Harmoníkan - 01.10.2000, Side 11
Rofar til í
kannslumálum
Rússneskur kennari til fikraness.
Hver gleðifregnin rekur nú aðra í
kennslumálum harmonikuunnenda. Tón-
listarskóli Akranes hefur ráðið til sín
rússneskan kennara. Hann er enginn ann-
ar en Yuri Fjodorov tvíburabróðir Vadim
Fjodorov, sem kennt hefur á Isafirði við
góðan orðstír. Yuri kom til landsins
(fimmtudaginn) 5. október og hóf
kennslu fljótlega eftir komuna til lands-
ins. Hann hefur verið ráðinn til tónlista-
skólans í vetur, en mun jafnframt kenna
að hluta til í Reykjavík. Þó ekki sé meira
sagt. er fyrir séð að hér er eitthvað að
gerast, sem hefur skort á í kennslumálum
hérlendis. Vonandi verður þetta hvatning
fyrir ýmsa aðra sem standa í líkum spor-
um víðar um land. Blaðið hefur og fregn-
að að Vadim leggi áherslu á að nemend-
urnir skipti úr píanóharmoniku til
hnappa. Ekki er ólfklegt að bróðirinn hafi
líkar skoðanir. Þessir náungar hljóta Ifka
að vita hvað þeir eru að gera.
Harmonikan óskar tónlistarskóla
Akraness til hamingju ineð þessa ákvörð-
un. Skólastjóri er Lárus Sighvatsson.
Viðtal við Yuri og Vadim er í 3. tbl.
Harmonikunnar 1999-2000
Yuri Fjodorov kennir nú á Akranesi og
í Reykjavík.
Karlakórinn Hrcimur til þýskalands
Við upplifðum einkar eftirminnilega stund í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði fyrir rúmu ári síðan, þegar Karlakórinn Hreimur í
Suður Þingeyjarsýslu hélt þar tónleika skömmu fyrir tónleikaferð til Þýskalands. Kórar hafa jafnan mikið aðdráttarafl og í
þetta sinn kom það berlega í
Ijós, því hvert sæti var skipað
og ríflega það. Dagskrá kórs-
ins var hrífandi og verulega
ánægjuleg. Myndin sem hér
fylgir af hluta kórsins, er tekin
hjá vínbónda í Moseldal um
páskana 1999 er kórinn var í
umræddri ferð. Aðalsteinn Is-
fjörð lék með kórnum í
nokkrum lögum m.a. eigið lag
„ í Asbyrgi „ sem Þorgrímur
Björnsson formaður H.F.Þ.
samdi textann við. Að sögn
heimildamanns var ferðin
einkar skemmtileg og gerði
kórinn mikla lukku. Aðal-
steinn lék einnig fyrir dansi
við nokkur tækifæri. A mynd-
inni standa þeir fremstir með
kórfélögunum, Aðalsteinn Is-
fjörð og Þorgrímur Björnsson,
á hlaði vínbóndans.
H.H.
11