Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 30.09.2004, Blaðsíða 18

Fréttir - Eyjafréttir - 30.09.2004, Blaðsíða 18
18 Fréttir / Fimmtudagur 30. september 2004 Landakirkja Fimmtudagur 30. september Kl. 10:00 Mömmumorgunn í Safnaðarheimili Landakirkju. Kl. 15:50 Kirkjuprakkarar, 6-8 ára krakkar, í Landakirkju. Sungið, leikið og samhristingur. Kl. 17:00 TTT, 9-12 ára krakkar, í Landakirkju. Kl. 20:00 Kóræfing. Laugardagur 2. október Kl. 10:30 Útför Engilberts Þor- valdssonar. Kl. 13:00 Litlir lærisveinar, kór- æfing eldri hóps íTónlistarskóla. Kl. 14:00 Útför Sigríðar Sigurðar- dóttur. Sunnudagur 3. september Kl. 10:00 Litlir lærisveinar, yngri hópur, kóræfing fyrir sunnu- dagaskólann. Kl. 11:00 Sunnudagaskóli í Landakirkju. Litlir lærisveinar munu syngja. Fjölmennum með bömin. Kl. 14:00 Guðsþjónusta í Landa- kirkju á degi kærleiksþjónustu kirkjunnar. Fermingarstúlkumar Þóra og írena lesa ritningarlestra. Foreldrar, mætum með fermingar- bömunum í kirkju. Prestur sr. Þorvaldur Víðisson. Kl. 20:30 Fundur æskulýðsfélags Landakirkju og KFTJM&K. Safn- aðarheimilið opnað kl. 20. Hulda Líney, Brynja, Lella og sr. Þorvaldur. Mánudagur 4. október Kl. 16:00 Æskulýðsstarf fatlaðra yngri hópur. Þriðjudagur 5. október Kl. 13:15 Fermingarfræðsla Bamaskólakrakka (8. ÁG). Kl. 14:00 Fermingarfræðsla Bamaskólakrakka (8. BB). Kl. 17:00 Litlir lærisveinar, æfing. Kl. 20:00 Tólf spora vinna. Miðvikudagur 6. október Kl. 11:00 Helgistund á Hraun- búðum. Kl. 13:00 Fermingarfræðsla Hamarsskólakrakka (8. RB). Kl. 14:50 Fermingarfræðsla Hamarsskólakrakka (8. ÓL). Kl. 20:00 Ten - sing. Skapandi starf í KFUM&K heimilinu fyrir 13-19 ára unglinga. Hjördís Kristinsdóttir, Hulda Líney Magnúsdóttir, sr. Þorvaldur Víðisson halda utan um starfið. Kl. 20:00 Aglow fundur á Kaffi Kró. Hvítasunnu- KTHK.IW Fimmtudagur 30. september KL. 20:30 Biblíufræðsla „Þitt orð er...ljós á vegum mínum.” Allir velkomnir. Föstudagur 1. október Kl. 20:30 Unglingakvöld. Laugardagur 2. október Kl. 20:30 Bæna- og lofgjörðar- stund. Sunudagur 3. október Kl. 15:00 SAMKOMA Blessun í lofgjörð og lifandi Guðsorði. Þóranna M. Sigurbergsdóttir pré- dikar. Munið bamastarfið, í umsjá Guðbjargar og Lindu Marý, meðan á samkomu stendur. Allir em hjartanlega velkomnir. Þriðjudagur 5. október Kl. 19:00 ALFA - námskeiðið. Miðvikudagur 6. október Kl. 20:00 AGLOW - fundur I safnaðarheimili Landakirkju. Þóranna segir frá Aglowráðstefnu í Þýskalandi. Allar konur velkomnar. Aðventkirkjan Laugardagur 2. október Kl. 10.30 Biblíurannsókn. VERÐLAUNAHAFAR á lokahófi yngri flokkanna ásamt þjálfurum og Óskari Frey formanni ÍBV. Myndarlegt lokahóf yngri f lokkanna Fjölmenni var á lokahófi yngri flokkanna sem fram fór í Týsheimilinu á laugardaginn. Þar var samankominn stærsti hluti þeirra sem stunduðu knattspymu hjá ÍBV í sumar, ásamt foreldrum og þjálfumm. Þarna vom veittar viðurkenningar fyrir afrek sumarsins og á eftir var kaffi og kökur. 6. flokkur karla, eldra ár: Efnilegastur: Antonio Ndong Nsambi - Dilan Mestu framfarir: Anton Freyr Karlsson ÍBV-ari: Gunnar Karl Haraldsson 6. flokkur karla, yngra ár: Efnilegastur: Jón Ingason_ Mestu framfarir: Hjörtur Ivan Sigbjömsson IBV-ari: Óskar Elías Óskarsson 5. flokkur kvenna, eldra ár: Efnilegust: Guðný Ósk Ómarsdóttir Mestu framfarir: Amþrúður Dís Guðmundsdóttir ÍBV-ari: Sóley Guðmundsdóttir 5. flokkur kvenna yngra ár: Efnilegust: Amey Lind Helgadóttir Mestu framfarir: Jóhanna Svava Gunnarsdóttir ÍBV-ari: SvavaTaraÓlafsdóttir 5. flokkur karla, eldra ár: Efnilegastur: VíðirÞorvarðarson Mestu framfarir: Þorleifúr Sigurlásson ÍBV-ari: Haukur Jónsson 5. flokkur karla, yngra ár: Efnilegastur: Andri Guðmundsson Mestu framfarir: Amar Smári Gústafsson IBV-ari: Bjöm Sigursteinsson 4. flokkur kvenna: Efnilegust: Eva María Káradóttir Mestu framfarir: Auður Ósk Hlynsdóttir IBV-ari: Bylgja Dögg Sigmarsdóttir 4. flokkur karla: Efnilegastur: Þórarinn Ingi Valdimarsson Mestu framfarir: Birkir Helgason ÍBV-ari: Njáll Aron Hafsteinsson 3. flokkur kvenna: Efnilegust: Þórhildur Ólafsdóttir Mestu ífamfarir: Sara Sjöfn Grettisdóttir ÍBV-ari: Fanndís Friðriksdóttir 3. flokkur karla: Efnilegastur: Egill Jóhannsson Mestu framfarir: Óttar Steingrímsson IBV-ari: Hafþór Jónsson Ágætt knattspyrnusumar er nú að baki HÆST bar bikarsigurinn hjá stclpunum. Hér fagna íris, Sigga Ása og Biddý besta árangri IBV í kvennafótboltanum. Um helgina var lokahóf ÍBV- íþróttafélags og því ekki úr vegi að líta um öxl og skoða aðeins árangur sumarsins. Meistaraflokkar félagsins standa auðvitað upp úr með sinn árangur, auk þess sem B-lið í fjórða flokki kvenna varð íslandsmeistari. Árangur kvennaliðs IBV hefur verið stigvaxandi undir stjóm Heimis Hallgrímssonar en frá árinu 1999 hefur liðið hækkað um eitt sæti síðan. Undantekningamar em tvær, annars vegar árið 2002 þegar Elísabet Gunnarsdóttir þjálfaði liðið og svo í ár þegar IBV varð annað árið í röð í öðm sæti deildarinnar. En árangurinn í ár er engu að síður betri en í fyrra því í ár landaði kvennaliðið sínum fyrsta titli þegar þær urðu bikarmeistarar. Reyndar urðu titlamir tveir því stelpumar unnu líka deildarbikarinn í haust þannig að árangurinn er stórglæsilegur, tveir titlar og silfur í íslandsmótinu. Heimir hefur hins vegar gefið það út að nú skilji leiðir, hann er hættur með liðið, í bili að minnsta kosti. Forráðamenn ÍBV verða nú virkilega að vanda valið með þjálfara svo að halda megi áfram uppbyggingarstarfi Heimis. Ekki er ljóst á þessari stundu hvaða leikmenn komi til með að halda áfram hjá ÍBV, sjálfsagt verða einhveijar breytingar en halda verður þeim í lágmarki. Karlalið IBV er að margra mati spútniklið sumarsins enda áttu fæstir von á því að Eyjamenn myndu blanda sér í toppbaráttuna. Þrátt fyrir nokkur áföll, eins og t.d. tap gegn ÍA ogFHá heimavelli, þá náði liðið alltaf að rétta úr kútnum og var aldrei langt frá toppnum. Það gerðist einmitt eftir tapið á heimavelli gegn ÍA að í kjölfarið komu þrír sigurleikir og allt í einu var ÍBV komið í baráttuna um íslandsmeistaratitilinn. Strákamir fundu ilminn af titlinum og héldu möguleikanum opnum fram í síðasta leik. Þrátt fyrir að enginn titill hafi unnist á tímabilinu þá vann liðið sér rétt í Evrópukeppni félagsliða að ári, sem er það næstbesta. Nú liggur fyrir að Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV síðustu tvö ár, er á leiðinni til KR. Það verður strembið verk fyrir knattspymuráð karla að finna rétta manninn til að feta í fótspor Magnúsar en það ætti hins vegar að heilla að taka við sterku liði IBV sem spilar í Evrópu- keppninni á næsta ári. Þá em nokkur leikmannamál óklárað, þar á meðal er Bjamólfur Lárasson ekki búinn að skrifa undir og sömuleiðis er Tryggvi Bjamason með lausan samning. Mark Schulte átti mjög gott tímabil en hefur áhuga á að reyna fyrir sér á öðram vígstöðvum. Hann hefur hins vegar gefið það út að hann hafi áhuga á að spila með IB V á næsta ári ef það gengur ekki upp. Um KFS er fátt að segja, liðið átti aldrei möguleika í 2. deildinni en þegar þeir gátu stillt upp sínu sterkasta liði þá komu stig í hús. Þau skipti vora hins vegar allt of fá og KFS endaði í neðsta sæti 2. deildar, m'u stigum frá því að halda sæti sínu. Yngri flokkar ÍBV áttu misjöfnu gengi að fagna í sumar en B-lið Qórða flokks kvenna bar af, þær gerðu sér lítið fyrir og urðu Islandsmeistarar og A-liðið varð í öðra sæti. Þar með má segja að árangur yngri flokka IBV í sumar sé upp talinn. Það er því ljóst úr hveiju þarf að bæta, það er starf yngri flokkanna enda er annar flokkur karla kominn í neðstu deild og annar flokkur kvenna varð langneðstur í A- riðli og spilar í B-riðli næsta sumar. Hugmynd Hjalta Kristjánssonar um að sameina KFS og annan flokk karla er ekki svo galin og vonandi að forráðamenn ÍBV taki henni með opnum huga enda er þörf á úrbótum. julius@eyjafrettir.is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.