islandsmeistari 2000, var alveg frá-
bært en þá var ekki eins mikil breidd
og er núna,“ sagði Ingibjörg og bætti
við að nú væri líka komið að lokum
hjá sér með IBV, þetta verða síðustu
leikir hennar fyrir liðið því hún hyggst
leggja skóna á hilluna í vor. „Það er
komið nóg, maður er búinn að vinna
allt sem hægt er að vinna með ÍBV og
vonandi nær maður bara að klára þetta
með Islandsmeistaratitli. Ég held lika
að það sé kominn tími til að sinna
Ijölskyldunni meira.“
Það kemur þá ekkerl til greina að
snúa sér að þjálfun ?
„Nei, ég held ekki. Ég væri meira
til í að fara úl í íþróttaskóla en ef ég
myndi snúa mér að þjálfun vildi ég
frekar þjálfa stráka en stelpur, það er
alltaf meira vesen í kringum kven-
fólk.“
Alltaf liðið vel í skóla
Bamaskóli Vestmannaeyja er hennar
vinnustaður, sami skóli og hún var í
sín bamaskólaár, hvers vegna ákvað
In'm að fara að lcera til kennara?
„Ég eiginlega veit það ekki. Ég tók
mér ársfrí eftir að hafa klárað stú-
dentinn og sótti svo um í Kennara-
háskólanum. Mér hefur alltaf liðið vel
í skóla og ég hef rosalega gaman af
því að vinna með bömum."
Ingibjörg kennir sex ára bömum
sem em að stíga sín fyrstu skref í
bamaskóla og einnig hefur hún aðeins
komið að kennslu í unglingadeildinni.
„Þetta er mjög krefjandi og skemmti-
leg vinna og svakalega fjölbreytt,
maður veit aldrei hvað bíður manns
þegar maður leggur af stað til vinnu á
morgnana.11
Er forvitin að eðlisfari
Hvers vegna ákvaðstu að fara í
framboð?
„Ég viðurkenni að ég hváði fyrst
við þegar það var hringt í mig og tók
mér góðan tíma til að ákveða mig. Ég
talaði við mína nánustu og eftir það
ákvað ég að láta slag standa. Það er
fínt að byrja svona aftarlega og sjá
þetta í vissri fjarlægð. Þetta er nýr
vettvangur og ég er forvitin að eðlis-
fari og þar sem fyrir liggur að ég ætla
að hætta í handboltanum í vor verður
maður að finna sér eitthvað að gera til
að fylla upp í þann tíma sem losnar,"
sagði hún og brosti.
Hefur þú alltaf verið pólitísk? „Nei,
einmitt öfugt. Ég hef verið frekar
ópólitísk en verið þessi týpa sem ræði
mikilvæg málefni yfir kaffibollanum
eins og aðrir.
Hvers vegna þá framboð fyrir Sjálf-
stœðisflokkinn? „Það lá reyndar alltaf
beinast við að ef ég færi að skipta mér
af málunum þá færi ég fram fyrir
Sjálfstæðisflokkinn. mínar skoðanir
eiga góða samleið með því fólki."
Samgöngur betri fyrir20
árum
Hvaða mál brenna heitast á þér?
„Eðlilega hef ég mikinn áhuga á
mennta- og tómstundamálum en eins
hef ég miklar áhyggjur af atvinnu- og
sjávarútvegsmálum. Mál málanna í
Eyjum í dag eru samgöngumál og þar
viðurkenni ég að hafa verið eins og
vindurinn undanfarið. Ég hef llakkað
á milli þeirra lausna sem virðist vera
fyrir hendi. Samt held ég að flestir séu
sammála því að ef göng eru möguleg
þá á að stefna á þau.“
Hún talar af reynslu enda fylgja
íþróttaiðkun mikil og tíð ferðalög.
„Samgöngur voru í betra ásigkomu-
lagi íyrir 20 árum og ég get alveg sagt
það að lélegar samgöngur og langur
tími sem fer í leiki er ein af
meginástæðum þess að ég er að hætta
núna í boltanum. Við fórum í einn leik
með Fokker vél Flugfélags Islands og
manni leið og eins maður væri á leið
til útlanda, þetta er svo sjaldgæft.
Sambýlismaðurinn er á sjó og ég því
ein með bamið og þegar það fer svona
langur tími í hvem leik verður þetta
lýjandi. Ég hef verið svo heppin að
eiga foreldra hér sem hafa hjálpað
okkur mikið.“
Hún sagði að lokum að henni litist
vel á baráttuna framundan í stjómmál-
unum. „Ég hugsa að þetta verði
skemmtilegt, ég lít svolítið á þetta sem
keppni og ég er mikil keppnis-
manneskja þannig að þetta leggst vel í
mig.“
svenni @ eyjafrettir. is
Samfylkingin komin
í startholumar
LÚÐVÍK, stcndur hér á milli heiðursmannanna Tryggva Jónassonar og
Ella Bergs og allir eru þeir með rætur í gamla Alþýðuflokknum.
Samfylkingarfólk opnaði
kosningaskrifstofu sína á
laugardaginn. Lúðvík Bergvinsson
og Björgvin G. Sigurðsson
frambjóðendur vom á svæðinu og
var farið yfir málin og baráttuna sem
framundan er. Boðið var upp á léttar
veitingar fyrir gesti og gangandi og
ekki annað að sjá en að hugur væri í
fólki.
ADSEND GREIN
Þorsteinn Ólafsson skrifar:
Jarðgöng efla byggð á Suðurlandi
Vinstri
hreyfingin
grænt
framboð
leggur mikla
áherslu á að
byggð fái að
þróast og
dafna um
allt land. Við
viljum að
létt verði
undir með
smáum og meðalstórum fyrirtækjum
með atvinnuþróunarstyrkjum, hag-
stæðum lánum og skattaívilnunum
fyrstu árin. Við viljum einnig styrkja
sjávarbyggðimar með því að byggða-
tengja stöðugt stærri hluta af
aflaheimildunum.
Það er gmndvallaratriði í nútíma-
legri byggðastefnu að öll gmnn-
þjónusta sé tryggð, heilsugæsla,
skólakerfi og samgöngur.
I Suðurkjördæmi skera Vest-
mannaeyjar sig úr með erfiðar
samgöngur og þær þarf að bæta.
Undir það tóku þeir Kolbeinn
Ottarsson Proppé, efsti maður á lista
VG í Suðurkjördæmi og Steingrímur
J. Sigfússon formaður flokksins á
opnum fundi VG í Eyjum fyrir stuttu.
Það er umhugsunarefni að nú er svo
Ég tek því heils hugar undir það
að það sé mjög brýnt að leggja
strax fé í rannsóknir á því hvort
þessi kostur er mögulegur. Verði
niðurstaðan sú að hægt sé að
gera göng með nægilegu öryggi
þarf að setja þau á áætlun sem
fyrst, en séu aðstæður þannig að
það sé ekki hægt verða menn að
einhenda sér í aðra og síðri kosti
eins og mögulega Bakkafeiju.
komið að það er aðeins á færi fárra
einstaklinga og stöndugra fyrirtækja
að nota sér flug milli Eyja og Reykja-
víkur.
Flugfélag Vestmannaeyja hefur
unnið mikið og gott starf um langt
árabil og hefur mikilvægu hlutverki
að gegna í samgöngum Eyjanna. Það
er brýnt að ljúka við að leggja bundið
slitlag á vegarspottann milli Gunn-
arshólma og Búðarhóls og Ijúka við
suður-norður flugbrautina á Bakka.
Það er ljóst að Bakkaflugið mun
halda áfram að aukast næstu árin
hvað sem annars gerist í bættum
samgöngum upp á Suðurströndina.
Veita verður fé til rannsókna
vegna jarðganga
Jarðgöng milli lands og Eyja væri
besti kosturinn í samgöngum. Ég sé
fyrir mér að slík göng yrðu gríðarleg
lyftistöng fyrir byggðarlögin báðum
megin við sundið. Það sem skiptir
mestu máli, fyrir utan það að hægt
væri að komast milli lands og Eyja
hvenær sem er, er að Vestmannaeyjar
og Miðsuðurland yrðu eitt stórt at-
vinnusvæði sem skiptir miklu máli í
atvinnuuppbyggingu. Jarðgöng eru
ekki bara hagsmunamál Eyjamanna.
Ég tek því heils hugar undir það að
það sé mjög brýnt að leggja strax fé í
rannsóknir á því hvort þessi kostur er
mögulegur. Verði niðurstaðan sú að
hægt sé að gera göng með nægilegu
öryggi þarf að setja þau á áætlun sem
fyrst, en séu aðstæður þannig að það
sé ekki hægt verða menn að einhenda
sér í aðra og síðri kosti eins og
mögulega Bakkafeiju.
Ég mun svo sannarlega leggja mitt
af mörkum til þess að þingmenn VG
styðji íjárveitingar til rannsókna á
jarðgangagerð til Vestmannaeyja og
kjósendur geta treyst því að flokk-
urinn og þingmenn hans gera sér
fulla grein fyrir mikilvægi góðra
samgangna fyrir byggðarlögin alls
staðar á landinu.
Höf. skipar4. sceti á framboðslista VG í Suðurkjödœmi