Fréttir - Eyjafréttir - 14.07.2005, Síða 6
6
Fféttir / Fimmtudagur 14, júlí 2005
Með tals-
vert magn
af fíkniefnum
Hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum
er það helst að frétta að á föstu-
daginn kom upp nokkuð stórt
fíkniefnamál er varðar sölu og
dreifingu á fíkniefnum. Við eftirlit
lögreglu með komu Herjólfs til
Vestmannaeyja var tvítugur maður
handtekinn vegna gruns um fíkni-
efnamisferli.
Við leit í bifreið hans fannst
talsvert magn af fíkniefnum eða um
402 grömm af hassi, 10 grömm af
amfetamíni og 6 grömm af kókaíni.
Við rannsókn málsins lagði
lögregla hald á meira af fíkniefnum
úr fórum mannsins, 50 e-pillur og
um 20 grömm af amfetamíni.
Rannsókn er ennþá í gangi.
Varð að hætta
við lendingu
-vegna manns á flugbraut
A þriðjudaginn í síðustu viku fékk
lögregla tilkynningu frá flugturn-
inum að maður væri á gangi innan
öryggissvæðis vallarins og hefði
flugvél þurft að hætta við lendingu
vegna þessa.
Tók maður þessi ekki tiltali flug-
vallarstarfsmanna og var lögregla
því kölluð til. Það á ekki að þurfa
að taka það fram að það er strang-
lega bannað að fara inn fyrir girð-
ingamar í kringum flugvöllinn en
þær marka öryggissvæðið. Með
því að fara inn á öryggissvæðið er
fólk að stefna flugvélum og sjálfum
sér í hættu.
Hver stal gull-
fiskunum?
Á laugardag var hringt í lögreglu
og kærður þjófnaður á gullfiskum
er voru í tjörn í bakgarði að
Birkihlíð 9.
Ekki er vitað hver var þama að
verki en þeir sem geta veitt ein-
hverjar upplýsingar varðandi málið
era vinsamlega beðnir að hafa sam-
band við lögreglu.
Arctic Biology, námskeið í samstarfi Rannsókna-
setursins, HÍ og Háskólans í Minnesota:
Sprettfiskar og hraunbombur
HÓPURINN kom saman og kveikti varðeld.
Undanfarin níu ár hafa bandarískir
háskólanemar komið árlega til Eyja
til að vinna að líffræði- og jarðfræði
verkefnum í tengslum við nám-
skeiðið Arctic Biology. Nám-
skeiðið stendur yfir í sex vikur en í
Eyjum dvelja nemendurnir í fimm
daga eða frá miðvikudegi til sunnu-
dags. Námskeiðið er sam-
starfsverkefni milli Háskóla íslands
og Háskólans í Minnesota ásamt því
að Rannsóknasetur Vestmannaeyja
heldur utan um verkfnið hér í
Eyjum.
I ár tóku tíu nemendur þátt í
verkefninu og þar af voru tveir
jarðfræðinemar og átta líffræðinem-
ar. Nemendunum íylgdu tveir kenn-
arar frá Háskóla Islands, þau Lísa
Anna Libungan og Snæbjöm Páls-
son. Að sögn Páls Marvins Jóns-
sonar, forstöðumanns Rannsókna-
setursins gekk vinnan vel hér í
Eyjum. Hópamir geta verið mjög
misjafnir og er hópurinn í ár frekar
fámennur en krakkarnir áhugasamir
og viljugir að læra.
I upphafi dvalarinnar hér í Eyjum
leit út fyrir að veðrið yrði til vand-
ræða en sem betur fer rættist úr því.
f Eyjum eru krakkarnir að vinna að
eigin verkefnum sem þýðir að þau
þurfa fara um eyjuna og safna
sýnum og síðan að vinna úr þeim á
kvöldin.
Verkefnin í ár fjölluðu um líffræði
sprettfiska, áhrif mengunar á snigla
í höfninni í Vestmannaeyjum, bú-
svæði lundans og hraunbombur í
Eldfelli. Eins og áður sagði var
hópurinn í ár frekar fámennur en
hópnum fylgdi starfsmaður frá
Minnesóta háskóla sem var að
LUNDAHÓPURINN að setja upp búnað til þess að mæla jarðvegs-
halla í lundabyggð í Stórhöfða.
AUÐUNN Herjólfsson, starfsmaður Setursins, fór með hópinn í sigl-
ingu inn í Klettsvík.
kynna sér aðstæður og umfang nám-
skeiðsins í þeim tilgangi að reyna að
fjölga þátttakendum á næsta ári.
Aðstaðan í Eyjum er mjög góð
fyrir þessa vinnu enda er nálægðin
við náttúruna hvergi meiri og að-
staðan í Rannsóknasetrinu góð fyrir
hópa af þessari stærð. Samkvæmt
Páli þá er verið að vinna að því að fá
fleiri námshópa til Eyja og er von á
hópi frá Jarð- og landafræðiskori HI
í byrjun október.
Getur þú valdið vettlingi?
Þá vantar okkur þína aðstoð
Við byrjum í kvöld á framkvæmdum í
Dalnum og verðum að alla helgina.
Allir velkomnir
Þjóhátíðarnefnd
r í kvöld kl. 1 8.00
IBV - B36
miðaverð kr. 1000,- ( ATH takmarkað framboð miða)
Eyjamenn, Eyjakonur og börn
fjölmennið á völlinn og sjáið
okkar menn etja kappi við
frændur vora frá Færeyjum.
Áfram ÍBV
Hreimur og Vignir
semja þjóhátíðarlagið
Það kom í hlut Hreims Heimissonar,
úr Landi og sonum og Vignis Vig-
fússonar, úr Irafári að semja þjóð-
hátíðarlagið 2005. Alls bárust
Þjóðhátíðarnefnd 23 tillögur að
þjóðhátíðarlagi en að mati nefndar-
innar heillaði ekkert þeirra. Lagið
verður kynnt á morgun, föstudag.
„Við auglýstum eftir tillögum að
Þjóðhátíðarlagi og okkur bárust
rúmar tuttugu tillögur. Því miður
gekk illa að ná samkomulagi um
einhverja af þessum tillögum, því
var gripið til þess ráðs að fá Hreim
og Vigni til þess að setja fram til-
lögu sem var í framhaldinu sam-
þykkt. Þjóðhátíðarlag er mikilvæg-
ur hlekkur í markaðssetningu Þjóð-
hátíðar og þar af leiðandi Vest-
mannaeyja. Hún er því rík ábyrgðin
sem sett er á þá sem lagið velja og
það er fráleitt að halda því fram að
einhver önnur sjónarmið ráði við
val á laginu en þau að reyna eftir
fremsta megni að tryggja góðan
árangur.
Eg ætla ekki að leyna minni
skoðun á því hvernig ég tel best að
framkvæma þetta, það er að velja
hæfan höfund og gefa honum góðan
tíma til að klára verkefnið. Eg tel að
í því fælist áskoran á höfund og
ávinningurinn getur verið umtals-
verður takist vel til, þá bæði fyrir
höfundinn og Vestmannaeyjar.
Þetta er ekkert nýtt, Oddgeir og
Ási gerðu þetta í mörg ár með ágæt-
um árangri. En ég vil nota þetta
tækfæri og þakka öllu því ágæta
fólki sem sendi til okkar tillögur, í
þeim vora margir skemmtilegir text-
ar og nokkur góð lög, því miður
fannst okkur þessir þættir ekki alltaf
falla saman,“ sagði Páll.
• •
Olvunar-
akstur og
fleiri um-
ferðarbrot
Einn ölvunarakstur kom upp í
vikunni. Er þetta tólfti ölvunar-
aksturinn sem kemur upp á þessu
ári og er það talsvert yfír meðallagi.
Veldur þessi fjölgun lögreglu
nokkrum áhyggjum því það getur
valdið stórhættu að aka undir áhrif-
um áfengis. Hvetur lögregla fólk
lil að sýna skynsemi og skilja
bifreiðina eftir þegar það er búið að
drekka áfengi, þó það hafi verið í
litlu magni.
Á mánudagskvöld var lögreglu
tilkynnt um þjófnað á bifreið.
Bifreiðin fannst fljótlega og var
hún óskemmd. Þeir sem geta gefið
upplýsingar um hver tók bifreiðina
eru vinsamlega beðnir að hafa sam-
band við lögreglu.
Af umferðinni er það helst að
frétta að tilkynnt var um þrjú
umferðaróhöpp. Var fyrsta óhappið
með þeim hætti að ökumaður, sem
ók suður Friðarhöfn, missti stjóm á
bifreið sinni með þeim afleiðingum
að hún hafnaði á vegg. Skemmdir
urðu bæði á bifreiðinni og veggn-
um.
Annað óhappið varð með þeim
hætti að ekið var á mannlausa
bifreið á Áshamri. Sá er ók á
mannlausu bifreiðina var í tíma-
þröng og ók á brott af vettvangi og
braut þá skyldu sem hvílir á þeim
sem lenda í umferðaróhappi að
stöðva og gefa upplýsingar um sig.
Vitað er hver hann er.
í þriðja óhappinu var einnig
stungið af eftir að ekið hafði verið
utan í bifreið. Þegar lögregla ræddi
við þann er olli óhappinu kom í ljós
að hann hafði ekki gert sér grein
fyrir því að hann hefði ekið utan í
aðra bifreið. Telst málið upplýst.
Ökumaður var kærður fyrir að
nota ekki öryggisbelti og annar var
kærður fyrir brot á stöðvunarskyldu
og vera að aka með útrunnið
ökuskírteini.
Tilkynnt var um skemmdir á
bifreið sem var kyrrstæð á bif-
reiðastæði við golfskálann. Þarna
hafði golfari, sem var á æfmga-
svæðinu, hitt boltann illa með þeim
afleiðingum að boltinn lenti í
bifreiðinni.