Fréttir - Eyjafréttir - 14.07.2005, Blaðsíða 20
— o <u
Æ 8CI> .-5 c/5
Frétta- og auglýsingasími: 481-1300 / Fax 481-1293 Skólavegi 21 s. 48 i -1444
HAMINGJA. Thelma er úr Reykjavík og Guðjón Kópavogi en þau búa í Hafnarfirði. Hún gengur
með annað barn þeirra og bæði ljómuðu af hamingju og ást þessa ógleymanlegu stund í
Náttúrugripasafninu í Vestmannaeyjum.
Bónorð á Náttúrugripasafninu
Ástfangnir menn geta verið ótrúlega
hugmyndaríkir þegar kemur að því
að biðja unnustunnar. En fáir slá
Guðjóni Ægi Gunnarssyni við því
hann valdi bónorðinu stað í Nátt-
úrugripasafninu í Vestmannaeyjum
og það innan um þorskana í þess
orðs fyllstu merkingu. Og hvað gat
unnustan, Thelma Logadóttir gert
annað en að segja já?
Það var á laugardaginn að Guðjón
Ægir dreif unnustu sína, Thelmu út
og lá leiðin að Loftleiðahótelinu þar
sem þau eru vön að fara í sund en
ferðin endaði í Vestmannaeyjum.
„Ég er að læra múrverk og sagaði
bónorðið: Thelma, viitu giftast
mér? í hjartalaga stein. Hugmyndin
var að fara til Vestmannaeyja, ætl-
aði ég að koma steininum fyrir í
hrauninu en svo endaði hann í
þorskabúrinu á Fiskasafninu,“
Guðjón.
Thelma hélt að þau væru að fara í
sund en haldið var áfram og út á
flugvöll. „Þar beið vinur okkar sem
er að fljúga og sögðu þeir mér að
ætlunin væri að fara í útsýnisflug en
það endaði hér í Vestmannaeyjum,"
sagði Thelma.
Guðjón fékk starfsmenn Náttúru-
gripasafnsins í lið með sér og þeir
settu steininn góða í búr þar sem
þorskar synda í mestu makindum.
„Ég dró Thelmu að búrinu og hún
rak augun í steininn eins og til var
ætlast og segir; -þarna er nafnið
mitt, og hélt svo áfram að lesa. Þá
brá ég mér á aðra skelina og bar upp
bónorðið."
En hvemig varð Thelmu við?
„Hjartað fór á fullt og auðvitað
sagði ég já. Við ætlum svo að gifta
okkur 8. júlí 2006, en þá á ég af-
mæli,“ sagði brúðurin væntanlega.
Nýr Sóli verður tilbúinn eftir ár
-sameiningu leikskóla frestað fram á haust 2006
Á fundi bæjarráðs á mánudag var
samþykkt að útboð á nýjum 100
bama leikskóla færi fram í haust.
Forráðamenn bæjarins hafa verið í
viðræðum við eignarhaldsfélagið
Fasteign hf. og teiknistofu Halldórs
Guðmundssonar um stærð og
skipulag á nýjum leikskóla á
Sólalóðinni.
Búið var að samþykkja stærð
skólans upp á 800 fermetra og öllu
skipulagi innandyra sem og
staðsetningu hans innan bygginga-
reits á Sólalóðinni.
Samkvæmt nýrri framkvæmda-
áætlun er miðað við að bygging
leikskólans verði boðin út í einu
lagi nú í haust og hann verði
tilbúinn til notkunar fyrir júlí 2006.
Framkvæmdir vegna tengivegar frá
Helgafellsbraut að bílastæði við
Sjúkrahúsið hefjast á þessu ári.
Á sama bæjarráðsfundi var sam-
þykkt að sameining leikskólanna og
yfirstjómar þeirra komi að fullu til
framkvæmdar I. ágúst 2006 en áður
hafði verið samþykkt að nýr leik-
skólastjóri yfir öllum skólunum
kæmi til starfa í ársbyrjun 2006.
Bergur Elías Ágústsson, bæjar-
stjóri, sagði málið nú vera komið í
mjög góðan farveg. „Það verður
byggður stór og myndarlegur skóli
og það var reynt að taka tillit til sem
flestra sjónarmiða í þessu.“
Bergur sagði næsta skref vera að
taka fyrstu skóflustunguna og hefj-
ast handa. Við ætluðum að vera
búnir fyrr með leikskólann en nú
verður nýr skóli vígður á nýju leik-
skólaári 2006 og þá er vel við hæfi
að hafa nýtt skipulag.“
Virðist stefna í fjölmenna Þjóðhátíð
Það stefnir í að Þjóðhátíðin verði
ekki síður fjölmenn en í fyrra.
Hjá Landsflugi eru 408 nú þegar
búnir að staðfesta pöntun en félag-
ið verður með 17 og 32 farþega
Domiervélar í notkun yfir hátíðina.
Alls eru í boði 658 sæti til Eyja frá
fimmtudegi og fram á laugardag en
möguleiki er að koma á aukaferð-
um ef ásókn er mikil.
Hjá Flugfélagi Vestmannaeyja eru
um 300 búnir að staðfesta pöntun í
flug frá Bakka til Eyja. Félagið
hefur fjórar vélar til umráða, tvær
fimm farþega, eina Islander vél
sem kemur í vikunni til Eyja en
hún ber níu farþega og svo Piper
Chieftain vél sem ber níu farþega.
Þá er möguleiki á að Flugfélagið
leigi til sín fleiri vélar en það fer
allt eftir aðsókn í flug.
Hjá Samskipum fengust þær
upplýsingar að nánast væri orðið
fullt í hefðbundnar ferðir skipsins á
funtntudag og föstudag.
„Þó er enn laust í næturferð sem
við emm með aðfaranótt föstudags
en farið er frá Eyjum klukkan ell-
efu á fimmtudagskvöldið og frá
Þorlákshöfn hálf þrjú um nóttina,"
sagði Guðfinnur Þór Pálsson hjá
Samskip. „Þessar næturferðir
gáfust vel í fyrra og þó að enn séu
laus sæti geri ég ráð fyrir að það
fyllist í næstu viku. Það er meira
bókað en á sama tíma í fyrra en þá
komu 3500 manns með Herjólfi.“
pAMcy
SiyrtistofaAvorshn
Skólavegi ó
s. 481-3330
FJÖLSÝN
- ömissandi fyrir Eyjamenn!
Askriftarsíminn er 481-1300
MúUwckiUnder'
30 x 35 * 70 cm
VIKUTILBOÐ
14.-20. iúlí
MS Kóko mjólk 6x0,25 Itr
Floridono safar 1 Itr
Floridana sofor % Itr
Tildo poko hrísgrjón 500 gr
SS Tösku tilboð:
10 ss pylsur
+ 10 copri sofar
+papr.stjörnur 190 gr
+ljósahálsmen
+ss glaðningur
Ruslapokagrind
(nauðsynlegt i Þjóðhátíðartjaldið)
4^ vörur á tilboð
Mexicó grísahnakkasneiðar
SS Bratwurstpylsur
Caj p s Lærissneiðar
Cajp ys lambalæri
New Yorkers mínútusteik
Búrfells nautahakk
Verð Nú Áður
299,- 348,-
169,- 198,-
64,- 89,-
199,- 279,-
1199,-1689,-
579,- 789,-
799,-1098,- kr/k<
659,- 828,- kr/ki
1598,-1998,- kr/k<
1269,- 1698,- kr/k<
2379,- 2748,- kr/k,
458,- 538,- kr/ki