Fréttir - Eyjafréttir - 14.07.2005, Blaðsíða 4
4
Fréttir / Fimmtudagur 14. júlí 2005
EYJAMAÐUR VIKUNNAR
Ég ætla a0 lialda þessu innan vinahópsins aðeins lenj>ur og þar sem við erum nokkrar hérna á höfuðborgarsvæðinu þá ætla
ég að skora á Þórdísi Þórðar, hún er víst rosalega klár í eldhúsinu og á stærsta grillið norðan Alpafjalla !
á döfinni
í vikunni
fimmtudagur:
Evrópukeppni félagsliða: ÍBV - B-36 (Færeyjum) kl. 18.00 á
Hásteinsvelli.
Meistaramót GV, stendur frá miðvikudegi til laugardags.
föstudagur:
Landsbankadeild kvenna: ÍBV - FH kl. 20.00 á Hásteinsveili.
Lundinn: Hljómsveitin Smakk.
laugardagur:
Bryggjudagur ÍBV.
Bryggjumót SJOVE.
Hefði ekki átt séns sem keppandi
Kjúklingasamloka
Ég þakka Margréti fyrir áskorunina. Þetta verður
eldsnöggt hjá mér þannig að þessar „single" eins og
Magga œttu aðfara létt með það að elda þessa rétti.
Kjúklingasamloka/píta
Hér nota ég afganga úr steiktum kjúkling frá deginum
áður, þ.e. ef hann er einhver. Þá er líka bara hægt að
elda einn kjúkling aukalega til að rífa niður.
Kjúklingapíta
Sigurður Jónsson sextugur
Sigurður Jónsson, bæjarstjóri í Garðinum og fyrrverandi bæjarfulltrúi í
Eyjum, varð scxtugur síðastliðinn sunnudag, 10. júlí. Hann og eiginkonan
Asta Arnmundsdóttir, buðu til afmælisveislu í Samkomuhúsinu í Garði,
þar sem samankomin var fjöldi vina og samstarfsmanna Sigurðar. Margir
tóku til máls í veislunni og mærðu afmæiisbamið og sögðu af honum sögur
og bæjarstjórarnir á Suðurnesjum sungu honum afmælisbrag. Sigurður
var einn af stofnendum blaðsins Frétta árið 1974 og var stjórnarformaður
fyrirtækisins frá stofnun og til ársins 1986. Þá var hann drjúgur skrifari í
biaðinu og auk þess að skrifa undir eigin nafni, notaði hann m.a. dulnefnið
Landkrabbi, og þótti á stundum beittur penni. Fréttir voru í afmælis-
veislunni og þar var þessari mynd smellt af hjónunum.
Nýfæddir . ?o*
' Vesfmannaeyingar
Þann 16 maí sl. eignuðust
Jóhanna Kristín Reynisdóttir
og Egill Amar Amgrímsson
son sem skírður hefur verið
Reynir Þór. Hann fæddist á
Heilbrigðisstofnun
Vestmannaeyja. Drengurinn
var 4004 gr og 55 cm við
fæðingu.
Fjolskyldan býr í
Vestmannaeyjum.
Það vom margir sem komu að
undirbúningi að Sumarstúlku-
keppninni síðastliðið laugardags-
kvöld. Einn þeirra var Jarl
Sigurgeirsson sem tók að sér að vera
kynnir keppninnar. Hann stóð sig
með miklum sóma og náði til að
mynda góðri stemmningu í salinn
þegar hann stjómaði fjöldasöng. Jarl
er því Eyjamaður vikunnar að þessu
sinni.
Nafn: Jarl Sigurgeirsson.
Fæðingardagur: 3. nóvember
1967.
Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar.
Fjölskylda: í sambúð með Sigur-
veigu Steinarsdóttur, á fjögur börn:
Gísla Val, ísak Mána, Steineyju
Ömu og Lúkas Elí.
Draumabfllinn: Ef einhver myndi
vilja gefa mér nýjan jeppa, sjálf-
skiptan með leðri, topplúgu og
góðum græjum, þá myndi ég segja já
takk.
Uppáhaldsmatur: Ég borða allan
mat en hef mest gaman af að prófa
eitthvað nýtt.
Versti matur: Einu sinni smakkaði
ég signa grásleppu. Hún var ekki
góð.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Tónlist sem er vel samin og
flutt kemur mér yfirleitt í gott skap,
ef ég var þá ekki í góðu skapi fyrir.
Uppáhaldsvefsíða: Ég á mér enga
sérstaka uppáhaldsvefsíðu, en ég er
nýkominn með ADSL og er svona
rétt að uppgötva hinn stóra heim.
Aðaláhugamál: Tónlist, ijölskyldan
og vinir mínir.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Vestmannaeyjar að
sjálfsögðu. Og þá sérstaklega séðar
af sjó.
Ertu hjátrúarfullur? Já, mjög svo.
Uppáhalds íþróttamaður og/eða
íþróttafélag: Rúnar Þór Birgisson,
heimsmeistari í moonwalking með
frjálsri aðferð. Og uppáhaldsfélag er
Moonwalkinglið FBF. Einnig er
fimleikafélagið RÁN í miklu
uppáhaldi hjá mér.
Hvaða mann/konu myndir þú
helst vilja hitta úr mannkyns-
sögunni: Ég væri til í að hitta Jesú.
Stundar þú einhverja íþrótt: Ég er
í moonwalkingliði FBF. Svo tefli ég
líka soldið, er í lúðrasveit og verð að
nefna golfið til að gleðja mömmu.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Ég missi
helst aldrei af áramótaskaupinu.
Hvernig fannst þér til takast? Mér
fannst þetta takast afskaplega vel,
stelpumar voru frábærar, skemmti-
atriðin mjög góð og mér sýndist aliir
skemmta sér mjög vel.
Hvernig fannst þér að vera
kynnir? Mér fannst mjög fínt að
vera kynnir, ég hefði ekki fflað að
taka þátt, þar sem allir keppendumir
voru stelpur og ég var þar að auki
töluvert eldri en þær allar. Það hefði
ekki verið gott, ég hugsa að ég hefði
ekki átt séns.
Eitthvað að lokum: Miglangarað
nota tækifærið og minnast á að hún
Helena Jónsdóttir sá um að skraut-
skrifa á borða fegurðardrottning-
anna, eins og áður. Ég held að ég
hafi ekki tninnst á það á laugar-
dagskvöldið, en hún á þakkir skilið
fyrir það. Einnig langar mig að
þakka stelpunum tíu sem tóku þátt,
Hjördísi Elsu og Rúnari Karls fyrir
einstaklega ánægjulega samveru í
aðdragandanum og á keppninni
sjálfri, ég kom inn í þetta á síðustu
metrunum og var strax tekið opnum
örmum. Takk fyrir mig.
Pítubrauð frá Hatting (yfirleitt til ffosin)
'/2 rauðlaukur þunnt skorinn
Paprika rauð og/eða græn
Iceberg kál
Maísbaunir
Agúrka
Barbeque sósa
Vogaídýfa með kryddblöndu
Rífið kjúklingakjötið niður og hitið á pönnu við vægan
hita, kryddið með smá salti og pipar.
Þegar kjötið er orðið heitt þá er Barbeque sósan sett út
á kjötið 1 1/2 til 2 dl, fer eftir smekk og magni á kjöti.
Pítubrauðið er tekið í sundur og hitað í brauðrist eða
ofni.
Vogaídýfa eftir smekk er sett á bæði brauðin og
grænmetinu og kjötinu síðan raðað á.
Verður ekki að lylgja einn eftirréttur líka...?
Heit eplabaka
6-8 lítil epli eða 3 stór (helst rauð)
2(X) gr sykur
2 tsk. kanill
175 gr hveiti
1 tsk. salt
3 dl mulið komflakes
120 gr brætt smjörlíki
Eplin afhýdd og skorin í bita og sett í eldfast form sem
búið er að smyrja vel með smjörlfld.
Öllu hrært saman og sett ofan á eplin og sett í ofn, 200°
í 30-40 mín.
Borið fram með íjóma eða ís.
MFIÐ
mm I FRRMUNDRN
Hvað á að gera um helgina?
„Ég verð nú bara að taka á móti gestum, það er
aldrei að vita hvort maður skoðar eitthvað Iffíð,
ef eitthvað skemmtilegt verður í boði."
-Aldís Atludóttir