Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2003, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 16.. aprfl 2003
Fréttir
9
Sparisjóður Vestmannaeyja 60 ára - Viðtal við Þór Vilhjálmsson formann stjórnar:
Styrkur okkar liggur í starfsfólkinu
-sem nær góðu sambandi við viðskiptavinina og veit hverjar þarfirnar eru. Þetta
er ómetanlegt fyrir stofnun eins og okkar sem vill byggja á persónulegri þjónustu.
Þór Vilhjálmsson hefur setið í
stjórn Sparisjóðs Vestmannaeyja
frá árinu 1994 og sem formaður
stjórnar frá árinu 2000. Spari-
sjóðurinn á 60 ára afmæli um
þessar mundir. Það hefur margt
gerst frá því Þór tók fyrst sæti í
stjórninni og enn fleiri hafa stökkin
orðið sé litið tii sögu Sparisjóðsins í
60 ár.
Þessara tímamóta var minnst með
hátíðarfundi en upphaftð má rekja til
3. desember árið 1942 þegar stjóm-
arráð Islands staðfesti samþykktir fyrir
Sparisjóð Vestmannaeyja sem eru
dagsettar hinn 30. október 1942. Þær
sömdu Helgi Benediktsson kaup-
maður, Jóhann Sigfússon útgerðar
maður, Hermann Guðjónsson toll-
gæslumaður, Sigurjón Sigurbjömsson
forstjóri og Þorsteinn Þ. Víglundsson
sem var ráðinn sparisjóðsstjóri.
I fyrstu stjóm vom Þorsteinn Þ.
Víglundsson, Kjartan Olafsson og
Helgi Benediktsson. Sparisjóðurinn
var starfræktur í litlu herbergi í húsinu
Reyni við Bárustíg og í apríl 1943
byrjaði fólk að leggja peninga inn í
Sparisjóðinn. Síðan hefur hann vaxið
og dafnað og stórt skref fram á við var
stigið þegar árið 1962 var flutt í
núverandi húsnæði að Bámstíg 15.
Þór segir að fímm sitji stjóm, þrír
stjómarmenn eru kjörnir á aðalfundi
en tveir eru kjömir af bæjarstjóm
Vestmannaeyja. „Það hefurekki verið
mikið um mannaskipti í stjóminni því
frá stofnun Sparisjóðsins hafa ekki
nema 21 setið í stjóm hans,“ segir
Þór.
Þá hafa aðeins fimm gegnt stjómar-
formennsku, Þorsteinn Þ. Víglundsson
frá 1942 til 1965, Sveinn Guð-
mundsson 1965 til 1974, Sigurgeir
Kristjánsson 1974 til 1992, Amar
Sigurmundsson 1992 til 2000 og svo
Þór frá árinu 2000.
Sjómarmenn, sem setið hafa 20 ár
eða lengur í stjóm sjóðsins, em Sigur-
geir Kristjánsson í 34 ár, Þorsteinn Þ.
Víglundsson í 32 ár, Amar Sigur-
mundsson í 28 ár, Ragnar Óskarsson
í 24 ár, Guðlaugur Gíslason í 20 ár og
Magnús H. Magnússon í 20 ár.
„I 60 ára sögu Sparisjóðsins hafa
þrír menn gegnt starfi sparisjóðstjóra
og sinnt því starfi með miklum
ágætum. Þorsteinn Þ.Víglundsson var
sparisjóðsstjóri frá stofnun sjóðsins til
ársins 1974 en þá tók Benedikt
Ragnarsson við. Hann lést langt um
aldur fram í júní 1999.1 október sama
ár tók Ólafur Elísson núverandi
sparisjóðsstjóri við störfúm. Aðstoðar-
sparisjóðsstjórar hafa verið þrír, þau
Benedikt Ragnarsson. Guðjón Hjör-
leifsson og Olöf Jóna Þórarinsdóttir.
Forstöðumaður Sparisjóðsins á
Suðurlandi er Pétur Hjaltason. Frá
upphafi hafa 122 starfsmenn starfað
hjá Sparisjóðnum við almenn og
sérhæíð bankastörf. Auk þeirra hefur
annað starfsfólk unnið ýmis önnur
störf í lengri eða skemmri tíma svo
sem ræstingarstörf."
Lengstan starfstíma eiga: Benedikt
Ragnarsson 29 ár, Þorsteinn Þ. Víg-
lundsson 32 ár, Kristfn Haraldsdóttir
25 ár og Sigríður Guðmundsdóttir 24
ár. „Starfsfólk Sparisjóðsins hefur
jafnan haft á sér gott orð, lipurð og
góðvild hefur jafnan verið einkenn-
andi. Þessir góðu kostir starfsfólksins
hafa átt ríkan þátt í vexti og viðgangi
Sparisjóðs Vestmannaeyja.“
I nýlegri könnun fengu Spari-
sjóðimir hæstu einkunn viðskiptavina
og segir Þór að það haft ekki komið
ÞÓR stjórnarformaður í ræðustól
sér á óvart. „Ég er sannfærður um að
okkar fólk á sinn þátt í þessu því eins
og kemur fram hér að framan tjaldar
fólk ekki til einnar nætur sem ræður
sig í vinnu í Sparisjóðnum. Starfsfólk
okkar nær því góðu sambandi við
viðskiptavinina og veit hverjar þarf-
imar em. Þetta er ómetanlegt fyrir
stofnun eins og okkar sem vill byggja
á persónulegri þjónustu. Um leið hafa
sparisjóðirnir fylgst með öllum
nýjungum í bankaheiminum. Samstarf
þeirra gerir okkur mögulegt að takast
á við sífellt stærri verkefni og fyrir
tilstilli Sparisjóðabankans getum við
tekið stærri fyrirtæki í viðskipti en
áður,“ sagði Þór.
Hann sagði að upphaflegt markmið
með stofnun Sparisjóðsins hafl verið
að styrkja stöðu Vestmannaeyja og
það sé enn í hávegum haft. „Eg get
alveg gert orð Þorsteinns Þ. Víg-
lundssonar, fyrrverandi sparisjóðs-
stjóra að mínum. „Efling Sparisjóðsins
er efling einstaklingsins í Vest-
mannaeyjum til mannsæmandi lífs.
Barátta Sparisjóðsins fyrir bættum
kjömm Eyjabúa er unt leið eins konar
sjálfstæðisbarátta þeirra, losar þá
undan fjárhagslegu áhrifavaldi annars
staðar frá. Þar er þeirra eigið fé, þeirra
eigið afl, til þeirra hluta sem gera skal
INGIBJÖRG í Þorlaugargerði og Þórunn Gísla virtust skemmta sér vel í
veislunni.
JÓHANN, Jón í Ási og Ásta voru mætt í veisluna.
ÓLAFUR sparisjóðsstjóri ávarpar aðalfundinn.
og nauðsyn krefst, að framkvæmdir
verði, ef Eyjabúum skal famast vel,“
sagði Þór.
Fengjum fljótt bágt fyrir
Á aðalfundinum kom fram tillaga frá
Kristjáni Eggertssyni, sem er einn
stofnfjárfesta, um að gerð yrði könnun
á viðskiptum Sparisjóðsins sjö ár aftur
í tímann til að kanna hvort þar hafi
allir viðskiptavinir setið við sama
borð. „Tillaga Kristjáns kom okkur á
óvart en hún var felld. Við verðum að
sjálfsögðu að virða bankaleynd og
getum því ekki rætt mál einstakra
viðskiptavina. En við verðum að hlíta
ákveðnum lögum og reglum í starfi
Sparisjóðsins og nokkrum sinnum á
ári koma fulltrúar frá Fjármála-
eftirlitinu og fara yfir öll viðskipti
sjóðsins. Við fengjum því strax bágt
fyriref værum að mismuna viðskipta-
vinum. Meira get ég ekki sagt,“ sagði
Þór að lokum.
Um kvöldið var afmælisveisla í
Höllinni þar sem saman voru komnir
um 200 manns. Þar var m.a. boðið
upp á söng með þeim hjónum Helgu
Jónsdóttur og Amóri Hermannssyni.
FRÁ fundinum, fremst eru Jóhann Kjiirnsson, Grétar Þórarinsson, Stefán
Jónasson.
STEFÁN skóari og Svanbjörg kona hans voru meðal gesta á fundinum.