Fréttir - Eyjafréttir - 30.09.2004, Blaðsíða 20
Skólavegi 2lj
o
00 4-J
*o
>
F° c
'C3 oo
I oö
LKWYETvRK
VEITINGAHUS
BÁRUSTÍG 11
SÍMI 481 3393
Þess virði..!
Sendibílaakstur - iimaiibæjar
Vilhjálmur B «r 481-2943 » 897-1178 et ergsteinsson SCMQÍFCiAðABÍU.
TANJA Björg Sigurjónsdóttir og Adolf Sigurjónsson fengu Fréttabikarana í ár.
F élagsmálaráðuneytið:
Heimilt að fresta
bæ j ars tj órnar fundi
-en ekkert réttlætti næturfund
Á þriðjudaginn var kveðinn upp
úrskurður í félagsmálaráðuneytinu
um hvort Guðrúnu Erlingsdóttur,
forseta bæjarstjórnar, hafi verið
heimilt að fresta fundi bæjarstjómar
16. september sl. til klukkan 23.15.
Ráðuneytið ákvað að taka fyrri
hluta erindis sjálfstæðismanna um
lögmæti frestunar til flýtimeðferðar.
Ekki var úrskurðað um lögmæti af-
greiðslu mála og verður sá úrskurð-
ur væntanlega birtur á næstu
dögum.
Segir í úrskurðinum að Guðrúnu
hafi verið heimilt að fresta fund-
inum en gerðar eru alvarlegar
athugasemdir við fundartímann.
Segir að taka verði tillit til
óviðráðanlegra ytri atvika varðandi
frestanir, svo sem náttúruhamfara.
Þannig verði líka að gera ráð fyrir
möguleika á að fresta fundi ef
illiviðri hamlar að bæjarfulltrúar
geta setið fund á boðuðum tíma.
Ráðuneytið gerir aftur á móti al-
varlegar athugasemdir við fundar-
tímann enda verður því vart haldið
fram að slíkt neyðarástand hafi
verið fyrir hendi að réttlætanlegt
hafi verið að velja þann fundartíma.
Urskurðarorðin eru þau að hafnað
er kröfu um að félagsmála-
ráðuneytið ógildi ákvörðun forseta
bæjarstjórnar að fresta fundi
bæjarstjómar frá klukkan 18.00 til
23.15 fimmtudaginn 16. september.
Sjö starfsmönnum Gámaþjónustunnar sagt upp
Gámaþjónusta Vestmannaeyja hefur
séð um rekstur Sorpeyðingarstöðvar
og sorphirðu undanfarin ár. Nú er
fyrirhugað að bjóða reksturinn út en
samningur Vestmannaeyjabæjar og
Gámaþjónustunnar sem gerður var í
desember 2003 var til eins árs og
fellur úr gildi 31. desember næst-
komandi.
Guðmundur Richardsson, einn eig-
enda Gámaþjónustunnar, sagði að
vegna óvissu með skipan mála í
framtíðinni hafi hann ekki séð sér
annað fært en að segja sjö starfs-
mönnum upp með þriggja mánaða
fyrirvara. Þetta er í þriðja skipti sem
þetta gerist vegna væntanlegs
útboðs bæjaryfirvalda.
Gísli Guðlaugsson, framkvæmda-
stjóri Gámaþjónustunnar, sagði þá
hafa tekið við rekstrinum 1. mars
1998 en þá var gerður fjögurra ára
samningur. „Síðan hefur verið fram-
lengt um eitt ár í senn og þetta er
þriðja árið sem við erum í lausu lofti
enda staðið til að selja eða bjóða
verkið út. Það er alveg óþolandi að
þurfa að segja upp sama mann-
skapnum þrjú ár í röð en tveir hættu
í haust og eðlilega fara menn að
leita sér að öðru starfi þegar óvissan
er svona mikil. Nú erum við í hálf-
gerðu tómarúmi og gerum fastlega
ráð fyrir að þessu ljúki um ára-
mótin, við sjáum ekki fram á annað.
Okkur var sagt að þetta yrði boðið
út í júlí, síðan í september og þá ætti
að opna tilboðin 15. október. Þetta
eru einu upplýsingamar sem við
höfum fengið," sagði Gísli.
Frosti Gíslason, framkvæmdastjóri
umhverfis- og framkvæmdasviðs,
var spurður um hver staða málsins
væri. Hann sagði að væntalega yrði
tekin ákvörðun um að bjóða rekst-
urinn út á fundi umhverfis- og
skipulagsráðs á miðvikudag.
Hvers vegna er ekki búið að ganga
frá útboði þar sem samningur við
Gámaþjónustuna er að renna út?
„Þegar ég tók til starfa í septem-
ber 2003,“ svaraði Frosti, „var
samningurinn að renna út og við
gerðum nýjan samning til eins árs.
Við buðum þeim lengri tíma en þeir
vildu það ekki. Umhverfis- og
skipulagsráð fer alfarið með mál-
efni Sorpeyðingarstöðvar og sorp-
hirðu og eftir að þetta hefur verið
samþykkt frá ráðinu má reikna með
að þetta fari í gang. Menn hafa ein-
hvern tíma, til að fara yfir tilboðin
og síðan verður gengið til samn-
ingagerðar. Sorpeyðing hefur aldrei
verið boðin út hér í Eyjum áður en
nú er verið að gefa fleirum tækifæri,
það eru bara eðlilegir viðskiptahætt-
ir. Gámaþjónustan hefur þann kost
að bjóða í þetta eins og aðrir,“ sagði
Frosti.
„Gámaþjónustan rekur sitt fyrir-
tæki og hefur gert af miklum
myndarskap," sagði Bergur Elías
Ágústsson, bæjarstjóri þegar málið
var borið undir hann. „Unnið er að
því að gera útboðsgögn um sorp-
hirðu og sorpeyðingu. Niðurstöðu
er að vænta í þessu máli, innan
nokkurra vikna, og það hefur verið
vandað vel til verka,“ sagði Bergur.
i VíPPíX,
Dolmio postosósur
Morobou súkk 100 gr
Sun C Anonossafi 1 Itr
Pepsi Mox 2 Itr
Egils Appelsín 2 Itr
Hunts Tómotsósa 680 gr
Federicci farafelle
vörur d tilboði
SS rauðvínslegið lambalæri
SS london lamb
Eðalgrís kótelettur
Eðolgrís snitsel
SS danskar pylsur
\PPELSIJV
i uifaiuhU í 11 úr
k. T7 —^ /@1 11 3184/
FIiJ il 11 ii\n
UESTURVEG118 UESTMANNAEYIUM |
w ^ \ /