Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 14.07.2005, Blaðsíða 16

Fréttir - Eyjafréttir - 14.07.2005, Blaðsíða 16
16 Fréttir / Fimmtudagur 14. jiílf 2005 Anna Kristín Sumarstúlkan 2005 Ljósmyndafyrirsætan er Silja Rós Guðjónsdóttir, Helena Björk Þorsteinsdóttir var vinsælasta stúlkan og Sportstúlkan og Viktoría Guðmundsdóttir er bjartasta brosið Sumarstúlka Vestmannaeyja 2005 var valin á glæsilegri skemmtun í Höllinni á laugar- daginn. Þar fór saman góður undirbúningur, skemmtilegur kynnir, góð þjónusta og matur, góð skemmtiatriði og síðast en ekki síst stórglæsilegar og skemmtilegar stúlkur sem voru eins og kóróna kvöldsins. Þar bar hæst Önnu Kristínu Magnúsdóttur og er hún Sumarstúlka Vestmannaeyja 2005. Sumarstúlka Vestmannaeyja var fyrst valin á Skansinum 1986, síðan hefur aðeins fallið úr eitt ár og var hún því haldin í 19. skiptið í ár. Fyrstu árin átti hún heimili á Skansinum en fór á milli húsa þar til Höllin tók til starfa og hefur hún átt þar heim- ilisfestu síðan. Er Sumarstúlkan enn eins sönnun þess hvað Höllin er mikilvæg fyrir skemmtana- og menningarlíf í Vestmannaeyjum. Fréttir hafa frá upphaii verið framkvæmdaraðili að Sumar- stúlkukeppninni og hafa verið það ásamt Höllinni frá því hún tók til starfa. En það þarf fleiri til og þar skiptir framkvæmda- stjórn miklu máli. Þar hefur lánið lcikið við okkur, allir hafa framkvæmdastjórarnir tekist á við verkefnið af dugnaði og metnaði og var Hjördís Elsa Guðlaugsdóttir engin undan- tekning þar á. Hún fékk ckki langan tíma til að undirbúa kvöldið en hún skilaði því með glæsibrag eins og gestir sáu og heyrðu. Bjarni Olafur Guðmundsson hefur í mörg ár verið kynnir en nú var hann fjarri góðu gamni og kom Jarl Sigurgcirsson í hans stað. Þessi frumraun Jarls kom skemmtilega á óvart, ckki síst þegar hann greip gítarinn og fór fyrir fjöldasöng sem var gott inn- legg í skemmtunina. Rúnar Þór Karlsson stjórnaði tónlist og var stúlkunum innan- handar við undirbúninginn. Dómnefndina skipuðu Sæþór Vídó, Ester Helga Líneyjardóttir formaður, Guðbjörg Guðmanns- dóttir, Bergey Edda Eiríksdóttir og Eva Sveinsdóttir. Þau áttu ekki auðvelt val fyrir höndum því allar eru stúlkurnar stór- glæsilcgar. Sú sem varð fyrir val- inu er Anna Kristín Magnús- dóttir og er hún Sumarstúlka Vestmannaeyja 2005. Ljósmyndafyrirsætan er Silja Rós Guðjónsdóttir og Helena Björk Þorsteinsdóttir var kosin vinsælasta stúlkan af stúlkunum sjálfum og hún var líka valin Sportstúlka Puma 2005. Viktoría Guðmundsdóttir þótti hafa bjartasta brosið. Stúlkurnar sem kepptu í ár eru Guðbjörg Erla Ríkharðsdóttir, Kristín Sjöfn Ómarsdóttir, Silja Rós Guðjónsdóttir, Silvía Björk Birkisdóttir, Viktoría Guðmundsdóttir, Helena Björk Þorsteinsdóttir, Karen Ösp Birgisdóttir, Auður Tinna Hlynsdóttir, Aníta Óðinsdóttir og Anna Kristín Magnúsdóttir. Ilafi allir bestu þakkir fyrir. STÚLKURNAR tíu, Guðbjörg Erla, Kristín Sjöfn, Silja Rós, Silvía Björk, Viktoría, Helena Björk, Karen Ösp, Auður Tinna , Aníta og Anna Kristín. Mynd Halla Einarsdóttir. STÚLKURAR sýndu glæsileg föt frá Axel Ó og Flamingó.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.