Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 30.09.2004, Blaðsíða 13

Fréttir - Eyjafréttir - 30.09.2004, Blaðsíða 13
Fréttir / Fimmtudagur 30. september 2004 13 Leynast Lærisveinaföt á þínu heimili? Kæm foreldrar og forráðamenn Litlu lærisveina undanfarin ár. Okkur í Litlurn lærisveinum sárvantar bæði skokka og drengjaföt sem hafa farið heim með fyrmm söngfélögum og ekki skilað sér aftur. Vinsamlegast athugið í fataskápana ykkar og kanið hvort þið finnið bún- inga. Komið skokkum, blússum, skyrtum, buxum og vestum sem fyrst í Safnaðarheimilið. Takkfyrir að hjálpa okkur Guðrún Helga og Joanna, kórstjórar Litlu Lærisveina Stuðningur við kennara Almennur fundur í Kennarafélagi Framhaldsskólans í Vestmanna- eyjum, haldinn 28. sept. 2004, sendir gmnnskólakennumm baráttukveðjur í yfirstandandi verkfalli. Jafnífamt lýsir fundurinn yfir fullum stuðningi við kjarabaráttu gmnnskólakennara og hvetur þá til áframhaldandi baráttu fyrir bættum kjömm. Gísli Valtýsson skrifar: Algjörlega óásættanleg bæjarstjórn Trúnaðarbrestur er staðreynd, sagði Guðrún Erlingsdóttir, forseti bæjar- stjómar Vest- mannaeyja m.a. í opnuviðtali í Fréttum í síðustu viku og átti þar við samstarf meiri- og minnihluta bæjarstjómar. Við svo búið geta íbúar Vest- mannaeyja ekki lengur unað. Hér verður annað tveggja að eiga sér stað, að bæjarfulltrúar slíðri pólitísku sverðin og láti hagsmuni Eyjanna ganga fyrir, eða að við íbúar látum til okkar taka. Ekki er nóg með að Vest- mannaeyjar eigi í mikilli vamarbaráttu gagnvart íbúaþróun, heldur em þeir aðilar sem kosnir vom við síðustu bæjarstjómarkosningar, til að gæta hagsmuna Vestmannaeyja, - aðallega í því að koma höggi hver á annan,- séu þeir ekki samherjar í pólitíkinni. Eg hef áður sagt það á vefsíöu eyjafretta.is og einnig hér í Fréttum, Ekki er nóg með að Vestmannaeyjar eigi í mikilli varnarbaráttu gagnvart íbúaþróun, heldur eru þeir aðilar sem kosnir voru við síðustu bæjarstjórnarkosningar, til að gæta hagsmuna Vestmannaeyja, - aðallega í því að koma höggi hver á annan,- séu þeir ekki samherjar í pólitíkinni. að nærvera þingmanna Vest- mannaeyja í bæjarpólitíkinni sé ekki til heilla fyrir okkar bæjarfélag en sé til þess eins fallin að skapa úlfúð og illindi, sem þeir taka með sér frá hasamum á Aþingi, og við þau orð stend ég enn. Lúðvík Bergvinsson, alþingismaður og bæjarfulltrúi hefur kallað það aðför að almennum mannréttindum að alþingismenn eigi ekki að taka þátt í bæjarpólitík. Gott og vel, ég virði það sjónarmið. Ég er bara ekki sammála. Enn og aftur verður bæjarstjóm Vestmannaeyja að athlægi. Nú síðast þegar bæjarstjómarfundi var frestað vegna þess að Andrés Sigmundsson, bæjarfullrúi, var veðurtepptur á meginlandinu og „pólitískt veikur“ meirihlutinn yrði því ekki réttu megin á þeim bæjarstjómarfundi. Sjálfstæðismenn virtu ekki fundar- frestunina og mættu ekki á fundinn, þegar hann var boðaður undir mið- nættið. Þvílík uppákoma. Að mæta ekki í vinnuna sína, sem þeir fá greitt fyrir, þótt mönnum mislíki ákvörðun verkstjórans, í þessu tilfelli forseta bæjarstjómarinnar, hefði einhvem- tíma af einhverjum þótt brott- rekstrarsök úr vinnunni. En að vera forseti bæjarstjómar er ábyrgðarmikið hlutverk og felst t.d. ekki í því að vera forseti meirihlutans. Að Guðrún Erlingsdóttir, forseti bæjarstjómar Vestmannaeyja, - skuli boða til bæjarstjórnarfundar, korter gengin í miðnætti og halda fundinn án minnihlutans, þar sem mikilvæg mál voru á dagskrá, - og sennilega eitt það stærsta í sögu núverandi bæjarstjómar, sem er sala á átta af fasteignum bæjarins - og sem þar með fékk ekki neina gagnrýna umræðu, - er algjörlega óásættanlegt og ég get bara alls ekki sætt mig við og að ég held, ekki heldur hinn almenni Vest- mannaeyingur. Sem íbúi Vestmannaeyja í 58 ár, krefst ég þess hér með, að bæjarstjórn Vestmannaeyja, taki upp önnur vinnu- brögð þar sem hagsmunir okkar íbúanna verði teknir í forgang, og flokkspólitíkin látin lönd og leið. Við höfum einfaldlega ekki efni á því að kraftar okkar fari í innbyrðis póli- tískar illdeilur. Ágætu bæjarfulltrúar, - ef ykkur þyrstir í pólitískar deilur, finnið ykkur þá útrás á vettvangi landsmálanna, en látið okkur Vestmannaeyinga ekki gjalda ykkar lengur. Gísli Valtýsson. DAVID KNIGHT: Heimsins sneggsti dávaldur í Eyjum Einn vinsælasti dávaldur heimsins er á leiðinni til íslands. David Knight hefur haldið meira en 3.000 sýningar, dáleitt yfir 30.000 manns og á gildandi heimsmet í dáleiðslu. Heimsmetið setti hann 20. mars 2003 er hann dáleiddi 37 manns á 45 sekúndum og er þetta skráð sem heimsmet í Heimsmetabók Guinn- ess. Hann hefur einnig gefið út bækur og sjónvarpsþætti um dáleiðslu. Sýningamar em við allra hæft og em sannkölluð fjölskyldu- skemmtun. David mun halda sýningar á nokkmm stöðum á landinu og í Eyjum verður hann 7. október í Höllinni. Forsala aðgöngumiða er haftn í Höllinni, sími 481-2665. Fréttatilkynning. Kristján Bjarnason skrifar: Vatnsdalshóll í Hraunskógi Hólamir í hinu mikla fram- hlaupi í Vatns- dal í Húnavatns- sýslu em álitnir óteljandi. Við hér í Eyjum eigum hins veg- ar einn Vatns- dalshól sem reyndar er kenndur við húsið Vatnsdal sem fór undir hraun í gosinu. Blasir hann við á meðfylgjandi mynd ásamt alkunnum kletti í baksýn. Margt góðborgara hér í bæ kennir sig við Vatnsdal enn þann dag í dag þó húsið sé horfið. Ekki munu húnvetnsk tengsl vera þar á ferðinni heldur húsið kennt við dal eða laut eina sem var þar skammt frá og fylltist af vatni í rigningartíð og helst þegar klaki var í jörð. Þau hjónin Alda og Hilmir ásamt fjölskyldu hafa ámm saman ræktað upp staðinn þar sem húsið iiggur kramið undir og blasir árangurinn við þeim sem leggja leið sína í Hraun- skóg. Á myndinni sést mikil gróska sem einkenndi sumarið sem er á fömm. Mest áberandi er roðafífillinn sem töluvert er farinn að breiða úr sér á víðavangi hér á eyjunni á seinni ámm þó uppmnalega sé hann kominn úr görðum. Gísli frá Geithálsi telst líka einn af frumherjunum í nýja hrauninu. Hann hefur ræktað upp skemmtilegt svæði skammt frá Vatnsdalshól og sinnir því af mikilli natni árið um kring. Svæðið sem um ræðir er á nokkm sléttlendi vestan og neðan við Sorpu þar sem fyrsta hraunhitaveitan var. Gaman væri að gera hinni frægu hraunhitaveitu einhver skil á þessum slóðum. Vitað er að ferðamála- merki eða uppbyggingu á staðnum. frömuður einn hér í bæ er mikill Kristján Bjamason, áhugamaður um þau mál og vinnur að form. Skógrœktarfélagsins. tillögum að einhvers konar minnis- Spurt er: Fórstu sparlega með vatnið? Vatnsleiðslur fóru í sundur í síðustu viku. Margrét Iris Grétarsdóttir: Jú við Einar fórum sparlega með vatnið. Maður varð bara að gera það. Egill Andrésson: Já. það held ég nú. Pabbi fyllti reyndar heita pottinn en það var áður en liann frétti af biluninni. Annars fórum við sparlega með vatnið.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.