Fréttir - Eyjafréttir - 14.07.2005, Qupperneq 9
Ffgttir / Fimmtudagur 14. júlf 2005
9
Beint frá Portúgal á Volcano Open
Andrea Loebb kom frá Miinchen í Þýskalandi en hún vinnur fyrir Golfstyle International sem er selt í
Austurríki og Sviss auk Þýskalands. Hún sagði sína farir ekki sléttar af viðureign sinni við íslenskt sumar-
veður á föstudeginum. „Mér var orðið hræðilega kalt enda viðbrigðin mikil því ég kom beint frá Portúgal
þar sem ég var að spila golf í 35 stiga hita,“ sagði Andrea.
„Já, ég var gráti nær og treysti mér ekki til að klára hringinn en veðrið í dag hefur heldur betur bætt þetta
upp. Völlurinn er frábær og umhverfið einstakt og ég ætla að skrifa um ferðina hingað eins og ég upplifði
þetta í dag,“ sagði Andrea sem býst ekki við að grein hennar komi á prent fyrr en á næsta ári. „Það hefur
engan tilgang að gera það þegar svona langt er liðið á tímabilið.“
A myndinni er Andrea að skála við GV-arann Gunnlaug Axelsson.
KEPPENDUR fengu að kynnast íslensku sumarveðri í flestum
tilbrigðum en á Iaugardeginum skörtuðu Eyjarnar sínu fegursta í
björtu og stilltu veðri og það kunnu þeir að meta. Hér sést Lúðvík
Bergvinsson, alþingismaður, pútta á þriðju.
Gunnlaugur Grettisson:
Höldum ótrauðir áfram
Gunnlaugar Grettisson, stjórnarmaður
í GV, sagðist ekki geta verið annað en
ánægður með hvemig til tókst á
Volcano Open og samstarfið við
Icelandair ætti eftir að skila sér í fleiri
erlendum þátttakendum á komandi
árum.
„Mótið sjálft tókst gífurlega vel þrátt
fyrir að veðrið hafi verið okkur erfitt á
föstudeginum," sagði Gunnlaugur.
„En veðrið á laugardeginum var
stórkostlegt og það á eftir að hjálpa
okkur. Þarna voru átta útlendingar frá
Frakklandi, Hollandi og Þýskalandi og
voru blaðamenn í þeirra hópi. Þeir
hreinlega göptu yfir umhverfinu og
gleymdu golfinu sem er sama til-
finning og ég fékk þegar ég kom fyrst
til Vestmannaeyja til að spila golf. Við
vissum fyrir að golfvöllurinn í
Vestmannaeyjum er einn af bestu völl-
um landsins og þó víðar væri leitað og
það sem gerðist á Volcano Open er að
við fengum staðfestingu á þessari
vissu okkar.“
Gunnlaugur segir að sú spurning hafi
komið upp hvort rétt sé að vera með
mótið sömu helgina og goslokaaf-
mælið því með aukinni aðsókn geti
orðið erfitt með gistingu. „En fólk
kemur ekki um langan veg, bara til að
spila golf, það vill kynnast mannlífinu
og því sem staðirnir hafa upp á að
bjóða. Eftir glæsilega veislu hjá okkur
var haldið í Skvísusundið sem var
mikil upplifun fyrir gestina og eins og
punkturinn yfir i-ið. Eg held því að
við munu halda ótrauðir áfram á
þessari braut og halda okkur við fyrstu
helgina í júlí.“
Icelandair er aðalstyrktaraðili
Volcano Open sem Gunnlaugur segir
að skipti miklu máli í að kynna mótið
erlendis. „Þeir lögðu líka til stórglæsi-
leg verðlaun þar sem voru m.a. 50
utanlandsferðir fyrir holu í höggi á 17.
Því miður náðist það ekki núna en
kannski verður það á næsta ári.“
tóniístar- & umh
éftír 5 va
söguövíð ~[ yrlaarán
.sgjörnmgu
dii & féiaga
gert ljósiífand
rumfiuttníngur í hlöðunní í C)aiab ú í n u
- iaugardagínn 1 6. júií n.L ki. 1 J,)0 -
allír velkomnír á meðan kúsrúm ieufír -
- aðgjangseurí aðeíns kr. 'ýOO -