Fréttir - Eyjafréttir - 14.07.2005, Blaðsíða 8
8
FfCttÍr / Fimmtudagur 14, júli' 2005
Styrmir og Sveinn sigurvegarar á Volcano Open:
Stærsta Volcano Open golfmólið til
þessa var haldið um næstsíðustu
helgi. Þetta mót hefur verið haldið
í rúman áratug og þátttaka oftast
góð en að þessu sinni má segja að
það hafi virkilega sprungið út.
Þátttakendur voru 112 talsins og
ekki hægt að koma fleirum að með
því fyrirkomulagi sem spilað er
eftir, þ.e. að allir eru ræstir út í einu
á öllum brautum vallarins. Nokkuð
ljóst er að það fyrirkomulag verður
tæplega hægt að nota á næsta ári
þar sem vonir standa til að fjölga
enn frekar í þessu móti sem hefur
fengið öflugan bakhjarl og heitir nú
Icelandair Volcano Open. Með
fulltingi Icelandair er stefnt að því
að fá enn fleiri útlendinga til þátt-
töku í þessu sérstæða móti.
Reyndar afboðuðu um 20 kylf-
ingar ofan af fastalandinu þátttöku
sína vegna óhagstæðrar veðurspár
fyrir helgina og er slíkt framferði
nokkuð sem alvöru kylfmgar gera
ekki. Aftur á móti var biðlisti það
langur að engin vandræði voru að
fylla þau skörð. Verra var að 16
þessara kylfmga höfðu pantað her-
bergi á gistiheimili og létu vita á
fimmtudag að ekkert yrði af gist-
ingu þeirra.
Af þessum 112 kylfingum f mót-
inu var rúmlega þriðjungur frá GV
en alls komu keppendur frá 13
golfklúbbum á landinu og auk þess
frá Hollandi, Þýskalandi, Frakk-
landi og Skotlandi.
Þetta var tveggja daga mót,
punktakeppni, leiknar 18 holur á
föstudag og 18 á laugardag. Veður
hefði mátt vera betra á föstu-
deginum, suðvestan strekkingur og
gekk á með rigningarhryðjum. En
á laugardag var hið besta veður,
sólskin og hægur andvari með ein-
staka skúr.
Úrslit
Keppt var í tveimur forgjafar-
flokkum, annars vegar forgjöf frá
0 - 14,4 og hins vegar forgjöf frá
14,5 - 28 sem var hæsta forgjöf sem
gefin var. Úrslit urðu þessi í flokki
14,5-28:
1. Sveinn Halldórsson GV 66 p.
2. Gunnar K Gunnars. GV 64 p.
3. Guðm. Þóroddsson NK 63 p.
f forgjafarflokki 0- 14,4 urðu úrslit
þessi:
1. Styrmir Jóhannsson GV 79 p.
2. Birkir ívar Guðm. GK 77 p.
3. Steindór Ingi Hall NK 73 p.
Fyrstu verðlaun í báðum flokkum
voru flug til Evrópu fyrir tvo með
Icelandair, 2. verðlaun flug til
Evrópu fyrir einn með Icelandair og
þriðju verðlaun voru flug til og frá
Bakka með Flugfélagi Vestmanna-
eyja, gisting í tvær nætur á Hótel
Þórshamri og tveir hringir í golfi á
vellinum í Eyjum.
Sérstök verðlaun voru veitt fyrir
besta skor án forgjafar og hlaut þau
Júlíus Hallgrímsson GV með 143
högg brúttó báða dagana. Þá voru
einnig veitt sérstök kvennaverðlaun
þeim fimm konum sem höfðu besta
skor á laugardag og var þar efst
Guðrún Kristín Sigurgeirsdóttir GV
með 32 punkta.
Þá voru veitt verðlaun fyrir að vera
næstur holu á öllum par þrjú
brautum á laugardag. Talsverð
spenna ríkti í mótinu um það hvort
einhverjum tækist að fara holu í
höggi á 17. braut þar sem sá hlyti að
launum 50 utanlandsferðir frá Ice-
landair. Engum tókst það, sá sem
næstur var holunni á 17. braut var
2,35 m frá.
En sá sem næstur var því að fara
holu í höggi á mótinu var Gunnar
Hilmarsson GO, sem var aðeins 10
cm frá holunni á 2. braut.
Lokahóf Volcano Open er ávallt
mjög sérstakt. Boðið er upp á sjáv-
arréttahlaðborð sem Tómas Sveins-
son, matreiðslumeistari sér um. Að
þessu sinni var boðið upp á 14
tegundir af fiskmeti þar sem hver
rétturinn var öðrum betri. Á föstu-
dagskvöld hefur aftur á móti skap-
ast sú hefð að kylfingum er boðið
upp á reyktan lunda og staup af
íslensku brennivíni að leik loknum.
Þetta Volcano Open mót var, eins
og áður er sagt, hið fjölmennasta til
þessa, langstærsta opna mótið sem
haldið er í Eyjum og virðist nú vera
komið í alvöru inn á kortið enda er
búist við enn meiri þátttöku á næsta
ári. Almenn ánægja var meðal
kylfinga með framkvæmd þess ef
frá eru skildir einstaka hnökrar á
borð við það að ekki skuli vera bann
við notkun farsíma á vellinum.
Slíkt er bannað í öllum alvörumót-
um í dag og varðar frávísun úr móti
að nota slík tól þegar leikur er
hafinn. Því miður voru þess dæmi í
þessu móti að verið var að hringja í
keppendur og þeir sjálfir að hringja
úr sínum símum úti á velli. Þetta er
að sjálfsögðu rakinn dónaskapur og
tillitsleysi við aðra keppendur og á
ekki að þekkjast í mótum. Vonandi
verður því kippt í liðinn fyrir næsta
mót, þannig að smáatriði á borð við
þetta komi ekki til með að setja blett
á annars frábært mót.
Sigurg.
TAMARA í góðum höndum, Hörður Óskarsson, Tamara, Gunnlaugur Grettisson og Jón Svan Sigurðsson. Það var ekki síst umhverfi vallarins
sem henni fannst athyglisvert.
Tamara Kruýsheer, blaðamaður frá Hollandi:
Féll gjörsamlega fyrir vellinum
Unnið hefur verið markvisst að því
að koma golfvellinum í Vest-
mannaeyjum á kortið á alþjóðlegum
vettvangi og er Volcano open einn
liður í þeirri viðleitni. Það hefur
borið nokkurn árangur og að þessu
sinni voru 10 erlendir keppendur og
í þeirra hópi voru blaðamenn frá
bæði Hollandi og Þýskalandi.
Tamara Kruýsheer, frá hollenska
blaðinu Equipe Golf, lét sig ekki
muna um að taka þátt í Volcano
Open þó ferillinn sé ekki langur.
„Eg er með 29,7 í forgjöf," sagði
Tamara hlæjandi þegar hún var
spurð hvar hún stæði í hinni göfugu
eðalíþrótt, golfinu. „Ég er búin að
spila golf í fjögur ár og það eru tvö
ár síðan ég fór að taka þátt í
rnótum," bætti hún við.
Útgáfufyrirtækið heitir Amateur
Golf Krant og það gefur út blöð og
bækur um nánast allt sem lýtur að
golfi. „I allt hefur það gefið út um
40 bækur þar sem má finna bækur
um reglur í golfi, kennslubækur svo
eitthvað sé nefnt og svo blaðið
Equipe Golf. Það er ætlað áhuga-
sömum golfurum sem fara á milli
valla en vilja líka skoða það sem
staðirnir hafa upp á að bjóða. Það
má nefna atriði eins og mat og mat-
sölustaði, menningu, náttúru og
annað sem getur talist athyglisvert
að sjá og skoða. Sem sagt, Equipe
Golf er fyrir áhugasama golfara sem
vilja gera meira en bara spila golf.“
Tamara segist ekki hafa getað stað-
ist mátið þegar henni bauðst tæki-
færi á að koma til Islands og heim-
sækja Vestmannaeyjar. „Það var
sölufulltrúi Icelandair sem bauð
mér en allir sem vilja vekja athygli
Hollendinga á golfi og golfvöllum
leita til okkar. Þess vegna er ég
hingað komin."
Þegar Tamara er spurð hvað henni
finnist standa upp úr eftir reynslu
sína af vellinum kom í Ijós að henni
fannst lítið til koma í upphafi.
„Þegar farið var með okkur í útsýn-
isferð og völlurinn skoðaður fannst
mér hann bara vera eins og hvert
annað tún. Það er vegna þess að ég
er vön trjám á og í kringum golf-
velli. En þegar ég byrjaði að spila
féll ég gjörsamlega fyrir vellinum
sem hefur allt upp á að bjóða og
ekki síður umhverfið," sagði
Tamara.
Þegar hnykkt var á því hvað henni
þætti athyglisverðast nefndi hún
einstaka staðsetningu í 5000 ára
gömlum gíg. „Það besta er nálægðin
POPPIÐ og skákin. Þeir voru mættir á Volcano Open, Eyjólfur
Kristjánsson söngvari og Helgi Olafsson stórmeistari í skákinni.
við sjóinn og svo fjöllin sem eru svo
einstakur rammi um þetta allt
saman. Það var líka mjög alþjóðlegt
yfirbragð á mótinu og fólkið indælt.
Ég held að það verði ekki erfitt að fá
Hollendinga til að koma hingað."
Tamöru, sem fékk að kynnast ís-
lensku sumarveðri í allri sinni fjöl-
breytni, fannst það sérstakt að spila
golf fram undir miðnætti eins og
gert var á föstudeginum. „Við klár-
uðum ekki fyrr en um hálf tólf og þá
var ég orðin ansi þreytt. Veðrið var
lfka leiðinlegt en það sem gerði
þetta áhugvert er að við vorum að
spila í ágætri birtu þó komið væri
fram undir miðnætti. Hér hef ég
upplifað allar tegundir af veðri
nema hagl og snjókomu en að enda
í sól og blíðu, eins og verið hefur í
dag, gerir ferðina til Vestmannaeyja
mjög eftirminnilega," sagði Tamara
þegar hún hafði nýlokið leik á
laugardeginum.
Er að vinna sér alþjóðlegan sess