Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2003, Síða 18
18
Fréttir
Miðvikudagur 16. apríl 2003
Landa-
KIRKJA
Fimmtudagur 17. apríl
Kl. 20.00. Messa á skírdagskvöld. í
lok messunnar verður afskrýðing
altarisins. Kaffisopi á eftir í Safn-
aðarheimilinu.
Föstudagurinn langi, 18. apríl
Kl. 14.00. Guðsþjónusta með kór-
söng og mikilli tónlist. Félagar í
Leikfélagi Vestmannaeyja lesa písl-
arsögu Jesú Krists úr guðspjöll-
unum og völdum passíusálmum sr.
Hallgríms Péturssonar. Guðsþjón-
ustunni lýkur með lestri síðustu
orða Krists á krossinum.
Páskadagur, 20. apríl
Kl. 8.00 árdegis. Hátíðarguðs-
þjónusta á páskadagsmorgni.
Morgunverður á eftir í Safnaðar-
heimilinu.
Kl. 10.45. Hátíðarguðsþjónusta á
Hraunbúðum. Allir hjartanlega
velkomnir.
Annar dagur páska, 21. apríl
Kl. 14.00. Bama- og skímarguðs-
þjónusta.
Kl. 16.00. Tónleikar í Landakirkju.
Anna Alexandra Cwalinska og
móðir hennar, Védís Guðmunds-
dóttir og faðir hennar. Fjölbreytt
dagskrá.
Þríðjudagur 22. apríl
Kl. 18.00 og 18.45. Æfingar fyrir
fermingarböm sumardagsins fyrsta
og sunnudagsins 27. apríl.
Miðvikudagur 23. apríl
Kl. 20.00. Opið hús í KFUM&K
heimilinu við Vestmannabraut.
Sumardagurínn fyrsti, 24. apríl
Kl. 11.00. Fermingarmessa. Alt-
arisganga. Nöfn fermingarbamanna
em birt annars staðar í blaðinu.
Prestar eru sr. Kristján Bjömsson
og sr. Þorvaldur Víðisson.
Hvítasunnukirkjan
Skírdagur
Kl. 20.30 Brauðsbrotning, við
minnumst síðustu kvöldmáltíðar
Jesú með lærisveinunum.
Föstudagurinn langi
Kl. 9.00 -14.00 Bænasamfélag.
Kirkjan opin og við komum til að
minnast atburða dagsins í bæn og
tilbeiðslu.
Kl. 15.00 SAMKOMA
Allir hjartanlega velkomnir
Páskadagur
Kl. 15.00 Hátíðarsamkoma. „Minn
Drottinn reis frá dauðum." Mikill
söngur og lofgjörð.
Allir hjartanlega velkomnir.
Annar í páskum
Kl. 15.00 SAMKOMA Við höld-
um áfram að fagna sigri lífsins.
Söngur, gleði og gott samfélag.
Allir hjartanlega velkomnir.
GLEÐILEGA PÁSKA
Aðventkirkjan
Laugardagur 19. apríl
Kl. l0.30Biblíurannsókn.
Biblían
talar
Sími
481-1585
Vestmannaeyjar koma við sögu á
frímerkjum Islandspósts á þessu ári
Frímerkjaútgáfur Islandspósts tengj-
ast Vestmannaeyjum á jsessu ári. Þann
23. apríl nk. verða gefin út frímerki
með myndum af ferjum, sem notaðar
eru hér við Island. Þær eru Sævar til
Hríseyjar, Sæfari til Grímseyjar og
Hríseyjar, Baldur á Breiðafirði og
síðan Herjólfur milli lands og Eyja.
Merkin verða gefin út í tveimur
heftum og eru tvö merki af Baldri og
Herjólfi saman f hefti. Verðgildi
merkjanna í Herjólfsheftinu verður 60
kr. Þetta merki nýtist sem burðargjald
til Evrópu í forgangspósti.
Á forsíðu heftisins með Herjólfs-
merkjunum má sjá skipið á siglingu
undir Heimakletti á leið til hafnar í
Vestmannaeyjum. Hönnuður merkj-
anna og kápunnar á heftinu er Eyja-
maðurinn Hlynur Olafsson. Hlynur
hefur hannað frímerki fyrir póstinn frá
árinu 1993. ínóvembernk. verða
gefin út merki í seríunni „Eyjar við
Island,“ þar verður annað myndefnið
HEIMAEY.
Tengtfrímerkjumerustimplar. 23
janúar sl. var í notkun stimpill á
pósthúsinu í Eyjum til að minnast
upphafs jarðelda á Heimaey 1973.
Þann 3. júlí nk verður notaður stimpill
á pósthúsinu , til að minnast Gosloka.
Það er sannfæring mín að Eyjamenn
geti notað þessi tækifæri til að
auglýsa bæinn okkar og auka þannig
ferðamannastraum til Eyja.
Guðni F. Gunnarsson Reykjavík
HERJOLFUR prýðir heftið sem hefur að geyma myndir af ferjum við Island.
Á mynd-
unum til
hliðar eru
frímerkin
en allt er
þetta
hannað af
Hlyni
Olafssyni.
Sjálfstæðismenn blása til sóknar
SJÁLFSTÆÐISMENN opnuðu sína kosningaskrifstofu í Ásgarði í
vikunni. Þar voru mættir frambjóðendur og stuðningsmenn til að brýna
kutana fyrír komandi átök. Það er Ijóst að framundan er stutt en snörp
kosningabaraátta og verður mikill þeytingur á frambjóðendum í nýju
Suðurkjördæmi sem nær frá Hornafirði í austri að Hafnarfirði í vestri.
Hér er Guðjón Hjörleifsson, þríðji maður á D-Iista, með Erlu Vídó sem
að sjálfsögðu var mætt til að styðja sitt fólk.
Heilscráskoran
rrecra 09 nrasso
Pálína 10,5 106,0
Heiða 11,0 97,7
Aldís 5,3 93,2
SAMTALS 26,8
HressÓ ML
KJARTAN og María tóku sig vel út í samanburðinum.
María Péturssdóttir og Kjartan
Ársælsson tóku í fyrsta skipti þátt í
Galaxy-fittneskeppni fyrir
skömmu og stóðu sig með ágætum.
Kjartan varð í 8. sæti af 17
keppendum og var hann mjög
sáttur við árangurinn.
María náði þokkalegum árangri
en hún sagðist vera reynslunni
ríkari. „Eg er ákveðin að taka þátt
í íslandsmótinu í haust og ég leit á
þessa keppni fyrst og fremst sem
æfingu fyrir það. Nú veit ég hvað
ég þarf að laga og hvernig keppnin
er þegar á hólminn er komið. Eg
hef góðan tíma til að undirbúa mig
fyrir Islandsmótið sem ætti að
skila sér í betri árangri,“ sagði
María að lokum. Keppnin verður
á Sýn kl. 20.00 á morgun.
Evrópuár fatlaðra
-Samfélag fyrir alla
Með þessari stuttu grein langar
mig að koma því á framfæri að
Evrópusambandið hefur tileinkað
árið 2003 málefnum fatlaðra. Eru
einkunnarorð ársins - Samfélag
fyriralla. Eittaf
meginmarkmiðum á Evrópuári
fatlaðra er að upplýsa almenning
um jafnan rétt þeirra sem búa við
fötlun.
Með því að leggja áherslu á
málefni fatlaðra og opna umræðu
um þau mál er vonast til að
einstaklingar með fótlun fái betra
tækifæri til að vera virkari
þátttakendur í samfélaginu. Á það
ekki síst við um tækifærið til að
afia sér menntunar og þátttöku á
vinnumarkaði. Til þess að
jákvæðar breytingar megi verða er
jákvæð umræða, skilningur og vilji
almennings mikilvægur.